Morgunblaðið - 16.08.2021, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 6. Á G Ú S T 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 190. tölublað . 109. árgangur .
RÓBERT ÆFIR
ÞRETTÁN
SINNUM Í VIKU
HÖNNUÐU ÚT-
SÝNISPALL Á
BOLAFJALL
KVENFÉLAGS-
STÖRFIN
SKEMMTILEG
EINAR OG SRUTHI 4 STEFANÍA NÍRÆÐ Í DAG 24ÓLYMPÍUMÓT FATLAÐRA 27
Áttatíu ár eru í dag liðin frá því að
Winston Churchill, forsætisráðherra
Breta í síðari heimsstyrjöld, heim-
sótti landið eftir Atlantshafsfund
sinn með Roosevelt Bandaríkja-
forseta.
Á laugardagsmorgni hinn 16.
ágúst 1941 safnaðist talsverður
fjöldi fólks saman við Reykjavíkur-
höfn. Það hafði enda kvisast út, að
von væri á sjálfum Churchill til bæj-
arins, þrátt fyrir að bandamenn
reyndu með ýmsum ráðum að koma
í veg fyrir að það spyrðist út. Í grein
Þórs Whitehead, prófessors em-
eritus í sagnfræði, um heimsókn
Churchills, sem birtist á mbl.is í
gær, kemur m.a. fram að þeir hafi
lokað fyrir símasamband við
Reykjavík vegna heimsóknarinnar.
Churchill gekk í land í Reykjavík
um ellefuleytið, ásamt fríðu föru-
neyti. Þar voru meðal annars How-
ard Smith, sendiherra Breta á Ís-
landi, og Franklin Roosevelt yngri,
sonur forsetans og foringi í sjóher
Bandaríkjanna. Í grein Þórs White-
head er rakið að Ísland hafi aldrei
haft annað eins vægi í heimstaflinu
og þarna, þegar ríkisstjórn þessa
hlutlausa lands greiddi vísvitandi
fyrir þátttöku vesturheimsstórveld-
isins í ófriðinum. »6
80 ár frá heim-
sókn Churchills
- Mikið vægi Íslands í heimstaflinu
Heimsókn Winston Churchill við
höfnina í Reykjavík árið 1941.
Eftir að hafa á undraskömmum tíma náð að
sölsa undir sig meirihluta Afganistan
streymdu vígamenn talíbana inn í höfuðborg-
ina Kabúl á sunnudag.
Lítið var um átök og mátti sjá upptökur af
talíbönum í forsetahöllinni aðeins nokkrum
klukkustundum eftir að fréttist að forsetinn,
Ashraf Ghani, hefði flúið land.
frá þaki bandaríska sendiráðsins til flugvall-
arins í Kabúl en þar ríkti upplausnarástand
þegar fjöldi fólks reyndi að komast úr landi.
»12, 14
Talsmaður talíbana tjáði BBC að líf og eig-
ur landsmanna væru ekki í hættu og að eng-
inn þyrfti að óttast hefndaraðgerðir.
Á sunnudag mátti sjá herþyrlur ferja fólk
AFP
Talíbanar ná
völdum í Kabúl
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Rétt í þann mund sem
kórónuveirufaraldurinn skall á Sví-
um af fullum þunga í fyrra tóku
Björn Zoëga og samstarfsmenn
hans á Karólínska-háskólasjúkra-
húsinu í Stokkhólmi á honum stóra
sínum og fimmfölduðu fjölda gjör-
gæslurýma úr 38 í 180. Á elleftu
stundu tókst honum að panta 50
nýjar öndunarvélar frá sænsku
fyrirtæki, rétt í þann mund sem
pantanir dreif að, úr öllum heims-
hornum.
Faraldurinn skall á, rúmu hálfu
ári eftir að hann tók við spítalan-
um en þá var spítalinn í miklum
fjárhagskröggum. Til þess að
sporna við botnlausum hallarekstri
sagði Björn upp 550 skrifstofu-
mönnum og u.þ.b. 400 læknum og
sjúkraliðum. Frá
því að gripið var
til þeirra að-
gerða hefur
sjúkrarúmum á
spítalanum verið
fjölgað um tæp-
an fjórðung og
starfsánægja
fólks er meiri.
Starfsmanna-
velta á spítalanum hefur aldrei
verið minni.
Björn er gestur í Dagmálum,
streymisþætti sem aðgengilegur er
áskrifendum Morgunblaðsins á
mbl.is. Þar segir hann m.a. að full-
reynd sé sú nálgun að fjármagna
sjúkrahúsrekstur með föstum fjár-
framlögum. Tengja verði afköst og
gæði þjónustunnar við það sem
ríkissjóður reiðir af hendi. Við slík-
ar aðstæður hafi stofnanir tilhneig-
ingu til þess að hugsa hlutina upp
á nýtt, hagræða og einfalda rekst-
ur í þágu sjúklinga og starfsfólks.
Alvarlegar afleiðingar
Hann segir enn ekki ljóst hver
dómurinn yfir aðgerðum sænskra
yfirvalda vegna kórónuveirunnar
verði þegar allt verður gert upp.
Dánartíðni þar í landi hafi ekki
reynst meiri en í skæðum inflú-
ensuárum. Þó séu nú að koma
fram alvarlegar afleiðingar af far-
aldrinum. Mikið sé um nýgengi
krabbameina sem séu í stóraukn-
um mæli langt gengin. Það skýrist
sennilega af því að skimunum var
hætt meðan faraldurinn stóð sem
hæst og að fólk hefur dregið það
að leita sér lækninga vegna
ástandsins.
Fimmfaldaði gjörgæsluna
á Karólínska-sjúkrahúsinu
- Telur afkastatengda fjármögnun lykil að bættri nýtingu
Björn Zoëga
MNáðu fljótt tökum ... »10 og 11