Morgunblaðið - 30.08.2021, Síða 26
FÓTBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Breiðablik sendi öðrum liðum
Pepsi Max-deildarinnar í fótbolta
skilaboð með því að valta yfir
Fylki, 7:0, á útivelli í gærkvöldi.
Með sigrinum fór Breiðablik aftur
upp í toppsætið, sem Víkingur
hafði fengið að láni í stutta stund
fyrr um daginn. Breiðablik var
komið í 4:0 í fyrri hálfleik en í
staðinn fyrir að að slaka á, bætti
Kópavogsliðið við mörkum í seinni
hálfleik. Fylkismenn eru komnir
niður í fallsæti eftir tapið og eru í
slæmum málum.
„Blikar eru frábærir á góðum
degi og það er hreinlega stórkost-
lega skemmtilegt að horfa á þá
spila sinn fótbolta,“ skrifaði Krist-
ófer Kristjánsson m.a. um leikinn
á mbl.is.
Víkingar á flugi
Víkingur vann sinn þriðja
deildarleik í röð er Fossvogsliðið
heimsótti FH og vann 2:1-
baráttusigur. FH var meira með
boltann, fékk mun fleiri færi og
spilaði heilt yfir betur. Þrátt fyrir
það komst Víkingur í 2:0 og stóð af
sér stórsókn í blálokin eftir að FH
hafði minnkað muninn. Ingvar
Jónsson átti stórleik í marki Vík-
inga. Arnar Gunnlaugsson og
lærisveinar hans eru aðeins tveim-
ur stigum frá toppsætinu þegar
þrjár umferðir eru eftir.
„Víkingur hefði örugglega tapað
þessum leik frekar stórt á síðustu
leiktíð. Liðið hefur þroskast mikið
síðan þá,“ skrifaði undirritaður
m.a. um leikinn á mbl.is.
HK upp úr fallsæti
HK er komið upp úr fallsæti í
fyrsta skipti frá því í 9. umferðinni
eftir 1:0-sigur á Keflavík í Kórn-
um. Stefan Ljubicic skoraði sigur-
markið á 73. mínútu. Markið gæti
reynst afar mikilvægt því HK-
ingar eru nú með einu stigi meira
en Fylkismenn, þegar lítið er eftir
af mótinu. HK á eftir leiki við
Breiðablik og Víking og var sig-
urinn því nauðsynlegur. Keflvík-
ingar hafa leikið sex leiki í röð án
sigurs og eru búnir að sogast niður
í fallbaráttuna.
ÍA í hræðilegum málum
KA átti ekki í miklum vandræð-
um með að vinna 3:0-heimasigur á
botnliði ÍA. Þótt KA eigi ekki leng-
ur möguleika á að verða Íslands-
meistari hefur tímabilið verið gott
hjá Akureyrarliðinu. ÍA hefur hins
vegar átt hræðilegt tímabil og er
fimm stigum frá öruggu sæti.
Skagamenn þurfa lítið minna en
kraftaverk til að eiga möguleika á
að halda sæti sínu í deildinni.
Kristinn hetjan í Frostaskjóli
Kristinn Jónsson kom inn á sem
varamaður hjá KR á 64. mínútu
gegn Leikni úr Reykjavík í stöð-
unni 1:0 Leikni í vil. Rúmum 20
mínútum síðar skoraði Kristinn
sitt annað mark og tryggði KR-
ingum góðan heimasigur í leiðinni.
KR hefur unnið þrjá leiki í röð og
er aðeins einu stigi á eftir Val í
baráttunni um þriðja sæti
„Þótt Kristinn sé og hafi ávallt
verið afar öflugur sóknarbakvörð-
ur sem leggur gjarna upp mörk er
það ekki á hverjum degi sem hann
skorar tvö mörk sjálfur í einum og
sama leiknum, hvað þá bæði með
hægri fæti og þá síður eftir að hafa
komið inn á sem varamaður,“
skrifaði Gunnar Egill Daníelsson
m.a. um leikinn á mbl.is.
Stjarnan vann Val aftur
Stjarnan er svo gott sem búin að
tryggja sér áframhaldandi veru í
efstu deild eftir 2:1-sigur á Val á
laugardag. Falldraugurinn sem
sveif um tíma yfir Garðabænum er
farinn annað. Stjarnan hefur unnið
meistarana í tvígang í deildinni í
sumar og náð í afar dýrmæt, sex
stig í leiðinni og haft mikil áhrif á
toppbaráttuna. Fyrrverandi Vals-
maðurinn Einar Karl Ingvarsson
skoraði fyrra markið með glæsi-
legri aukaspyrnu og miðvörðurinn
Björn Berg Bryde fullkomnaði
góðan leik með sigurmarkinu undir
lokin.
„Valsmenn hafa einfaldlega ekki
spilað nægilega vel til að eiga skil-
ið að vera í toppsætinu,“ skrifaði
undirritaður m.a. um leikinn á
mbl.is.
Tveir hestar
eftir í kapp-
hlaupinu?
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Árbærinn Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, á í höggi við Djair
Parfitt-Williams úr Fylki á Würth-vellinum í Árbænum í gærkvöldi.
- Breiðablik og Víkingur unnu en Val-
ur tapaði - Fylkismenn niður í fallsæti
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2021
Pepsi Max-deild karla
Valur – Stjarnan ....................................... 1:2
KA – ÍA...................................................... 3:0
KR – Leiknir R ......................................... 2:1
FH – Víkingur R....................................... 1:2
Fylkir – Breiðablik ................................... 0:7
HK – Keflavík ........................................... 1:0
Staðan:
Breiðablik 19 13 2 4 49:20 41
Víkingur R. 19 11 6 2 31:20 39
Valur 19 11 3 5 30:19 36
KR 19 10 5 4 30:17 35
KA 19 10 3 6 28:17 33
FH 19 7 5 7 32:24 26
Stjarnan 19 6 4 9 24:29 22
Leiknir R. 19 6 4 9 17:26 22
Keflavík 19 5 3 11 20:33 18
HK 19 4 5 10 20:33 17
Fylkir 19 3 7 9 18:38 16
ÍA 19 3 3 13 18:41 12
Lengjudeild karla
Grindavík – Kórdrengir ........................... 1:2
Afturelding – Þróttur R........................... 3:1
Fram – Grótta........................................... 2:1
Víkingur Ó. – Selfoss................................ 0:3
Þór – Fjölnir.............................................. 0:0
Staðan:
Fram 19 16 3 0 48:14 51
ÍBV 16 11 2 3 30:13 35
Kórdrengir 18 10 4 4 29:19 34
Fjölnir 18 9 3 6 29:18 30
Grótta 19 9 2 8 37:34 29
Vestri 17 9 1 7 28:31 28
Grindavík 19 6 5 8 33:38 23
Afturelding 18 6 4 8 33:35 22
Selfoss 19 6 3 10 32:38 21
Þór 18 5 5 8 29:30 20
Þróttur R. 19 3 2 14 30:45 11
Víkingur Ó. 18 1 2 15 19:62 5
2. deild karla
Völsungur – Þróttur V ............................. 1:0
Haukar – Fjarðabyggð ............................ 6:1
KF – Njarðvík........................................... 0:2
Staðan:
Þróttur V. 19 11 5 3 36:18 38
Völsungur 19 11 3 5 41:32 36
KV 19 10 4 5 35:28 34
Njarðvík 19 8 8 3 44:23 32
Magni 19 8 6 5 38:32 30
ÍR 19 7 7 5 35:27 28
KF 19 8 4 7 34:30 28
Reynir S. 19 7 5 7 39:38 26
Haukar 19 6 4 9 37:38 22
Leiknir F. 19 5 3 11 25:42 18
Fjarðabyggð 19 2 5 12 14:50 11
Kári 19 1 6 12 25:45 9
3. deild karla
Sindri – Tindastóll .................................... 2:1
ÍH – KFS................................................... 3:5
Ægir – Einherji ........................................ 4:2
Elliði – Víðir .............................................. 2:4
Augnablik – Höttur/Huginn.................... 1:4
Dalvík/Reynir – KFG............................... 0:0
Staðan:
Höttur/Huginn 19 12 2 5 34:24 38
Sindri 19 10 3 6 37:27 33
Ægir 17 9 5 3 34:21 32
Elliði 19 10 1 8 39:31 31
KFG 18 8 7 3 28:20 31
KFS 19 9 1 9 30:39 28
Dalvík/Reynir 18 7 4 7 30:24 25
Víðir 18 7 4 7 28:31 25
Augnablik 19 6 4 9 34:37 22
ÍH 18 4 5 9 31:41 17
Einherji 19 5 1 13 32:46 16
Tindastóll 19 3 5 11 31:47 14
2. deild kvenna
Fyrri leikir um sæti í 1. deild:
Fjölnir – Völsungur.................................. 2:0
Fram – Fjarð/Hött/Leiknir ..................... 1:1
Svíþjóð
Hammarby – Malmö................................ 2:1
- Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með
Hammarby.
Norrköping – Östersund ........................ 3:0
- Ísak B. Jóhannesson og Ari Freyr Skúla-
son léku allan leikinn með Norrköping.
Djurgården – Växjö................................. 1:0
- Andrea Mist Pálsdóttir lék allan leikinn
með Växjö.
Häcken – Hammarby .............................. 5:1
- Diljá Ýr Zomers lék allan leikinn með
Häcken og skoraði.
- Berglind Björg Þorvaldsdóttir lék fyrstu
51 mínútuna með Hammarby.
Noregur
Sarpsborg – Sandefjord.......................... 5:0
- Viðar Ari Jónsson lék fyrstu 82 mínút-
urnar með Sandefjord.
Odd – Strömsgodset ................................ 0:1
- Ari Leifsson lék allan leikinn með
Strömsgodset en Valdimar Þór Ingimund-
arson var allan tímann á bekknum.
Tromsö – Bodö/Glimt ............................. 2:3
- Adam Örn Arnarson var ekki í leik-
mannahópi Tromsö.
- Alfons Sampsted lék allan leikinn með
Bodö/Glimt.
Vålerenga – Stabæk................................ 3:1
- Viðar Örn Kjartansson spilaði fyrstu 76
mínúturnar með Vålerenga.
Viking – Rosenborg................................. 2:1
- Samúel Kári Friðjónsson lék seinni hálf-
leikinn með Viking.
- Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
með Rosenborg.
Vålerenga – Sandviken........................... 0:1
- Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Vålerenga. Amanda Andradóttir
kom inn á sem varamaður á 83. mínútu.
50$99(/:+0$
VALUR – STJARNAN 1:2
0:1 Einar Karl Ingvarsson 45.
1:1 Tryggvi Hrafn Haraldsson 57.
1:2 Björn Berg Bryde 84.
MM
Björn Berg Bryde (Stjörnunni)
M
Birkir Már Sævarsson (Val)
Tryggvi Hrafn Haraldsson (Val)
Sigurður Egill Lárusson (Val)
Haraldur Björnsson (Stjörnunni)
Óli Valur Ómarsson (Stjörnunni)
Einar Karl Ingvarsson (Stjörnunni)
Hilmar Árni Halldórsson (Stjörnunni)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 8.
Áhorfendur: Um 500.
KA – ÍA 3:0
1:0 Bjarni Aðalsteinsson 26.
2:0 Jakob Snær Árnason 38.
3:0 Hallgrímur Mar Steingrímsson 77.
M
Steinþór Már Auðunsson (KA)
Mikkel Qvist (KA)
Sebastiaan Brebels (KA)
Bjarni Aðalsteinsson (KA)
Jakob Snær Árnason (KA)
Árni Marinó Einarsson (ÍA)
Ísak Snær Þorvaldsson (ÍA)
Sindri Snær Magnússon (ÍA)
Dómari: Elías Ingi Árnason – 9.
Áhorfendur: 418.
FH – VÍKINGUR R. 1:2
0:1 Nikolaj Hansen 18.
0:2 Erlingur Agnarsson 54
1:2 Björn Daníel Sverrisson 87.
MM
Ingvar Jónsson (Víkingi)
M
Eggert Gunnþór Jónsson (FH)
Guðmundur Kristjánsson (FH)
Björn Daníel Sverrisson (FH)
Jónatan Ingi Jónsson (FH)
Erlingur Agnarsson (Víkingi)
Sölvi Geir Ottesen (Víkingi)
Pablo Punyed (Víkingi)
Halldór Smári Sigurðsson (Víkingi)
Kári Árnason (Víkingi)
Kristall Máni Ingason (Víkingi)
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson – 8.
Áhorfendur: 552.
KR – LEIKNIR R. 2:1
0:1 Daníel Finns Matthíasson 66.
1:1 Kristinn Jónsson 71.
2:1 Kristinn Jónsson 87.
MM
Kristinn Jónsson (KR)
M
Arnór Sveinn Aðalsteinsson (KR)
Beitir Ólafsson (KR)
Kjartan Henry Finnbogason (KR)
Theodór Elmar Bjarnason (KR)
Andrés Manga Escobar (Leikni)
Bjarki Aðalsteinsson (Leikni)
Daníel Finns Matthíasson (Leikni)
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson (Leikni)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 8.
Áhorfendur: 428.
HK – KEFLAVÍK 1:0
1:0 Stefan Ljubicic 73.
M
Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)
Ásgeir Marteinsson (HK)
Leifur Andri Leifsson (HK)
Martin Rauschenberg (HK)
Ástbjörn Þórðarson, (Keflavík)
Frans Elvarsson (Keflavík)
Joey Gibbs (Keflavík)
Rautt spjald: Marley Blair (Keflavík) 22.
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 8.
Áhorfendur: Á að giska 300.
FYLKIR – BREIÐABLIK 0:7
0:1 Kristinn Steindórsson 12.
0:2 Höskuldur Gunnlaugsson 21.
0:3 Viktor Karl Einarsson 36.
0:4 sjálfsmark 42.
0:5 Höskuldur Gunnlaugsson 71.
0:6 Davíð Örn Atlason 75.
0:7 Árni Vilhjálmsson 86.
MM
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki)
M
Árni Vilhjálmsson (Breiðabliki)
Davíð Örn Atlason (Breiðabliki)
Gísli Eyjólfsson (Breiðabliki)
Jason Daði Svanþórsson (Breiðabliki)
Kristinn Steindórsson (Breiðabliki)
Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki)
Viktor Örn Margeirsson (Breiðabliki)
Dómari: Erlendur Eiríksson – 7.
Áhorfendur: 829.
_ Jökull Andrésson var besti maður
vallarins er hann varði mark More-
cambe í 1:0-sigri á Sheffield Wednes-
day í ensku C-deildinni í fótbolta á
laugardag. Morecambe, sem er nýliði í
deildinni, er í 14. sæti með sjö stig eft-
ir fimm leiki.
_ Körfuknattleiksdeild Vals hefur
samið við íslenska landsliðsmanninn
Kára Jónsson um að leika með liðinu á
komandi leiktíð. Kári lék síðast með
Girona á Spáni en hann hefur einnig
verið í herbúðum spænska stórliðsins
Barcelona. Kári
er fastamaður í
íslenska lands-
liðinu. Hann er
uppalinn hjá
Haukum og
verður Valur
annað félagið
sem hann leikur
með hér á landi.
_ Enska knattspyrnufélagið West
Ham gekk á laugardag frá kaupum á
franska varnarmanninum Kurt Zouma
frá Chelsea. West Ham greiðir tæpar
30 milljónir punda fyrir Zouma, sem
skrifar undir fjögurra ára samning.
Hinn 26 ára gamli Zouma var í sjö og
hálft ár hjá Chelsea og vann ensku úr-
valsdeildina tvisvar, Meistaradeild Evr-
ópu einu sinni og enska deildabik-
arinn einu sinni með félaginu.
_ Enska knattspyrnufélagið Burn-
ley, sem Jóhann Berg Guðmunds-
son leikur með, hefur fest kaup á
Fílabeinsstrendingnum Maxwel Cor-
net og kemur hann frá franska fé-
laginu Lyon. Cornet er 24 ára gam-
all, fjölhæfur leikmaður sem getur
spilað á báðum köntum en hefur
mestmegnis leikið sem vængbak-
vörður og bakvörður vinstra megin
undanfarin tæp tvö ár með Lyon.
_ Eþíópíski langhlauparinn Yalem-
zerf Yehualaw sló heimsmetið í hálf-
maraþoni kvenna við Antrim-
ströndina á Norður-Írlandi í gær-
morgun þegar hún kom í mark á 63
mínútum og
43 sekúndum.
Hin 22 ára Ye-
hualaw bætti
þar með nokk-
urra mánaða
gamalt heims-
met Keníakon-
unnar Ruth
Chepngetich
um heilar 19
sekúndur.
_ Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá
Björgvinsdóttir hafnaði í 38. sæti á
Opna Didriksons-mótinu í Skaftö í Sví-
þjóð um helgina. Hún lauk leik á sex
höggum yfir pari. Mótið var hluti af
Evrópumótaröðinni, þeirri sterkustu í
álfunni.
Eitt
ogannað