Morgunblaðið - 30.08.2021, Síða 8
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ráðherra Tekin á beinið vegna
krabbameinsmála kvenna.
„Við áttum stutt spjall við ráðherrann
og óskuðum svara. Margt af því sem
við fengum voru síðbúnar annars
flokks eftiráskýringar og þá vantar að
fengin séu sjónarmið notenda þessara
mikilvægu þjónustu,“ segir Erna
Bjarnadóttir hagfræðingur. Konur úr
aðgerðahópnum Aðför að heilsu
kvenna, sem Erna er í, áttu sl. föstu-
dag fund með Svandísi Svavarsdóttur
heilbrigðisráðherra um stöðu grein-
inga og miðlun niðurstaðna úr skimun
fyrir leghálskrabbameini.
Sem kunnugt er var fyrirkomulagi
skimana breytt fyrir nokkru sem hef-
ur verið umdeilt. Konur í hópnum
segja undirbúning breytinga hafa
verið ófullnægjandi, það er að sýni
sem tekin eru skuli vera greind í Dan-
mörku. Ekki sé kominn gagnagrunn-
ur sem heldur utan um sýnin, greinir
niðurstöður og miðlar upplýsingum.
Allt þetta hafi leitt af sér óvissu, sem
ekki sé bjóðandi konum, aðstandend-
um og læknum þeirra.
Í byrjun júlí sl. tóku nokkrar konur
sig saman til að reyna enn að fylgja
því eftir að framkvæmdin yrði bætt
með til dæmis styttri biðtíma og skýr-
ari leiðbeiningum varðandi niðurstöð-
ur. Óskað var svara og skýringa frá
ráðherranum, sem Erna segir rýr í
roði. sbs@mbl.is
Sjónarmið notendanna þarf að fá
- Krabbameinsskimun í brennidepli - Óskuðu skýringa ráðherra - Skemmri bið
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2021
Kjarasamningar tókust loks um
helgina á milli Félags flug-
umferðarstjóra og Samtaka at-
vinnulífsins fyrir hönd Isavia. Þar
með var því forðað
að flugumferðar-
stjórar legðu niður
vinnu á morgun
með tilheyrandi
áfalli fyrir Ísland og
þá einkum íslenska
ferðaþjónustu, sem
glímt hefur við
nægan vanda. Þetta
er ánægjuefni og þakkarvert að
deilendur skyldu leggja sig svo
fram sem raun er og ná samn-
ingum. Nú ætti að haldast friður á
þessum vettvangi næstu tvö árin
hið minnsta.
- - -
En Ísland þarf að koma sér út
úr þessu háttalagi. Það geng-
ur ekki að hér séu síendurtekið
harðar kjaradeilur sem endi ýmist
með stórskaðlegum verkföllum eða
óraunsæjum samningum, nema
hvort tveggja sé.
- - -
Í Hagsjá Landsbankans frá því á
föstudag er yfirlit yfir
launaþróun og á því má sjá að þessi
mál hafa farið algerlega úr bönd-
um hér á landi, sem hefur bitnað
illa á ýmsum fyrirtækjum og óhjá-
kvæmilega kostað marga vinnuna.
- - -
Hækkun meðallauna á Íslandi
frá síðustu aldamótum, árin
2000-2020, hefur verið 204%. Í
næsta landi, Noregi, hefur þessi
hækkun verið 114% og í Svíþjóð
81%. Hjá öðrum er þróunin hægari,
til dæmis 65% í Bretlandi og 52% í
Þýskalandi.
- - -
Þetta felur í sér að meðal-
hækkun launa hér á landi á
ári hefur verið 5,8%, 3,9% í Noregi,
3,0% í Svíþjóð og 2,1% í Þýska-
landi. Dettur einhverjum í hug að
laun hér á landi geti til langs tíma
hækkað svo miklu meira en í öðr-
um löndum?
Slysi forðað
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur
beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann.
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
HÁTT
HITAÞOL
Íslenska öldungaliðið í brids vann
sér keppnisrétt á heimsmeistara-
móti sem verður á Ítalíu í lok mars á
næsta ári ef staða kórónuveiru-
faraldursins leyfir. Evrópukeppni
um HM-sætin, sem fór fram á netinu
í vikunni, lauk á laugardag.
Lið frá 24 þjóðum tóku þátt í öld-
ungaflokknum og Ísland endaði þar í
áttunda sæti en liðin í átta efstu sæt-
unum fá rétt til að keppa á heims-
meistaramótinu.
Ísland tók einnig þátt í opnum
flokki, þar sem íslenska liðið endaði í
25. sæti af 31, og kvennaflokki þar
sem Ísland endaði í 19. sæti af 20. Sú
óvenjulega staða kom upp í opna
flokknum, að ekkert lið mætti til
leiks gegn Ítalíu en í ítalska liðinu
var spilari, sem hefur verið sakaður
um svindl og sætt keppnisbanni í
Evrópu sem alþjóðlegi íþróttadóm-
stóllinn aflétti síðar.
Í öldungaflokknum, þar sem
keppendur eru 62 ára og eldri,
kepptu Björn Eysteinsson, Guð-
mundur Sv. Hermannsson, Að-
alsteinn Jörgensen, Sverrir Ár-
mannsson, Haukur Ingason og
Þorlákur Jónsson.
Morgunblaðið/GSH
Spilað í tölvum Það var ekki margmenni í spilasalnum í húsnæði Bridge-
sambands Íslands þar sem íslensku spilararnir sátu við tölvur sínar.
Fá keppnisrétt á HM
- Evrópukeppni um sæti á heims-
meistaramóti í brids fór fram á netinu