Morgunblaðið - 25.08.2021, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 25.08.2021, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2021FRÉTTIR 110 Það er eitthvað einstaklega hrífandi við gámaflutningageirann: staðlaðar einingar sem minna á risastóra og lit- ríka legókubba, á ferð og flugi um heiminn í stanslausu kapphlaupi um að hámarka skilvirkni og bæta afköst. Lögmálin eru skýr og fylgja reglum framboðs og eftirspurnar upp á hár. Um allan heim sitja snjallir karlar og konur yfir teikniborðum, kortum og Excel-skjölum og leita leiða til að gera betur með æ stærri og sparneytnari gámaskipum, æ lengri vöruflutn- ingalestum, sjálfakandi flutn- ingabílum, afkastameiri skipaskurðum og nýrri tækni. Nýlegur vandi skipaflutningageir- ans sýnir vel hvað þetta gangverk er í senn fínstillt og næmt fyrir breyt- ingum því vegna óvæntra flöskuhálsa og sveiflna í eftirspurn hefur kostn- aðurinn við að flytja gáma frá Asíu til helstu markaðssvæða í N-Ameríku og Evrópu rokið upp úr öllu valdi. Fyrir örfáum misserum kostaði í kringum 2.000 dali að láta ferja 40 feta gám frá Asíu til Evrópu en í dag kostar sama þjónusta um og yfir 12.000 dali – og jafnvel með þetta verð geta útflytj- endur ekki alltaf stólað á að koma gámunum sínum á áfangastað í tíma. Gámaskipaútgerðirnar græða vel á þessu ástandi, á meðan það varir, en viðskiptavinir þeirra barma sér yfir skyndilegri og óvæntri hækkun sem setur öll rekstrarplön í uppnám. Bandaríkjamönnum í fjarvinnu um að kenna McKinsey hefur greint vandann í þaula og bendir á að þó að verðið á sumum flutningaleiðum hafi sexfaldast þá hafi eftirspurnin eftir skipaflutn- ingum ekki vaxið nema um 5% í kór- ónuveirufaraldrinum. Í venjulegu ár- ferð myndi skipaflutningafyrirtækin ekki muna um að bregðast við þessari aukningu en gallinn er sá að eft- irspurnin dreifist ekki jafnt á milli markaðssvæða og þar sem álagið er mest hafa hafnir átt í mesta basli með að ferma og afferma gámaskipin á skikkanlegum tíma. Jaana Remes, sem starfar hjá McKinsey í Kaliforníu og sérhæfir sig í greiningum á flutningamarkaði, segir að á svæðum eins og Bandaríkjunum hafi eftirspurn eftir hvers kyns hús- búnaði og heimilistækjum rokið upp í kórónuveirufaraldrinum og stóraukið álagið á gámaflutninga milli Kína og vesturstrandar Bandaríkjanna. Í höfn- unum í Long Beach og Los Angeles, sem taka við megninu af innflutningi frá Asíu, hefur gegnumstreymi flutn- ingagáma á köflum verið 40% meira en árið 2019 og ekki lítill vandi fyrir alla flutningakeðjuna frá höfn til verslunar að bregðast við öðrum eins flaumi af varningi. Og þegar komur gámaflutn- ingaskipa eru langt umfram getu flutningakerfisins á landi þurfa skipin að bíða fulllestuð þar til röðin kemur að þeim, sem svo aftur þýðir að flutn- ingageta skipaflotans nýtist ekki sem skyldi. Ofan í þetta allt saman bætast síðan bylgjur kórónuveirusmita sem hafa á köflum skapað mönnunarvanda hjá stórum vöruflutningahöfnum. Bætti heldur ekki úr skák þegar skipið Ever Given teppti Súez- skurðinn í apríl og tók margar vikur fyrir greinina að leysa úr þeim upp- safnaða vanda sem hlaust af tíma- bundinni lokun þessarar slagæðar skipaflutninga Loks er sú staða komin upp, vegna flöskuhálsa hér og þar í kerfinu, að skortur er orðinn á flutningagámum. Ef gámarnir flæða ekki með eðlilegum hætti um alþjóðahagkerfið er lítil um- framgeta til að bregðast við þar sem gáma vantar, og dýrt að koma tómum gámum þangað sem þeirra er þörf. Greindi Wall Street Journal frá því fyrr í mánuðinum að þetta hafi valdið því að verð á kínverskum 40 feta gám- um sé meira en tvöfalt hærra í dag en árið 2016 og ríflega 60% hærra en árið 2020. Er rétt að það fljóti með að bless- unarlega virðist Ísland að mestu hafa sloppið við þennan vanda og segja heimildarmenn mínir í atvinnulífinu að kostnaður við gámaflutninga til og frá landinu hafi ekki hækkað nein ósköp en að sérgjöld vegna eldsneytiskostn- aðar hafi verið á óþægilega hraðri upp- leið. Hugsum eins og McLean Góðu fréttirnar eru þær að flestir greinendur spá því að smám saman muni takast að koma gámaflutningum aftur í eðlilegt horf og hægt að reikna með að í lok þessa árs og byrjun þess næsta hafi verð lækkað umtalsvert. Kína, sem er langstærsti framleiðandi flutningagáma, mun skaffa metfjölda nýrra gáma á þessu ári og skipaflutn- ingafélögin hafa verið dugleg að panta ný fley til að setja í umferð – en það tekur eitt og hálft ár að smíða skipin svo þau koma ekki að gagni í bráð. McKinsey spáir óbreyttu eftirspurn- armynstri til skemmri tíma litið enda lúra mörg heimili á Vesturlöndum á miklu sparifé eftir faraldurinn og grundvallarbreyting orðið á því hvern- ig fólk nýtir heimili sín til vinnu og af- þreyingar. Þýðir það áframhaldandi eftirspurn eftir sjónvörpum, sófasett- um, hlaupabrettum og skrifborðum, í gámavís. Hins vegar er það áhyggjuefni að tímabundið vandræðaástand í flutn- ingageiranum gæti orðið til þess að gefa kaupauðgisstefnu (þ.e. merkant- ílisma) byr undir báða vængi. Hefur t.d. heyrst frá æðstu valdastöðum í bandaríska stjórnkerfinu að það sé óheppilegt að bandaríska hagkerfið skuli vera háð flutningagámum og flutningabílaundirvögnum sem smíð- aðir eru í Kína. Þeir sem hafa setið fleiri en einn hagfræðitíma vita að kaupauðgisstefna gerir samfélög ekki ríkari, og þeir sem hafa setið fleiri en einn sögutíma vita líka að í stjórnkerfi allra þjóða er enginn hörgull á tæki- færissinnum sem nýta tímabundin áföll til að fella pólitískar keilur. Væri það alveg afleitt fyrir alþjóðahagkerfið ef bandarísk stjórnvöld ákvæðu að ráðast í það verkefni að reyna að gera bandaríska gámaflutningahagkerfið sjálfu sér nægt – til að „skapa störf“ og þetta venjulega sem matað er ofan í hinn almenna kjósanda sem veit ekki betur. Miklu skynsamlegra er að leita leiða til að gera flutningakerfi heimsins enn fjölbreyttara og sveigjanlegra og þannig betur í stakk búið til að takast á við tímabundnar raskanir. Rétt eins og bandaríski athafnamaðurinn Malcolm McLean hratt af stað nýju tímabili í hagsögunni þegar hann þróaði og markaðssetti á 6. áratugnum þá gáma sem við sjáum í öllum höfnum í dag, þá þurfum við að halda áfram að breyta og bæta. Gott dæmi um rétta hugsun er hvernig ýmsir framleiðendur eru þeg- ar byrjaðir að freista þess að laga sig að breyttum aðstæðum. Þannig grein- ir WSJ frá að risafyrirtæki á neyt- endavörumarkaði á borð við Hershey, McCormick og Mattel hafi leitað leiða til að straumlínulaga vöruframboð sitt og endurhanna umbúðir til að nýta betur þá takmörkuðu flutningsgetu sem er í boði um þessar mundir. Þetta eru breytingar sem ættu að skila þess- um fyrirtækjum langtímaávinningi löngu eftir að verð á gámaflutningum er aftur komið á eðlilegt ról, og löngu eftir að fólk hættir að hlusta á pólitík- usa sem vilja ólmir leysa vandann með inngripum. Árið sem gámahafnirnar tepptust Ásgeir Ingvarsson skrifar frá Playa del Carmen ai@mbl.is Í dag er orðið nærri sexfalt dýrara að flytja gám með skipi frá Asíu til Evrópu en það var fyrir kórónufarald- urinn og víða glíma fyrirtæki við skort á gámum. Þetta ástand má rekja til ótal flöskuhálsa sem mynduðust í flóknu gangverki sem teygir sig um allan heim. AFP Skip við bryggju í gámahöfninni í Lianyungang í Kína. Kerfið er viðkvæmt fyrir því þegar margir flöskuhálsar myndast samtímis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.