Morgunblaðið - 30.08.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.08.2021, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2021 Viðurkennd að- ferðafræði þegar meta skal árangur ráðstaf- ana í umferðarmálum er að reikna þjóðhags- legan arð af verkefn- inu. Þetta eru flóknir útreikningar og vand- meðfarnir svo auðvelt er að láta sér yfirsjást um það hvaða for- sendur er rétt að gefa sér og hverjar ekki. Einn mikilvæg- asti hlutinn er að gera sér grein fyr- ir áhrifum á tafir fólks í umferðinni og oft sá liður sem skiptir sköpum. Fyrir liggja nokkrar skýrslur allt frá árinu 2014 fram til frumdraga- skýrslu borgarlínu sem kom út nú í ár og allar eiga þær það sameigin- legt að reikna engar þær tafir á um- ferð sem orsakast af tilkomu borg- arlínunnar. Þessi forsenda á aðeins við léttu borgarlínuna en ekki þá þungu sem frumdragaskýrslan ger- ir ráð fyrir. Þunga borgarlínan, sér- staklega útfærsla hennar á Suður- landsbraut, tefur aðra umferð mikið og þess er hvergi getið í skýrslum. Reiknimeisturum borgarlínu til afsökunar má segja að umferðar- tafir eru það sem knýr fólk til að nota almenningssamgöngur og í sumum borgum erlendis eru taf- irnar það miklar að það tekur svip- aðan tíma að aka til vinnu sinnar á einkabíl og að taka strætó og hvergi pláss fyrir nýjan veg. Við þær aðstæður ligg- ur beinast við að grafa jarðgöng undir borgina en til er annað ráð, ódýrara, sem margir velja. Það er að loka akreinum fyrir umferð einkabíla og leggja þær undir strætó. Þar með flýtir maður fyrir þeim samgöngumáta en markaðsöflin sem gilda um val fólks á ferðamáta sjá síðan til þess að fleira fólk leggur einkabíln- um og fer með strætó þar til ferðir með einkabíl taka á ný svipaðan tíma og strætóinn. Þar með taka báðir ferðamátar aftur svipaðan tíma en nú minni og allir ánægðir. Í þessu dæmi yfirsést reikni- meisturunum borgarlínu aftur, því hér eru aðstæður allt aðrar. Hér tekur um tvöfalt til þrefalt lengri tíma að ferðast til vinnu með strætó en einkabíl og þótt einhverjar ak- reinar séu teknar frá einkabílnum nægir það ekki til að auka hlutdeild strætó í ferðum borgaranna nema lítið eitt og við sitjum uppi með enn meiri umferðartafir. Ef á þetta er bent segja reikni- meistarar borgarlínu að umferð- arástand stórborganna sé alveg að bresta á hjá okkur líka og ekki seinna vænna að bregðast við því. Er það svo? Til að svara þessari spurningu verður að segja fyrir um umferð og umferðartafir og til þess höfum við ýmsar gagnlegar upplýsingar. Hag- stofan birtir árlega mannfjöldaspá til 50 ára og þar af hefur 71% öku- skírteini. Vegagerðin hefur sýnt fram á samhengi umferðar og hag- vaxtar. Enn fremur sýnir saman- burður umferðarmælinga Vega- gerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu og mælinga fyrirtækisins TomTom á umferðartöfum á höfuðborg- arsvæðinu að þar er mjög náið sam- hengi á milli. Með þessar upplýs- ingar í höndum má gera reiknilíkan sem spáir um breytingar á umferð og umferðartöfum fram í tímann og reiknar út frá því breytingar á ferðatíma. Til viðbótar við kostnaðaráætl- anir samgöngusáttmálans hefur Áhugafólk um samgöngur fyrir alla (ÁS) einnig gert áætlanir um stofn- kostnað fyrir breikkun vega þar sem bæta þarf við sérakrein fyrir létta borgarlínu og áætlanir um stofnkostnað fleiri umferðarmann- virkja. ÁS hefur einnig metið áhrif framkvæmdanna til að minnka tafir og slys í umferðinni. Það mat má nýta í reiknilíkaninu til að meta áhrif hinna nýju innviða á ferðatíma í framtíðinni. Ástandið núna má lesa úr við- horfskönnun MMR frá maí 2021 en samkvæmt henni tekur um 28 mín- útur að ferðast til vinnu með strætó, eða þrisvar sinnum lengri tíma en tekur með einkabíl. Með sér- akreinum má minnka þennan tíma um þrjár mínútur eða svo. Ferða- tíminn með einkabíl er síðan rúmt áætlaður 12 mínútur, þar af fara fjórar mínútur í tafir. Reiknilíkanið er notað til að spá fyrir um ferða- tíma með einkabíl eftir því hvor borgarlínan er valin og tekið tillit til þeirra umferðartafa sem sú þunga veldur. Niðurstaðan er sýnd á með- fylgjandi mynd og borin saman við ferðatíma með strætó að göngutíma að og frá biðstöð meðtöldum. Eins og meðfylgjandi mynd sýnir dregur ekki svo saman með ferða- tíma einkabíls og strætó næstu 50 árin að það gefi tilefni til marktækr- ar aukningar á hlutdeild strætó í ferðavali fólks frá þeim þremur til fjórum prósentum sem hún er í í dag, hvað þá heldur að 12% mark- mið SSH náist. Til lengri tíma mun- ar síðan um tveimur mínútum á ferðatíma einkabíls eftir því hvort valið er að innleiða þungu borgarlín- una eða þá léttu. Það virkar ekki hátt, en ferðir á höfuðborgarsvæð- inu eru um milljón á dag svo það safnast upp í allmörg mannár yfir árið. Margfaldað með lágum með- allaunum fæst upphæð af stærðar- gráðunni ein loðnuvertíð á ári og þeirri upphæð verða atvinnuveg- irnir að rísa undir til viðbótar öðru verði þunga borgarlínan fyrir val- inu. Þarna er um mikla blóðtöku að ræða sem skaðar framleiðslugetu Íslands. Almenningssamgöngur á höf- uðborgarsvæðinu þarf að bæta af mörgum ástæðum. En það að reikna stærsta kostnaðarliðinn, um- ferðartafir út frá léttu borgarlín- unni, og hanna síðan án frekari reikninga þá þungu, er yfirsjón sem bæta þarf úr. Eftir Elías Elíasson »Hér tekur um tvöfalt til þrefalt lengri tíma að ferðast til vinnu með strætó en einkabíl. Elías Elíasson Höfundur er verkfræðingur. eliasbe@simnet.is Yfirsjónir í útreikningum borgarlínu Forsíðufrétt Mbl. 18. ágúst er: Úr hönd- um Íslendinga. Fréttin segir greiðslumiðlun nær alfarið komna í er- lenda eigu eftir sölu Valitors úr landi. Mál- ið sé á borði þjóðarör- yggisráðs og Seðla- banki Íslands knýi á um aðgerðir. Seðla- banki varaði við hvert stefndi 2019. Síðan hafa verið haldnir fjórir fund- ir. Arion seldi Valitor til Rapid Ísr- ael. Áður seldi Íslandsbanki Borg- un til Salt Pay í Brasilíu. Ekki að furða að forsætisráðherra sé áhyggjufull. Nýlega var í fréttum að Arion ætlaði að borga hluthöfum út 70 milljarða arð og Íslandsbanki myndi fylgja í kjölfarið með arð- greiðslur. Báðir selja bankarnir allt sem hægt er til að fullnægja græðgi hluthafa sinna. Við lestur Mbl. rifjaðist upp fyrir mér sala Arion banka. Sigmundur Davíð benti á að bankinn væri stút- fullur af peningum sem kaupendur myndu greiða sér út. Hann vildi að ríkið nýtti forkaupsréttinn og setti fram hugmynd um greiðslu til al- mennings líkt og þegar hann losaði hrægammana úr haldi. Ríkis- stjórnin og fleiri lögðust alveg gegn því. Sögðu það ekki hægt, auk þess sem ríkið ætti ekki að reka banka. Betra væri að gefa bankana en eiga þá áfram. Forsætisráðherra sagði ríkið ekki eiga forkaupsrétt. Nokkrum vikum seinna féll hún frá forkaupsréttinum. Allt sem varað var við hefur gengið eftir. Þremur árum eftir sölu Arion banka var Íslandsbanki seldur. Nú eins og þá voru stjórnvöld vöruð við að í bankanum fælust miklu meiri verðmæti en væntanlegt söluverð. Á það var ekki hlustað frekar en við sölu Arion banka. Bankinn skyldi seldur, hvað sem það kost- aði, og nú væri rétti tíminn til þess. Bankinn var seldur og fengu færri en vildu. Stjórnvöld voru himinlif- andi ánægð með verðið. Forsætis- ráðherra var sér- staklega ánægð með hvað stór hluti var seldur til útlendinga. Skömmu seinna seldu margir þeirra hlut sinn og græddu hundruð milljóna eða milljarða króna. Hverjum seldu þeir? Voru þeir kannski leppar stærri fjármálafyrirtækja, sem sækjast eftir hreðjataki á fjármálum landsins sbr. frétt Mbl.? Fróðlegt væri að sjá samantekt á hvað mikill gróði hefur verið innleystur með sölu á bréfum í Íslandsbanka. For- sætisráðherra sagði verðmæti bankans hafa aukist án þess að nefna að hlutur ríkisins hefði minnkað. Kannski verður forsætisráðherra helst minnst fyrir að hafa sannað að bókvitið verður ekki sett í ask- ana. Við svona sölu á eigum þjóð- arinnar veltir maður fyrir sér eign- arréttinum. Hafa stjórnvöld umboð til að selja eigur þjóðarinnar á þennan hátt? Hvernig voru þeir valdir sem fengu að kaupa? Maður veltir líka fyrir sér hvort Lands- virkjun og Leifsstöð verði seld á næsta kjörtímabili! Lokaspurningin er: Hvað verður um þjóðarauðlindina? Hún er sam- kvæmt stjórnarskrá eign þjóð- arinnar, sem ekki má selja. Verða fiskvinnslur seldar á markaði líkt og þegar kvóti var fluttur frá byggðarlögum með sölu skipa? Mikið væri gott ef stjórnarflokk- arnir létu þríeykið um Covid fram yfir kosningar og nýttu tímann í að svara spurningunum hér að ofan, þannig að kjósendur gætu tekið upplýsta ákvörðun. Eftir Sigurð Oddsson Sigurður Oddsson »Kannski verður for- sætisráðherra helst minnst fyrir að hafa sannað að bókvitið verð- ur ekki sett í askana. Höfudur er verkfræðingur og eldri borgari. Eignarrétturinn Í fréttum frá nýlegu heilbrigðisþingi var því haldið fram að hjúkrunarrými á Ís- landi væru mun fleiri en annars staðar á Norðurlöndum. Um- framkostnaður ís- lenska ríkisins hefði verið yfir tólf milj- arðar undanfarin ár. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem því er haldið fram að hjúkrunarrými fyrir aldraða séu of mörg á Íslandi, en um það var fjallað á norrænu öldrunarþingi árið 1980. Þá töldust hjúkrunarrýmin flest Norðurlanda á Íslandi. Veruleiki okkar, sem unnum í öldrunarþjón- ustunni fyrir 40 árum, var hins veg- ar allt annar. Skýringin á þessu mis- ræmi er líklega sú að þjónusturými aldraðra voru talin með sem hjúkr- unarrými og hefur það skekkt sam- anburðinn. Ný reglugerð um þjón- usturými 1-3 var samþykkt árið 2008. Til vistunar í hjúkr- unarrými verður hinn aldraði að standast svo- kallað „færni- og heilsu- mat“. Undanfarin 20 ár hefur „færni- og heilsu- mat“ verið framkvæmt samkvæmt reglugerð ráðuneytis um val aldr- aðra til vistunar á hjúkrunarheimili (https://www.landlaeknir.is/ gaedi-og-eftirlit/notendur- heilbrigdisthjonustu/faerni-og-heilsumat/). Í nýlegri skýrslu landlæknis segir m.a.: „Á árinu 2020 létust 218 ein- staklingar innan sex mánaða frá færni- og heilsumati. Af þeim höfðu 100 flust í hjúkrunar- eða dvalar- rými en 118 voru enn að bíða.“ Álykta má frá þessu að ævilíkur aldraðs fólks, sem nær að fá gilt „færni- og heilsumat“, eru stuttar. Það var haft eftir gamansömum fyrrverandi landlækni að „það hættulegasta sem fyrir mann getur komið á ævinni er að standast „færni- og heilsumat“ ráðuneyt- isins“. Það sorglega er að enn þann dag í dag mega aldraðir mæta afgangi í heilbrigðisþjónustunni á Íslandi og ekki er að sjá að mikið hafi breyst í þessum málaflokki undanfarin 40 ár. Þeir kallast „fráflæðisvandi“ á Landspítala og dvelja í sjúkrarúm- um sem sinnt er af öðrum sér- greinum en öldrunarlækningum. Um hjúkrunarrými fyrir aldraða á Íslandi Eftir Ársæl Jónsson Ársæll Jónsson » Samanburður á fjölda hjúkrunar- rýma á Íslandi virðist vera oftalinn líkt og var árið 1980, þegar borið er saman við Norðurlöndin. Höfundur er fv. öldrunarlæknir. arsaell@simnet.is Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.