Morgunblaðið - 16.08.2021, Síða 7

Morgunblaðið - 16.08.2021, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 2021 KOMDUÚT AÐHJÓLA EITTMESTA ÚRVAL LANDSINS AF REIÐ- OG RAFHJÓLUM Skoðaðu úrvalið á orninn.is ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA Frábært fjölnota hjól Álstell, 16 gírar Vökvabremsur Radioactive Red 99.990 kr. MARLIN6 Frábært fjölnota hjól Álstell - 24 gírar Vökva diskabremsur Læsanlegur dempari Gunmetal 109.990 kr. DS2 Frábært fjölnota hjól Álstell - 24 gírar Vökva diskabremsur Matte Dnister Black 104.990 kr. FX2Disc Á kosning.is hefur nú verið birt tímalína þar sem finna má allar helstu dagsetningar fyrir aðdrag- anda kosninganna sem fara fram 25. september næstkomandi. Þar kemur fram að frestur nýrra fram- boða til að óska eftir listabókstaf rennur út 7. september og að lands- kjörstjórn auglýsi framboðslista eigi síðar en 15. september. Þar segir einnig að atkvæðagreiðsla ut- an kjörfundar megi hefjast þann 4. september en atkvæðagreiðsla vegna sóttkvíar má hefjast hjá sýslumönnum 20. september. Á tímalínunni má einnig finna tíma- setningar fyrir atkvæðagreiðslu í Covid-einangrun. Tímalína kosninga Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alþingi Birt hefur verið tímalína fyrir kosningarnar í haust. Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is Landsþing Miðflokksins fór fram nú um helgina og segir formaður flokksins þingið marka formlegt upphaf kosningabaráttunnar. Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, for- maður Miðflokksins, segir allt hafa gengið vonum framar á þinginu nú um helgina. Ánægjulegt hafi verið að hitta flokksfélagana aftur í eigin persónu. „Þetta er svona pínu það sem maður þurfti á að halda eftir eitt og hálft ár, að fá að hitta fólk í eigin persónu,“ segir Sigmundur í samtali við blaðamann. Spurður hvort kosningabaráttan sé nú hafin segir Sigmundur: „Tví- mælalaust. Baráttan hefst núna við lok þingsins og það er bara ótrú- lega góð stemming í hópnum, sem er mjög hvetjandi þegar að maður er að fara inn í kosningabaráttu.“ Sigmundur segir meginstefnu- málin hafa verið formuð nú um helgina en í komandi viku muni hann boða til kynningarfundar þar sem hann hyggst kynna hvernig stefnumálin verða útfærð. „Aðferð- in sem ég mun kynna á þessum fundi er í raun alveg ný nálgun í ís- lenskum stjórnmálum,“ segir Sig- mundur en vill þó ekki gefa mikið upp að svo stöddu. „Þótt ég sé afar spenntur að tjá mig um þetta þá verð ég að sitja á mér fram að kynningarfundinum.“ Hann segir samstöðuna í hópnum og þá stemmingu sem myndaðist vegna hennar vera það sem helst stendur upp úr eftir þingið. Kosningabaráttan byrjuð Ljósmynd/Miðflokkurinn Línurnar lagðar Sigmundur Davíð, formaður Miðflokksins, ávarpar þingið. - Samstaða og stemming einkenndi landsþing Miðflokksins Kristján Odds- son, svæðisstjóri Heilsugæslunnar Hamraborgar, hefur sagt sig frá stöðu sinni hjá Samhæfingarstöð krabbameins- skimana. Krist- ján hefur stýrt stöðinni frá miðju ári 2020. Í til- kynningu á vef heilsugæslunnar seg- ir að Kristján muni nú einbeita sér að starfi sínu við heilsugæsluna í Hamraborg. „HH þakkar Kristjáni mikið og gott starf við þetta verk- efni,“ segir í tilkynningunni. Ágúst Ingi Ágústsson, kvensjúkdómalækn- ir, hefur verið ráðinn yfirlæknir og nýr forstöðumaður Samhæfing- arstöðvarinnar næsta hálfa árið. Þá segir að brýnasta verkefni stöðv- arinnar næstu mánuði sé að ljúka gerð nýs tölvukerfis sem heldur ut- an um skimanirnar. Segir sig frá krabbameins- skimunum Kristján Oddsson Rangt starfsheiti Rangt var farið með starfsheiti Grettis Gautasonar, staðgengils upplýsingafulltrúa Isavia, í Morg- unblaðinu á laugardag. Þá mátti skilja að tilvitnun í lögreglumann í Leifsstöð, um að ekki væri pláss fyr- ir fleiri skoðunarborð í flugstöðinni, væri Grettis. Svo var ekki. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.