Fréttablaðið - 23.12.2021, Síða 17

Fréttablaðið - 23.12.2021, Síða 17
Messa heilags Þorláks að vetri markar lok jólaföstu. Lengst af á minni tíð var þessi dagur versl- unarhátíð ársins. Nú hefur svartur fössari fyrir jólaföstu tekið við því hlutverki. Um miðaftan á morgun gengur svo í garð stærsta andlega hátíð ársins. Hver nýtur hennar að sínum hætti. Undarlegt sambland Allir eru þessir dagar undarlegt sambland andlegra og verald- legra verðmæta. Um leið eru þeir áminning um hversu slungið það er að vefa þessi verðmæti í einn vef svo vel fari. Sumir fagna hækkandi sól. Aðrir fagna fæðingu frelsarans. Og svo eru þeir mörgu sem fagna hvoru tveggja. En einhverjir hafa þó ekki eða finna ekki tilefni til að gleðjast. Við eigum þjóðkirkju, sem nýtur verndar samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins og ýmis minni trú- og lífsskoðunarfélög. Kirkjan er þó meira en bara trúfélag. Hún hefur líka í gegnum tíðina verið menn- ingarleg kjölfesta. Vald og kirkja Í f lóknu samfélagi nútímans þarf kirkjan að hafa meira fyrir hlut- unum en áður þegar samfélags- vefurinn var einfaldari: Bændur, embættismenn erlends valds og klerkar kirkjunnar. Kirkjan hefur löngum verið tengd valdinu. Við tókum við trúnni á Alþingi, en að baki var krafa erlends konungsvalds. Siðaskiptin fóru líka fram með valdboði. Loks fékk hún sess í stjórnarskrá. Sagan kennir okkur hvernig vald getur spillt. Og það hefur gerst í sambúð ríkisvalds og kirkju hér eins og annars staðar. En þrátt fyrir það hefur sambúðin um flest verið farsæl. Hitt er annað að sú sambúð þarf ekki að vera óbreytt um alla hluti og um alla eilífð. Þróun í átt til sjálfstæðis Margt í siðferðilegum boðskap kirkjunnar miðar að því að mann- fólkið geti lifað í friði, sátt og sam- lyndi án valdboðs. Leikreglurnar verði hverjum og einum eiginlegar. Kannski er unnt að tala um ein- hvers konar sjálfsprottið jafnvægi milli frelsis og jöfnuðar. Að þessu leyti eru hin nánu tengsl ríkis og kirkju ekki endilega rökrétt. Fyrir þremur áratugum tók kirkjan sjálf frumkvæði í því að losa um þessi tengsl. Hún hefur nú fengið sjálfstæði frá löggjafarvaldi og framkvæmdavaldi til að taka ákvarðanir um flest innri mál. Þetta hefur verið skynsamleg þróun. Þjóðkirkja í nútíma skilningi er ekki ríkiskirkja. Hún er kirkja fólksins en ekki valdsins. Þingsetningarmessa er tákn um gamalt samspil kirkju og valds, sem enn er varðveitt. Þetta er ágætur siður en samt er íhugunar- efni í þessu þróunarferli hvort slík táknmynd þjónar hagsmunum þjóðkirkju í framtíðinni. Innri vandi Þjóðkirkjan á við margvíslegan vanda að glíma. Trúarsannfæring er augljóslega ekki eins rík og áður. Innri styrkur kirkjunnar virðist einnig hafa dvínað. Mönnum sýnist vitaskuld sitt hvað um þjóðkirkjuna og hafa ólíkar skoðanir á því hvort stjórnarskrárverndin eigi að standa lengur eða skemur. En það breytir ekki hinu að ríflegur meirihluti þjóðarinnar er innan vébanda hennar og hún gegnir einhverju hlutverki í lífi f lestra. Alltaf til staðar Þegar við metum veikleika og styrkleika kirkjunnar í sam- félaginu er liðin tíð ekki góður mælikvarði. Miklu nær er að spyrja: Hvaða hlutverki hefur hún að gegna í f lóknu samfélagi nútímans? Hún getur ekki verið alltum- lykjandi eins og áður fyrr. Hún ætti því ekki að reyna að setja sér slíkt markmið. Gamli tíminn kemur ekki aftur. En það virðist vera þörf fyrir frjálslynda kirkju sem er alltaf til staðar. Alltaf til staðar í þeim skilningi að vera opin hvort sem menn leita til hennar oft eða bara sára sjaldan og án tillits til þess hvort trúræknin er mikil eða lítil. Kirkjan þarf ekki að sýna fyrir- ferð í heimi auglýsinga. Hún á fyrst og fremst að vera til staðar með erindi sitt. Hún þarf á hverjum tíma að hafa sitt að segja, hafa boðskap. Hún á ekki einkarétt á siðferði- legum kenningum en boðun þeirra á kannski meira erindi en nokkru sinni fyrr. Og í sögulegu samhengi á hún líka að rækta menningarlegt hlutverk sitt. n Þorlákur og þjóðkirkja Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli Þegar við metum veik- leika og styrkleika kirkjunnar í samfélag- inu er liðin tíð ekki góður mælikvarði. Fullkomið í veisluna Dansk julegudstjeneste holdes i domkirken fredag den 24. december kl. 15.00 ved pastor Ragnheiður Jónsdóttir. Alle velkomne. Danmarks Ambassade AFLYST LIFA MERINO LANGERMABOLIR Frábært fyrir útivistina eða vinnuna. Hlý og góð gjöf Verð nú aðeins kr. Vandaðir og hlýir DALVEGI 32a 201 KÓPAVOGI S. 522 6262 IS.RUBIX.COM 30%afsláttur 9.461 FJÁRFESTING Í SJÓÐUM ER GÓÐUR VALKOSTUR TIL AÐ ÁVAXTA PENINGA TIL SKEMMRI OG LENGRI TÍMA Kynntu þér árangur og úrval ÍV sjóða á WWW.IV.IS FIMMTUDAGUR 23. desember 2021 Skoðun 17FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.