Morgunblaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021
✝
Hjörtur Guð-
jónsson fædd-
ist á Hlíðarenda í
Fljótshlíð 28.
ágúst 1943. Hann
lést á Hjúkrunar-
og dvalarheimilinu
Lundi á Hellu 28.
júlí 2021. For-
eldrar hans voru
Sigríður Björns-
dóttir frá Rauð-
nefsstöðum, f. 18.
mars 1920, d. 15. júlí 1964, og
Guðjón Helgason frá Hlíð-
arenda í Fljótshlíð, f. 22. mars
1916, d. 4. nóvember 2002.
Hjörtur var elstur fjögurra
alsystkina þeirra; Örn Helgi
Guðjónsson, f. 6. desember
1945, Björn Guðjónsson, f. 15.
janúar 1947, Sigurveig Guð-
jónsdóttir, f. 6. júlí 1948. Hálf-
systkini: Pálmi Guðjónsson, f.
6. júní 1948. Móðir Pálma er
Sigurveig Ólafsdóttir frá
Syðstu-Mörk, V-Eyjafjöllum.
Ágústa Guðjónsdóttir, f. 16.
júní 1953, Ragnheiður Guð-
jónsdóttir, f. 19. júní 1954, d.
22. janúar 1974, Bergþór Guð-
jónsson, f. 23. október 1956,
yngstur barna Viðars er Rún-
ar Darri. Ragnhildur Erla býr
í Garðabæ með eiginmanni
sínum Svani Sævari Lárussyni
og eiga þau dótturina Mar-
gréti Rós.
Hjörtur ólst upp með for-
eldrum sínum og systkinum,
fyrst á Hlíðarenda í Fljótshlíð
til ársins 1947 en þá fluttu þau
úr Fljótshlíðinni vegna Heklu-
goss og hófu búskap á Haug-
um í Borgarfirði. Þau bjuggu
svo í Stafholti og færðu sig
svo um set að Hólum í Hauka-
dal í Árnessýslu, en þar skildi
leiðir Guðjóns og Sigríðar árið
1953. Hjörtur færði sig svo al-
farið í Rangárvallasýslu og bjó
víða þar tengt sinni vinnu.
Hann vann lengi vel hjá Skóg-
rækt ríkisins og var einn af
mörgum sem komu að upp-
græðslu í Þórsmörk. Hann var
bílstjóri hjá Austurleið í fjöl-
mörg ár, flutningabílstjóri hjá
Kaupfélaginu ÞÓR og vann
svo hjá Landgræðslu ríkisins
síðustu starfsárin. Hjörtur
unni skógrækt og eyddi mörg-
um stundum í garðinum þeirra
hjóna á Nestúni 7 á Hellu.
Honum fannst gaman að
ferðast með fjölskyldu sinni og
voru þær ófáar ferðirnar um
hálendi Íslands allan ársins
hring.
Útförin fór fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Ísleifur Helgi
Guðjónsson, f. 24.
apríl 1959, d. 25.
júní 2006, Þor-
steinn Guðjónsson,
f. 5. apríl 1961,
Sigurgeir
Guðjónsson, f. 4.
janúar 1968. Móð-
ir þeirra Þóra
Jenný Ágústs-
dóttir.
Hjörtur kvænt-
ist Sólveigu Stolzenwald 23.
október 1971 í Oddakirkju á
Rangárvöllum. Þau eignuðust
tvær dætur, Elínu Hjart-
ardóttur Stolzenwald, f. 10.
apríl 1972, og Ragnhildi Erlu
Hjartardóttur, f. 6. nóvember
1973. Elín býr á Hellu með
manni sínum, Viðari Rúnari
Guðnasyni. Fyrir átti hún dæt-
urnar Írenu Sólveigu og Re-
bekku Rut með Sverri Nor-
fjörð Bergssyni og eru þær
báðar búsettar á Hellu ásamt
unnustum sínum. Fyrir átti
Viðar börnin Sunnu Líf, sem á
eitt barn með Einari manni
sínum, Örnu Sif, sem á eitt
barn með Þór manni sínum, og
Kveðjustundin er komin
elsku pabbi minn. Það er sama
hvað maður telur sig vera bú-
inn að undirbúa sig fyrir þetta
augnablik. Það er bara svo
sárt samt. Það er svo óenda-
lega margt sem flæðir af minn-
ingum fram, allar skemmtilegu
ferðirnar okkar inn á fjallabak,
inn í Þórsmörk sem var alltaf
uppáhalds hjá þér og margar
aðrar ferðir um landið okkar,
bíltúrarnir sem oft enduðu inni
í Fljótshlíð á þínum heimaslóð-
um, kindabúskapurinn sem var
svo skemmtilegur, það var
alltaf svo gaman að stússa í
þessu með þér og þótt maður
væri nú ekki hár í loftinu að
gefa, fara með á fjall og svo
réttirnar á haustin þar sem þú
þurftir ekki annað en að kalla
á kindurnar og þær fylgdu þér
svo bara upp á bíl og heim á
Hellu í fjárhúsið okkar. Við
þurftum samt alltaf á hverju
ári að fara aðra ferð í réttir og
það var bara til að sækja hana
Gimbu mína og lambhrútinn
hennar en þau skelltu sér allt-
af í hlíðina fögru.
Ferðirnar með þér í út-
keyrslu í sveitirnar þar sem ég
beitti eða reyndi að beita gríð-
arlegri tækni í suði ef ég sá
kettling, hvolpa, folöld og
lömb; „pabbi plííís má ég taka
hann með heim“. Það tókst nú
bara einu sinni og sú kisa fékk
ekki alveg að vera heima en
mjög nálægt því. Í næstu götu
bjó Örn frændi og hann pass-
aði hana bara fyrir mig og svo
komu nú kettlingar þar og þá
toppaði ég mig alveg í suðinu
og fékk einn heim. Þegar sá
hvarf og ekkert dýrið hafði
komið á heimilið í nokkurn
tíma nema slatti af hundum
sem var verið að passa þá
hófst naggrísaævintýrið mitt,
sem endaði með 16 stykkjum
og þá kom líka stopp og guð
hvað ég skil það vel í dag.
Það er svo margs að minn-
ast og gott að ylja sér við
minningar og svo dásamlegt að
mikið af þeim er til á filmu og
óendanlegt magn af ljósmynd-
um. Við áttum það sameigin-
legt að elska garðvinnu og sér-
staklega alls konar bras í
trjáfærslum og tilraunum. Ég
náði samt aldrei tækni við að
klippa tré og mitt loforð til þín
í lokin var að hlúa vel að
mömmu, garðinum og koma
ekki nálægt garðklippum! Það
náttúrlega stingur í augu þeg-
ar ég klippi tré, það er svo
skakkt, en ég er góð í að færa
og saga tré.
Þú varst kletturinn minn,
elsku pabbi, ég á þér svo
margt að þakka, þú varst alltaf
til staðar þegar ég þurfti á þér
að halda, hjálpaðir mér í gegn-
um hverja flutningana á fætur
öðrum þó að þú værir orðinn
veikur og breytingar í mínu
lífi, þú fékkst mig til að trúa
að allt hefði tilgang. Þú fylgdir
mér á ótrúlega erfiðum tímum
í mínu lífi og ég fékk trú og
enn betra líf. Það er svo margt
sem þú hefur kennt mér um
lífið og tilveruna. Ég er svo
stolt yfir því að vera dóttir
þín.
Megi gæfan þig geyma,
megi Guð þér færa sigurlag.
Megi sól lýsa þína leið,
megi ljós þitt skína sérhvern dag.
Og bænar bið ég þér,
að ávallt geymi
þig Guð í hendi sér.
(Bjarni Stefán Konráðsson)
Þín dóttir,
Elín Hjartardóttir
Stolzenwald.
Elsku afi, fyrir þig erum við
Pollýönnurnar þínar afar
þakklátar.
Þú varst alltaf svo lífsglaður
og hress. Við myndum gera
ansi margt bara til að eiga
stund með þér aftur. Til að
spjalla við þig og segja þér frá
okkar afrekum. Til að segja
þér alls konar fyndnar sögur
sem við erum búnar að lenda í.
Til að prakkarast aðeins með
þér. Til að fara með þér í bíl-
túr og hlusta á þig tala um öll
fjöllin og bæina hérna í kring.
Að eiga notalega stund saman
aftur væri gjöf.
Við kveðjum þig með mikl-
um söknuði en vonum að þú
hafir fundið hvíldina og frið-
inn.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður
mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Írena Sólveig S.
Stolzenwald, Rebekka
Rut S. Stolzenwald.
Elsku vinur. Ég ætla ekki
að fara að skrifa eitthvert ævi-
ágrip um þig en mig langar
samt að minnast þín Hjörtur
minn eins og ég kynntist þér.
Við ræddum það eitt skiptið
þegar ég heimsótti þig á Lund.
Þú varst orðinn virkilega veik-
ur þá en brosið sem ég fékk
frá þér þegar ég gekk inn í
herbergið þitt, því mun ég
aldrei gleyma, annars reyndir
þú alltaf að hressa þig við þeg-
ar ég kom. Ég ætla að rifja
upp fyrstu kynni okkar, við
gerðum það síðast og hlógum
dátt að því. Ég þurfti að
skeppa til Reykjavíkur, en var
nýbyrjaður að vinna hjá Kaup-
félaginu Þór og fékk að sitja í
hjá þér í bæinn, við spjölluðum
um daginn og veginn og ég
fann strax hve ljúfur maður þú
varst. Um kvöldið fékk ég svo
far hjá þér aftur austur á
Hellu og þú bauðst mér í mat
um kvöldið, og auðvitað tók
þín yndislega eiginkona Sól-
veig á móti okkur fagnandi.
Við sátum svo fram eftir
kvöldi með eitthvert glundur í
glasi og spjölluðum fram eftir
kvöldi.
Eftir þennan bíltúr minn
fram og til baka til Reykjavík-
ur hófst okkar vinátta sem
hefur staðið frá því árið 1973.
Þið hjón heimsóttuð okkur oft
til Vestmannaeyja og aðallega
um þjóðhátíð. Það sem ég dáð-
ist mest að í fari þínu var hvað
þú varst alltaf yfirvegaður, en
ég fann að þú varst ekki sáttur
við fortíð þína sem barn og
vildir síður tala um það. Áður
en þú lagðist inn á Lund þá
röltum við út að Landkrúsern-
um sem þú áttir og vorum eitt-
hvað að spjalla saman, þegar
þú sagðir mér frá þessum
hræðilega sjúkdómi sem lagði
þig endanlega og ég viður-
kenni það alveg að þó svo að
ég vissi að hverju stefndi hjá
þér þá hálfbrá mér og ég fékk
kökk í hálsinn þegar Sólveig
hringdi í mig og tilkynnti mér
fráfall þitt. Og jarðarfarardag-
inn þinn, sem fór fram í kyrr-
þey að þinni ósk, var hugur
minn stöðugt hjá þér, Sól-
veigu, dætrum og barnabörn-
um. Þegar ég átti í vandræðum
fyrir rúmum 20 árum þá sást
þú alveg í gegnum mig. Aldrei
dæmdir þú eða Sólveig mig.
Ég var alltaf velkominn á
heimili ykkar og fyrir það er
ég ákaflega þakklátur og þetta
hefur sýnt mér hve yndislega
vini ég á.
Þú þekktir Þórsmörkina
eins og fingur þína og gaman
var þegar við fórum inn í kofa,
eða ég man nú ekki hvað þetta
heitir, en það skiptir ekki máli,
en þú gast endalaust sagt okk-
ur ferðafélögum þínum hvað
þessi fjöll og umhverfið hét.
Við ræddum aldrei um trúmál,
en ég held samt að þú hafir
verið mjög trúaður maður og
ég veit að góður Guð og þitt
fólk hefur tekið vel á móti þér.
Elsku Hjörtur, ég trúi því
að Jesús Kristur hafi fagnað
þér því jú allt sem hann gerði
hér á jörð var fyrir okkur gert
svo við gætum átt eilíft líf. Ég
vil geyma minningu þína í
hjarta mínu og hefði viljað
hafa þessar línur lengri, en ég
trúi einnig að þú sért hér ein-
hvers staðar og fylgist með og
það er gott að trúa því.
Elsku Sólveig, þú ert hetja
og frábær manneskja og hefur
þurft að þola ýmsan mótbyr,
ég bið því góðan Guð að
styrkja og blessa þig, dætur,
tengdasyni og barnabörn í
ykkar miklu sorg. Þið eruð öll
yndisleg.
Elsku Hjörtur, takk fyrir
góða vináttu og Guð geymi þig
kæri vinur.
Friðrik Ingi Óskarsson.
Hjörtur
Guðjónsson
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Yndislega móðir okkar, dóttir, systir, frænka
og vinkona,
UNNUR GUÐRÚN RÖGNVALDSDÓTTIR,
Laugarvegi 37, Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á
Siglufirði 10. ágúst. Útförin fer fram frá
Siglufjarðarkirkju laugardaginn 21. ágúst klukkan 11.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað, en þeim sem
vilja minnast Unnar Guðrúnar er bent á söfnunarreikning
nr. 348-13-000017, kt. 110557-5669 sem rennur alfarið til
barna hennar.
Hilmir Darri Kristinsson Auður Anna Kristinsdóttir
Auður Björk Erlendsdóttir Rögnvaldur G. Gottskálksson
Aðalheiður L. Rögnvaldsd. Guðjón Hall Sigurbjörnsson
Lárey Lind Guðjónsdóttir Magnea Mist Guðjónsdóttir
Kristinn Kristjánsson Arnór Gauti Kristinsson
Móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGNÝ UNA SEN
lögfræðingur,
Miðleiti 7, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
laugardaginn 7. ágúst.
Jarðarförin mun fara fram í kyrrþey.
Erlendur Jónsson Hanna María Siggeirsdóttir
Jón Helgi Erlendsson Guðbergur Geir Erlendsson
Signý Vala Sveinsdóttir Unnur Edda Sveinsdóttir
og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
EINAR HELGI HARALDSSON,
bóndi á Urriðafossi,
Lyngmóa 9, Selfossi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
4. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju miðvikudaginn
18. ágúst klukkan 13. Vegna samkomutakmarkana verða
aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir og verður því boðið til
athafnar. Streymt verður frá athöfninni á www.selfosskirkja.is.
Lilja Böðvarsdóttir
Haraldur Einarsson Birna Harðardóttir
Hanna Einarsdóttir Dagur Arngrímsson
Arnar Einarsson Emilía Björg Atladóttir
Dagur Fannar Einarsson
Daði Kolviður Einarsson
og barnabörn
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTMUNDUR ELÍ JÓNSSON
verslunarmaður,
sem lést 31. júlí, verður jarðsunginn
frá Dómkirkjunni í Reykjavík 16. ágúst
klukkan 13.00.
Sigríður Dúna Kristmundsd. Friðrik Sophusson
Kristbjörg Elín Kristmundsd.
Guðrún Björk Kristmundsd. Jónas Björn Björnsson
Júlía Kristmundsd. Sanford Mahr
barnabörn og barnabarnabörn
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTINN ÞÓRIR EINARSSON,
fyrrverandi skólastjóri,
Reyðarfirði,
verður jarðsunginn frá Reyðarfjarðarkirkju
mánudaginn 16. ágúst klukkan 14.
Streymt verður frá athöfninni á slóð Reyðarfjarðarkirkju.
Blóm og kransar afþakkast en þeim sem vildu minnast hins
látna er bent á Björgunarsveitina Ársól á Reyðarfirði.
Einar Már Kristinsson Júlíana Haraldsdóttir
Ragnheiður K. Kristinsdóttir Gunnlaugur Einar Ragnarsson
Margrét Steinunn Kristinsd. Vilbergur Prebensson
Tómas Örn Kristinsson Elísabet Tómasdóttir
Kristinn Ingi Kristinsson Helle Kit Hansen
Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
barnabörn og langafabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐRÚN INGIBJÖRG
KRISTMANNSDÓTTIR
frá Brekkuholti, Stokkseyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum
laugardaginn 7. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju mánudaginn
16. ágúst klukkan 14.
Þorgerður Lára Guðfinnsd.
Kristmann Guðfinnsson Katrín Guðmundsdóttir
Oddgeir Bjarni Guðfinnsson Björk Stefánsdóttir
Guðríður Guðfinnsdóttir Sigurður Guðjónsson
Guðrún Guðfinnsdóttir Guðmundur Guðlaugsson
og fjölskyldur