Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.09.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.09.2021, Blaðsíða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.9. 2021 N ý könnun MMR sýndi að fylgi flokka haggaðist lítið þótt hiti færi að færast í kosningabaráttuna. Samkvæmt henni fengju stjórnarflokkarnir 33 þingsæti og meirihluta. Kosið er 25. september. Hingað til hefur ekki verið hægt að þekkja í sundur landbúnaðarhéruð landsins á lyktinni en á því varð breyting með fyrstu hvítlauks- uppskeru Íslandssögunnar á Efri- Úlfsstöðum í Austur-Landeyjum. Íslenska karlalandsliðið fór í gang síðasta kortérið gegn Norður- Makedóníu á Laugardalsvelli á sunnudag, vann upp tveggja marka forskot og náði jafntefli. Andri Lucas Guðjohnsen skoraði sitt fyrsta landsliðsmark sem varð til þess að þýskir sparkspekingar líktu honum við markavélina Gerd Müller. Hlaup hófst úr Skaftárkötlum en átti langa leið til byggða. Svandís Svavarsdóttir heilbrigð- isráðherra sagði að leiðin lægi til frekari tilslakana. . . . Lundastofninn mun vera á uppleið í Vestmannaeyjum. Voru Eyjamenn vonlega léttir í lund. Í lögum er mælt fyrir um að nota skuli ritblý til að greiða atkvæði. At- kvæði hafa þó ekki verið gerð ógild þótt notaður hafi verið penni og hafa nú verið tekin af öll tvímæli um að það verði ekki gert. Hafi þeir 5.326 sem greitt höfðu at- kvæði utankjörfundar á mánudag haft áhyggjur vegna þessa geta þeir varpað öndinni léttar. Ljót ummerki fundust eftir akstur utan vega í Vonarskarði í Vatna- jökulsþjóðgarði. Starfshópur lagði til við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að Akureyri yrði skilgreind svæðis- borg, sem yrði sérstakt byggðastig milli höfuðborgar og stærri þétt- býliskjarna. Sumarið 2021 hefur verið það hlýj- asta í sögu veðurmælinga á Akur- eyri, Egilsstöðum, Dalatanga og Grímsstöðum á Fjöllum. Í Reykja- vík var það í 26. sæti á listanum yfir hlýjustu sumurin. Skaftárhlaup færðist í aukana, en var enn ekki komið til byggða. Breskur fjárfestingarsjóður keypti Verne Global, sem rekur gagnaver á Ásbrú og meðal annars var í eigu Novator, fjárfestingarfélags Björg- ólfs Thors Björgólfssonar. Dregur þar með verulega úr umsvifum hans hér á landi. . . . Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra sagði í viðtali í Dagmálum á mbl.is að ríkisstjórnarsamstarfið hefði gengið vel og jafnvel betur en flestir hefðu þorað að vona. Því væri „í meira lagi einkennilegt ef við ræddum ekki saman – ef við höldum meirihluta – hvort það væri flötur að halda áfram“. Skaftárhlaup kom til byggða en raskaði ekki ró bænda. Pawel Bartoszek, formaður skipu- lagsráðs Reykjavíkur, vill grisja bílastæði ofan jarðar á Héðinsreit vestast í Vesturbænum. Þar búi þó fólk og því verði að gera ráð fyrir einhverjum stæðum. Enn eru vandræði vegna Fossvogs- skóla þremur árum eftir að þau hóf- ust vegna myglu. Nú eru tafir við að setja upp færanlegar kennslustofur vegna þess að þær voru ætlaðar til notkunar í heitari löndum en Ís- landi. Byrjað var að taka hraðpróf til að greina kórónuveirusmit við Suður- landsbraut. Varð til nýtt orðtak: „Best er PCR-próf, næstbest er hraðpróf og síst er sjálfspróf.“ 98% stjórnenda iðnfyrirtækja vilja að næsta ríkisstjórn leggi áherslu á stöðugleika, samkvæmt könnun, sem Samtök iðnaðarins létu gera. Óstöðugleikinn á greinilega undir högg að sækja. Gosið í Geldingadal skipti um takt og hafði á þriðjudag verið rólegt í viku og látið sér nægja að spúa gasi í gríð og erg. Óróaritið stóð ekki undir nafni. Ekki var þó útilokað að gosið tæki við sér á ný. Dregið hefur úr viðskiptum í Blóð- bankanum á meðan kórónuveiru- faraldurinn hefur staðið. Notkun á rauðkornum hefur verið 5-10% minni en venjulega og er það svipað og í nágrannalöndunum. Þýska landsliðið í knattspyrnu kom til Íslands eftir að hafa kjöldregið Armeníu og sá ekki ástæðu til að kynna sér aðstæður á Laugardals- velli með því að æfa þar fyrir lands- leikinn við Ísland. . . . Enn rís land við eldstöðina Öskju og hefur nú risið um 6,5 til 7 sentimetra síðan bera fór á því í byrjun ágúst. Miðja þenslunnar er við vesturjaðar Öskjuvatns nálægt Ólafsgígum. Hannes Þór Halldórsson upplýsti eftir 4:0 ósigur gegn Þjóðverjum á Laugardalsvelli að hann væri hættur í íslenska landsliðinu í knattspyrnu eftir áratug sem aðalmarkvörður liðsins. Hann lék bæði á EM og HM. Norðurljósin létu fyrst á sér kræla fyrir norðan í vikunni. Norðurljós sáust einnig yfir Reykjavík í vikunni en þau voru ekki sterk og dönsuðu aðeins í nokkrar mínútur áður en skýjahulan faldi þau. Ákveðið hefur verið að hverfa frá þeirri 100% hækkun á vanrækslu- gjaldinu sem lagt er á vegna óskoð- aðra ökutækja. Samkvæmt kjörskrárstofni Þjóð- skrár eru nú ríflega 254 þúsund manns sem hafa rétt á að kjósa í þingkosningunum fram undan. Þar af eru 127.752 konur og 126.889 karlar. Þjóðskrá hefur einnig bætt við flokknum kynsegin/annað og þar eru 40 kjósendur skráðir sem slíkir. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að hafna öllum tilboðum sem bárust í verkið „Bryggjuhverfi vestur, land- fylling“. Þóttu tilboðin sem bárust í verkið vera of há. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir nóg komið af yfirborðskenndum nýald- arstjórnmálum, þar sem ásýnd ráði öllu en innihaldið ekki. Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbank- anum, segir lága vexti og skort á fjárfestingartækifærum eiga þátt í hækkandi eignaverði. Bæði verði hlutabréfa og fasteigna. Framboð af fjárfestingarkostum sé takmarkað samhliða því sem fé streymi inn í líf- eyrissjóðina. „Okkur finnst yfirvöld ekki hafa sýnt mikinn áhuga á að ná samn- ingum við okkur,“ segir Þórarinn Guðnason, formaður Læknafélags Reykjavíkur, en félagið sleit samn- ingaviðræðum við Sjúkratryggingar Íslands í vikunni. Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi vegna landriss við Öskju en undanfarnar vikur hafa hraðar landbreytingar mælst þar. Talið er líklegt að kvika sé að safnast þar fyr- ir á 2-3 km dýpi. „Líðanin er ekki endilega verst í bylgjunum sjálfum heldur er það stundum frekar þegar þær eru bún- ar þar sem þá er minni félagsleg samstaða,“ segir Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýð- heilsusviðs hjá embætti land- læknis, en í gær kom út lýð- heilsumat á óbeinum áhrifum Covid-19-faraldursins á Íslandi. Miðað við bráðabirgðatölur sem byggjast á fyrstu skilum fyrir ágúst- mánuð má ætla að gistinætur á hót- elum í ágúst hafi verið um 413.300, þar af hafi gistinætur Íslendinga verið um 65.500 og gistinætur út- lendinga um 347.800. Félagsmálaráðuneytið auglýsti eft- ir umsóknum um embætti forstjóra nýrrar Barna- og fjölskyldustofu sem verið er að stofna og um emb- ætti forstjóra Gæða- og eftirlits- stofnunar velferðarmála, sem er ver- ið að byggja upp. Hlaup hófst og Hannes kvaddi Skaftárhlaup var fyrirferðarmikið í fréttum vikunnar. Morgunblaðið/Eggert 04.09.-10.09. Karl Blöndal kbl@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Hannes Þór ver víti frá Messi á HM 2018. Hann er nú hættur í landsliðinu. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hof 1 Austurhús og Klettasel í Sveitarfélaginu Hornafirði Fasteignamiðstöðin er með til sölu jörðina Hof 1 Austurhús og Klettasel í Sveitarfélaginu Hornafirði. Staðsetning 20 km frá þjóðgarðinum í Skaftafelli í vestur og 38 km frá Jökulsárlóni í austur. Hof 1 Austurhús á um 1/5 hluta heildarjarðarinnar sem er mjög landmikil. Húsakostur er mjög glæsilegt einbýlishús og sumarhús. Einbýlishúsið er um 120,1 m2 auk þess sambyggt sérstakt gestaherbergi 28 m2 og geymsla 10,2 m2. Einbýlishúsið skiptist í alrými með eldhúsi, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Öll tæki í eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergjum fylgja með. Allar innréttingar í húsunum eru sérsmíðaðar úr þýskum hlyn (cycamore) og hvítir eldhússkápar, þvottahúsinnrétting og baðinnrétting. Í gestaherberginu er einnig baðherbergi. Gólfefni er íslenskt gabbró sem var flutt frá Breiðamerkursandi til Reykjavíkur, þar sem grjótið var unnið í flísar, alls 150 fermetrar á gólf og tæpir 100 fermetrar á verönd. Fyrir utan húsið er heitur pottur og jafnframt er húsið skreytt með steindum gluggum eftir Nínu Tryggvadóttur. Húsið er steypt í hólf og gólf og er með torfþaki. Með glæsilegri húsum sem Fasteignamiðstöðin hefur haft til sölu. Sumarhúsið er 32,2 m2 stakstætt fullbúið hús með 1 svefnherbergi, alrými með eldhúskróki og baðherbergi. Útsýni er glæsilegt. Náttúrufegurð Öræfanna er engu lík. Í vestri handan við svartan Skeiðarársand blasir við Lómagnúpur þar sem einn af landvættum Íslands tók sér bólfestu. Öræfajökull trónir yfir sveitinni með hæsta fjall landsins Hvannadalshnjúk og niður hlíðar fjallanna skríða tignarlegir skriðjöklar. Í suðri blasir við Ingólfshöfði umleikinn svörtum sandi og hafinu. Fyrsti landnámsmaður Íslands Ingólfur Arnarson tók sér þar vetursetu, en í dag ráða þar lundinn og aðrir fuglar ríkjum. Áhugaverð jörð og húsakostur sem vert er að skoða. Frábær staðsetning. Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.