Fréttablaðið - 23.12.2021, Síða 38
Myndirnar sýna mann-
eskju og líkama henn-
ar sem lúta sömu
lögmálum og vökvi.
Helena Margrét Jónsdóttir
sýnir í Plan X Art Gallery í
Mílanó á Ítalíu. Þetta er fyrsta
einkasýning Helenu Mar-
grétar utan landsteinanna.
Sýningin var opnuð 1. desember
og stendur til 18. janúar. Hún hefur
yfirskriftina Liquida og sýningar-
stjóri er Sasha Bogojev. Helena
Margrét sýnir tíu verk unnin í olíu
og akrýl á striga.
„Myndirnar sýna manneskju
og líkama hennar sem lúta sömu
lögmálum og vökvi. Áherslan er á
hreyfingu, f læði og endurspeglun
og það hvernig hlutir brenglast í
vatni og vökva. Hún er að hellast,
sullast, leka, bráðna, drjúpa og
f ljóta,“ segir Helena Margrét og
tekur dæmi: „Persónan er kannski
að hellast úr f lösku yfir í vínglas,
hún sullast síðan þaðan og myndar
poll á öðru verki. Í myndunum er
mikið af f löskum, glösum og gleri
sem endurspegla brothætt ástand
persónanna sem geta skolast burt.
Um leið og ég er að sýna það við-
kvæma og fíngerða er ég að fanga
hreyfingu á því augnabliki sem
hún á sér stað. Samtímis sé ég fyrir
mér það sem gerðist rétt áður en
myndefnið varð til og það sem mun
gerast eftir á.“
Öll verkin á sýningunni seldust
rétt fyrir opnun og á opnuninni
sjálfri. Allnokkrir kaupendur eru
erlendir listaverkasafnarar. „Við-
tökurnar komu mér mjög á óvart,“
segir Helena Margrét. Hún segir
ákaflega gaman að geta loks sýnt
verk í sýningarsal. „Eftir að hafa
verið í Íslandsbúbblunni í Covid
var óskaplega gaman að fara utan
og sýna þar. Allan tímann úti var
ég með smá óraunveruleikatilfinn-
ingu.“
Helena Margrét lærði myndlist
við Myndlistarskólann í Reykjavík,
Konunglega listaháskólann í Haag
í Hollandi og útskrifaðist með BA-
gráðu í myndlist úr LHÍ árið 2019.
Fram undan hjá henni er undir-
búningur fyrir sýningu í Ásmundar-
sal í október, það verður samsýning
hennar og kærastans Hákonar
Arnar Helgasonar sviðshöfundar.
„Við munum vinna ferlið saman
og sameina sviðsverk og myndlist,“
segir Helena Margrét. n
Það
viðkvæma
og fíngerða
„Viðtökurnar komu mér mjög á óvart,“ segir Helena Margrét. MYND/AÐSEND
Segja má að slegist hafi verið um myndir Helenu Mar-
grétar en þær seldust allar, fyrir sýningu og á opnuninni.
kolbrunb@frettabladid.is
Sunnudaginn 2. janúar næstkom-
andi mun Jónas Ásgeir Ásgeirsson
f lytja harmóníkukonsert Finns
Karlssonar í Norðurljósasal Hörpu
ásamt kammersveitinni Elju. Kons-
ertinn var saminn 2020 og hlaut
viðurkenninguna Tónverk ársins á
Íslensku tónlistarverðlaunum 2021.
Konsertinn, sem heitir einfaldlega
Accordion Concerto eða Harmón-
íkukonsert, verður jafnframt hljóð-
ritaður daginn eftir tónleikana
sem hluti af nýrri plötu Jónasar
með íslenskri tónlist fyrir klassíska
harmóníku.
Önnur verk á plötunni verða
meðal annars áður óþekkt kamm-
erverk eftir Atla Heimi Sveinsson
og Þorkel Sigurbjörnsson, verk eftir
Atla Ingólfsson og Friðrik Margrétar-
Guðmundsson og nýtt einleiksverk
eftir Þuríði Jónsdóttur. n
Konsert í Hörpu
Jónas Ásgeir leikur í Hörpu.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
kolbrunbfrettabladid.is
Skáldsagan Merking
eftir Fríðu Ísberg hefur
nú verið seld til 14 mál-
svæða.
Merking vann nýlega Bók-
salaverðlaunin og hlaut til-
nefningu til Fjöruverð-
launanna. Faber &
Faber keypti réttinn
í Bretlandi en fyrir-
tækið gefur út bækur
eftir fremstu rithöfunda
heims eins og Milan Kun-
dera, Sally Rooney og
Kazuo Ishiguro. n
Merking fer víða
Fríða Ísberg rithöfundur.
V Ö N D U Ð Í S L E N S K H Ö N N U N
BRANDSON . I S
30 Menning 23. desember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 23. desember 2021 FIMMTUDAGUR