Morgunblaðið - 30.08.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 30.08.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2021 Við Hækk um í gleð inni 50 ÁRA Herdís Birgisdóttir fæddist á Landspítalanum í Reykjavík og ólst þar upp fyrstu árin. Þegar hún er sex ára fer fjöl- skyldan til Halifax í Kanada þar sem foreldrarnir fóru í háskóla- nám. „Það hefur alltaf verið mjög sterk tenging til Kanada og ég á þar enn vini sem eru eins og mín önnur fjölskylda.“ Herdís gekk í grunnskóla í Halifax og var þar til 1983 þegar fjölskyldan flutti heim. Þau fluttu á Seltjarnarnesið og heldur gamli vinkvennahópurinn af Nesinu alltaf hópinn og flestir vinirnir af Nesinu fóru með henni í Menntaskólann í Reykjavík. „Ég fer svo í háskólanám í austur- lenskum fræðum í Halifax á ár- unum 1994-98 og fæ þar námsstyrk til að fara til Japans og ljúka síðasta ári námsins í Hakodate. Það var æðislegt og ég varð hugfangin af menningu landsins, matnum og bara öllu sem viðkemur Japan, enda hef ég farið þangað aftur í frí.“ Þegar heim var komið vann Herdís ýmis störf, m.a. hjá Barna- verndarstofu og fór svo í Háskóla Íslands og lauk BA-prófi í ensku og lauk kennslufræðum til kennsluréttinda. Hún vinnur núna hjá Fjölbrautaskól- anum við Ármúla þar sem hún hefur kennt ensku frá 2007. „Ég kenndi jap- önskum húsmæðrum ensku árið 1998, sem er mín fyrsta kennslureynsla.“ Árið 2014 fékk hún námsleyfi og lauk meistaragráðu í kennslufræðum í Hali- fax í Kanada. Herdís hefur mikinn áhuga á allri útivist og ferðast mikið bæði innan- og utanlands. Svo spilar hún á blokkflautu í frístundum, hefur áhuga á menn- ingu og listum og er snilldarkokkur. FJÖLSKYLDA Maki Herdísar er Hjördís Sjafnar Ingimundardóttir, f. 17.2. 1972. Herdís á soninn Birgi Jóhannes Jónsson, f. 20.3. 2001, há- skólanema. Foreldrar Herdísar eru Geirlaug Herdís Magnúsdóttir, f. 9.4. 1946, og Birgir Þórðarson, f. 13.1. 1944. Systir Herdísar er Ragnheiður, f. 21.6. 1970, sem á dótturina Önnu Margréti Ólafsdóttur, f. 24.2. 1992. Herdís Birgisdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú tekur þátt í markverðum samræðum við fólk sem þú vilt vekja áhuga hjá. Þú uppgötvar eins mikinn sannleika um tilteknar aðstæður og þú kærir þig um. 20. apríl - 20. maí + Naut Þessi dagur er kjörinn til þess að taka ákvarðanir er snerta fjármál eða viðskipti. Eitt og annað mun koma í leit- irnar sem þú taldir vera týnt og tröllum gefið. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú hefur sterka löngun til að skipuleggja líf þitt betur og einbeittu þér að því að standa við gefin loforð. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú hefur haldið of lengi aftur af þér svo nú er kominn tími til að fá útrás og njóta sín. Mannkostir þínir koma í ljós í mótlæti. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Það getur vakið ýmsar tilfinningar þegar ganga þarf frá persónulegum mál- um. Nú þarftu að bretta upp ermarnar og hella þér út í málið, illu er best aflok- ið. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það er aldrei of seint að læra og allt nám kemur þér til aukins þroska. Stórir draumar gefa stóra vinninga. 23. sept. - 22. okt. k Vog Það fylgir mikill sköpunarkraftur þessum degi. Gefðu þér tíma til þess að líta í kringum þig eftir fallegum hlutum. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Tilhugalífið gæti valdið þér vonbrigðum í dag en vertu óhrædd/ur við að segja fólki að þér þyki vænt um það. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Nú er rétti tíminn til þess að láta hugmyndir sínar uppi við þá aðila sem geta hjálpað þér við að koma þeim í framkvæmd. Sýndu hugrekki. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Alvarlegar samræður geta umturnað sambandi við aðra, ekki endi- lega í neikvæðri merkingu. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Láttu ekki ýmsa smámuni vefjast svo fyrir þér að þú getir ekki sinnt því sem máli skiptir. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þér gengur allt í haginn og aðrir undrast þessa velgengni þína. Dagurinn er því tilvalinn til hópvinnu eða funda- halda. sama ár kom út næsta ljóðabók hans, Innrás liljanna. Næst var förinni heitið til Noregs. „Ég ætlaði að læra trúarbragðasögu með áherslu á nor- ræna goðafræði, en ég er nú ekki byrjaður á því námi enn þá, svona er nú lífið.“ Í stað trúarbragðasögunnar lauk hann magistergráðu í mið- aldabókmenntum 2001 og síðan dokt- orsprófi í norrænum fræðum frá há- skólanum í Björgvin árið 2008. „Ég var að kenna í háskólanum í Björgvin í nokkur ár áður en ég hellti mér út í ritstörf.“ Fyrsta skáldsaga Bergsveins, Landslag er aldrei asnalegt, kom út árið 2003 og var hann tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir hana og eins bækurnar, Svar við bréfi Helgu frá 2010, Leitin að svarta víkingnum frá 2016 og Lif- andilífslækur sem kom út 2018. Svar við bréfi Helgu, var einnig tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlanda- ráðs og hlaut Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana. Lifandi lífslækur var líka tilnefnd til Bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs. færa. Ég hafði verið óviss um hvert ég vildi stefna fyrir þessa ferð en eft- ir hana vissi ég að ég vildi læra um mína menningu, tungumál og bók- menntir.“ Bergsveinn fór í Háskóla Íslands og lauk BA-prófi í íslensku og al- mennri bókmenntafræði árið 1997 og B ergsveinn Birgisson fæddist 30. ágúst 1971 í Reykjavík og ólst upp í Kópavogi. „Ég ólst upp skammt frá álfhólnum fræga á Álfhólsvegi. Síðan höfðu sterk áhrif á mig sumrin norður á Ströndum hjá ömmu minni og afa. Þau fóru bæði mikið með kvæði og ef einhver datt um þröskuld varð til vísa um það.“ Bergsveinn segir að þessi sumur hafi lagt grunninn að hrifningu hans á mætti orðsins. „Sagnamennirnir sem ég náði að kynnast norður á Ströndum höfðu mikil mótunaráhrif á mig og ég hef reynt að skila þeim munnlega sagna- arfi eins og ég get í mínum skáld- skap.“ Bergsveinn gekk í Digranesskóla og þegar fjölskyldan flutti í Garða- bæinn fór hann í Fjölbrautaskóla Garðabæjar og útskrifaðist árið 1991. Sjómennskan var stór hluti af hans uppvexti, því faðir hans var skipstjóri og ungur að árum fékk hann að fara með suma dagana, því faðir hans var trillukarl þegar hann var ekki á tog- ara. „Ég byrja að fara með pabba á togara á sumrin á Arinbirni RE þar sem hann var skipstjóri. Mamma var nú ekkert ánægð með það, en ég fékk þetta sjómannslíf beint í æð. Þegar ég var sextán ára byrjaði ég að gera út trillu fyrir norðan á Ströndum. Ég gerði síðan út trillu frá Norðurfirði á Ströndum á meðan ég stundaði há- skólanám hér heima.“ Fyrsta ljóðabók Bergsveins, Ís- lendingurinn, kom út árið 1992 þegar hann var aðeins 21 árs. „Ég man eftir sjálfum mér að búa til rímuð kvæði 11-12 ára gamall og ég hafði alltaf mjög gaman af kveðskap. Síðan fer ég að lesa mjög mikið frá 15-16 ára aldri og þá fer krókurinn að beygjast í þessa átt.“ Árin 1992-1994 ferðaðist Bergsveinn víða um bæði Asíu og Afríku og fjarri heimalandinu fann hann ástríðu sína. „Það er svolítið með ferðamenn eins og landnemana að þeir verða miklu fastheldnari og varðveita sína gömlu menningu bet- ur en þeir sem eru heima. Þegar ég sá svona ólíkar heimsmyndir og ólíka menningu fór ég að hugsa um hvað mín eigin menning hefði fram að Auk þess hefur Bergsveinn gefið út ljóðabókina Drauganet (2011), skáld- fræðisöguna Handbók um hugarfar kúa (2009) og Íslendingasöguna Geirmundar saga heljarskinns (2015). „Svar við bréfi Helgu hefur verið mín vinsælasta bók og var kvikmynd- uð í sumar. Leitin að svarta vík- ingnum, sem ég skrifaði á norsku, er líklega sú bók sem hefur krafist mestrar vinnu af minni hálfu en ég var yfir 20 ár að viða að mér efni og hún var svona hliðarhobbí allan þann tíma. Maður skrifar ekki margar slíkar bækur um ævina.“ Bergsveinn segir að það gefi honum ákveðið for- skot að vera með sinn hvorn fótinn í skáldskapnum og fræðaheiminum. „Þá er maður að vinna með báðum hugsunarformunum samtímis, bæði sem rithöfundur og fræðimaður. Þótt margt sé skáldað í eyður í Leitinni að svarta víkingnum, hefur höfuðtil- gátan staðist vísindalega rannsókn og ég tel að aðferðin hafi lukkast.“ Bergsveinn hefur búið hálfa ævina í Noregi. Árið 2017 var hann sæmdur Bergsveinn Birgisson rithöfundur og fræðimaður – 50 ára Ljósmynd/S.Ó.T. Rithöfundurinn Í haust kemur út nýja skáldsagan, Kolbeinsey, sem er djúpfræðileg stúdía um mannssálina. Maður á að hlúa að eigin garði Strandamaðurinn Bergsveinn við bát afa síns á Norðurfirði á Ströndum. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.