Fréttablaðið - 23.12.2021, Side 10

Fréttablaðið - 23.12.2021, Side 10
Á AÐ SKELLA SÉR Í BREKKURNAR Í JÓLAFRÍINU? AF SKÍÐAPÖKKUM FRAM AÐ JÓLUM *Afsláttur gildir ekki með öðrum tilboðum Sjónvarpsþátturinn Mark- aðurinn var sýndur á Hring- braut í gærkvöldi. Gestur þáttarins var Bjarni Bene- diktsson fjármálaráðherra. Rætt var um sóttvarnaað- gerðir, kjaramál og fjárlögin. magdalena@frettabladid.is Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra segir að ekki sé víst að sótt- varnaaðgerðirnar sem nú eru, verði langvarandi ástand. Þetta sagði hann í sjónvarpsþættinum Markaðnum, sem sýndur var í gær klukkan 19.00 á Hringbraut. Aðspurður hvort til- koma Omíkron afbrigðisins, með til- heyrandi sóttvarnaaðgerðum, muni hafa það í för með sér að tekjur rík- isins verði minni heldur en gert var ráð fyrir í fjárlagaáætlun, segir Bjarni að hann voni að ástandið muni ekki vara svo lengi. „Ég veit ekki hvaða áhrif þetta mun hafa. Ég vona að þetta verði ekki mjög langvarandi ástand. Maður bindur vonir við að þar sem þessi veira smitast hraðar, þá komi í ljós að fólk verði ekki jafn veikt og þá getur verið að við séum að sjá upphafið að endanum,“ segir Bjarni og bendir á að það sé þó staðreynd að ef veiran taki yfir allt og lami stóran hluta af starfsemi, muni það birtast í tekjum ríkisins. „Ef það verður raunin þá mun það birtast í tekjum ríkisins, en einnig á gjaldahliðinni og mun birtast í breyttri af komu. En ég trúi ekki að það muni raungerast og hef enga ástæðu til að telja að það verði niðurstaðan. Ef aftur á móti þetta gengur hratt yfir, þá er ég fullviss um að íslenskt efnahags- líf muni taka hratt við sér. Ég hef til að mynda gríðarlega trú á ferða- þjónustunni og er einnig bjartsýnn fyrir hönd annarra geira.“ Í þættinum var einnig rætt um kjaramál, en kjarasamningar eru lausir á næsta ári og forystumenn verkalýðshreyf ingarinnar hafa gefið það út að þeir muni sækja launahækkanir í tengslum við hagvaxtaraukann og forsvars- menn atvinnulífsins hafa sagt að svigrúm til launahækkana sé ekki mikið. Aðspurður hvort hann telji að komandi kjaraviðræður verði erfiðar, eða hvort hann telji að breið samstaða náist, segir Bjarni að þessar lotur séu almennt snúnar og erfiðar. „Það leiðir meðal annars af því hversu margbrotin lotan er. Þetta eru svo margir samningar sem þarf að loka. Þannig að fyrir þær sakir þá verður þetta alltaf dálítið snúið, en ég held að það sem er áhugavert í aðdraganda kjarasamninga sé að við erum með önnur viðfangsefni nú heldur en við höfum verið með,“ segir Bjarni og bætir við að áður höfum við verið með tímabil þar sem skuldir heimilanna hafi verið sérstakt áhyggjuefni og áður hafi vextir verið tiltölulega háir og krafan um lækkun á vöxtum verið hávær. „Auðvitað er alltaf undirliggj- andi krafa um vaxandi kaupmátt og það hefur verið vöxtur í kaup- mætti á undanförnum árum. Við höfum áhyggjur af verðbólgunni sem hefur verið að mælast um 5 prósent og veltum fyrir okkur leiðum til að stemma stigu við henni.“ Hann bætir við að kjarasamn- ingarnir sjálfir geti haft áhrif á það hvernig verðbólgan þróast. „Það er mikilvægt að styðja Seðlabankann í að halda aftur af vexti verðbólgunnar, en kjara- samningsaðilar verða líka að spyrja sig hvaða lóð þeir geti lagt á vogar- skálarnar. Þetta samtal er rétt að hefjast og það kann að vera að það séu atriði í stjórnarsáttmálanum sem geti ýtt undir farsæla kjara- samningsgerð. En það er langbest að koma inn í svona lotur bjart- sýnn um að niðurstaðan geti verið góð fyrir alla.“ n Fullviss um að íslenskt efnahagslíf muni taka fremur hratt við sér Kjarasamningsaðilar verða líka að spyrja sig hvaða lóð þeir geta lagt á vogarskálarnar … Kjarasamningarnir sjálfir geta haft áhrif á það hvernig verð- bólgan þróast. Bjarni Bene­ diktsson segir að ekki sé víst að sóttvarna­ aðgerðirnar verði lang­ varandi ástand. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR 10 Fréttir 23. desember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 23. desember 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.