Morgunblaðið - 30.08.2021, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 30.08.2021, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2021 Við leigjum út krókgáma FRAMKVÆMDIR? til lengri eða skemmri tíma HAFÐU SAMBAND: sími: 577 5757 www.gamafelagid.is Hugsum áður en við hendum! Að minnsta kosti 30 manns féllu í árásum á stærstu flugbækistöð stjórnarhersins í Jemen í gær. Þá særðust að minnsta kosti 56 manns í árásunum á Al-Anad-flugstöðina, en hún er um 60 kílómetrum fyrir norð- an Aden, næststærstu borg Jemen. Mohammed al-Naqib, talsmaður stjórnarhersins, sagði að uppreisn- armenn úr röðum Húta hefðu skotið eldflaugum að stöðinni, auk þess sem dróni hefði tekið þátt í árásinni. Abedrabbo Mansour Hadi, forseti Jemen, sendi aðstandendum hinna föllnu samúðarkveðjur sínar í gær og hét því að Hútum yrði refsað grimmilega fyrir „alla glæpina sem þeir hafa framið gegn almenningi í Jemen“. Uppreisnarmennirnir sendu ekki frá sér yfirlýsingu um árásina í gær. Borgarastríð hefur nú ríkt í Jemen frá árinu 2014, en þá náðu Hútar, sem notið hafa stuðnings frá Íran, höfuðborginni Sanaa á sitt vald. Áætlað er að milljónir manna hafi farið á vergang vegna átakanna og tugþúsundir hafa týnt lífi. AFP Árás Fjöldi fólks fylgdist með þegar sjúkrabílar fluttu særða af vettvangi. Minnst 30 stjórn- arhermenn felldir - Hútar sagðir bera ábyrgðina Emmanuel Mac- ron, forseti Frakklands, sagði í viðtali í gær að þó að Frakkland eigi í viðræðum við ta- líbana í Afganist- an þýði það ekki að landið sam- þykki stjórn þeirra. Macron sagði að stjórn talíbana yrði að tryggja mannréttindi og koma í veg fyrir hryðjuverk. Frakkland og önnur ríki hafa til- kynnt að þau eigi í viðræðum við ta- líbana um hvernig sé best að flytja erlenda ríkisborgara frá Afganist- an. „Við höfum aðgerðir sem við þurfum að framkvæma í Afganist- an, fólksflutninga. Talíbanar eru þeir sem stjórna, við verðum að vera í viðræðum við þá út frá hag- nýtu sjónarmiði. Það þýðir þó ekki að við viðurkennum stjórn þeirra,“ sagði Macron en hann er nú í heim- sókn í Írak. FRAKKLAND Viðurkennir ekki stjórn talíbana Emmanuel Macron Byssan sem felldi bandaríska út- lagann Bill barn- unga (e. Billy the Kid) hefur selst fyrir um sex milljónir dollara, eða um 760 millj- ónir íslenskra króna. Þetta er hæsta verð sem hefur fengist fyrir skotvopn á upp- boði en búist var að hún myndi selj- ast fyrir tvær til þrjár milljónir dala. Byssan er 44 kalíbera og var í eigu fógetans Pats Garrett sem banaði Billa með skoti í bringuna í Nýju-Mexíkó 14. júlí árið 1881. Út- laginn var þá einungis 21 árs gam- all. Samkvæmt uppboðshúsinu Bon- hams, er byssan í mjög góðu ástandi þrátt fyrir að vera meira en 130 ára gömul. BANDARÍKIN Skotvopn seldist á metupphæð Billi barnungi Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Í gærmorgun barst sendiráði Bandaríkjanna í Kabúl, höfuðborg Afganistan, ítarleg og trúverðug hótun um árás. Biðlaði sendiráðið því til allra bandarískra ríkisborg- ara í nágrenni við flugvöllinn að koma sér þaðan í burtu. Síðar um daginn gerði Bandaríkjaher drónaá- rás á bíl í Kabúl sem var hlaðinn sprengjuefni og var á leið á flugvöll- inn. Talsmaður talíbana staðfesti árásina og sagði að bílsprengja sem átti að springa á flugvellinum hefði verið eyðilögð og að önnur möguleg loftárás hefði lent á húsi í nágrenn- inu. Bandaríkin sögðust aðeins hafa sprengt upp bílinn en bættu við að sprengingar sem urðu í kjölfarið bentu til „talsverðs magns af sprengiefni.“ Óvíst er hvort einhver hafi særst í árásinni. Á fimmtudag var sjálfsmorðs- sprengjuárás við flugvöllinn í Kabúl þar sem að minnsta kosti 170 féllu, þar á meðal 13 starfsmenn banda- ríska hersins og þrír breskir ríkis- borgarar. Hryðjuverkasamtökin Ríki íslams-Khorasan báru ábyrgð á árásinni. Í kjölfarið gerðu bandarísk stjórnvöld drónaárás á liðsmenn Ríkis íslams. Tveir háttsettir liðs- menn féllu í árásinni. Stjórnvöld í Bandaríkjunum segja stöðuga ógn stafa af Ríki íslams og því sé herinn tilbúinn til þess bregðast við ef þörf er á. Bandaríkjamenn eru nú í kappi við tímann að flytja fólk frá Afgan- istan en frá því að talíbanar tóku völdin 15. ágúst hafa um það bil 114 þúsund manns verið flutt úr landi. Að sögn Anthonys Blinken, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, á enn eftir að flytja um 300 bandaríska ríkisborgara úr landi. Á morgun eiga allir bandarískir hermenn að vera komnir frá Afganistan sam- kvæmt samkomulagi á milli Banda- ríkjamanna og talíbana. Kemur bráðlega fram Í gær bárust einnig fréttir af því að æðsti leiðtogi talíbana, Hibatul- lah Akhundzada, sem hefur aldrei komið fram opinberlega, væri stadd- ur í borginni Kandahar í Afganistan. „Ég get staðfest að hann er stadd- ur í Kandahar. Hann mun bráðlega koma fram opinberlega,“ sagði Bilal Karimi, talsmaður talíbana, í gær. Akhundzada hefur leitt talíbana frá árinu 2016. Lítið er vitað um störf hans dagsdaglega. Helst hefur nafn hans verið birt af talíbönum vegna árlegra skilaboða á hátíðis- dögum íslam. Stöðug ógn af fleiri árásum - Bandaríkjaher gerði drónaárás á bíl hlaðinn sprengjuefni - Eiga enn eftir að flytja 300 bandaríska ríkisborgara - Æðsti leiðtogi talíbana kominn til landsins AFP Flugvöllur Að minnsta kosti 170 féllu í árásinni á fimmtudag. Fellibylurinn Ída náði landi í Louis- iana-ríki í Bandaríkjunum í gær, 16 árum upp á dag eftir að fellibylurinn Katrína reið yfir New Orleans og fleiri en 1.800 manns létust. Vind- urinn sem fylgir Ídu hefur náð 240 kílómetrum á klukkustund og er felli- bylurinn flokkaður í flokk fjögur af fimm á Saffir-Simpson-mælikvarð- anum. Það bendir til þess að fellibyl- urinn muni valda verulegum skemmdum á byggingum, trjám og raflínum. Sums staðar gæti áhlað- andinn orðið allt að 4,8 metra hár þannig að hluti strandlengjunnar fari á kaf. Þúsundir manna flúðu ríkið í fyrra- dag en ríkisstjóri Louisiana, John Bel Edwards, sagði storminn mögulega geta orðið þann versta sem gengið hefur yfir ríkið síðan um 1850. Fellibylurinn Ída gæti orðið verri en Katrína sem kostaði fleiri en 1.800 manns lífið Ída hefur náð landi í Louisiana AFP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.