Morgunblaðið - 16.08.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 16.08.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 2021 frá eira. sa 30 ÁRA Andrea Ösp fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og ólst upp fyrir norðan framan af, en fjölskyldan flutti til Reykjavík þegar hún var 9 ára. Andrea er með BA-gráðu í uppeldis- og menntunarfræðum og lýkur við kennaranámið næsta í vor. Hún starfar í dag sem deildarstjóri á ungbarnaleik- skóla í fullu starfi meðfram náminu. „Ég vissi mjög fljótlega að ég vildi vinna með börnum og var á yngri árum í kirkjustarfi í Neskirkju og byrjaði á því að sjá um sunnudagaskóla og fór svo að sjá um barna- og unglingastarfið í kirkj- unni og var að skipuleggja alls konar starfsemi fyrir börn og unglinga og þaðan kemur áhuginn á mínu fagi.“ Þegar Andrea er ekki að sinna börnum í vinnunni er hún mikið fyrir útivist. „Ég á hund, hann Mola, og mér finnst rosalega gott að vera með honum úti. Við förum mikið út í sveit, því hann vill hafa frjálsræði og geta hlaupið um allt. Síð- an er auðvitað samvera með fjölskyldu og vinum það mikilvægasta því ég er mjög mikil fjölskyldukona.“ FJÖLSKYLDA „Ég er svo heppin að ég á einn lítinn 8 mánaða strák, sem heitir Sigþór Leó, og maki minn er Einar Ásgeir Ásgeirsson, f. 1994, versl- unarstjóri hjá Krónunni. Foreldrar Andreu eru Lilja Margrét Jónasdóttir, sem vinnur í mötuneyti Landsbankans í Reykjavík, f. 1969, og Guðjón Andri Gylfason, f. 1968, efnafræðikennari í Menntaskólanum á Akureyri. Systir And- reu er Emilía Hrönn Andradóttir, hjúkrunarfræðingur á Akureyri, f. 1990. Andrea Ösp Andradóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þegar málin eru skoðuð ofan í kjöl- inn muntu sjá að eitthvað reynist ekki eins eftirsóknarvert og þér fannst í upphafi. Fljótfærni er engum til góðs. 20. apríl - 20. maí + Naut Þér berast nýjar upplýsingar úr óvæntri átt. Reyndu samt að halda ró þinni, þótt mikið gangi á. Lærðu að segja nei áður en það verður of seint. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Dagurinn einkennist af fjaðrafoki. Spurðu sjálfa/n þig að því hvort þér finnist hlutirnir vera að þróast í rétta átt. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Hugmyndirnar streyma til þín svo þú átt í vandræðum með að skrá þær helstu hjá þér. Láttu það samt ekki brjóta þig niður en hafðu gát á orðum þínum. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Sannleikurinn er sagna bestur og það skaltu hafa í huga allavega gagnvart þínum nánustu. Prófaðu langa göngutúra í fersku lofti. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Íhugaðu hvernig þú getur bætt lífs- gæði þín, sérstaklega varðandi heilsu þína. Gefðu þér tíma til að hitta vini og félaga. 23. sept. - 22. okt. k Vog Það er jafn auðvelt að gera eitthvað sem maður hefur ekki gert áður og að end- urtaka sig í sífellu. Taktu því við stjórnar- taumunum er færi gefst og stýrðu málum í höfn. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú ert að glíma við eitthvert vandamál sem veldur þér miklum heila- brotum. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú verður beðinn um sér- stakan greiða. Reyndu að aðskilja sjálfan þig frá því hvernig hlutverk þitt í sambandi við aðra er skilgreint. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þér getur liðið ósköp vel án pen- inga, og þú ert jafn ríkur og þú ert ánægð- ur. Hlustaðu vel á líkama þinn og leggðu þig fram um að rækta líkama og sál. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Gefðu þér tíma til að íhuga hvað það er sem skiptir þig máli. Viðurkenningin kemur en hún tekur sinn tíma. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Notaðu daginn í dag til þess að sinna fasteignaviðskiptum eða kaupa eitt- hvað fallegt fyrir heimilið. Haltu öllu sem einföldustu og þá mun árangurinn ekki láta á sér standa. ið.“„ Það er að mörgu að huga og það voru fjáraflanir og basarar og minn- ingakort seld og þeim sem áttu erfitt var hjálpað. Haldnar voru jóla- skemmtanir fyrir börn og safnað fyr- ir ýmsum mikilvægum málefnum“. Hún lagði sig fram um að verk kvenna væru metin að verðleikum, en væru ekki bara sjálfsögð sjálf- boðavinna. Hún hefur ferðast víða um heim- inn í störfum fyrir alþjóðleg kvenna- samtök og komist alla leið til Kína og verið góður fulltrúi Íslands þar sem hún hefur farið. Einnig hefur hún ferðast víða innanlands á vegnum Kvenfélagasambandsins:„Konur úti á landi og kvenfélögin hafa gert svo mikið fyrir samfélagið.“ Í gegnum nám og störf hefur Stef- anía kynnst mörgu góðu fólki, bæði erlendis og hérlendis og lagt sig fram um að hafa samband við það: „Mér þykir svo vænt um allt þetta fólk sem margt er farið yfir móðuna miklu“. Mikill harmur varð í fjölskyldunni síðastliðið haust þegar Hallfríður dóttir hennar lést úr krabbameini. „Það var hræðilegt að horfa upp á þennan sjúkdóm, en alltaf var hún börn á þessum árum og við gengum í mörg störf.“ Mörgum árum seinna hittust Stefanía og Ólafur á gamlárs- kvöldi á Akureyri og fóru eftir það að skrifast á. Árið 1954 giftu þau sig og fóru saman til Edinborgar í Skot- landi þar sem Ólafur var að ljúka námi. Þegar heim var komið frá Skot- landi bjuggu ungu hjónin fyrst í leiguhúsnæði í Reykjavík. Eftir að hafa reynt að fá lóð þar enduðu þau á Þinghólsbrautinni í Kópavogi þar sem þau byggðu sér hús. Þar bjuggu þau í 61 ár og ólu upp börnin sín fjög- ur. „Þar var yndislegt útsýni yfir haf- ið og gott að vera. Við fluttum í íbúð- ina hérna í Kópavogstúni síðastliðin vetur og við húsinu á Þinghólsbraut tók gott ungt fólk, einnig með fjögur börn, og ég er mjög ánægð með það.“ Stefanía hefur alla tíð verið mikill talsmaður handverks kvenna og sögu þeirra auk þess að stunda sjálf handíðar af ýmsu tagi. Hún var for- maður Kvenfélags Kópavogs og síð- ar forseti Kvenfélagasambands Ís- lands og er þar heiðursfélagi. „Kvenfélagsstörfin eru bæði skemmtileg en geta líka verið erf- S tefanía María Pétursdóttir fæddist 16. ágúst 1931 á Siglufirði. Hún er glæsi- leg kona og ber sig vel og heimilið ber því vitni að hún hefur alla tíð hugað vel að heimili sínu og fjölskyldu. „Það var mjög gott mannlíf á Siglufirði bæði fyrir börn og fullorðna. Við börnin vorum á skíðum og í boltaleik og það var talsvert leiklistarlíf í bænum.“ Hún segir að mikill samhugur hafi alltaf ríkt á Siglufirði og fólk staðið saman ef einhver varð fyrir áföllum í lífinu. Tíu ára afmælisdagur Stefaníu er henni sérstaklega minnisstæður en þá var hún í sveit í Haganesvík og bjóst við símhringingu frá fjölskyldu sinni í tilefni dagsins. Þegar enginn hringdi var hún orðin ansi leið en að lokum hringdi pabbi hennar um kvöldið. Í ljós kom að allt símkerfi landsins var gert óvirkt þennan dag og eftir Jörgensen, símstöðvarstjóra á Siglufirði, var haft að einhver voða- lega merkilegur maður væri á land- inu og að það mætti ekki nokkur maður vita um það. Þessi frægi mað- ur reyndist vera enginn annar en for- sætisráðherra Bretlands, Winston Churchill, sem kom til að heilsa upp á setulið Breta. „Ég varð því að fyr- irgefa þetta því ég hafði trú á Churchill og að hann myndi klára þetta hryllilega stríð.“ Stefanía lauk Gagnfræðaskólanum á Siglufirði en fór þaðan í Verzl- unarskóla Íslands. Hún segir að hún hafi haldið góðu sambandi við skóla- systkinin frá Siglufirði og eins ferm- ingarsystkinin og einnig hittist hóp- urinn úr Verzlunarskólanum í kaffi einu sinni í mánuði. „Það er alltaf gaman að hitta fólkið, þótt við séum orðin færri í dag.“ Eftir Verslunarskólann fékk Stef- anía stöðu á Símanum á Akureyri en fór síðan suður til Reykjavíkur og varð ritari hjá Ásgeiri Ásgeirssyni forseta. „Ég var þar alveg þar til ég fékk mun betur launaða vinnu hjá fjármálaráðuneytinu og þar var ég í nokkur ár.“ Stefanía kynntist eiginmanni sín- um, Ólafi, þegar hún var tæplega 9 ára og hann 12 ára, en þau voru í sömu sveit að Völlum í Svarfaðardal. „Þar lærði ég að vinna, eins og mörg jafndugleg að búa okkur undir að hún færi.“ Fjölskyldan er mjög sam- hent sem sýndi sig vel á þessum erf- iða tíma sem þau gengu í gegnum. „Maður sér það á svona stundum að fjölskyldan er það sem manni er gef- ið best.“ Að sögn barna Stefaníu er hún alltaf eins og klettur í fjölskyldunni, áhugasöm, víðlesin, fróð, listræn og hefur ávallt verið til staðar fyrir fólk- ið sitt. Stefanía María hlaut riddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu árið 1993 fyrir félagsstörf sín. Fjölskylda Eiginmaður Stefaníu er Ólafur Tómasson, verkfræðingur og fv. Póst- og símamálastjóri, f. 26.5. 1928. Foreldrar hans voru hjónin Tómas Björnsson, kaupmaður á Akureyri, f. 8.1.1895, d. 27.10. 1961, og Margrét Thorarensen Þórðardóttir húsfreyja, f. 21.2.1891, d. 12.6. 1983. Börn Stef- aníu og Ólafs eru 1) Tómas Björn verkfræðingur, f. 14.5. 1955, kvæntur Hólmfríði Aðalbjörgu Pálmadóttur kennara, f. 11.4. 1958. Þau eiga börn- in Kristínu Maríu, f. 28.8. 1983; Ólaf Stefanía María Pétursdóttir fv. formaður Kvenfélagasambands Íslands – 90 ára Það sem manni er gefið best Ljósmynd/Sigrún Magnúsdóttir Fjölskyldan Afkomendur og tengdabörn Ólafs og Stefaníu á 90 ára afmæli Ólafs 2018, litla barnið er Sóley Jónsdóttir. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.