Fréttablaðið - 23.12.2021, Page 22
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Kolbrún María Másdóttir les
Krakkafréttirnar tvisvar í viku á
RÚV með sínu vandaða og fallega
málfari, öðrum til eftirbreytni.
Kolbrún er tvítug að aldri og er
fyrsta árs nemi í almennum mál-
vísindum í Háskóla Íslands. Eitt
af hennar helstu áhugamálum
er leikhúslífið. „Ég hef mjög
mikinn áhuga á leikhúsi og listum
almennt,“ segir hún og er óhrædd
við að stíga á svið.
Þegar hún er spurð hvað hafi
komið til að hún byrjaði að lesa
fréttir í Krakkafréttum, svarar
hún: „Ísgerður, sú sem var með
Krakkafréttir, var að hætta og
þau á KrakkaRÚV héldu prufur.
Þá átti maður að lesa nokkra
texta af svona prompter-vél og
það gekk víst svona vel! Þetta er
frábær vinna! Ég vinn með mjög
skemmtilegu fólki og ég er alltaf
rosa vel upplýst eftir vikuna,“ segir
Kolbrún og hlær.
Færðu viðbrögð frá krökkum úti
á götu?
„Já, já, alveg stundum. Ég veit
að margir kennarar kveikja á
Krakka fréttum í grunnskólum
í nestistímum, það hafa nokkrir
krakkar sagt mér það,“ segir
Kolbrún en þetta eru fyrstu spor
hennar í sjónvarpi. Hún segist vel
geta hugsað sér að vinna við þetta
áfram. „Ég gæti vel hugsað mér að
starfa áfram á KrakkaRÚV, mér
finnst allt þetta efni sem þau eru
að framleiða fyrir krakka æðis-
legt og ég vona að það haldi áfram
að þróast þannig að það sé sem
skemmtilegast fyrir krakka.“
Ertu orðin spennt fyrir jólahá-
tíðinni og verður eitthvað sérstakt
gert í Krakkafréttum í tilefni jóla?
„Ég er sko algjört jólabarn og
elska allt við jólin. Krakkafréttir
eru búnar þetta árið en í lok árs
verðum við Gunnar Hrafn með
Krakkafréttaannálinn þar sem
við förum yfir allt það helsta sem
rataði í Krakkafréttir á árinu.“
Litríkt og þægilegt í Covid
Kolbrún er sjálfstæð og þorir að
fara sínar eigin leiðir. Við fengum
hana til að segja frá fatastílnum
sínum.
„Ef ég er ánægð með fötin sem
ég klæðist líður mér miklu betur.
Þegar samkomubann skall á eftir
að Covid-19 bylgjan hófst var svo
einfalt að hanga bara á náttföt-
unum allan daginn. Það hjálpaði
mér mjög mikið að geta klætt mig
í eitthvað fallegt sem mér leið vel
í, bæði leið manni vel en um leið
hafði maður eitthvað að gera yfir
daginn.
Hvernig myndir þú lýsa fata-
stílnum þínum í einni setningu?
„Ætli ég myndi ekki segja lit-
ríkur, beisik og þægilegur.“
Aðspurð segir Kolbrún að
ekkert fatasnið heilli sig frekar en
annað. „Mér finnst f lestar skyrtur
með púffermum sjúklega flottar
og einnig bolir en slíkur fatnaður
hefur verið að koma aftur í tísku
undanfarið. Svo finnst mér lang-
þægilegast að klæðast pilsum, en
það er svo sem ekki neitt ákveðið
snið sem ég klæðist meira. Mér
finnst öll föt frá áttunda áratugn-
um vera f lottustu föt í heimi.“
Áttu uppáhaldsf lík?
„Ég ætla að segja það fyrsta sem
ég heklaði, sem er vesti. Það er
geggjuð tilfinning að halda á og
klæðast einhverju sem maður býr
til sjálfur. Vestið er auðvitað ekki
fullkomið en það er einmitt það
sem mér finnst svo heillandi við
það. Nú er ég alltaf að hekla eitt-
hvað, á mig og alla í kringum mig.“
Frábært að finna einstaka flík
Kolbrún á sér ekkert uppáhalds-
tískuvörumerki en segir að það
sé ekkert sem heilli hana frekar
en eitthvað annað. „Eiginleg ekki
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Fallegur
sparikjóll
sem Kol-
brún ber vel.
tískuvörumerki en ég get nefnt
Wasteland og Spúútnik (second-
hand búðir). Ég hef verið mjög
meðvituð um „fast-fashion“
vandann í kringum okkur og ef
mig langar í ný föt leita ég oftast
í verslanir með notuð föt. Maður
finnur ekki alltaf eitthvað, en það
er líka besta tilfinning í heimi að
finna einhverja einstaka flík sem
er f lott, vel með farin og smell-
passar á mann. Ég get ímyndað
mér að það sé eins og að vinna
svona kannski, 20.000 kall, í lottó,“
segir Kolbrún upprifin.
Þegar kemur að litavali, fylgir þú
tískustraumunum hverju sinni eða
áttu þína uppáhaldsliti sem þér
finnst klæða þig best?
„Ég hef tekið eftir að ég klæðist
mikið af bláum fötum en ég fíla
alla liti. Ég hef reyndar aldrei átt
mikið af svörtum fötum, mamma
mín klæddi mig aldrei í neitt svart
þegar ég var lítil og ég held það
hafi bara fylgt mér síðan.“
Hvernig myndir þú lýsa skótísk-
unni sem þú heillast helst af?
„Ég elska sjúklega litríka striga-
skó og mér finnst þeir passa við
allt. Á veturna er ég samt alltaf í
góðum vetrarskóm því mér verður
svo kalt, til dæmis hef ég einungis
verið í hvítum skóm síðan í haust.“
Þegar þú velur þér fylgihluti
hvað finnst þér vera ómissandi að
eiga í dag?
„Mér finnst eyrnalokkar gera
svo mikið fyrir heildarlúkkið. Það
er líka hægt að vera með alls konar
lokka – basic hoops eða eitthvert
abstrakt form, steina eða fígúrur,“
segir Kolbrún og brosir sínu
breiðasta. n
Kolbrún María heklaði
sjálf þetta vesti og
situr gjarnan í tóm-
stundum og heklar
fyrir sjálfa sig og aðra.
Kolbrún María hefur
einstakan stíl en hún
vill minnka fatasóun og
leitar því oft í verslanir
sem selja notuð föt.
Það er líka besta
tilfinning í heimi
að finna einhverja
einstaka flík sem er
flott, vel með farin og
smellpassar á mann.
Ég veit að
margir
kennarar
kveikja á
Krakka-
fréttum í
grunn-
skólum í
nestis-
tímum,
það hafa
nokkrir
krakkar
sagt mér
það.
2 kynningarblað A L LT 23. desember 2021 FIMMTUDAGUR