Strandapósturinn - 01.06.1971, Page 74
Sunnd'al eins og áður er getið. Frá Sunndal fluttist Guðjón með
Þórólfi syni sínum að Fagradal innri í Saurbæ. Dáinn 11 apríl
1942.
Ingibjörg Þórólfsdóttir kona Guðjóns var fædd á Hrófá í
Tungusveit 23 marz 1868. Foreldrar hennar voru Þórólfur Mag-
nússon á Hrófá og Hildur Guðbrandsdóttir frá Kálfanesi, Hjalta-
sonar. — Hildur átti síðar Arna Jónsson á Hafnarhólmi.
Þórólfur faðir Ingibjargar drukknaði í viðarferð ásamt föður
sínum Magnúsi. Viðinn munu þeir hafa sótt norður í Ameshrepp
og voru á heimleið er slysið varð, en það varð framundan Eyjum
í Kaldrananeshreppi, á sundinu milli eyja og lands. Þennan dag
var norðan gola og höfðu þeir segl uppi, báturinn var hlaðinn viði
og allstór viðarfleki í togi á eftir. Fólk á Eyjum sá bátinn koma að
norðan með landi, en svoleiðis hagar til, að allhátt klettanes, kallað
Hamranes tekur af útsýn til sjávar og varð fólk ekki vart við slysið
fyrr en viðinn tók að reka inn úr sundinu. Þann dag var messu og
fermingardagur að Kaldrananesi og voru flestir fúlltíða heima-
menn frá Eyjum við kirkju og ekki aðrir heima en bömin og full-
orðnar konur, strax var athugað um bátinn og sást hann á hvolfi,
en ekkert sást til þeirra feðga og drukknuðu þeir þar, eins og áður
er sagt.
Bróðir Þórólfs var Jón Magnússon Vestanpóstur. Á leiðinni frá
Reykjavík til Isafjarðar. Jón var Vesturlandspóstur frá 1861 til
1874. Hann var afarmenni að burðum og karlmennsku, góður
smiður og vinsæll. Hann flutti til Vesturheims og sum börn hans.
Meðal barna þeirra Sunndalshjóna Guðjóns og Ingibjargar vom
Þórólfur búfræðingur, er lengi bjó í Fagradal innri í Saurbæ, mikill
félagsmálamaður og gegndi mörgum trúnaðarstörfum og Magnús
bóndi á Osi, sem er lesendum Strandapóstsins að góðu kunnur af
ljóðum sínum, er þar hafa verið birt. Annars munu flest börn
Guðjóns og Ingibjargar vera allvel hagmælt þó leynt fari.
Þegar Sigríður móðir Guðjóns var ung stúlka, var hún eitt ár
í vist hjá Ásgeiri Einarssyni á Kollarfjarðamesi. Þá var kalt vor og
þurfti lambfé nákvæma og vökula sinningu um sauðburðinn, hún
var þá látin vera til aðstoðar við það starf, en aðalmaður var
72