Morgunblaðið - 30.08.2021, Page 20

Morgunblaðið - 30.08.2021, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2021 ✝ Steinar Þor- steinsson fædd- ist í Hrísey 9. jan- úar 1943. Hann lést 14. ágúst 2021 á hjartadeild Land- spítalans. Foreldrar hans voru Þorsteinn Valdimarsson, f. 3.12. 1903, d. 22.5. 1968, póst- og sím- stöðvarstjóri og hreppstjóri í Hrísey, og Lára Sigurjónsdóttir, f. 17.7. 1905, d. 24.3. 1997, húsfreyja og póst- og símstöðvarstjóri í Hrísey. Syst- kini Steinars eru Kristín (Lilla), f. 7.1. 1932, d. 8.11. 2004, Valdís (Lóa), f. 7.1. 1932, drengur, f. 17.7. 1935, d. 14.9. 1935, og Þóra, f. 23.5. 1952. Steinar kvæntist 16.6. 1973 Hildigunni Einarsdóttur, f. 17.6. 1947, d. 27.5. 1987. Börn Stein- ars og Hildigunnar eru 1) Þór, f. 27.1. 1974, kona hans er Guð- rún Baldvina Sævarsdóttir. Synir Þórs eru Ragnar Steinn og Þorsteinn Elvar. 2) Guðrún Silja, f. 1.10. 1977, dætur henn- ar eru Hildur Karitas, Júlíana, Eva Guðrún og Matthildur Sara. 3) Þórdís, f. 13.8. 1980, Steinar var virkur í félags- og trúnaðarstörfum. Hann kom að stofnun Alþýðuleikhússins ásamt Hildigunni og vinafólki þeirra, sat í fræðslunefnd Tann- læknafélags Íslands, var um tíma formaður Alþýðu- bandalagsfélagsins á Akureyri, formaður Neytendafélags Ak- ureyrar og nágrennis, í stjórn Neytendasamtakanna, formað- ur stjórnar kjördæmisráðs Al- þýðubandalagsins í Norður- landskjördæmi eystra, í jafnréttisnefnd Akureyrar og formaður Tannlæknafélags Norðurlands, ásamt fleiri fé- lagsstörfum. Steinar átti sér fjölmörg áhugamál auk hinna viðamiklu félagsstarfa svo sem skot- og stangveiði, matseld, ljós- myndun, leiklist og bókmenntir. Steinar vann t.a.m. frum- kvöðlastarf varðandi tannheilsu aldraðra á Íslandi og í Noregi. Eftir 38 ára samfleyttan starfsferil við tannlækningar á Íslandi og í Noregi fluttist Steinar aftur heim til Íslands árið 2010. Þá vaknaði upp áhugi á óhefðbundnum lækningum sem hafði lengi blundað í hon- um og lauk hann námi í kín- verskum lækningum og nálast- ungum og nýtti sína víðtæku þekkingu á meðan heilsan leyfði. Útför Steinars fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 30. ágúst 2021, klukkan 11. börn hennar eru Frosti og Hildi- gunnur. 9.9. 1989 kvænt- ist Steinar Svan- fríði Ingvadóttur, f. 4.12. 1955. Þau skildu. Sonur þeirra er Sindri Steinarsson, f. 26.9. 1990, í sambúð með Viktoriu Anhold. Dóttir Svanfríðar og uppeldisdóttir Steinars er Stefanía Tinna E. Warren. Steinar kvæntist 26.7. 1997 Mari Frydendal frá Narvik í Noregi, f. 14.5. 1944, d. 26.1. 2008. Steinar ólst upp í Hrísey en 14 ára gamall fór hann í Menntaskólann á Akureyri og lauk stúdentsprófi þaðan árið 1964. Hann stundaði nám í læknisfræði við Háskóla Íslands 1964-65 og tannlæknisfræði við Georg August Universität í Göttingen í V-Þýskalandi 1965- 71 og lauk cand. med. odont þaðan 1971. Steinar rak eigin tannlæknastofu á Akureyri 1972-98. Hann starfaði sem tannlæknir í Ørnes í Noregi 1999-2009. Allir menn eiga sér mörg líf. Þegar pabbi okkar kom að loknu tannlæknanámi sínu í Þýskalandi aftur til Íslands, valdi hann að setjast að á Akureyri. Hann var hávaxinn, myndarlegur og frísklegur maður sem var í þann mund að hefja starfsferil sinn sem tannlæknir. Akureyring- ar tóku hinum unga manni vel og fögnuðu því að akureyrsk tann- læknastétt, sem þótti orðin helst til virðuleg, yngdist aðeins upp. Ári eftir að hann hóf störf kom hann á laggirnar eigin tannlækna- stofu. Brátt festi hann ráð sitt og stofnaði heimili með Hildigunni Einarsdóttur. Börnin komu eitt af öðru, þrjú á þriggja ára fresti, Þór, Silja og Þórdís. Heimilið sem þau hjónin skópu var lifandi menningarheim- ili. Það var gestkvæmt í Bjarkar- stíg 3, fólk sat við spil fram eftir kvöldi og oft voru haldin fjölmenn matarboð og veislur þar sem heimsmálin voru krufin til mergj- ar, gripið var í hljóðfæri og sungið inn í nóttina. Hjónin voru vina- mörg og virk í félagsmálum. Á sumrin var laxfiskur veiddur á flugu og á veturna skotin rjúpa sem borin var fram á aðfanga- dagskvöld. Börnin voru tekin með á blakæfingu hjá Skautafélaginu, nú eða fund hjá Alþýðubandalag- inu. Við vorum hvött í tónlistar- nám, drifin með á tónleika og óteljandi leiksýningar geymast enn í hugarfylgsnunum. Skugga dró fyrir sólu þegar Hildigunnur greindist með krabbamein, en hún lést af veik- indum sínum árið 1987. Veikindi hennar og andlát fengu mjög á pabba. Nokkru eftir það tók hann saman við aðra eiginkonu sína, Svanfríði Ingvadóttur. Þau eign- uðust Sindra en fyrir átti hún Stefaníu Tinnu. Nokkru eftir að þau skildu kynntist hann svo þriðju eiginkonu sinni, Mari Frydendal, gamalli vinkonu frá námsárunum í Þýskalandi. Þau bjuggu saman á Akureyri og svo í Noregi þar sem Mari veiktist að lokum af krabbameini og lést árið 2006. Fjórum árum síðar lauk pabbi ferli sínum sem tannlæknir, sett- ist í helgan stein og flutti aftur heim til Íslands. Það var nokkuð dregið af manninum sem var nú einn, hafði átt þrjár konur og jarð- að tvær. Hans mörgu líf höfðu verið honum kær, hvert á sinn hátt. Uppvöxtur hans í Hrísey og námsár á Akureyri og í Göttingen, hjónaböndin, stjórnmálin, fé- lagsmálin og tannlæknaferill hans á Íslandi og síðar í Noregi þar sem hann var brautryðjandi á mörgum sviðum. En áföllin sátu í honum. Sá ástríki og félagslyndi faðir sem við munum eftir var beygður af sínum þungu byrðum. Hann dró sig í hlé eftir að heilsu hans hrakaði nokkrum árum eftir heimkomuna. Hann var í reglu- legu sambandi við okkur en minnkaði mjög samskipti við vini og aðra ættingja. Örlögin bjuggu svo um að honum var erfitt hans síðasta líf. En minningarnar okk- ar sem lifa eru af lífsglöðum, ást- ríkum og kærleiksríkum föður. Manni sem kynnti okkur fyrir náttúrunni og menningunni, sam- félagslegri ábyrgð, jafnrétti, náungakærleik og sómakennd. Við þökkum fyrir allar þessar gjafir og ekki síst þá stærstu, lífið sjálft. Þór, Silja, Þórdís og Sindri Steinarsbörn. Ég hitti Steinar fyrst skömmu eftir að ég kynntist Þór, elsta syni hans, en þá hafði Steinar nýlega sest í helgan stein og flutt heim til Íslands frá Noregi. Það sló mig hvað hann var hávaxinn og ég varð hálffeimin við þennan sjálfs- örugga tannlækni en þegar hann tók utan um son sinn og kyssti og knúsaði eins og lítinn strák hlýn- aði mér allri að innan. Ég fékk síð- an sömu móttökur þótt við værum að hittast í fyrsta sinn og ég varð aldrei aftur feimin við hann. Það var ekki langt liðið frá síð- asta vinnudeginum sem tann- læknir þegar hann hóf nám í nál- astungum og sagði mér allt sem ég vildi vita um orkubrautir og punkta. Síðan kom jógúrtvélin til sögunnar og djúpar pælingar um mjólkurgerla og heilnæmi. Mér þótti og þykir þetta enn einhver spaðalegasta umvending í lífsstíl og starfsferli, að segja skilið við heila starfsævi af vestrænum læknavísindum og snúa sér alfarið að náttúrulækningum og kín- verskri heimspeki. En þá þekkti ég Steinar lítið og vissi ekki að hér fór framsækinn maður sem hafði ekki bara ástríðufullan áhuga heldur einbeitingu, greind og æv- intýralegan leshraða til að með- taka nýjar upplýsingar á met- hraða í gríðarlegu magni. Enn merkilegri þótti mér framúrskar- andi tónlistarsmekkurinn, víð- tækur bókalesturinn og réttsýnin en í ljós kom að við vorum sam- mála um flest, ef ekki allt. Hann virtist hafa mótað sínar eigin upp- lýstu skoðanir á öllu en hafði litla þörf fyrir að troða þeim upp á aðra. Ég fékk stundum sendar greinar í tölvupósti um eitthvað sem við höfðum rætt og var upp með mér að tengdapabbi héldi að ég væri týpan sem læsi fræði- greinar um það sem ég hafði áhuga á. Hann veiktist því miður nokkr- um árum síðar og síðustu árin dró sífellt meira af honum. Okkar síð- asta góða stund var þegar hann dvaldi hjá okkur á Vopnafirði í nokkrar vikur og við skelltum okkur tvö í bíltúr upp á Hellis- heiði, ræddum pólitík, Þýskaland og Þór (okkar sameiginlegu ást- vini) og stórbrotið útsýnið. Nú hefur tengdafaðir minn kvatt þessa jarðvist og þótt ég kveðji hann með söknuði og syrgi að merkilegu samtölin hefðu get- að orðið fleiri og enn meira fræð- andi (fyrir mig) veit ég að hann var orðinn þreyttur og þráði hvíldina. Ég kveð með þakklæti fyrir viðkynnin en líka fyrir að hafa fengið í arf frá honum þessi frábæru börn hans, barnabörn og æðislega plötusafnið. Guðrún Baldvina Sævarsdóttir (Gulla). Í dag kveð ég móðurbróður minn, Steinar frænda. Það er skrýtið að vera kominn á þann aldur að kynslóðin sem á undan fór er byrjuð að hverfa á braut. Fólkið sem tók þátt í að ala mann upp og maður á svo mikið að þakka. Hver á núna að segja sög- ur frá barnaskólanum í Hrísey, sögur af ömmu sem mamma kann ekki af því hún er svo miklu yngri. Eða sögur af því hvernig var að vera í háskóla í Þýskalandi þegar evrópskir unglingar hristu af sér allar hömlur og sungu um ást og frið og söfnuðu hári. Nú er Stein- ar hættur að segja sögur en þá er að ylja sér við minningarnar. Steinar var glaður og áhyggju- laus strákur úr Hrísey sem hélt til Evrópu í nám og kom til baka heimsborgari með nýjar matar- hefðir og sýn á lífið. Steinar bjó á Akureyri eftir tannlæknanámið og stofnaði fjölskyldu með Hildi- gunni Einarsdóttur. Tannlækna- stofa, hús á Bjarkarstíg og þrjú börn og það var heldur betur líf og fjör. Við systkinabörnin vorum heppin að vera á sama aldri og þegar við dvöldum sem krakkar á Akureyri voru heimsóknir á Bjarkarstíg það skemmtilegasta sem hægt var að hugsa sér. Steinar frændi var fyrsti sæl- kerakokkurinn sem ég kynntist og á sinn þátt í að kveikja áhuga á matargerðarlistinni. Það var gam- an að fylgjast með honum í eld- húsinu þegar töfrarnir gerðust. Þegar Steinar batt á sig svuntuna var von á skemmtilegum stundum sem enduðu í veislumat. Þau Hildigunnur liðu um eldhúsið, næstum eins og í dansi þar sem allt var unnið í takt. Síðan tók við ljúffeng máltíð þar sem mikið var talað, hlegið og sagðar sögur. Kæri frændi, takk fyrir sam- veruna. Ég veit að það er vel tekið á móti þér í sumarlandinu. Lára. Mig langar í nokkrum orðum að minnast Steinars Þorsteins- sonar sem lést 14. ágúst síðastlið- inn. Hildigunnur föðursystir mín og Steinar voru glæsileg hjón. Hún lítil og nett, ljóshærð og glaðleg, hann hár og hrokkinhærður, spengilegur og brosmildur. Strax sem barn sóttist ég eftir því að vera í þeirra hlýju nærveru og þegar börnin þeirra þrjú, Þór, Silja og Þórdís, fæddust eitt af öðru var ég barnapía númer eitt. Hildigunnur og Steinar áttu sér- lega fallegt heimili í Bjarkarstíg á Akureyri og þar var gott að koma. Þar var alltaf eitthvað gott að borða og var Steinar mikill ástríðukokkur. Þau hjón áttu líka stundum M&M og Lindubuff inni í skáp, já það var nefnilega til nammi á heimili tannlæknisins – en alls ekki þannig að maður ætti að gúffa því í sig heldur frekar til að bæta sér í munni og gera sér dagamun. Hildigunnur og Steinar voru miklir listunnendur og sóttu alls kyns menningarviðburði, þá passaði ég og var barnapíutaxtinn alltaf rausnarlegur hjá Steinari. Þau hjón hlustuðu mikið á klass- íska tónlist sem ég kunni ekkert að meta á þeim árum og því þótti mér svo merkilegt að Steinar var svo hrifinn af Björk Guðmunds- dóttur sem þá var að stíga sín fyrstu skref í tónlistinni. Hann vissi greinilega sínu viti enda beið heimsfrægð Bjarkar handan við hornið. Steinar var auðvitað fjöl- skyldutannlæknirinn og sá til þess að tannhirðan væri almenni- leg. Hann gaf mér ýmis ráð í gegnum tíðina eins og nota ekki alltaf sama tannkremið og eiga bæði venjulegan og rafmagns- tannbursta og nota þá til skiptis og eftir því hef ég farið alla tíð. Og ég hringdi í hann löngu eftir að hann hætti sem tannlæknir til að fá ráð, og m.a. sagði hann: „Þura mín, ekki gefa sonum þínum eða nokkrum manni hubbabubba- tyggjó,“ og eftir því hef ég líka farið. Pabbi og Steinar voru miklir mátar og samherjar í pólitíkinni enda báðir gallharðir allaballar sem létu til sín taka á Akureyri á áttunda áratug síðustu aldar þar sem barist var fyrir bættum kjör- um verkalýðsins, m.a. með beitt- um skrifum í málgagnið, Norður- land. Samband þeirra mága var alltaf náið og gott. Það var okkur öllum mikill harmur þegar Hildigunnur frænka lést úr krabbameini rétt fyrir 40 ára afmælið sitt 1987. Steinar varð ungur ekkill með lítil börn og það hefur eflaust reynt meira á hann en hann lét uppi. En lífið heldur áfram og tíminn kenn- ir manni að lifa með sorginni og njóta minninganna. Nú hefur Steinar kvatt þessa jarðvist, áföll í lífinu og heilsu- brestur hafa tekið sinn toll en það veit ég að hann fær hlýjar mót- tökur hinum megin. Elskulegum frændsystkinum mínum Þór, Silju og Þórdísi og Sindra Steinarssyni votta ég inni- lega samúð mína, megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur á þessum erfiðu tímum. Ykkar Þuríður Óttarsdóttir (Þura frænka). Við andlát Steinars Þorsteins- sonar leitar hugurinn aftur til bernsku- og ungdómsáranna á Akureyri. Vinátta og frændsemi fjöl- skyldnanna í Oddeyrargötu 28 og Bjarkarstíg 3 varðaði leið okkar Þórs Steinarssonar frá því í barnavögnunum á brekkunni á Akureyri, inn í barnaskólann og áfram út í lífið. Ég minnist Stein- ars sem ungs og reffilegs manns, sem var virtur tannlæknir, rót- tækur vinstrimaður, öflugur blak- spilari og indæll fjölskyldufaðir. Í gegnum tónlistarlegt uppeldi sem Þór fékk frá foreldrum sínum lærðum við að meta Bítlana, Roll- ing Stones, John Lennon og Bob Marley. Tónlistin var leikin í botni í Bang & Olufsen-græjunum í Bjarkarstígnum. Steinar var af- bragðskokkur, lagði stund á rjúpna-, lax- og silungsveiði og naut þess að matreiða það sem landið gaf af sér. Hann átti litla trillu og gat því sótt sjóinn og dregið fisk úr Eyjafirði. Steinar var sérlegur matgæðingur og þetta mótaði Þór og sjálfan mig sem liðtæka kokka. Mér er einnig minnisstætt þegar Steinar færði okkur Þór forláta Salomon-skíða- hanska að gjöf á gagnfræðaskóla- árunum. Honum var umhugað um tannhirðu mína og hikaði ekki við að vanda um við mig föðurlega um tannburstun þegar þannig háttaði til. Minningarnar eru vitaskuld samofnar minningum um Hildi- gunni Einarsdóttur eiginkonu Steinars. Andlát hennar langt fyr- ir aldur fram átti eftir að þyngja ævisporin hjá fólkinu okkar í Bjarkarstíg. Eftir því sem árin hlupu og þutu áfram urðu sam- vistirnar og hittingar færri. Stein- ar var ákaflega ánægður með þau ævintýri sem við fjölskyldan tók- umst á hendur er við fluttum til Englands og fylgdist með okkur eins og hann gat. Ég á þessu góða fólki, Hildi- gunni og Steinari, mikið að þakka. Ég kveð Steinar með vinsemd og væntumþykju í hjarta. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar Þór, Silja, Þórdís, Sindri og aðstand- endur og ástvinir allir. Sigfús Ólafsson. 1973 setti leikhúsið á Akureyri upp Hanann háttprúða eftir Sean O’Casey, áhugafólk um leiklist dreif sig norður að sjá þessa sýn- ingu og þar hitti ég Steinar. Það varð til þess að við þáverandi eig- inkona mín, Kristín Ólafsdóttir, fluttum norður og áttum góð ár á Akureyri. Þar kynntist ég Stein- ari betur. Hann var Hríseyingur, fæddur 1943, foreldrar hans voru Lára Sigurjónsdóttir og Þor- steinn Valdimarsson hreppstjóri og símstöðvarstjóri. Steinar lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um á Akureyri og hélt til Gött- ingen í Þýskalandi að læra tann- læknisfræði. Heimkominn setti hann upp tannlæknisstofu á Ak- ureyri og gifti sig Hildigunni, dóttur rithöfundarins Einars Kristjánssonar og Guðrúnar Kristjánsdóttur. Þau eignuðust Þór og síðan komu Guðrún Silja og Þórdís. Á Akureyri stofnuðum við Al- þýðuleikhúsið og við öll þökkum Steinari samveruna og ekki síst að hann gerði við tennurnar í okkur enda skyldi nú heldur betur bitið frá sér. Á komandi árum brölluðum við Steinar margt, fórum á skyttirí á vetrum og mörg var sú veiðileys- an. Ég minnist sérstaklega ferðar í Garð í Mývatnssveit. Okkur var vel fagnað í Garði og sagði hús- freyja meðan hún tók til góðgerðir að hún óskaði að við fengjum enga rjúpuna. En húsbóndi sagði að það gerði engan mun þótt við dræpum einn púturæfil. Leiðir okkar lágu af og til saman um daginn en enga fengum við rjúp- una, en fjöll Mývetninga voru undurfögur í skammdegisbirt- unni. Alþýðuleikhúsið flutti síðan suður og höfuðkraftar þess, Þór- hildur Þorleifsdóttir og Arnar Jónsson, einnig. Og nokkrum ár- um síðar veiktist Hildigunnur af ólæknandi krabbameini og lést árið 1984 og mikið sáum við, gaml- ir félagar úr Alþýðuleikhúsinu, eftir henni. Steinar hóf þá sambúð með Svanhildi Ingvadóttur. Þau eign- uðust soninn Sindra, en skildu, en alltaf var Steinar hinn sami, börn- in stækkuðu og fluttu að heiman. Þá var ég sestur að í Danmörku og Steinar kom eitt sinn óforvar- andis í heimsókn, hann var á leið til vina í Þýskalandi, en kom við í Noregi. Þar hitti hann konu sem var á líkum aldri og hann. Þau höfðu verið samtímis í Göttingen. Og hann og Mari, sem norska konan hét, fluttu brátt saman. Mari var einstaklega greind og skemmtileg kona. Hún var frá Narvik í Norður-Noregi.Þau bjuggu fyrst á Akureyri en brugðu búi og Steinar gerðist tannlæknir í Ørnes norður í Nor- egi. Og samband okkar Steinars varð enn nánara eftir að hann fluttist til Noregs, við Eva heim- sóttum hann til Ørnes og hann og Mari heimsóttu okkur til Nivå, hann hélt upp á sextugsafmælið sitt hjá okkur og við fórum saman í sumarfrí. En svo dó Mari úr krabbameini og Steinar hætti tannlækningum skömmu síðar, og kannski varð hann aldrei samur maður eftir. „Það er mikið að missa tvær konur úr krabba,“ man ég að hann sagði. Hann flutti heim til Íslands, til Reykjavíkur þar sem börnin hans búa. Og þar kveðjum við hann í dag. Hann var góður drengur, með þeim allra bestu sem finnast. Ég votta börn- um hans Þór, Guðrúnu Silju, Þór- dísi og Sindra, tengdabörnum og barnabörnum mína dýpstu sam- úð. Böðvar Guðmundsson. Fyrir hartnær hálfri öld var á Akureyri hópur glaðbeittra hjónakorna sem hittist oftast um helgar til að éta og drekka, tala og gefa hugarfluginu lausan taum- inn. Hugsuðu stórt, hugsjónaeld- urinn brann, trúðu á mátt listar- innar og vildu breyta heiminum. Í þeim hópi var Steinar. Þeir Arnar voru skólabræður í Menntaskól- anum á Akureyri. Steinar hélt til Þýskalands í tannlæknanám en Arnar suður í leiklistarnám. Nú voru báðir komnir aftur á heima- slóðir – Steinar með eiginkonu sér við hlið, Hildigunni Einarsdóttur – og endurnýjuðu vinskap, ásamt eiginkonum. Það var mikill sam- gangur og glaðar stundir ótal margar. Steinar átti sér mörg og ólík hugðarefni. Leiklist var eitt og hann starfaði í frístundum mikið með Leikfélagi Akureyrar. Böðv- ar Guðmundsson og Kristín, þá- verandi eiginkona hans, fluttu norður og tónskáldið Jón Hlöðver mættur til leiks. Þetta var því að verða öflugur og fjölhæfur hópur. Eftir nokkrar væringar hjá LA yfirgáfu Arnar, Þórhildur og Þrá- inn Karlsson leikfélagið og stofn- uðu, ásamt hinum úr hjóna- klúbbnum, Alþýðuleikhús, hinn 4. júlí 1975. Og nú var tekið til óspilltra málanna. Verkaskipting- in var nokkuð augljós. Böðvar skrifaði, Jón Hlöðver samdi tón- list, Arnar, Þráinn og Kristín léku Steinar Þorsteinsson HINSTA KVEÐJA Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Saknaðarkveðja frá Þóru systur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.