Strandapósturinn - 01.06.1971, Side 58
sýnir áhugamenn í Kollafirði, meðal þeirra og forystumenn Guð-
jón Guðlaugsson á Ljúfustöðum alþingismaður Strandamanna,
séra Arnór Arnason á Felli o.fl. A þeim árum var byggður alþýðu-
skólinn á Heydalsá.
Frá Kollafjarðamesi fóru í Lærðaskólann sonur Guðmundar
bónda, Guðmundur G. Bárðarson, náttúrufræðingur og systur-
sonur Guðm., Guðmundur Guðmundsson. Þótt Júlíus nyti ekki
menntunar sem sonurinn eða frændurnir, naut hann þess menn-
ingar-anda, sem mótaði þar alla heimilishætti: sjálfstæða hugsun,
gildi verðmæta og athafna, hagsýni og fyrirhyggju. Júlíus minnt-
ist Kollafjarðarness-heimilisins alla tíð með þakklæti og virðingu.
Frá Kollafjarðarnesi fór Júlíus sem kaupamaður að Þorpum í
Tungusveit, þar kynntist hann Valgerði Jónsdóttur, elztu heima-
sætunni, eignuðust þau eina dóttur, sem ólst að mestu upp hjá
föður sínum, þar eð foreldrarnir skildu samvistum.
Margrét Ólína, systir Júlíusar, hafði um nokkur ár verið vinnu-
kona hjá þeim sæmdarhjónum: Sigríði Einarsdóttur og Ingi-
mundi Magnússyni í Bæ í Króksfirði. Þegar leystar eru festar
á Kollafjarðarnesi býður Margrét Olína móður sinni að Bæ, fer
hún þangað og einnig Sigríður systir Margrétar Olínu og litlu
síðar Júlíus bróðir þeirra, dvöldu systkinin þar nokkur ár, var
Júlíus fjármaður og ráðsmaður þegar Ingimundur var fjarverandi,
en búskapur var þar fyrirferðamikill, en Júlíus var þeim vanda
vaxinn.
Árið 1914 fór Júlíus að búa í Hlíð í Þorskafirði, ásamt systrum
sínum, og tók þá til sín Margrétu, dóttur sína, sem verið hafði í
fóstri á Reykhólum hjá þeim ágætu heiðurshjónum: Arndísi
Bjarnadóttur og Hákoni Magnússyni.
Næsta ár 1915 festi Júlíus kaup á jörðinni Hjöllum í Gufu-
dalssveit og flutti þangað um vorið. Sú jörð hefur mikið land-
rými og álitin ein með beztu sauðjörðum þar um slóðir, sem þó
eru margar góðar. Útheys-afla varð að sækja upp á fjallið langan
lestagang og því erfitt, en heygæði. Tún var all-sæmilegt en
ógirt er Júlíus tók við jörðinni, og lét hann það verða sitt fyrsta
verk að girða túnið og töluvert útfyrir það, til þess að hafa innas
56