Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.09.2021, Qupperneq 2
Hvað er á döfinni hjá leikhópnum Kanarí?
Við frumsýnum sýninguna Kanarí í Kjallaranum 18. sept-
ember. Þetta er „live“ sketsasýning, 31 skets með 64 karakter-
um, leiknir af fjórum leikurum.
Hvaða mál takið þið fyrir?
Þetta er ekki um það sem er efst á baugi heldur frekar það sem
okkur finnst fyndið. Við tökum fyrir vandamál og óþægilegar tilfinn-
ingar okkar kynslóðar. Hugmyndin er að fólk eigi að koma til að
hlæja; fá sjötíu mínútna hláturskast.
Er ekki líka þáttaröð á dagskrá?
Jú, við erum búin að taka upp þáttaröð; sex þætti sem verða
sýndir á RÚV núna í vetur.
Hvaða fólk er í Kanaríhópnum?
Í þessari sýningu er Guðmundur Felixson leikstjóri og við erum fjögur
að leika, ég, Eygló Hilmarsdóttir, Steiney Skúladóttir og Pálmi Freyr
Hauksson. Við skrifuðum öll saman sketsana fyrir sýninguna. Guð-
mundur Einar er líka partur af hópnum og leikstýrir þáttaröðinni okk-
ar.
Hafið þið prófað sýninguna á fólki til að sjá hvort
hún sé fyndin?
Já, við vorum með tvær forsýningar í sumar, en upphaflega átti að
sýna þetta í fyrra. Það hefur verið bölvað bras að fá að sýna, vegna
Covid, þannig að við erum mjög spennt að frumsýna loksins. En já,
fólk hló!
Hvað ertu annars að brasa?
Ég er í fullri vinnu sem eðlisfræðikennari í Versló. Ég er lærð-
ur verkfræðingur og eðlisfræði hefur alltaf verið í uppáhaldi.
Svo hef ég verið að leika og skrifa undanfarin ár.
Morgunblaðið/Unnur Karen
MÁNI ARNARSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
70 mínútna
hláturskast
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.9. 2021
Verið velkomin
í sjónmælingu
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14
25
ára
1996-2021
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Ég hef á tilfinningunni að sparkguðirnir hafi yfirgefið mig. Lítið bara á
holninguna á liðunum mínum þessa dagana! Arsenal liggur marflatt á
botni ensku úrvalsdeildarinnar; Þór frá Akureyri gæti ennþá fallið í
C-deild hér heima og svo hefur maður auðvitað taugar til íslenska landsliðs-
ins. Ekki þarf að segja nokkrum manni, hvorki lifandi né dauðum, hvernig
ástandið er á þeim bænum, innan vallar sem utan. Er nema von að maður
telji dagana þangað til Íslandsmótið í handbolta hefst en af taktískum ástæð-
um upplýsi ég ekki hvaða liði ég fylgi þar að málum – enda hef ég traustar
heimildir fyrir því að kastguðirnir séu með helgaráskrift að Mogganum.
Til að bæta gráu ofan á svart þá fara svarnir andstæðingar minna manna
með himinskautum um þessar mundir; bæði í Norður-Lundúnum og á
Brekkunni. Almættinu, þeim háð-
fugli, þótti það ekki nógu svívirði-
legur gjörningur að henda Arsenal
á botninn heldur kom það Totten-
ham Hotspur á sama tíma mak-
indalega fyrir á toppnum á töflu
sem í þokkabót hefur lifað í tvær
vikur vegna landsleikja. Þrjú mörk,
níu stig. Þeir kunna aldeilis að blóð-
mjólka það, þeir Nunungar.
Hér heima hefur KA verið í topp-
baráttu efstu deildar í sumar enda
þótt sjálfur Íslandsbikarinn sé nú
horfinn úr augsýn. Eina huggunin
fyrir mig er fólgin í því að ég bý
hvorki á Akureyri né í Norður-Lundúnum. Ekki svo að skilja að ég sé hólp-
inn undan háðsglósunum. Þegar maður hélt að búið væri að minna mann
nógu oft á yfirburði KA gagnvart Þór þá tók einhver kona sig til í vikunni og
málaði Flatusarvegginn í Kollafirðinum, sem ég ek framhjá á hverjum degi,
gulan og bláan. Já, Flatus lifir!
Þjálfari Þórs er þegar fokinn, nafni minn Hjaltalín, enda eyðimerkurganga
minna manna fyrir norðan síst að verða bærilegri með árunum. Nú held ég
að menn verði að taka alvöru fund í Hamri fyrir næsta sumar. Arnar Þór Við-
arsson landsliðsþjálfari er svo nýtekinn við að of snemmt er að tala um að
farið sé að hitna undir honum – enda fáir menn í Íslandssögunni fengið erf-
iðara verkefni í hendurnar. Það verður að taka með í reikninginn.
Þjálfari Arsenal, Mikel Arteta, er orðinn verulega valtur í sessi enda Bar-
ónarnir í frjálsu falli undanfarin ár. Gott væri að gaurinn sem fyrstur fékk þá
hugmynd að skynsamlegt væri að losa sig við Arsène Wenger – og tókst að
sannfæra stjórn félagsins um það – gefi sig fram þannig að hægt verði að
sækja hann til saka. Mitt litla sparkvit sagði mér að brotthvarf Frakkans
myndi bara þýða eitt – að liðið færi niður á við en ekki upp. Auðvitað hafði
Arsenal gefið eftir undir lokin á vakt Wengers en sá ágæti maður myndi
aldrei taka í mál að búa í kjallara. Án rennandi vatns og rafmagns.
Sparkraunir
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’
Til að bæta gráu ofan á
svart þá fara svarnir
andstæðingar minna
manna með himinskaut-
um; bæði í Norður-Lund-
únum og á Brekkunni.
Helga Emilsdóttir
Já, hlaup og jóga.
SPURNING
DAGSINS
Stundar þú
einhverja
hreyfingu?
Valdimar Kr. Baldursson
Já, ég labba mikið og oft á fjöllum.
Hildur Pálsdóttir
Já, ég fer í ræktina á hverjum degi
og stunda líka golf.
Alexander Eggertsson
Já, ég æfi körfubolta.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Sýningin Kanarí í Kjallaranum verður frumsýnd 18. september í Þjóðleik-
húskjallaranum. Leikhópurinn Kanarí stendur að sýningunni og er Máni
Arnarson þar leikari og einn handritshöfunda. Miðar fást á tix.is.