Fréttablaðið - 23.12.2021, Page 2

Fréttablaðið - 23.12.2021, Page 2
Það er eins og leik­ skólinn sé að einhverju leyti hugsaður bara sem þjónusta við foreldra og atvinnulíf. Anna Margrét Ólafsdóttir, leik- skólastjóri Bókin árituð Guðmundur Felix Grétarsson nýtur lífsins hér á landi í fyrsta sinn eftir að hann fékk grædda á sig handleggi í aðgerð í Frakklandi í upphafi árs. Hann kom við á ritstjórnarskrifstofu Torgs og áritaði bókina sína, 11 þúsund volt, fyrir Erlu Hlynsdóttur, fréttastjóra DV, sem skrásetti sögu hans. Frönsk sjónvarpsstöð fylgir Guðmundi Felix hvert fótmál og birtist frétt Valérie Benais um ævintýri hans hér á landi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Fæstir starfsmenn á leik- skólum hafa fengið örvunar- skammt. Smithætta mjög mikil innan leikskólanna. Starfsfólkið nálægt uppgjöf, að sögn leikskólastjóra. bth@frettabladid.is COVID-19 Mikil óánægja er meðal leikskólakennara með þá mis- munun sem leikskólakennarar upp- lifa að gerð sé á leikskólastiginu og öðrum skólastigum vegna Covid. Krafa er uppi um að leikskólum verði lokað milli jóla og nýárs. „Það logar allt,“ segir Anna Mar- grét Ólafsdóttir, leikskólastjóri á Nóaborg í Reykjavík. Hún segist vilja hrósa borginni fyrir að bjóða foreldrum með fram- lengdum fresti, upp á niðurfellingu gjalda milli jóla og nýárs, ef hægt sé að hafa börnin heima. Aftur á móti hefði hún kosið að leikskólum væri lokað milli jóla og nýárs, nema fyrir börn foreldra sem sinna fram- línustörfum, eða eru í sérstökum aðstæðum. „Það er eins og leikskólinn sé að einhverju leyti hugsaður bara sem þjónusta við foreldra og atvinnu- líf, nema á tyllidögum,“ segir Anna Margrét. Hún segir að leikskólastarfsfólk eigi skilið fálkaorðuna, fyrir að standa vaktina undir ofurálagi. En margir hafi gefist upp. Hætta sé á frekari atgervisf lótta. Sem dæmi hafi sumir leikskólakennarar fært sig yfir í grunnskólana, þar sem aðstæður séu mun manneskjulegri. Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla hafa sent frá sér sameiginlega ályktun, um að engin haldbær sóttvarnarök séu fyrir því að loka ekki leikskólum. „Það er staðreynd að útilokað er að gæta að sóttvörnum milli barna á leik- skólastiginu og nánd milli kennara og barna er miklu meiri en á öðrum skólastigum," segir í ályktuninni. Anna Margrét segir að hafa verði í huga að fæstir í hópi leikskólastarfs- fólks hafi fengið örvunarskammt. Flestir starfsmenn séu algjörlega óvarðir. Foreldrar eiga ekki að þurfa að upplifa samviskubit yfir að koma með börn í leikskólann milli jóla og nýárs, en yfirvöld verði að setja miklu skýrari ramma. „Ég er núna með helming míns starfsfólks í sóttkví og stóran hóp af börnum. Covid er alvarlegt, af því að við vitum aldrei hver veikist alvarlega. Sum börn verða líka mjög lasin,“ segir Anna Margrét. „Út af þessu virðingarleysi hugsa margir starfsmenn: Er þetta þess virði? Leikskólar mega ekki við því að missa fleira fólk úr starfi.“ n Vilja að leikskólunum verði lokað milli jóla og nýárs Anna Margrét Ólafsdóttir leikskólastjóri vill að leikskólar verði lokaðir milli jóla og nýárs nema fyrir takmarkaðan hóp. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI benediktboas@frettabladid.is COVID-19 Væri dánartíðnin af völd- um Covid-19 á Íslandi sambærileg við dánartíðnina í Svíþjóð, má gera ráð fyrir að hátt í 520 manns hefðu látist hér á landi frá upphafi farald- ursins. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum talnabrunni Embættis landlæknis, þar sem vitnað er í nýja skýrslu Efnahags- og framfarastofn- unarinnar, OECD, sem gaf nýlega út ritið Health at a Glance. Þar segir að í lok júní hafi uppsafnaður fjöldi andláta af völdum Covid-19 verið 1.285 að meðaltali á hverja milljón íbúa í OECD löndunum. Hæst var tíðnin í Ungverjalandi en lægst á Nýja-Sjálandi. Sé litið til Norðurlandanna hafa f lestir látist af völdum Covid-19 í Svíþjóð, eða 1.420 á hverja milljón íbúa, en lægst er tíðnin á Íslandi, 82 á hverja millj- ón íbúa. n Hundruð látist hefði sænska leiðin verið valin 520 Íslendingar væru látnir úr Covid­19 ef dánar­ tíðnin væri sú sama og í Svíþjóð. Jarðhræringar eru við Fagradalsfjall. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR hjorvaro@frettabladid.is NÁTTÚRA Skjálftahrina hófst við Fagradalsfjall á þriðjudagskvöldið en Þorvaldur Þórðarson eldfjalla- fræðingur segir þessa virkni sýna að erfitt sé að segja til um hvenær lýsa eigi yfir goslokum. „Þessi skjálftavirkni á rót sína að rekja til þess að sú kvika sem hefur safnast fyrir á um sex til sjö kílómetra dýpi er á mörkum brot- gjarna og stökka hluta skorpunnar. Það skapar þrýsting og sá þrýstingur er byrjaður að brjóta neðsta hluta stökku skorpunnar. Mögulegt er að þetta kviku- hlaup endi með því að stökki hlut- inn muni bresta og eldgos hefjist á nýjan leik. Hvenær og hvort það muni gerast er hins vegar ómögu- legt að segja til um,“ segir Þorvaldur. Þegar gjósa fór í mars fyrr á þessu ári á svæðinu, liðu þrjár vikur frá fyrstu skjálftahrinunum þar til eld- gos hófst. Ekkert hraunflæði hefur verið í síðustu þrjá mánuði rúma. „Þessi atburðarás kennir okkur að það er erfitt að lýsa yfir endalokum eldgoss. Þar sem af hleðsla kviku hefur einu sinni átt sér stað getur það gerst aftur hvenær sem er,“ segir eldfjallafræðingurinn. n Kennir okkur að fara þarf varlega í yfirlýsingum um endalok eldgosa 2 Fréttir 23. desember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.