Fréttablaðið - 23.12.2021, Side 24

Fréttablaðið - 23.12.2021, Side 24
Rúmenar eru ýktir tilfinningalega og blóðheitir. Ég er að reyna að læra tungumálið eins og ég get en það gengur mjög hægt. Sara Rún Hinriksdóttir Starri Freyr Jónsson starri @frettabladid.is Sara Rún Hinriksdóttir, körfuboltakona ársins, leikur sitt fyrsta tímabil í Rúmeníu í vetur. Hún lauk nýlega meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og reynir að læra að prjóna með hjálp ömmu sinnar yfir netið. Nýlega var Sara Rún Hinriksdóttir, leikmaður Phoenix Constanta í Rúmeníu og íslenska landsliðsins, valin körfuboltakona ársins annað árið í röð, hjá Körfuknattleikssam- bandi Íslands. Sara Rún, sem er 25 ára gömul, er að leika sitt fyrsta tímabil í Rúmeníu, en hefur áður leikið með uppeldisfélagi sínu Keflavík, Can- isius-háskóla í Bandaríkjunum, Leicester Riders í bresku deildinni og Haukum. Samhliða atvinnu- mennskunni lauk hún fyrir stuttu meistaragráðu í alþjóðaviðskipt- um frá Loughborough University í Englandi og er því óhætt að segja að undanfarin ár hafi verið anna- söm. Hún segir viðurkenninguna vera mikinn heiður. „Ég er svo þakklát fyrir allt fólkið í kringum mig sem hefur stutt mig í því að elta draumana mína. Það eru líka svo margir flottir og góðir íslenskir leikmenn að spila í dag og að fá að vera valin úr þeim hópi er mikill heiður.“ Gengi undir væntingum Tímabilið í Rúmeníu fór ekki eins vel af stað og hún vonaðist eftir. „Staðan hjá okkur er ekki alveg eins og við ætluðum okkur. Liðið hefur tapað nokkrum leikjum sem við hefðum átt að vinna. En við erum mjög spenntar fyrir fram- haldinu, því við erum alltaf að spila betur og betur saman. Á milli jóla og nýárs spilum við í átta liða úrslitum í bikarnum gegn liði sem við höfum unnið áður, þannig að við eigum möguleika á að komast í fjögurra liða úrslit sem væri í fyrsta skiptið fyrir klúbbinn. Persónulega er mér þó að ganga þokkalega vel.“ Blóðheitir og tilfinningaríkir Constanta er fimmta stærsta borg Rúmeníu með um 285 þúsund íbúa og segist Sara Rún kunna vel við sig þar. „Constanta er mjög falleg borg sem liggur við Svarta- haf, en ég bý nánast á ströndinni. Borgin er ekki of stór og ekki of lítil. Auk þess finnst mér Rúmenía mjög fallegt land. Hér eru engar hraðbrautir og því eru ferðalög til keppnisstaða oft mjög löng. Þessi löngu ferðalög eru þó ekki leiðinleg, því á leiðinni sjáum við Finnst erfitt að hafa ekkert fyrir stafni Þótt tímabilið hjá Söru Rún í Rúmeníu hafi ekki byrjað vel er hún bjartsýn á framhaldið. Sara Rún með nokkrum liðsfélögum sínum úr Canisius-háskólaliðinu, á leið á NBA-leik með New York Knicks í Madison Square Garden í New York. Sara Rún við útskriftina frá Canisius- háskólanum í Bandaríkjunum. Sara Rún varð bikarmeistari með enska liðinu Leicester Riders í mars 2020, þar sem hún var valin maður leiksins. MYNDIR/AÐSENDAR alls konar bæi með ólíku fólki; allt frá fólki á hestvögnum í fólk að keyra á Lamborghini sportbílum“. Hún segir það vera skemmtilega upplifun að búa í Austur-Evrópu. „Rúmenar eru ýktir tilfinninga- lega og blóðheitir. Ég er að reyna að læra tungumálið eins og ég get en það gengur mjög hægt. Um jólin fæ ég frí á aðfangadag og jóladag þannig ég ætla að fara til Brasov, sem er fallegur fjallabær í rúmlega tveggja klukkutíma fjarlægð frá höfuðborginni Búkarest. Þar stefni ég á að eyða jólunum í snjónum.“ Elskar róleg spilakvöld Utan körfuboltans segist hún hafa mestan áhuga á góðri heilsu, næringarríkum mat og almennri hreyfingu, þá sérstaklega útivist. „Mér finnst fátt skemmtilegra en að ferðast og kynnast annarri menningu, kynnast nýju fólki og borða góðan mat. Þótt ég virki kannski snarvitlaus inni á vell- inum þá elska ég róleg spilakvöld með fjölskyldu og vinum. Svo á ég kærasta sem er frá London en býr núna í París. Ég kynntist honum í skólanum í Loughborough.“ Hún segist eiga erfitt með að hafa ekkert fyrir stafni. „Mér finnst rosalega erfitt að gera ekki neitt. Núna er ég t.d. ekki í skóla með körfuboltanum í fyrsta skipti í langan tíma og á því mikinn frí- tíma, sem er mikil áskorun hérna í Rúmeníu. Ég reyni að lesa mikið, stunda jóga og svo er amma að reyna að kenna mér að prjóna í gegnum Messenger, sem gengur misvel satt að segja. Svo finnst mér gaman að reyna við alls konar matarupp- skriftir þó þær gangi nú oftast ekki upp.“ Talaði lítið fyrsta árið Nám hefur alltaf skipað stóran sess í lífi Söru samhliða atvinnumennsk- unni, enda segir hún sig langa að vera í góðri stöðu þegar ferlinum lýkur. „Ég er búin að njóta þeirra forréttinda og leggja hart að mér til að fá að gera það sem ég elska, um leið og ég hef lokið námi á fullum styrk allan tímann. Þegar ég hóf háskóla- nám í Banda- ríkjunum fannst mér mjög erfitt að læra á ensku og var mjög feimin að tala hana. Ég man að ég sat í tíma á fyrsta árinu mínu og hlustaði á kennarana, þýddi svo það sem þeir sögðu og skrifaði það svo niður. Á þeim tímapunkti voru þeir auð- vitað farnir að tala um eitthvað annað. En með tímanum þá varð þetta auðveldara og auðveldara.“ Hún segir þjálfara liðsins hafa gert mikið grín að sér á fyrsta árinu, þar sem hún var svo feimin við að tala ensku. „Ég sagði varla orð fyrsta árið, en svo þegar ég útskrifaðist þá kvartaði hann yfir því að ég talaði of mikið. Og í dag finnst mér stundum auðveldara að hugsa á ensku heldur en á íslensku, sérstaklega þegar kemur að því að skrifa ritgerðir eða eitt- hvað slíkt.“ Háskólanámið í Bandaríkj- unum og í Englandi, þar sem hún kláraði meistaranámið, var gjörólíkt. „Í Englandi þurfti ég að vinna miklu meira sjálf, á meðan nemendur voru meira mataðir með alls konar hjálpartækjum í Bandaríkjunum. Meistaranámið var mjög krefjandi en jafnframt mjög skemmtilegt nám.“ Dýrmæt reynsla sem nýtist vel Þegar ferlinum lýkur segist hún vera spennt fyrir að fara á almenna vinnumarkaðinn þar sem nám hennar nýtist vonandi vel, hvar sem hún verður stödd í heiminum. „Þar sem karfan hefur alltaf gengið fyrir í lífi mínu þá hef ég ekki náð mér í hefðbundna reynslu á vinnu- markaði. Þegar kemur að því vonast ég þó til þess að geta notað það sem ég hef lært í körfuboltan- um, það er að nýta agann, metnaðinn, skipulagið og þá dýrmætu reynslu að hafa í lífinu kynnst alls konar fólki.“ n 4 kynningarblað A L LT 23. desember 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.