Morgunblaðið - 16.08.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 16.08.2021, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 2021 ✝ Kristmundur Elí Jónsson var fæddur 27. mars 1929 á Holtsgötu 12 í Reykjavík. Hann lést 31. júlí 2021. Hann ólst upp í næsta nágrenni, á Brekkustíg 6A, og síðar á Grenimel 23 þar sem foreldrar hans byggðu sér hús. Þau voru Jón Sveinsson, 1897-1953, skipstjóri frá Hálsi undir Kirkjufelli í Grundarfirði og síðar einn af stofnendum Bæjarins beztu pylsur, og Guðrún Kristmunds- dóttir, 1900-1978, ættuð frá Hraunsholti í Garðahreppi. Systur Kristmundar eru Anna (1930-2009), Margrét (1937- 2020) og Magnea (f. 1941). Kristmundur kvæntist 5. maí og á hún tvö börn; Ragnar Hjálmarsson og Sigríði Frans- isku Friðriksdóttur. Fósturbörn Sigríðar Dúnu, börn Friðriks, eru fimm. 2) Kristbjörgu Elínu, f. 1957, jógakennara, og á hún þrjú börn; Júlíus, Þórunni og Gabríel Eymundsbörn. 3) Guðrúnu Björk, f. 1962, eiganda Bæjarins beztu pylsur, og á hún soninn Baldur Hall- dórsson. Sambýlismaður hennar er Jónas Björn Björnsson. Fóst- urbörn Guðrúnar, börn Jónasar, eru tvö. 4) Júlíu Hrafnhildi, f. 1967, myndlistarkennara við háskól- ann í Tampa og á hún soninn Kristmund Ágúst Jónsson. Sam- býlismaður hennar er Sanford Mahr. Fósturbörn Júlíu, börn Sanford, eru tvö. Barnabarnabörnin eru sex. Kristmundur gekk í skóla í vesturbæ Reykjavíkur en þegar hann var 14 ára veiktist faðir hans og hann hóf störf hjá fjöl- skyldufyrirtækinu, Bæjarins beztu pylsur. Hann rak fyrir- tækið, framan af með Guðrúnu móður sinni, til 1994 þegar Guð- rún, dóttir hans, tók við rekstr- inum. Hann hafði alla tíð mikinn áhuga á landafræði og fjar- lægum slóðum en einkum var það þó hafið sem fangaði huga hans. Ungur smíðaði hann sér trébát en hann var smiður góð- ur. Hann veiddi bæði fisk, svart- fugl og einstaka sinnum sel og allt var nýtt. Þegar fram liðu stundir tóku við norskir fjarð- arbátar og þeim sigldi hann gjarnan til Vestfjarða. Krist- mundur var félagi í Snarfara, félagi smábátaeigenda, og hjálpuðust þeir félagar að með bátana sína og fóru í sjóferðir saman. Hann veiddi lax öll sum- ur og sennilega þekktu fáir Grímsá í Borgarfirði betur en hann. Kristmundur gekk ungur í Oddfellowregluna og starfaði í henni í áratugi. Þegar komið var fram yfir miðjan aldur festi hann kaup á íbúð við Kar- íbahafsströnd Flórída þar sem heitir Lands End. Útför Kristmundar verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykja- vík 16. ágúst 2021 kl. 13. 1951 Sigríði Júl- íusdóttur (1930- 2020), en hún var dóttir Júlíusar Guð- mundssonar (1895- 1984), kaupmanns í Baldri á Fram- nesvegi, og konu hans, Guðrúnar Nikulásdóttur (1900-1999). For- eldrar Krist- mundar og Sigríðar voru góðir vinir, tengdir fjöl- skylduböndum og Oddfellowar. Sigríður og Kristmundur byggðu sér hús á Neshaga 4 í Reykjavík en fluttu árið 1983 á Einimel 17 og bjuggu þar þang- að til þau minnkuðu við sig sök- um aldurs. Þau eignuðust fjórar dætur: 1) Sigríði Dúnu, f. 1952, pró- fessor, gift Friðriki Sophussyni Kristmundur, tengdafaðir minn, var fæddur á Holtsgöt- unni vestast í Vesturbænum og alinn upp í foreldrahúsum á Brekkustígnum ásamt þremur systrum. Hin formlega skóla- ganga var ekki löng. Krist- mundur var fjórtán ára þegar faðir hans veiktist og hann varð að taka við fjölskyldufyrirtæk- inu, Bæjarins beztu pylsur, sem hann rak í rúmlega hálfa öld. Fjölmargir eldri Reykvíkingar muna eftir honum við afgreiðslu á þessum vinsæla matsölustað, sem hefur verið rekinn af sömu fjölskyldunni í meira en 90 ár. Kristmundur fór ekki langt til að leita sér kvonfangs, því að Sigríður Júlíusdóttir, eiginkona hans, var dóttir Guðrúnar Niku- lásdóttur og Júlíusar Guð- mundsdóttur kaupmanns í versluninni Baldri, sem stóð á horni Holtsgötu og Framnes- vegar. Foreldrar beggja voru félagar í Oddfellow-reglunni og Sigríður og Kristmundur voru virkir félagar í reglunni í fjöl- mörg ár og létu sitt ekki eftir liggja í mannúðarmálum. Sigríð- ur lést á síðastliðnu ári. Frá unga aldri hafði Krist- mundur áhuga á hafinu. Hann var hagur á tré og smíðaði sér ungur trébát. Síðar stækkuðu bátarnir, sem hann eignaðist og þau hjónin sigldu bæði við strendur Noregs og Íslands. Náttúrufegurð Vestfjarða var þeim sérstaklega hugleikin. Seinni árin var oft siglt með fjölskylduna um sundin blá og það kunni yngri kynslóðin vel að meta. Þau hjónin nutu þess einnig að ferðast erlendis og á miðjum aldri eignuðust þau íbúð á Florida við strönd Karabía- hafsins. Þar undu þau sér vel við hafið og tóku á móti vinum og vandamönnum. Kristmundur stundaði lax- veiðar öll sumur á meðan heils- an leyfði. Hann var slyngur veiðimaður, glöggur á veðurfar og náttúru, fylgdist vel með at- ferli laxins og vissi nákvæmlega hvar gera mátti ráð fyrir tökum. Grímsá var eftirlætisáin og fáir þekktu hana betur en hann. Þar veiddum við oft saman. Þegar halla tók undan fæti hjá Krist- mundi, fórum við nokkrum sinn- um saman í Eystri-Rangá. Í síð- ustu veiðiferðinni klæddist hann ekki vöðlunum, en sat í bílnum, þar sem hann gat fylgst með ánni. Þá var það, að hann steig út úr bílnum, tók stöngina og sendi fluguna út í ána. Sekúnd- um síðar tók lax, sem ástríðu- fulli veiðimaðurinn landaði á inniskónum. Þetta var síðasti laxinn, sem Kristmundur veiddi. Eftir að Sigríður féll frá hrakaði heilsu Kristmundar. Hann syrgði og saknaði konu sinnar og síðustu vikurnar þráði hann að hitta hana aftur sem fyrst. Kristmundur var góður fé- lagi, veitull og örlátur ekki síst við þá, sem áttu um sárt að binda. Ég kveð tengdaföður minn, vin og veiðifélaga með söknuði, en minningin mun lifa. Bestu óskir fylgja honum á nýj- ar veiðilendur. Friðrik Sophusson. Nú hefur afi Kristmundur kvatt þennan heim, saddur líf- daga og löngu klár í næsta kafla. Ég hef ekki tök á að fylgja honum síðustu skrefin en sendi í staðin þessa kveðju út í eilífðina. Sem barn sá ég ekki sólina fyrir afa mínum, ég elskaði hann og hann elskaði mig og sýndi það bæði með hegðun sinni og orðum. Ég var hjarta- gull og hann átti hlut í mér, að- allega litlutá vildi hann sjálfur meina. Í gegnum lífið studdi hann mig svo með sínum hætti, oft með ráðum sem ég hlustaði ekkert á en meðtók þó um- hyggjuna sem bjó í þeim. Síð- ustu ár hefur verið langt á milli okkar og fundirnir fáir en ég bý að þeim kærleika sem ég naut frá afa mínum alla tíð. Ég þakka þér afi minn fyrir allan auðsýnda kærleikann, um- hyggjuna og fallegu óskirnar mér og mínum til handar. Ég er þakklát fyrir okkar síðasta fund þar sem ég náði að heimsækja þig um jólin, stelast til að faðma þig og kyssa og hljóta blessun þína og bænir um góða framtíð í veganesti. Ég þakka fyrir samfylgdina frá dýpstu hjartarótum, Guð geymi þig afi minn. Þórunn. Kristmundur Elí Jónsson Menn byrjuðu snemma að velta fyrir sér sannleiksgildi Biblíunnar. Einn þekktasti biblíutúlkandi frumkristninnar var Origines kirkjufaðir, sem uppi var um 185-254 eftir Krist. Hann var mikill fræðimaður, fæddist í Alexandríu í Egyptalandi og beið píslarvætti líklegast í Líbanon. Hann benti á hversu erfitt væri að taka ýmsar frásagnir Biblíunnar trúanlegar. Origines skrifaði eftirfarandi um para- dísarsögur fyrstu Móse- bókar: „Getur nokkur verið svo heimskur að trúa því Guð hafi búið til Paradís einhvers stað- ar í austrinu og sett þar niður tré sem gæti veitt þér eilíft líf? Þegar Biblían segir að Guð hafi verið vanur að fara í kvöldgöngu í Eden í kvöld- svalanum, þá held ég að eng- um heilvita manni detti í hug að taka þessar sögur sem neitt annað en skáldskap. Þetta eru skáldsögur sem aldrei gerðust í raunveruleik- anum.“ (Origenes Hexapla) Það eru margir gjarnir á að tala um innblástur Biblíunnar þegar sannleiksgildi hennar ber á góma. Með því er átt við að frásögn Biblíunnar sé sönn, vegna þess að hún sé innblásin af Guði. En Biblían talar mjög sjaldan um þetta. Í Gamla testamentinu geta einstaklingar verið inn- blásnir, en aldrei bækur. Sama gildir um bækur og rit Nýja testamentisins. Hvergi er í þeim að finna stafkrók um slíkan og þvílíkan inn- blástur. Að tala um að bækur Biblíunnar séu innblásnar af Guði er að halda því fram að Guð sé á einhvern hátt höf- undur Biblíunnar, en þannig er hvergi ritað í Biblíunni sjálfri. Nei, samkvæmt Biblí- unni sjálfri er hún skrifuð af venjulegu fólki sem segir frá reynslu sinni og vinnur úr heimildum af bestu getu. En getur það þá ekki verið satt að þótt höfundar Biblíunnar séu rithöfundarnir sjálfir, þá séu þeir innblásnir af Guði og hljóti því að segja sannleik- ann? Hættan á þeirri kenn- ingu er að Guð sé gerður að einhvers konar ritstjóra, sem noti aðeins höfunda Biblíunn- ar sem ritara sína. Þeir verða að ófrjálsum verkfærum í hendi hans. Sem er algerlega í andstöðu við hugmyndir Biblíunnar sjálfrar um frelsi mannsins og sköpun hans í mynd Guðs. Þessu hefur reyndar verið haldið fram og var þessi kenning vinsæl á 17. og 18. öld meðal lúterskra guðfræð- inga svo dæmi sé tekið. Í dag á hún sér þó fáa fylgismenn. Meira að segja íhaldssömustu og bókstafstrúuðustu bibl- íulesendur líta svo á að höf- undarnir hafi haft frjálst val um hvernig þeir skrifuðu. En þá læðist líka um leið að sú hætta að rithöfundarnir geti hafa gert mistök stundum, því það er nú einu sinni mannlegt að gera mistök ekki satt? Og það er eitur í beinum kristinna íhaldsmanna að þurfa að viðurkenna það því svokölluð bókstafstrú snýst í grunninn um það að texti Biblíunnar sé villulaus. Biblían getur að mati hinna bókstafs- trúuðu ekki haft á röngu að standa. Þegar þeir standa frammi fyrir texta sem ekki er hægt að taka trúanlega, eins og Origenes benti á þegar á annarri öld, þá kjósa þeir að horfa fram hjá því með því að túlka hann á ein- hvern úthugsaðan hátt, en ekki með því að segja, eins og Origenes, að þetta geti ein- faldlega ekki staðist sem skrifað er. Gott dæmi um þessa aðferð er túlkun sköp- unarsögunnar í fyrsta kafla fyrstu Mósebókar. Það eru auðvitað til íhaldssamir kristnir sem halda því fram að Guð hafi skapað heiminn á sex dögum. En svo eru aðrir sem svara gagnrýni vísinda nútímans á þessa fullyrðingu með því að segja að textann eigi alls ekki að taka bók- staflega. Hann sé ljóð, túlkun á trú höfundarins. Dagarnir sjö sem nefndir eru séu bara tákn um nálægð Guðs í heim- inum. Boðskapur textans sé siðrænn og samfélagslegur, ekki vísindalegur. Allt þetta hefur verið sagt til þess að þurfa ekki að segja að Biblían hafi einfaldlega á röngu að standa varðandi upphaf heimsins. Þetta er úr- elt heimsmynd, skemmtilegt ævintýr en ekkert annað. Það er fátt sem bendir til annars en að höfundur textans hafi verið að lýsa því sem hann hélt að væri rétt. Og þetta er bara bull. Eins og Origenes hefði sagt. Biblían er safn bóka, ritaðra á löngum tíma af fjölmörgum höfundum, á hebresku og grísku, út frá margs konar heimsmynd. Deilt hefur verið frá því í fornöld um hvaða rit eigi að vera í Biblíunni. Marteinn Lúter vildi sleppa ritum eins og Jakobsbréfum og Opin- berunarbók Jóhannesar, sem voru andstæð kenningum hans. En ef til vill er sann- leikur Biblíunnar einmitt fólginn í öllu þessu, allri þess- ari leit að merkingu tilver- unnar sem textinn vitnar um, þar sem allt fær að vera með, hið fallega og hið ljóta, gleðin og sorgin, vonin og vonleysið, dauðinn og lífið, ljósið og myrkrið. Það sem breski rit- höfundurinn C.S Lewis kall- aði „bara kristni“ í sam- nefndri bók er hann gaf út árið 1952. Kjarninn. Lesendur Biblíunnar verða að leyfa sér að njóta textans með þessum formerkjum, að allt skiptir ekki máli, allt er ekki „satt“. En sannleikurinn er fólginn í öllu litrófi Bibl- íunnar. Segir Biblían sannleikann? Eftir Þórhall Heimisson Þórhallur Heimisson » Allt þetta hefur verið sagt til þess að þurfa ekki að segja að Biblían hafi einfaldlega á röngu að standa varðandi upphaf heimsins. Höfundur er prestur og rit- höfundur og vinnur að nýrri bók um Biblíuna. thorhallur33@gmail.com ✝ Helga Bryn- hildur Krist- mundsdóttir var fædd þann 29. nóv- ember 1974 í Keflavík. Hún lést á spítala á Spáni þann 20. júlí 2021 eftir skammvin veikindi. Foreldrar henn- ar eru Krist- mundur Hrafn Ingibjörnsson, f. 17.1. 1952, og Þórunn Ragna Óladóttir, f. 1.12. 1952. Systkini Helgu eru: Óli Hjörvar Kristmundsson, f. 16.10. 1970, maki Auður Sandra Grét- arsdóttir. Hólm- geir Hallbert Kristmundsson, f. 19.9. 1972, maki Phikount- hong P. Krist- mundsson. Friðvin Ingi Berndsen, f. 24.9. 1987. Svana Rós Kristmundsdóttir, f. 23.1. 1992, maki Erlingur Andrés Þórisson. Eyþór Örn Ernstson, f. 9. júlí 1983, maki Clea Conner. Sambýlismaður Helgu er Erlingur Logi Hreinsson Börn Helgu eru: Hólmbert Hjörvar Davíðsson, f. 20.9. 1993, maki Aldís Eik Sig- mundsdóttir. María Kristín Davíðsdóttir, f. 26.8. 1995, maki Halldór Kristinn Harð- arson. Guðný Erla Snorra- dóttir, f. 26.1. 1999. Barnabörn Helgu: Dag- mar Ýr Hólmbertsdóttir, f. 24.3. 2013. Viktor Tumi Hólmbertsson, f. 9.9. 2017. Útförin fer fram frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag, 16. ágúst 2021, klukkan 13. Elsku Helga mín, takk fyrir allt sem þú gafst mér, gleðina, hláturinn, fjörið og stríðnina, nú sit ég og læt hugann reika yfir farinn veg og ylja mér við minn- ingarnar og öll samtölin. Megi minningarnar lifa. Með klökkum huga þig ég kveð, ég þakka allt sem liðið er, Guð okkur verndi og blessi. Það er sárt að kveðjast við dauðans dyr. En svona er lífið og dauðinn ei spyr, hvort finnist oss rétti tíminn til, dauðinn hann engum sleppir. (Ingimar Guðmundsson) Hvíl í friði elsku stelpan mín. Þinn pabbi. Elsku systir þetta er ekki al- veg það sem ég átti von á, að þurfa taka sig taki og skrifa minningargrein um þig. Það er ekki nema svona rétt um áratug- ur síðan við sátum saman heima hjá þér og vorum að grínast eins og oftast, að upp kom þessi frá- bæra hugmynd að okkur fannst að við þyrftum að segja við hvort annað hvað við myndum segja í minningargrein um hvort annað. það var margt sagt og enn meira hlegið eins og var alltaf er við hittumst. En því miður er það ekki grín núna þú kvaddir þenn- an heim allt of fljót eftir skörp veikindi. Mikið svakalega hefur það tekið á að þurfa að sætta sig við það að geta ekkert gert til að breyta settum aðstæðum. Dag- arnir síðan þú fórst hafa verið eins og blindbylur, svona veður eins og þegar pabbi leiddi okkur yfir skaflana á Skagaströnd, okk- ar fyrsta vetur þar er við bók- staflega vorum pökkuð inn í hlý föt og sáum ekkert út, þótt það hafi verið sól og blíða hjá mér hér í Dracut. Það hafa verið að spretta upp endalausar minning- ar um þig undanfarna daga, flest- ar góðar en sumar ekki eins góð- ar. Við vorum jú eins og Tommi og Jenni er við vorum lítil, ég man eftir er þú klóraðir næstum úr mér augun er við vorum að ríf- ast um hver ætti þessa kókflösku eða hina, það var nefnilega aðeins meira í þessari sem ég átti eða kannski áttir þú hana, en ég svar- aði með að gefa þér smá skalla- blett. En auðvitað áttum við okk- ar góðu stundir líka eins og þegar okkur datt það snjallræði í hug að kveikja i fótboltaspilinu mínu inni í herberginu mínu við litla hrifn- ingu foreldra okkar. En með aldrinum, þá um unglingsaldur urðum við bestu vinir, aldrei breyttist það. Það var svo merki- legt með þig elsku systir að alltaf varstu með opnar dyrnar tilbúin að hlusta, tala, hlæja og hjálpa manni eins mikið og þú gast, stundum meira en það þrátt fyrir veikindin þin varstu alltaf tilbúin, aldrei kvart eða kvein. Okkar leiðir skildu soldið fyrir fimm árum er ég flutti til Banda- ríkjanna og þú fljótlega eftir það til Spánar, en við heyrðum í hvort öðru annað slagið þótt þær stundir hefðu mátt vera miklu fleiri, en ég man vel eftir því er og hringdi í þig til að segja þér að ég væri að fara að gifta mig hér, að ég hefði hitt frábæra stelpu og hvað þú varst ánægð og hlakk- aðir til að hitta hana en því miður þá fengum við ekki tíma til þess. Þetta á svo vel við þig elsku litla fallega systir mín: Þegar ég hugsa um engla Þá hugsa ég til þín. Og logandi rauða hárið þitt og hlutina sem þú gerðir. Ég heyrði að þú værir farinn nei það gæti ekki verið satt. Þegar ég hugsa um engla Þá hugsa ég til þín. Guð gefi þér engil hvert sem þú ferð þó þú sért farinn þá vil ég að þú vitir það að hjarta mitt er fullt af sorg þó ég láti það ekki í ljós. En ég sé þig aftur þegar minn tími kemur. (KK I think of angels) Hólmgeir Hallbert Kristmundsson. Helga Brynhildur Kristmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.