Morgunblaðið - 16.08.2021, Page 25

Morgunblaðið - 16.08.2021, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 2021 augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.isL Opið virka daga frá 9-18 lau frá 10-16 Vefverslun brynja.is Yfir 20 gerðir til á lager Verð frá 9.750,- Vandaðir póstkassar frá Björn, f. 13.3. 1991, og Ingibjörgu Ástu, f. 13.11. 1994. 2) María læknir, f. 15.7. 1960. Maki er Jón Freyr Jó- hannsson, f. 17.5. 1962, kennari. Börn hennar með Magnúsi Friðrikssyni eru Einar Búi, f. 16.1. 1986, og Una Björg, f. 23.1. 1990. 3) Hallfríður, tónlistarkona og rithöfundur, f. 12.7. 1964, d. 4.9. 2020, gift Ármanni Helgasyni, tónlistarmanni, f. 5.1. 1964, og þau eiga börnin Gunnhildi Höllu, f. 27.5. 1997, og Tryggva Pét- ur, f. 29.8. 1999. 4) Kristín Anna nátt- úrufræðingur, f. 6.11. 1965, gift Kristni Þorbergssyni lækni, f. 6.1. 1963. Þau eiga börnin Stefaníu Mar- íu, f. 21.12. 1992; Kára Þorberg, f. 3.11. 1997, og Ólaf Áka, f. 21.2. 2002. Langömmubörnin eru þrjú: Sóley, f. 2018, Ari Kai, f. 2019, og nýfædd stúlka, f. 2021. Systkini Stefaníu eru Hallfríður Elín, f. 26.3. 1929, d. 1.2. 2016; Krist- ín Hólmfríður, f. 23.1. 1934 og Björn, f. 20.7. 1937, d. 8.4. 2015. Foreldrar Stefaníu voru hjónin Pétur Sigurður Hallberg Björnsson, kaupmaður á Siglufirði og fulltrúi hjá áfengisvarnaráði ríkisins, f. 25.10. 1897, d. 11.5. 1978, og Þóra Jóns- dóttir húsfreyja, f. 20.10. 1902, d. 20.12. 1987. Stefanía María Pétursdóttir Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja á Hólum, Bakkasókn, Eyj., og í Breiðargerði í Tungusveit, Skag. Þórður Pálsson bóndi og smiður á Hólum og Fagranesi í Öxnadal og í Breiðargerði í Tungusveit, Skag. Hallfríður Þórðardóttir húsfreyja í Hrísey og á Siglufirði Jón Kristinn Kristinsson útvegsbóndi og kennari á Ystabæ í Hrísey, síðar fiskmatsmaður og kennari á Siglufirði Þóra Jónsdóttir húsfreyja á Siglufirði og í Reykjavík Kristín Hólmfríður Þorvaldsdóttir húsfreyja á Ystabæ í Hrísey Kristinn Tryggvi Stefánsson útvegsbóndi á Ystabæ í Hrísey. Fósturforeldrar Jón Brandsson og Kristín Baldvinsdóttir á Ystabæ Jónanna Guðrún Jónsdóttir húsfreyja í Hornbrekku í Ólafsfirði og víðar, fór til Vesturheims 1894 og bjó m.a. í Gimli í Kanada Jóhannes Jóhannesson bóndi í Hornbrekku í Ólafsfirði, fórst með Draupni frá Siglufirði Stefanía Margrét Jóhannesdóttir húsfreyja á Á í Unadal og víðar, vann við fatasaum og rak mötuneyti á Siglufirði Björn Hinrik Guðmundsson b. á Á í Unadal og víðar, síðast bús. á Siglufirði Valgerður Ólafsdóttir húsfreyja á Ingveldarstöðum á Reykjaströnd, Skag., og í Hvammkoti á Skaga, Skag. Guðmundur Gunnarsson bóndi á Ingveldarstöðum á Reykjaströnd, síðar í Hvammkoti á Skaga, Skag. Úr frændgarði Stefaníu Maríu Pétursdóttur Pétur Sigurður Hallberg Björnsson verslunarstjóri á Siglufirði, b. í Garði í Hegranesi, Skag. og fulltrúi hjá áfengisvarnaráði ríkisins, síðast bús. í Rvk. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG ER AÐ SPÁ Í AÐ FARA Í SIGLINGU UM HEIMINN. VILTU KOMA MEÐ?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að verja hana gegn dónum. ÞAÐ FLÝTUR DAUÐ FLUGA Í KAFFINU ÞÍNU SKÁL FYRIR MÁNUDÖGUM! ÉG SÉ AÐ ÞÚ ERT MEÐ MISTILTEIN YFIR DYRA- GÆTT- INNI! ÞÚ VILT KANNSKI KYSSA EIGUR ÞÍNAR BLESS? SJÚKR ABÍLL „ÞAÐ ER ALLTAF BRJÁLAÐ AÐ GERA EFTIR SVONA HRET.“ ÁBoðnarmiði spyr Guðrún Jak- obsdóttir spurningar: Seinast er ég sá þig hér Sigga litla á götu, þú hafðir tutlað handa mér hyrnda á í fötu. Góð var mjólkin, gæskan mín, ég gaf þér kossa fjóra. En af hverju hét ærin Sín, ekki bara Móra? Gunnar J. Straumland flytur „Ref- hverfar sléttubandafregnir af heil- brigðismálum“: „Óvelkomnar fregnir af svokölluðu deltaafbrigði heimsfaraldursveir- unnar berast nú daglega. Sumir eru uggandi yfir fjárhagslegri framtíð ferðaþjónustunnar vegna ástandsins“: Deyðir okkar vonir veira, varla koma gestir. Leiðir skilja, aldrei eira orku vorri pestir. Aðrir hafa minni áhyggjur og treysta á að ríkisstjórnin galopni landið svo hægt sé að græða. Þeir hin- ir sömu lesa vísuna þá bara afturábak: Pestir vorri orku eira, aldrei skilja leiðir. Gestir koma, varla veira vonir okkar deyðir. Dagbjartur Dagbjartsson fer með „Gamla ólundarvísu“: Í sínum ljóðum sumir mest sýna eigin heimsku. vísur mínar væru best vafðar þögn og gleymsku. Friðrik Steingrímsson greip á lofti frétt í DV: „Nýtt tilboð á bjór í Bankastræti“: Bólusettir bjórinn fá í Bankastræti. Ósprautaðir ekki mæti, annars verða bara læti. „Ellin“ er hér yrkisefni Jóns Giss- urarsonar: Elli kerling ekki bíður á mér lítt þó hrín. Eitt er víst að áfram líður ævistundin mín. Þessi er „Framtíðarsýn“ Gylfa Þorkelssonar: Best er að liggja á bakinu, með báðar hendur í takinu, bíða og vona að bjargist nú svona og bunan lendi’ ekki’ í lakinu. Gömul vísa um niðursetning í lok- in: Að hann dáið hafi úr hor held ég rengja megi. Hitt er satt hann var í vor vel fram genginn eigi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Blessuð sauðkindin og bölvuð pestin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.