Morgunblaðið - 30.08.2021, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.08.2021, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2021 Ljósin loga Akureyrarbær fagnaði 159 ára afmæli sínu í gær og voru helstu byggingar bæjarins lýstar upp á litríkan og skemmtilegan hátt af því tilefni, þar á meðal Akureyrarkirkja. Þorgeir Baldursson Við Íslendingar er- um útflutningsþjóð. Það þýðir að lífskjör okkar byggjast um- fram allt á því að auka útflutningsverðmæti. Við erum líka þjóð sem býr að farsælli sögu þegar kemur að sjálfbærni, hvort sem litið er til nýtingar sjávarauðlindarinnar eða á endurnýjan- legum, hreinum orkugjöfum. Heimsbyggðin stendur frammi fyrir miklum vanda þegar kemur að loftslagsmálum. Mestu skiptir að draga úr los- un gróðurhúsaloftteg- unda og þar komum við að nauðsyn orku- skipta, að heims- byggðin hætti að nota jarðefnaeldsneyti á borð við kol og olíu og nýti þess í stað endur- nýjanlega orkugjafa. Auðvitað eigum við Íslendingar að ganga vel um okkar nánasta umhverfi og vera leið- andi í því á heimsvísu, eins og hingað til. En við getum gert meira og eigum að gera meira, miklu meira. Hér á landi er fram- leidd 99,9% endurnýjanleg raforka, hrein og græn orka. Það er eins- dæmi. Þá getur reynsla okkar og þekking þegar kemur að nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa reynst bjargráð fyrir aðrar þjóðir. Stóraukin framleiðsla á endur- nýjanlegri orku á heimsvísu er ein mikilvægasta og áhrifaríkasta að- gerðin í loftslagsmálum. Við Íslend- ingar erum í öfundsverðri stöðu og getum slegið margar flugur í einu höggi: eflt ímynd landsins, dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda og styrkt stoðir útflutnings, aukið út- flutningstekjur og skapað eftir- sóknarverð og verðmæt störf. Framlag okkar til loftslagsmála er fólgið í því að auka framleiðslu á grænni orku. Rafbílavæðingin, orkuskiptin, síaukin eftirspurn eftir vinnslu og hýsingu gagna meðal annars með notkun ofurtölva og eftirspurn eftir hreinum og vist- vænum matvælum kallar allt á aukna framleiðslu endurnýjan- legrar orku. Þar stöndum við vel að vígi í samanburði við aðrar þjóðir og við eigum að nýta það tækifæri til uppbyggingar á grænum, orku- sæknum iðnaði í þágu verðmæta- sköpunar og fjölgunar starfa hér á landi. Framlag Íslands til loftslags- mála er þannig í raun samofið út- flutningshagsmunum okkar sem þjóðar. Við þurfum ekki og eigum ekki að fara í felur með það sem við höf- um fram að færa við lausn lofts- lagsvandans. Við gerum mest gagn í þeirri baráttu með því að fram- leiða græna orku í ríkari mæli og selja heimsbyggðinni grænar vörur og þjónustu og hugvit okkar og þekkingu á grænum lausnum. Eftir Guðlaug Þór Þórðarson » Við þurfum ekki og eigum ekki að fara í felur með það sem við höfum fram að færa við lausn loftslagsvandans. Guðlaugur Þór Þórðarson Höfundur er utanríkis- og þróunar- samvinnuráðherra. Framlag Íslands til loftslagsmála samofið útflutningshagsmunum Það voru góð tíðindi er Norðurál náði nýj- um raforkusamningi á dögunum. Samhliða var tilkynnt um 15 milljarða króna viðbót- arfjárfestingu á Grundartanga. Mun fyrirtækið byggja nýj- an steypuskála til framleiðslu á virðis- aukandi sérvöru sem styrkir mjög samkeppnisstöðu þess. Framkvæmdin mun tímabundið skapa meira en 100 störf og önnur 40 framtíðarstörf í kerskála. Það styrkir Grundartanga enn frekar sem öflugt atvinnusvæði. Norðurál er eitt af 20 stórum og smáum iðn- og þjónustufyr- irtækjum á Grundartanga. Á svæð- inu sækja um 1.100 manns atvinnu og að auki má rekja önnur 2.100 störf til rekstursins. Þetta samfélag fyrirtækja er langstærstu vinnu- veitendur Hvalfjarðarsveitar og Akraness. Tvö stærstu fyrirtækin, Norðurál og Elkem, greiða í laun og þjónustu um 20 milljarða á ári til samfélagsins. Þetta öfluga atvinnusvæði Grund- artanga hafa fyrirtæki og sveitar- félög byggt upp sameiginlega. Til tryggingar á framþróun svæðisins enn frekar var Þróunarfélag Grund- artanga stofnað 2016. Að því standa Hvalfjarðarsveit, Borgarbyggð, Skorradalshreppur, Akraneskaup- staður, Reykjavíkurborg og Faxa- flóahafnir. Félaginu er ætlað að sameina krafta sveitarfélaganna, Faxaflóahafna og fyrirtækja til að mynda eitt öflugt atvinnusóknar- svæði og þróa nýja vaxtarmöguleika. Grænt iðn- og atvinnusvæði Félagið hefur staðið fyrir fjöl- breyttum þróunar- og framfara- málum. Þar má nefna skoðun nýrra umhverfisvænna orkukosta, orku- endurvinnslu, hitaveitu og fram- leiðslu nýrra orkugjafa á borð við rafeldsneyti. Þá hafa ylrækt og fisk- eldi verið skoðuð. Markmiðið er að fullnýta virðiskeðju framleiðslunnar, forðast sóun verðmæta og byggja upp grænna iðn- og atvinnusvæði í hringrásarhagkerfi í anda sjálf- bærnimarkmiða Sameinuðu þjóð- anna. Ráðist hefur verið í skógrækt með „grænum trefli“ við Grundartanga, unnið að betri tengingu við umhverf- isvænar almenningssamgöngur, og kynning efld á svæðinu. Að auki hef- ur félagið hvatt til samstarfs um auknar umhverfisrannsóknir og um- hverfisvöktun. Fyrir er Hvalfjörður líklega best vaktaða svæði landsins sem tekur til um 100 mæliþátta í lofti, sjó og ferskvatni, húsdýrum og gróðri. Vöktunin er framkvæmd af óháðum aðilum og er hluti mæl- inganna aðgengilegur í rauntíma á vef Umhverfisstofnunar. Nýsköpunar- og þróunarklasi Þróunarfélagið byggir á sýn um uppbyggingu nýsköpunar- og þróun- arklasa á Grundartanga. Þar verður fjölbreytt starfsemi ólíkra fyrir- tækja, stofnana og sem tengist svæðinu, til umbóta, samstarfs og þróunar. Metnaðurinn liggur í sjálf- bærri verðmætasköpun, lágmörkun vistspors og bættrar umhverfis- verndar. Rafeldsneyti og hitaveita Tvö þróunarverkefni undir merkj- um klasans ber að nefna: Nú í sumar kynnti félagið vandaða skýrslu um möguleika á framleiðslu rafeldsneytis, en það er umhverfis- vænt eldsneyti sem byggir á þekktri tækni um framleiðslu vetnis með endurnýjanlegri raforku og glat- varma frá Elkem, ásamt því að nýta koldíoxíð sem þegar er til staðar í vistkerfi svæðisins. Þannig verði dregið verulega úr losun gróður- húsalofttegunda, orkuskipti efld og stuðlað að kröftugri nýsköpun. Með nýtingu þess mikla varma sem verð- ur til í starfsemi á Grundartanga væri mögulegt að byggja upp hita- veitu fyrir svæðið og nágrenni þess. Nú er unnið að undirbúningi og rannsóknum á slíkri hitaveitu. Tak- ist samningar um verkefnið og tæknilegar áskoranir leystar er fyrir séð að hitaveitan gæti tekið til starfa á næstu árum. Þróunarfélagið byggir á þeirri trú að jákvæður ábati reksturs og fjár- festinga styrki samkeppnishæfni fyrirtækja á svæðinu. Hann skapar öruggara atvinnuumhverfi, styður við bætta þjónustu sveitarfélaga svæðisins og skapar aukið mótvægi við loftslagsbreytingar. Það er veg- ferð sjálfbærni fyrirtækja og sam- félags. Því er sóknarhugur í þeim sem standa að uppbyggingu at- vinnusvæðisins á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit. Eftir Björgvin Helgason og Ólaf Adolfsson » Öflugt atvinnusvæði á Grundartanga þró- ar nýja vaxtarmögu- leika með vegferð fyrir- tækja og samfélags til sjálfbærni. Björgvin Helgason Björgvin er oddviti Hvalfjarðar- sveitar og Ólafur er bæjarfulltrúi á Akranesi og formaður Þróunarfélags Grundartanga. Björt framtíð Grundartanga Ólafur Adolfsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.