Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1971, Síða 44

Strandapósturinn - 01.06.1971, Síða 44
sjóveikar og gátum enga björg okkur veitt. Þá voru sendir til okk- ar tveir menn til aðstoðar, þeir Þorsteinn Einarsson síðar bóndi á Reykjum í Hrútafirði og Jón Leví, húnvetningur. Enginn mátti fara upp á þilfar og allt var lokað. Það hrikti í skipinu eins og það væri að liðast í sundur, og veltingurinn var svo mikill, að við stóðum ýmist á höfði eða fótum og urðum að ríghalda okkur. Eitt sinn er ég leit upp sá ég að annar maðurinn missti hand- festu og hentist með öllu saman út á gólf, og hinn stökk á fætur, svo hann færi ekki sömu leiðina. Þeir hafa ekki verið í eins góð- um kojum og við. Svona gekk þetta fyrir Strandir, og var mér sagt að skipið hefði síðan haldið sjó 5—6 mílur út af Homi. Svo fór aðeins að birta, ferðinni var haldið áfram, og sást þá snemma morguns til lands í Aðalvík. Og á miðvikudagskvöld skreið Vesta inn á Isafjarðarhöfn eftir fimm sólarhringa ferð frá Hólmavík. Þá fréttum við að Fálkinn hefði verið ferðbúinn til leitar að Vestu, því farið var að óttast um skipið, sérstaklega vegna þess að það var kolalítið. Áður en við fórum frá borði sögðu nokkrir farþegar á öðru plássi okkur frá því, að þeir hefðu ákveðið, að ef þeir kæmust lífs af, þá skyldu þeir láta ljósmynda sig á ísafirði. Báðu þeir okk- ur fyrir alla muni að vera með. Við höfðum ekkert á móti því, og þetta var gert. Þegar í land kom fór ég heim til fóstursystur minnar, Herdísar Jónsdóttur, sem var gift og búsett þar. Móttökumar voru eins og bezt var á kosið, og var ég hjá þeim hjónunum um nóttina og mestallan fimmtudaginn. Var þessi heimsókn okkur mjög ánægjuleg. Seinnipartinn á fimmtudag var svo lagt af stað áleiðis til Sólbakka í Önundarfirði. Þar átti að taka kol. Þegar þangað kom, frétti ég, að skipið ætti að koma við á Þingeyri. Var þá ekki annað fyrir mig að gera en að fara í land á Sólbakka og reyna að bjarga mér eins og bezt gengi. Aðkoman þar var ekki árennileg fyrir mig, því bryggjan var alþakin kolum, og ég sá það að ég gat ekki komizt hjálparlaust upp bryggjuna með koffortið mitt. Þegar ég er í þessum hug- leiðingum kemur til mín kona sem segir: „Ert þú að hugsa um að fara hér í land góða mín?“ „Já,“ segi ég, „ég er að hugsa um 42
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Strandapósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.