Strandapósturinn - 01.06.1971, Síða 110
um krafti aS þessu áhugamáli sínu meðan hann dvaldi þar. Þó
byggði hann bátasmíðahús á Drangsnesi og vann mikið að viðgerð-
um á bátum, og var viðgerðin þá stundum svo algjör, að nálg-
aðist það, að báturinn vceri byggður sem nýr. Það var fyrst eftir
að Ingi flutti til Akraness, að hann sá æskudraum sinn rœtast.
JJ-
Frá því ég man fyrst, hef ég haft gaman af bátum. Þegar ég
var smástrákur, þótti mér og bræðrum mínum mjög gaman að
horfa á seglskútumar, sem vora nær alltaf að veiðum á Húnaflóa.
Það var fögur og heillandi sjón að sjá þessi stóru skip sigla fram
og aftur um flóann, svört á lit, með hvítan fleyg við sjómálið. Við
höfðum það að leik að teikna þessi skip á reikningsspjöld, það var
svo þægilegt að þurrka út, ef teikningin stóðst ekki þær kröfur,
sem gerðar vora með samanburði við skipin sjálf og oft var
þurrkað út. Því næst fór ég að reyna að tálga úr rekaviðarkubb
líkön af þessum skipum en gat ekki fengið þau eins góð og ég
vildi.
Það var eitt sinn er ég var í þessum skipasmíðahugleiðingum
(líklega hef ég þá verið 7—8 ára) að ég fann upp nýtt lag á
skipi. Þetta lag var þannig, að ég tálgaði rekaviðarkubb svo hann
líktist einna helzt netaflá, eins og þær voru algengar á grásleppu-
netum, utan á kubbinn setti ég borð og borðstokk, í þetta skip
setti ég tvö möstur og útleggjara, útbjó tvö segl, stórsegl og aftur-
segl og tvær fokkur. Þessi bátur sigldi mjög vel og var næstum
ótrúlegt hvað hann fór vel á sjó. Eg smíðaði nokkra báta af þess-
ari gerð og reyndi að gera þá fallegri og fullkomnari.
Þegar ég var átta ára, fór ég með pabba mínum, frá Kolbeins-
vík (en þar átti ég heima), norður á Kúvíkur í verzlunarerindum.
Þá var þar kaupmaður Carl F. Jensen, var þá nýlega farinn að
reka verzlun þar. Þar sá ég bát, hvítan að lit og stóð hann uppi
við geymsluhús er þar var, ég fór að skoða bátinn og er mér enn
í fersku minni hvað mér þótti báturinn fallegur og lagið sér-
kennilegt og fallegt. Þegar ég kom heim úr þessari ferð, fór ég
strax að reyna að líkja eftir laginu á þessum bát.
Þannig liðu æskuárin, við leik og störf, en leikurinn var oft-
108