Morgunblaðið - 16.08.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 2021
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
595 1000
Verð frá kr.
79.900
Krít
tu
rb
re
.
24. ágúst í 10 nætur
Verð frá kr.
89.900
Stökktu
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Olía er tekin að leka úr skipsflaki El
Grillo að nýju og ógnar lífríki Seyð-
isfjarðar. Hlynur Vestmar Oddsson,
kajakleiðsögumaður frá Seyðisfirði,
harmar lekann og vill láta fjarlægja
skipið. „Já, því miður er þetta aftur
farið af stað,“ segir Hlynur en hann
hefur haft augun opin fyrir lekanum
síðustu ár.
Farið að leka á fleiri stöðum
„Það er farið að tærast svo skipið
að það er kominn leki á fleiri stöðum
en einum.“ Olíuskipið breska liggur
enn á botni Seyðisfjarðar, hefur ver-
ið þar síðan þýskar flugvélar sökktu
því í heimsstyrjöldinni síðari.
„Þetta drepur náttúrlega okkar
lífríki, fugla og unga,“ segir Hlynur
en síðast þegar leki varð í skipinu
var greint frá því að æðarungarnir
lifðu margir hverjir ekki olíuna af og
urðu máfum að bráð. Nú er staðan
svipuð, dauðir æðarfuglar liggja í
fjörunni. Síðan þá hefur verið ráðist í
ýmsar aðgerðir til þess að stöðva
lekann, til að mynda var dælt upp úr
flakinu árið 2001 og steypt í gatið
fyrir rúmu ári.
Það þarf að fjarlægja skipið
Nú er aftur á móti sennilegt að
annað op hafi myndast. „Þetta er því
miður ekki búið dæmi, þetta ætlar að
verða einhver eilífðarleki,“ segir
Hlynur.
Spurður hvað sé hægt að gera seg-
ir Hlynur að það sé að fjarlægja
skipið, sem er um 7.200 brúttótonn.
Það sé nú í nefnd hjá umhverfis- og
auðlindaráðuneytinu.
„Þetta er skuggalegt, mesta um-
hverfisslys Íslandssögunnar af
mannavöldum.“
„Þetta er mesta umhverf-
isslys Íslandssögunnar“
Ljósmynd/Hlynur Vestmar Oddsson
Leki Dauður æðarfugl sem varð
olíunni að bráð. Fannst í fjörunni.
- Enn lekur
olía úr El Grillo
á Seyðisfirði
Steinar Ingi Kolbeins
steinar@mbl.is
Að lágmarki 64 greindust smitaðir af
kórónuveirunni í fyrradag. Þar af
voru 38 einstaklingar utan sóttkvíar.
Virkum smitum fækkaði þó um 65
milli daga. Rétt tæplega tvö þúsund
manns eru nú í sóttkví en þeim hefur
nokkuð fjölgað undanfarna daga, til
dæmis vegna smita sem hafa greinst
á leikskólum og á frístundamiðstöð á
höfuðborgarsvæðinu undanfarið.
Þrjátíu og einn liggur nú á sjúkra-
húsi vegna sýkingar, þar af sex á
gjörgæslu.
Skiluðu tilætluðum árangri
Níu dagar eru liðnir frá því að
gerð var breyting á reglugerð er
snýr að aðgengi að farsóttarhúsum
Rauða krossins. Gífurlegt álag var á
húsunum og hafði Gylfi Þór Þor-
steinsson, forstöðumaður húsanna,
bent á að vandinn lægi í þeim fjölda
ferðamanna sem þurfti að dvelja í
fimm daga sóttkví í farsóttarhúsun-
um. Breytingin á reglugerðinni var
þess efnis að húsin yrðu nýtt fyrst og
fremst fyrir fólk sem þarf á einangr-
un að halda, þó með einstaka und-
antekningum. Spurður hvort breyt-
ingarnar hafi skilað tilætluðum
árangri segir Gylfi: „Já, svo sann-
arlega. Það léttir náttúrlega stór-
kostlega á okkur að þurfa ekki að
taka á móti 80-90 ferðamönnum á
dag sem þurfa að dvelja í fimm daga
sóttkví.“
Gylfi segist viss um að álagið sé
viðráðanlegt eins og er og sér fram á
að svo verði áfram. Hann segir um
160 manns dvelja í húsunum núna,
en nóg sé af herbergjum sem hægt
sé að nýta.
Breyttar reglur á landamærum
Í kjölfar ríkisstjórnarfundar þann
6. ágúst var tilkynnt að aðgerðir á
landamærum yrðu hertar frá og með
16. ágúst. Þær breytingar taka gildi í
dag og snúa þær aðallega að því að
bólusettir farþegar og þeir einstak-
lingar sem hafa vottorð um fyrri sýk-
ingu með tengsl við Ísland þurfa að
fara í sýnatöku innan 48 klukku-
stunda frá komu til landsins. Þeir
sem teljast með tengsl við Ísland eru
íslenskir ríkisborgarar, einstakling-
ar búsettir á Íslandi, einstaklingar
með atvinnuleyfi á Íslandi og um-
sækjendur um atvinnuleyfi eða al-
þjóðlega vernd á Íslandi. Farþegarn-
ir sem um ræðir munu þó ekki þurfa
að sæta sóttkví þar til niðurstaða úr
sýnatöku liggur fyrir. Þá er gert ráð
fyrir því að farþegarnir fari í hrað-
próf eða í PCR-próf. Hægt verður að
fara í sýnatöku á Keflavíkurflugvelli
eða á sýnatökustöð innan tímamark-
anna. Sýnatakan verður gjaldfrjáls
en heimilt verður að sekta þá ein-
staklinga sem ekki fara í sýnatöku
innan 48 klukkustunda.
Virkum smit-
um fækkar en
2.000 í sóttkví
- Staðan góð á farsóttarhúsum
- Bólusettir komufarþegar í sýnatöku
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sýnataka Nýjar reglur á landa-
mærunum tóku gildi á miðnætti.
Fjölgar í sóttkví
» 1.985 einstaklingar eru í
sóttkví
» 1.239 eru í einangrun
» 64 hið minnsta greindust
sýktir í fyrradag
» 31 liggur inni á sjúkrahúsi
» 6 einstaklingar eru á gjör-
gæslu
» Nýgengi innanlandssmita á
hverja 100 þúsund íbúa lækkar
milli daga og er nú 396,2
Gunnhildur Sif Oddsdóttir
gunnhildursif@mbl.is
„Eins og við höfum alltaf sagt þá er
það útsýnið og þessi mikla hæð, það
er aðalatriðið. Pallurinn er bara til
að styrkja það, hann á ekki að vera
aðalatriðið,“ segir Einar Hlér Ein-
arsson en hann og eiginkona hans,
Shruthi Basappa, reka stofuna Sei
Studio sem ásamt Landmótun sigr-
uðu í samkeppni um hönnun útsýn-
ispalls á Bolafjalli sem nú er í bígerð.
Að sögn Einars ganga fram-
kvæmdir vel og mikið hraðar en þau
bjuggust við. Pallurinn var forsmíð-
aður í Póllandi og smellpassaði hann
þegar hann kom til landsins. Gólfið í
pallinn er svo væntanlegt frá Ítalíu
um miðjan september og reiknar
Einar með að pallurinn verður opn-
aður fljótlega eftir að gólfið er tilbú-
ið.
„Við erum að vinna með mjög sér-
stakt land undir bygginguna og
þetta er búin að vera ótrúlega
skemmtileg reynsla og allt gengið
vel,“ segir Einar.
Hafa þurft að margmæla fjallið
Aðspurður segir Einar að það hafi
verið snúið að hanna útsýnispall á
Bolafjalli. Það hafi þurft að marg-
mæla fjallið og í hvert sinn sem
vinna er framkvæmd í fjallinu þurfi
að uppfæra mælinguna. Þá hafi ver-
ið unnið í þrívíddarmælingu af fjall-
inu frá því að samkeppnin var haldin
en vinningstillagan var kynnt í febr-
úar 2019. „Þetta var mjög nákvæm
þrívíddarmæling af fjallinu sem við
fengum upphaflega og síðan þá höf-
um við gert tvær til viðbótar og í
hvert skipti sem búið er að gera eitt-
hvað við fjallið þá þurfum við að
breyta,“ segir Einar og bendir á að
það sé vegna þess að í hvert skipti
sem barið er í fjallið eða efni fjar-
lægt af toppnum, þá geti hrunið úr
fjallinu.
„Núna er reyndar búið að styrkja
allt bergið með stálboltum þvers og
kruss þannig það má segja að það sé
búið að sauma það saman,“ segir
Einar.
Þá segir Einar að þeim hafi þótt
mjög mikilvægt að pallurinn væri í
hvarfi þar til komið væri að honum,
en pallurinn, sem er 600 metra yfir
sjávarmáli, er, þar sem hann er
lengstur, 65 metrar og stendur hann
síðustu fimm til sex metrana fram af
fjallinu. „Við fórum eins langt út
með hann og verkfræðingurinn
leyfði,“ segir Einar. Gengið er inn á
pallinn á jöfnu undirlagi en síðan er
tveggja gráðu halli á honum. Þegar
komið er á enda pallsins er því staðið
undir yfirborði fjallsins sem hallar
upp frá pallinum. Þannig verði pall-
urinn dýpri eftir því sem gengið er
með fram honum.
Að sögn Einars er þetta skemmti-
legasta verkefnið sem þau hjónin
hafa tekið að sér og eru þau því mjög
spennt að sjá lokaútkomuna.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Bolafjall Síðustu fimm til sex metrarnir á útsýnispallinum hanga fram af fjallinu, 600 metra yfir sjávarmáli.
Útsýnispallurinn
verði ekki aðalatriðið
- Bergið „saumað saman“ með stálboltum þvers og kruss
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Hjón Einar Hlér Einarsson og Shruthi Basappa keyrðu upp á Bolafjall í vik-
unni sem leið til að fylgjast með framkvæmdunum og leist vel á stöðu mála.