Morgunblaðið - 30.08.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 30.08.2021, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2021 SKVÍSAÐU ÞIG UPP FYRIR SUMARIÐ STÆRÐIR 1428 Sundkjóll 15.990 kr Stærðir 42-56 Bikiní haldari 8.990 kr C-H skálar Bikiní haldari 8.990 kr Stærðir 42-54 Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is Sjálfstæðisflokkurinn hélt flokks- ráðs- og formannafund sinn um helgina, og fór hann fram á Hilton hótel Nordica, og á sex öðrum stöð- um á landinu samtímis. Fundinn sóttu á fjórða hundrað manns um land allt og samþykktu þeir þar kosningaáherslur flokksins. Slagorð flokksins verður „Land tækifær- anna.“ Sjálfstæðisflokkurinn mun leggja áherslu á ábyrga efnahagsstjórn, uppstokkun tveggja tryggingakerfa og frjáls alþjóðaviðskipti, auk þess sem hann vill að réttur til heilbrigð- isþjónustu verði tryggður. Þá mun hann einnig leggja áherslu á græna orkubyltingu, lækkun skatta, starfræna byltingu og aukna fjölbreytni í mennta- kerfinu. Sömuleiðis vill flokkurinn slaka á sóttvarnaraðgerðum og leggja aukna áherslu á einstaklings- bundnar sóttvarnir. Þá megi sótt- varnaraðgerðir til lengri tíma ekki taka mið af stöðunni á Landspítala heldur þurfi skipulag og stjórnun spítalans að taka mið af aðstæðum á hverjum tíma. Tímabundnir grænir skattar Flokkurinn boðar græna byltingu en telur að grænir skatta eigi að vera tímabundnir. „Grænir skattar eiga ekki að hafa það markmið að auka tekjur hins opinbera. Þeir eiga að vera tímabundið úrræði sem hættir að skapa tekjur þegar kolefnishlutleysi hefur verið náð,“ segir í stefnuskrá flokksins. Þá vill flokkurinn skapa hvata til grænna fjárfestinga og að Ísland verði leið- andi í orkuskiptum á heimsvísu og fyrst þjóða óháð jarðefnaeldsneyti. Uppstokkun á tryggingakerfi ör- yrkja er á stefnuskrá flokksins. Lögð er áhersla á að tryggja fjár- hagslegt sjálfstæði öryrkja og að stuðlað verði að því að öryrkjar hafi ávinning af því að afla sér tekna. Þeim verði auðvelduð þátttaka á al- mennum vinnumarkaði með tilliti til starfsgetu án þess að þeir verði fyrir umtalsverðri skerðingu á örorkulíf- eyri. Þá verði tryggingakerfi eldri borgara endurskoðað frá grunni og frítekjumark atvinnutekna hækkað í 200 þúsund krónur á mánuði. Flokkurinn vill innleiða nýtt fyrir- komulag ellilífeyris almannatrygg- inga til að skapa hvata til atvinnu. Vegna fortíðarstöðu verði tekin upp sérstök lífeyrisuppbót til þeirra sem hafa áunnið sér takmörkuð lífeyris- réttindi, eins konar viðbótargreiðsla úr lífeyrissjóðum sem skerðist ekki vegna annarra tekna. Í menntamálum boðar flokkurinn aukna fjölbreytni í menntakerfinu. „Auk opinbers rekstrar séu kostir einstaklingsframtaksins nýttir með sjálfstætt starfandi skólum og hið opinbera greiðir það sama með hverjum nema, óháð rekstrarformi skólans sem hann sækir,“ segir í stefnuskrá flokksins. Þá kemur einn- ig fram að huga þurfi sérstaklega að börnum með erlent móðurmál og drengjum, sem standi höllum fæti. Valfrelsi í samgöngum Í samgöngumálum vill flokkurinn nútímalegar, greiðar og öruggar samgöngur um allt land með upp- byggingu öflugra innviða, valfrelsi og fjölbreytni að leiðarljósi og segja einn samgöngumáta ekki eiga þrengja að öðrum. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að við skipulag heilbrigð- isþjónustu sé réttur einstaklinga til þjónustu tryggður. Sjúkratrygg- ingar muni bera ábyrgð á því að sá sem þarf á þjónustu að halda fái hana innan ákveðins tíma. Flokkurinn telur tilefni til að end- urskoða ákveðna þætti stjórnar- skrárinnar en telur heildarendur- skoðun samræmast illa sjónarmiðum um réttaröryggi og fyrirsjáanleika. Einnig kemur fram í stefnu- skránni að fjölga þurfi lögreglu- mönnum og að þekking, þjálfun, starfsumhverfi og búnaður þeirra þurfi að vera í takt við nútímann. Græn orkubylting í landi tækifæranna - Uppstokkun tveggja tryggingakerfa og lægri skattar Ljósmynd/Haraldur Thors Græn bylting Bjarni Benediktsson ávarpaði flokksráðsfundinn. Viðreisn kynnti kosningaáætlun sína á rafrænum landsfundi á laugardag- inn. Flokkurinn leggur áherslu á inngöngu að Evrópusambandinu að undangenginni þjóðaratkvæða- greiðslu, blandað heilbrigðiskerfi, umhverfismál og uppstokkun í sjáv- arútvegsmálum. Þá boðar flokkurinn einnig slökun sóttvarnaraðgerða. Yf- irskrift fundarins var „Gefum fram- tíðinni tækifæri.“ Flokkurinn vill sjá „sanngjarnar“ leikreglur í sjávarútvegi og að réttur til veiða verði með tímabundnum leigusamningum til 20-30 ára í senn. Þá yrði hluti kvótans boðinn upp á markaði á hverju ári. Með tímanum sér flokkurinn fyrir sér að allar veiði- heimildir verði bundnar slíkum samningum og útgerðin greiði fyrir afnot af fiskimiðunum í samræmi við markaðsverðmæti aflaheimilda. Viðreisn vill „þjónustuvætt opin- bert heilbrigðiskerfi“ og segja því best náð með blönduðu heilbrigðis- kerfi. Þá telur flokkurinn að sótt- varnaraðgerðir séu óhóflega íþyngj- andi vegna fjárskorts heilbrigðiskerfisins og segir það ótækt. Einnig þurfi að létta á tak- mörkunum með stórauknu aðgengi að hraðprófum. Flokkurinn boðar græna skatta. „Viðreisn vill hvetjandi grænt kerfi þannig að það borgi sig að vera um- hverfisvæn og að þau borgi sem menga,“ segir í stjórnmálaályktun flokksins, en Viðreisn telur að Ísland geti verið leiðandi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum eins og það hef- ur verið í jafnréttismálum. Viðreisn setur Evrópumálin á dagskrá og vill binda gengi krónunn- ar við evru með samningi við Seðla- banka Evrópu. ingathora@mbl.is Vilja ,,sanngjarn- an“ sjávarútveg - Grænir skattar, ESB og slökun sótt- varnartakmarkana Morgunblaðið/Eggert Viðreisn Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir á fundinum um helgina. „Skattkerfið á að styðja við græn markmið, markmið í loftslagsmálum, og stuðla að því að við náum okkar markmiðum um samdrátt í losun,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra á landsfundi Vinstri grænna á laugardaginn, en hún var þar endurkjörin sem formaður flokksins. Auk Katrínar var Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auð- lindaráðherra, endurkjörinn varafor- maður og Rúnar Gíslason endurkjör- inn sem gjaldkeri en þau voru öll ein í framboði. Baráttan um ritararaemb- ættið var aðeins meira spennandi en þar buðu sig fram Sóley Björk Stef- ánsdóttir og Guðrún Ágústa Guð- mundsdóttir og hafði Sóley Björk betur. Á fundinum var einnig lögð fram stefnuskrá flokksins fyrir komandi kosningar undir yfirskriftinni „Það skiptir máli hver stjórnar,“ en Vinstri græn vilja leiða næstu ríkisstjórn. Í stjórnmálaályktun fundarins kemur fram að Vinstri græn vilji græna skatta. Jafnframt er lögð áhersla á að skattakerfið sé réttlátt jöfnunartæki og boða þau þrepa- skiptan fjármagnstekjuskatt. Í stefnuskrá flokksins kemur einn- ig fram markmið um sköpun nýrra, grænna starfa. Vinstri græn vilja efla grænar fjárfestingar og loftslags- væna nýsköpun. Þá vill flokkurinn skylda lífeyrissjóði og fjármálastofn- anir til að meta fjárfestingar sínar út frá loftslagsáhrifum. Flokkurinn boðar orkuskipti í al- menningssamgöngum, græna teng- ingu milli höfuðborgarsvæðis og Keflavíkurflugvallar og vill flýta fyrir Borgarlínu. Þá vill flokkurinn að markmið Ís- lands í loftslagsmálum verði uppfærð og stefnt verði að a.m.k. 60% sam- drætti losunar árið 2030 en núver- andi markmið er 55%. Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson Endurkjörin Katrín Jakobsdóttir flutti ávarp á landsfundinum. Græn markmið í skattamálum Stefna VG » Skattkerfið sé réttlátt jöfn- unartæki með þrepaskiptum fjármagnstekjuskatti. » Grænar fjárfestingar og loftslagsvæn nýsköpun verði efld. » Flokkurinn boðar orkuskipti í almenningssamgöngum, græna tengingu milli höfuð- borgarsvæðis og Keflavíkur- flugvallar og að flýtt verði fyrir Borgarlínu. - Katrín endurkjörin formaður 2021 ALÞINGISKOSNINGAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.