Morgunblaðið - 16.08.2021, Side 22

Morgunblaðið - 16.08.2021, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 2021 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald Húsaviðgerðir www.husco.is Sími 555 1947 Gsm 894 0217 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9 - 12. Handavinna kl. 12-16. Félagsvist kl. 12:45. Hádegismatur kl. 11:40- 12:50. Heitt á könnunni. Kaffisala kl. 14:30-15:30. Allir velkomnir. Sími: 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:10-11:00. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Ljósmynda- námskeið kl. 13-15. Opin Listasmiðja kl. 13-15:30. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Garðabæ Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 13:45 -15:15. Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13:00. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 12:40. Bridge í Jónshúsi kl. 13:00. Gullsmári Félagsvist kl. 20.00 Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleik- fimi kl. 9:45. Leirnámskeið með núvitund kl. 10:30 - 11:45. Stólaleikfimi 13:30. Gönguhópur – lengri ganga kl. 13:30. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum frá kl. 9, leikfimi í salnum Skólabraut kl. 11, handavinna og samvera kl. 13,Thelma þakkar inni- lega fyrir sumarið en Birkir verður áfram út þessa viku. með morgun- !$#"nu ✝ Guðrún Ingi- björg fæddist í Móakoti á Stokks- eyri þann 30. mars 1926. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Fossheimum 7. ágúst 2021. Foreldrar henn- ar voru Kristmann Gíslason, f. 23.1. 1886, d. 14.10. 1959, og Guðrún Bjarnadóttir, f. 12.5. 1887, d. 17.5. 1926. Guðríður Sæmunds- dóttir, f. 14.7. 1900, d. 2.12. 1972, gekk móðurlausu barninu í móðurstað. Guðríður og Krist- mann eignuðust tvö börn, Ingv- eldi Kristmannsdóttur, f. 7.10. 1927, og Guðmund Kristmanns- son, f. 14.12. 1930, d. 16.7. 1998. Þann 18.5. 1946 giftist Guð- rún Guðfinni Guðna Ottóssyni, f. 25.8. 1920, d. 10.12. 2002. For- eldrar hans voru Oddný Guðna- dóttir, f. 2.10. 1888, d. 18.9. 1970, og Ottó Valdimar Guð- mundsson. Guðfinnur var einka- kona Oddgeirs er Gíslína Björk Stefánsdóttir, f. 2.8. 1961. Þau eiga tvö börn. Gíslína Björk átti eina dóttur fyrir. Barnabörnin eru samtals 12. 4) Guðríður, f. 6.11. 1958, gift Sigurði Guðjónssyni, f. 5.8. 1957. Þau eiga fjóra syni og tvo sonarsyni. 5) Guðrún, f. 29.4. 1960. Hún eignaðist eina dóttur með Grét- ari Pétri Geirssyni. Guðrún gift- ist Þorvaldi Ágústssyni, f. 17.9. 1943. Þau eiga tvo syni. Hann átti einn son fyrir. Núverandi eiginmaður Guðrúnar er Guð- mundur Guðlaugsson, f. 14.2. 1959. Hann á fjögur börn. Barnabörnin eru samtals 11. Guðrún og Guðfinnur bjuggu allan sinn búskap á Stokkseyri. Hann vann ýmsa verkamanna- vinnu til sjós og lands meðan heilsan leyfði og Guðrún vann allan sinn starfsaldur, rúm fimmtíu ár, í Hraðfrystihúsi Stokkseyrar. Hún hafði yndi af söng og söng hún í kirkjukór Stokks- eyrar í fimmtíu ár. Fyrir fjórum árum veiktist hún og bjó siðustu ár sín á hjúkrunarheimilinu Fossheimum á Selfossi. Útförin fer fram frá Stokks- eyrarkirkju í dag, 16. ágúst 2021, kl. 14. barn Oddnýjar. Eiginmaður hennar var Brynjólfur Bjarni Brynjólfs- son, f. 4.11. 1901, d. 18.9. 1993. Guðrún og Guð- finnur eignuðust fimm börn. 1) Þorgerður Lára, f. 14.12 1946, gift Eiríki Guðna- syni, f. 3.4. 1945, d. 31.10. 2011. Þau eiga fjögur börn, 11 barnabörn og þrjú barnabarnabörn. 2) Kristmann, f. 12.3. 1950. Hann kvæntist Rut Sigurgríms- dóttur, f. 26.8. 1950, d. 15.9. 2019. Þau eiga þrjú börn. Seinni kona Kristmanns er Katrín Guð- mundsdóttir, f. 21.4. 1957. Þau eiga einn son. Fyrir átti Katrín tvö börn. Barnabörnin eru sam- tals 17. 3) Oddgeir Bjarni, f. 23.10. 1952. Hann kvæntist Fríðu Björgu Aðalsteinsdóttur, f. 7.3. 1954. Þau eiga tvö börn. Seinni Hún mamma mín hefur kvatt okkur, 95 ára gömul. Mikið er ég stolt af þessari konu sem var okkar stoð og stytta öll þessi ár. Orð eins og þakklæti, virðing, traust, söknuður og ást koma upp og það var gott að geta laun- að henni þegar hún sjálf þurfti orðið á aðstoð að halda. Í endurminningunni er alltaf sól. Mamma er þar í forgrunni, alltaf að. Hún skokkaði léttum fetum frá Brekkuholti niður í frystihús þar sem hún vann alla daga, stundum langt fram á kvöld. Í hádegishléi var hlaupið heim aftur, hafður til matur fyrir fjölskylduna og svo var farið aft- ur til vinnu. Þess á milli var bak- að og stússað ýmislegt heima. Auðvitað var þó ekki alltaf sól, það voru langir vetur þar sem þyngra var að arka þessa leið með vörur og baslað var með barnahópinn sinn. Mamma hafði mikla trú á menntun. Skólaganga hennar sjálfrar var stutt og þau pabbi héldu langar ræður yfir okkur systkinunum um gildi menntunar til framfara og velmegunar. Það sem þau höfðu ekki haft tækifæri til að gera skyldum við geta gert. Svo var sungið. Sungið í kórn- um í kirkjunni heima, með mess- unni í útvarpinu á sunnudögum og með tónlistarþáttum í útvarp- inu. Þetta áhugamál hafði hún fram á síðasta dag og ekkert vissi hún skemmtilegra en að vera í góðum hópi þar sem tekið var lagið. Fjölskylduboðin voru ónýt ef vantaði sönginn. Nokkrum dögum áður en hún dó horfði hún í tvo tíma á þátt Helga Björns- sonar í sjónvarpinu og naut hverrar mínútu. Mamma var fasti punkturinn og kletturinn í tilverunni öll þessi ár og allan tímann sýndi hún um- hyggju fyrir stórum afkomenda- hópi sínum. Hún hélt góðri heilsu lengi vel og áfram hélt hún að ganga um þorpið, þó ekki færi hún lengur í frystihúsið. Fyrir fjórum árum veiktist hún og flutti í kjölfarið á hjúkrunarheim- ilið Fossheima á Selfossi. Eftir að hún flutti þangað naut hún þess að fara í bíltúra til Stokkseyrar þar sem hún hafði búið og starfað alla ævi. Þá rifjaði hún upp góðar minningar um æskuna og líf sitt með pabba og okkur á þessum stað sem henni þótti svo vænt um. Við systkinin vorum heppin með foreldra, minning þeirra er björt og falleg. Elsku mamma mín, takk fyrir allt og allt. Guðríður Guðfinnsdóttir. Það er margt sem flýgur um hugann þegar ég minnist hennar mömmu minnar. Líf hennar var ekki alltaf auðvelt en þrátt fyrir allt var hún lánsöm manneskja. Hún missti móður sína nýfædd en var svo heppin að afi réð til sín unga konu, Guðríði Sæmunds- dóttur, og gekk hún henni í móð- urstað. Mamma sagði oft að betri móður hefði hún ekki getað eign- ast. Þær voru alla tíð mjög nánar. Afi og Guðríður giftust og eign- uðust tvö börn, Ingveldi og Guð- mund. Mamma og pabbi byrjuðu að búa í Skálavík á Stokkseyri og þar fæddust ég og bræðurnir. Síðar fluttum við að Vatnsdal og þar fæddust systurnar okkar. Húsakynnin sem við bjuggum við þættu ekki boðleg í dag. Ekki var rennandi vatn og þurfti að bera allt vatn til og frá í Skálavík en í Vatnsdal var handknúin dæla. Kamrar voru á báðum stöðum. Þetta var ekkert einsdæmi á þessum tíma. Þetta var bara svona og ekki kvartaði mamma. Þegar við svo fluttum í Brekku- holt þar sem var rennandi vatn og allt sem okkur finnst sjálfsagt í dag, fannst mömmu hún ekkert hafa að gera því allt var svo auð- velt. Mamma var mjög trúuð kona og kenndi hún okkur börnunum fjöldann allan af bænum sem við fórum samviskusamlega með á hverju kvöldi. Hún söng í kirkju- kórnum í fimmtíu ár og alltaf vorum við látin fara til messu með henni. Mamma var ákveðin og stjórn- aði heimilinu af röggsemi. Hún var kletturinn í fjölskyldunni og það var gott að eiga hana að og vita að alltaf var hægt að leita til hennar. Það var svo gott að finna að þó ekki væru miklir peningar til á heimilinu var alltaf nóg af hjartahlýju. Þar sem pabbi okkar var mikill sjúklingur þurfti mamma að vinna baki brotnu til að sjá fyrir stóru heimili. Hún var svo heppin að vera alltaf heilsuhraust og kom varla fyrir að hún yrði veik. Árið eftir að pabbi dó buðum við hjón henni með okkur til Kaupmannahafnar. Hún var orð- in 77 ára og hafði aldrei farið til útlanda og aldrei farið í flugvél. Þessi ferð varð mikið ævintýri fyrir okkur öll. Það var svo gam- an að upplifa Kaupmannahöfn með hennar augum, heimsækja hallir og skoða krúnudjásn. Þetta varð hennar eina utanlandsferð. Eiki minn útbjó handa henni al- búm með ferðasögunni og mörg- um myndum úr ferðinni. Þetta albúm skoðaði hún margoft, las ferðasöguna og upplifði ferðina aftur og aftur. Hún hló og skemmti sér yfir ýmsum kúnst- ugum uppákomum. Eitt af því skemmtilegasta sem mamma gerði var að syngja. Við hjón höfðum það fyrir venju að bjóða henni með okkur á árshátíð kórsins okkar, Árnes- ingakórsins í Reykjavík. Þar var alltaf mikið sungið og naut hún þess mjög. Hún naut þess líka að hlusta á alls konar tónlist. Henn- ar uppáhald var þegar sjónvarpið sýndi frá tónleikum hinna ýmsu söngvara. Þættirnir hans Helga Björns voru í miklu uppáhaldi hjá henni og viku áður en hún dó sat hún í tvo tíma og hlustaði á tónleikana sem Helgi var með um verslunarmannahelgina. Síðustu árin hennar höfum við systkin reynt að gera okkar besta til að henni liði sem best því það átti hún svo sannarlega skilið. Með trega kveð ég hana mömmu mína með þökk fyrir allt. Þorgerður Guðfinnsdóttir. Það var bjartur og fagur dag- ur á Suðurlandi laugardaginn 7. ágúst síðastliðinn þegar hún tengdamóðir mín, Guðrún Ingi- björg Kristmannsdóttir, kvaddi þennan heim 95 ára gömul. Er það táknrænt fyrir minningu hennar. Ég hitti Unnu fyrst fyrir rúm- um fjörutíu árum þegar við Guð- ríður dóttir hennar fórum að draga okkur saman. Ég sá að þarna fór dugleg kona sem var hreinskiptin og lá ekki á skoð- unum sínum. Strax skapaðist traust á milli okkar sem varði alla tíð og vináttan bara óx með árunum. Guðrún eða Unna, eins og hún var jafnan kölluð, ól allan sinn aldur á Stokkseyri utan síðustu æviár sín er hún dvaldi á hjúkr- unarheimilinu Fossheimum á Selfossi. Eftir gott atlæti í æsku og stutta skólagöngu tók lífið við. Hún giftist ung Guðfinni Guðna Ottóssyni og saman stofnuðu þau heimili á Stokkseyri og bjuggu þar lengst af í Brekkuholti. Þau eignuðust fimm börn. Auk þess að sinna barnmörgu heimili starfaði Unna í Hraðfrystihúsi Stokkseyrar sem þá var vinnu- hjartað í plássinu. Saman héldu þau hjónin vel utan um fjölskylduna. Börnin flugu úr hreiðri og stofnuðu sín heimili en áfram var vel fylgst með sístækkandi hópnum. Jóla- boðin þeirra á annan dag jóla með heitu súkkulaði og kræsing- um voru ómissandi fyrir fjöl- skylduna. Eftir lát Guðfinns bjó Unna áfram ein í Brekkuholti fram yfir nírætt. Þau hjónin fóru í innanlands- ferðir eldri borgara með verka- lýðsfélaginu Bjarma í mörg sum- ur. Þessara ferða nutu þau og ósjaldan rifjaði hún upp góðar minningar úr þessum ferðum. Unna naut tónlistar og söngs. Hún söng í áraraðir með kirkju- kór Stokkseyrarkirkju. Mest var gaman hjá henni í fjölskylduboð- um ef sungið var og spilað. Þar var hún yngst í anda og söng hvert lagið á fætur öðru. Sýndi hún að ekki þarf áfengi til að skemmta sér, en hún var mikil bindindiskona. Þegar mikið gekk á varð mér stundum á orði: „Unna, nú verðum við að fá okk- ur einn sterkan“ og hló hún þá dátt að ruglinu í mér. Unna var með allt á hreinu fram á síðasta dag og spurði um allt sitt fólk sem ekki var fátt en afkomendurnir eru rúmlega 60. Svo smádvínaði þrekið hjá þess- ari hörkukonu og þraut að lok- um. Ég kveð góða samferðakonu og vinkonu og er þakklátur fyrir þann tíma sem við áttum með henni. Sigurður Guðjónsson. Guðrún Ingibjörg Kristmannsdóttir ✝ Gunnbjörn Jensson fædd- ist á Lækjarósi í Dýrafirði 1. mars 1945. Hann lést 30. júlí 2021. Móðir Gunn- björns var Krist- jana S. G. Sveins- dóttir, f. 21.9. 1916, d. 5.12. 1997. Faðir Jens Guðmundur Jónsson, f. 6.9. 1890, d. 15.12. 1976. Hálfsystir sammæðra Valdís Hagalínsd. Hálfsystkini samfeðra Jón Óskar Jensson, látinn, Áslaug Sólbjört jensdóttir, látin, Jens- ína Jensdóttir, látin, Sigríður Jensdóttir, látin, Gabríel Krist- mann Hilmar Jensson, látinn, Kristján Svarar Jensson, látinn, Soffía Gróa Jensdóttir. Uppeldissystkini Ásta Lilja Jónsdóttir, Kristján Vignir Jónsson, látinn, Jens Guðmundir Jónsson, María Margrét Jóns- dóttir, látin, Bjarni Hálfdán Jónsson. Gunnbjörn kvæntist 1.3. 1978 Borghildi Rún Baldursdóttur, f. 8.11. 1956. Synir þeirra eru Friðrik Baldur Gunnbjörnsson, f. 1.5. 1978, sambýlis- kona Valgerður Sif Hauksdóttir, f 4.8. 1987. sonur hennar er Patrik Smári Þórisson, f. 29.3. 2006. Jens Sigmundur Esra Gunn- björnsson, f. 12.3. 1996. Gunnbjörn var rennismiður og vann á Atla, Odda og Slippn- um, að auki var hann með annan fótinn í sveitinni. Gunnbjörn ólst fyrst upp á Lækjarósi í Dýrafirði svo flytur fjölskyldan í Eyjafjörðin. Þegar Gunnbjörns er rúmlega þrítug- ur hefur hann búskap með Borghildi Rún og bjó hann á Ak- ureyri með henni til æviloka. Útförin fer fram frá Akureyr- arkirkju í dag, 16. ágúst 2021, klukkan 13. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Með þessum orðum kveð ég þig, Bjössi minn, þar til við hitt- umst að nýju. Borghildur Rún Baldursdóttir. Elsku pabbi minn. Það erfiðasta sem ég hef gert er að horfa á þig þessa síðustu daga berjast við krabbamein, sjónarmissi og alla þá kvilla sem hrjáðu þig, þar til þú fékkst að fara heim í Dýrafjörðinn. Þú sem kenndir mér á lífið og heiminn, þú sem hjálpaðir öllum sem á þurftu að halda og kenndir mér að gera slíkt hið sama, fórst með mig út á sjó að veiða, sagðir mér endalaust af yndislegum sögum sama hvert við fórum um landið, hjálpaðir mér að verða að mann- inum sem ég er í dag. En nú er þessum kafla lokið hjá þér og næsti tekur við. Hvíldu í friði, elsku pabbi, við sjáumst í næsta kafla. Jens Sigmundur Esra Gunnbjörnsson. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Ég kveð þig, pabbi minn, og þakka þér allar þær stundir sem við áttum saman. Friðrik Baldur Gunnbjörnsson. Gunnbjörn Jensson Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minn- ingargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.