Fréttablaðið - 23.12.2021, Síða 28

Fréttablaðið - 23.12.2021, Síða 28
8 SMÁAUGLÝSINGAR 23. desember 2021 FIMMTUDAGUR Staða íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu Kjörtímabil íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu rennur út hinn 31. október 2022. Evrópuráðið hefur því farið þess á leit að tilnefnd verði af Íslands hálfu þrjú dómaraefni en skv. 22. gr. mannréttindasáttmálans, sbr. lög nr. 62/1994, eru dómarar við Mannréttindadómstólinn kjörnir af þingi Evrópuráðsins af lista með þremur mönnum sem samningsaðili tilnefnir. Mannréttindadómstóll Evrópu í Strassborg fjallar um mál sem til hans er vísað af einstaklingum og samningsaðilum vegna meintra brota á ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu eða samningsviðaukum við hann. Dómstóllinn er skipaður einum dómara frá hverju samningsríkja. Um hæfisskilyrði dómara við Mannréttindadómstólinn er fjallað í 21. gr. mannréttindasáttmálans og kemur þar fram að dómarar skuli vera grandvarir og verði annaðhvort að fullnægja kröfum um hæfi til að gegna æðri dómarastörfum eða vera lögvísir svo orð fari af. Þeir skuli skipa sæti sitt sem einstaklingar og meðan kjörtímabil þeirra varir skuli þeir ekki taka þátt í neinni starfsemi sem sé ósamrýmanleg sjálfstæði þeirra, hlutleysi eða kröfum sem gerðar eru til fulls dómarastarfs. Samkvæmt 2. mgr. 21. gr. skulu umsækjendur vera yngri en 65 ára daginn sem þingið biður um lista með þremur mönnum, sjá nánar í 22. gr. Sú dagsetning er 5. maí 2022. Sérstök athygli er vakin á því að dómstóllinn gerir þá kröfu að dómari hafi gott vald bæði skriflega og munnlega á öðru tveggja opinberra tungumála réttarins, þ. e. ensku og frönsku, og nokkurn skilning á hinu. Dómstóllinn leggur áherslu á að á listanum séu ekki aðeins dómaraefni af einu kyni. Hér með gefst þeim sem áhuga hafa á að vera tilnefnd af Íslands hálfu sem dómaraefni við mannréttindadómstólinn kostur á að senda forsætisráðuneytinu umsókn sína eigi síðar en 14. janúar 2022. Umsóknir og fylgigögn óskast send til forsætisráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, 101 Reykjavík og á netfangið for@for.is. Er þess óskað að umsóknir berist á íslensku, ensku og jafnframt á frönsku ef unnt er á sérstökum umsóknareyðublöðum Evrópuráðsins. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsækjendur gefi upp netfang sem notað verður til að eiga samskipti við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um tilnefningu liggur fyrir. Forsætisráðherra mun skipa fimm manna hæfnisnefnd til að meta umsóknir sem berast. Mun hæfnisnefndin skila umsögn um umsækjendur og gera rökstudda tillögu um hver þeirra teljist hæfust til að vera tilnefnd. Tilnefningar stjórnvalda verða byggðar á þessari tillögu. Frekari upplýsingar veitir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, skrifstofustjóri, í síma 545 8400, netfang: steinunn.valdis.oskarsdottir@for.is. Nánari upplýsingar er að finna á vefslóðinni https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/ auglysingar/auglysing/2021/12/20/ Stada-islensks-domara-vid-Mannrettindadomstol-Evropu/ Forsætisráðuneytinu, 21. desember 2021 Þjónustuauglýsingar Sími 550 5055 Alla fimmtudaga og laugardaga arnarut@frettabladid.is Ferðaþjónustuhús Vönduð hús sem henta vel í ferðaþjónustuna, afhendast fullkláruð. Nánari uppl. reisum@simnet.is eða í síma 899 0913 Fríða www.reisum.is Geymsluskúrar /gestahús til sölu • Þrjár stærðir 7,5/9,5/14,9 fm. • Veggjagrind út 45x95 timbri. • Pappi og bárustál á þaki. • Rofar og tenglar IP44 rakaheldnir. • Skúrar sem þola veður og vinda. Nánari uppls; reisum@simnet.is eða s. 899 0913 Fríða, www.reisum.is LED leiðiskrossar • Gengur fyrir raf- hlöðum eða tengist rafmagni. • Rafhlaða endist um það bil í einn mánuð. Upplýsingar í s. 699 6869 og rafeindir.is Varahlutir í lyftara - Toyota - Hyster - Yale - Jungheinrich - OO. Er verið að leita að þér? Viðskiptavinir Ráðum fela ráðgjöfum okkar oft að finna starfsmenn án þess að auglýsa stöðuna. Skráðu þig í gagnagrunninn okkar til að tryggja að við finnum þig þegar rétta starfið býðst.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.