Fréttablaðið - 23.12.2021, Qupperneq 17
Messa heilags Þorláks að vetri
markar lok jólaföstu. Lengst af á
minni tíð var þessi dagur versl-
unarhátíð ársins. Nú hefur svartur
fössari fyrir jólaföstu tekið við því
hlutverki.
Um miðaftan á morgun gengur
svo í garð stærsta andlega hátíð
ársins. Hver nýtur hennar að
sínum hætti.
Undarlegt sambland
Allir eru þessir dagar undarlegt
sambland andlegra og verald-
legra verðmæta. Um leið eru þeir
áminning um hversu slungið það
er að vefa þessi verðmæti í einn vef
svo vel fari.
Sumir fagna hækkandi sól. Aðrir
fagna fæðingu frelsarans. Og svo
eru þeir mörgu sem fagna hvoru
tveggja. En einhverjir hafa þó ekki
eða finna ekki tilefni til að gleðjast.
Við eigum þjóðkirkju, sem nýtur
verndar samkvæmt stjórnarskrá
lýðveldisins og ýmis minni trú- og
lífsskoðunarfélög. Kirkjan er þó
meira en bara trúfélag. Hún hefur
líka í gegnum tíðina verið menn-
ingarleg kjölfesta.
Vald og kirkja
Í f lóknu samfélagi nútímans þarf
kirkjan að hafa meira fyrir hlut-
unum en áður þegar samfélags-
vefurinn var einfaldari: Bændur,
embættismenn erlends valds og
klerkar kirkjunnar.
Kirkjan hefur löngum verið
tengd valdinu. Við tókum við
trúnni á Alþingi, en að baki var
krafa erlends konungsvalds.
Siðaskiptin fóru líka fram með
valdboði. Loks fékk hún sess í
stjórnarskrá.
Sagan kennir okkur hvernig vald
getur spillt. Og það hefur gerst í
sambúð ríkisvalds og kirkju hér
eins og annars staðar. En þrátt fyrir
það hefur sambúðin um flest verið
farsæl.
Hitt er annað að sú sambúð þarf
ekki að vera óbreytt um alla hluti
og um alla eilífð.
Þróun í átt til sjálfstæðis
Margt í siðferðilegum boðskap
kirkjunnar miðar að því að mann-
fólkið geti lifað í friði, sátt og sam-
lyndi án valdboðs. Leikreglurnar
verði hverjum og einum eiginlegar.
Kannski er unnt að tala um ein-
hvers konar sjálfsprottið jafnvægi
milli frelsis og jöfnuðar.
Að þessu leyti eru hin nánu
tengsl ríkis og kirkju ekki endilega
rökrétt. Fyrir þremur áratugum
tók kirkjan sjálf frumkvæði í því að
losa um þessi tengsl. Hún hefur nú
fengið sjálfstæði frá löggjafarvaldi
og framkvæmdavaldi til að taka
ákvarðanir um flest innri mál.
Þetta hefur verið skynsamleg
þróun. Þjóðkirkja í nútíma
skilningi er ekki ríkiskirkja. Hún er
kirkja fólksins en ekki valdsins.
Þingsetningarmessa er tákn um
gamalt samspil kirkju og valds,
sem enn er varðveitt. Þetta er
ágætur siður en samt er íhugunar-
efni í þessu þróunarferli hvort slík
táknmynd þjónar hagsmunum
þjóðkirkju í framtíðinni.
Innri vandi
Þjóðkirkjan á við margvíslegan
vanda að glíma. Trúarsannfæring
er augljóslega ekki eins rík og áður.
Innri styrkur kirkjunnar virðist
einnig hafa dvínað.
Mönnum sýnist vitaskuld
sitt hvað um þjóðkirkjuna og
hafa ólíkar skoðanir á því hvort
stjórnarskrárverndin eigi að
standa lengur eða skemur.
En það breytir ekki hinu að
ríflegur meirihluti þjóðarinnar
er innan vébanda hennar og hún
gegnir einhverju hlutverki í lífi
f lestra.
Alltaf til staðar
Þegar við metum veikleika og
styrkleika kirkjunnar í sam-
félaginu er liðin tíð ekki góður
mælikvarði. Miklu nær er að
spyrja: Hvaða hlutverki hefur
hún að gegna í f lóknu samfélagi
nútímans?
Hún getur ekki verið alltum-
lykjandi eins og áður fyrr. Hún ætti
því ekki að reyna að setja sér slíkt
markmið. Gamli tíminn kemur
ekki aftur.
En það virðist vera þörf fyrir
frjálslynda kirkju sem er alltaf
til staðar. Alltaf til staðar í þeim
skilningi að vera opin hvort sem
menn leita til hennar oft eða bara
sára sjaldan og án tillits til þess
hvort trúræknin er mikil eða lítil.
Kirkjan þarf ekki að sýna fyrir-
ferð í heimi auglýsinga. Hún á fyrst
og fremst að vera til staðar með
erindi sitt. Hún þarf á hverjum
tíma að hafa sitt að segja, hafa
boðskap.
Hún á ekki einkarétt á siðferði-
legum kenningum en boðun
þeirra á kannski meira erindi en
nokkru sinni fyrr. Og í sögulegu
samhengi á hún líka að rækta
menningarlegt hlutverk sitt. n
Þorlákur og þjóðkirkja
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Þegar við metum veik-
leika og styrkleika
kirkjunnar í samfélag-
inu er liðin tíð ekki
góður mælikvarði.
Fullkomið
í veisluna
Dansk julegudstjeneste
holdes i domkirken fredag den 24. december kl. 15.00
ved pastor Ragnheiður Jónsdóttir.
Alle velkomne.
Danmarks Ambassade
AFLYST
LIFA MERINO
LANGERMABOLIR
Frábært fyrir
útivistina eða
vinnuna.
Hlý og góð gjöf
Verð nú aðeins kr.
Vandaðir og hlýir
DALVEGI 32a
201 KÓPAVOGI
S. 522 6262
IS.RUBIX.COM
30%afsláttur
9.461
FJÁRFESTING Í SJÓÐUM
ER GÓÐUR VALKOSTUR
TIL AÐ ÁVAXTA PENINGA TIL
SKEMMRI OG LENGRI TÍMA
Kynntu þér árangur og úrval
ÍV sjóða á WWW.IV.IS
FIMMTUDAGUR 23. desember 2021 Skoðun 17FRÉTTABLAÐIÐ