Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.09.2021, Side 8
Jónas Kristjánsson og Hansína Benediktsdóttir ásamt börnum sínum árið 1923. Að neðan Ásta,
Hansína, Jónas og Kristján sem lést ungur. Að ofan Rannveig, Guðbjörg og Regína sem lést þetta ár.
T
il þess að skapa heilbrigt og dugandi
þjóðfélag, þarf andlega og lík-
amlega heilbrigða þegna. Und-
irstaða heilbrigðinnar eru réttir
lifnaðarhættir og rétt fræðsla. En
heilsurækt og heilsuvernd þarf að byrja, áður
en til sjúkdóms kemur, áður en menn verða
veikir. Í þessu starfi þurfa allir hugsandi menn
að taka þátt, allir góðir synir og dætur fóstur-
jarðar vorrar verða að telja
það sína helgustu skyldu að
vernda heilsu sína ættjörð-
inni til handa. Og takmark
allra þarf að vera það, að
deyja frá betri heimi en þeir
fæddust í.“
Margir læknar og heilsu-
frömuðir myndu án efa telja
sig fullsæmda af þessum
orðum í dag en þau féllu þó
fyrir 75 árum; í ávarpi Jónasar Kristjánssonar
læknis í fyrsta tölublaði Heilsuverndar.
„Jónas Kristjánsson var langt á undan sinni
samtíð. Það fengum við staðfest um leið og við
fórum að rýna ævi hans og störf betur. Það er
magnað að íslenskur sveitalæknir hafi á fyrri
hluta seinustu aldar farið um allan heim að
kynna sér náttúrulækningar og síðan kynnt
þær þjóðinni. Það er á okkar ábyrgð að segja
þessa merkilegu sögu og lyfta henni upp,“ segir
Ingi Þór Jónsson, verkefnastjóri heimild-
armyndarinnar Láttu þá sjá og markaðsstjóri
Heilsustofnunar í Hveragerði, en myndin verð-
ur sýnd í Ríkissjónvarpinu í kvöld, sunnudags-
kvöld, klukkan 19.45.
Framúrstefnulegar hugmyndir
Ingi Þór segir Jónas hafa gengið með þann
draum í maganum að opna heilsuhæli á Íslandi í
meira en þrjá áratugi og tókst það loksins árið
1955, þegar hann var 85 ára að aldri. Hann var
yfirlæknir þar til hann lést. „Berum ábyrgð á
eigin heilsu eru kjörorð samtakanna og Heilsu-
stofnunin hefur lifað góðu lífi fram á þennan dag
og enda þótt formið sé annað þá er í grunninn
sömu straumum fylgt.“
Hugmyndir Jónasar áttu ekki endilega mik-
inn hljómgrunn í því samfélagi sem hér var á
öndverðri síðustu öld. „Hann byrjaði snemma
að tala um mikilvægi mataræðis; að tóbak og
áfengi væru heilsuspillandi, eins hvítur sykur og
hveiti. Til að byrja með var hlegið að honum en
með tímanum og seiglunni vann hann sífellt
fleiri á sitt band og hreif fjöldann með sér í
þessa vegferð. Ekki nóg með það, Jónas talaði
líka um mikilvægi svefns og hreyfingar, auk
þess sem brýnt væri að klæða sig vel. Þá lagði
hann áherslu á mikilvægi samskipta milli fólks
til að sporna við dapurleika. Hugtakið þung-
lyndi þekktist ekki í þá daga. En margir voru
einangraðir á býlum sínum mánuðum saman yf-
ir vetrartímann,“ segir Ingi Þór. Þá mun Jónas
hafa brýnt fyrir fólki að hætta að kyssast og
faðmast á mannamótum því það væri smitleið
fyrir sjúkdóma.
Að hans sögn hófst markviss söfnun efnis fyr-
ir um tólf árum ef ske kynni að ráðist yrði í það
verkefni að gera heimildarmynd um Jónas.
Tekin voru fjölmörg viðtöl, meðal annars við
fólk sem nú er fallið frá. Sagafilm kom að verk-
efninu ásamt NLFÍ árið 2019. Framleiðandi er
Margrét Jónasdóttir og leikstjóri Guðjón Ragn-
arsson. Ingi Þór segir samvinnuna við þau hafa
verið sérstaklega ánægjulega og Guðjón, sem er
fæddur árið 1992, hafi komið með ferska sýn að
borðinu. Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Lay
Low semur tónlistina í myndinni.
„Hugmyndin var alltaf að hafa persónu Jón-
asar í forgrunni; að þetta yrði fyrst og fremst
hans saga. Það hljómar kannski ekkert spenn-
andi að gera heimildarmynd um löngu látinn
mann en að mínu viti hefur tekist afar vel til;
myndin er mögnuð og viðbrögð fólks sem hefur
séð hana, bæði í Bíói Paradís og hér á Heilsu-
stofnun, hafa verið mjög góð,“ segir Ingi Þór.
Ekkert lá á
Til stóð að frumsýna myndina á liðnu ári, í til-
efni af 150 ára fæðingarafmæli Jónasar, en af
því varð ekki vegna heimsfaraldursins. „Þegar
upp er staðið kom það ekki að sök; við ákváðum
bara að anda betur ofan í verkefnið og gera
þetta ennþá betur. Enda lá ekkert á,“ segir Ingi
Þór.
Heimilda var leitað víða; meðal annars í fyrr-
nefndu tímariti Heilsuvernd sem NLFÍ gaf út
og Jónas var frumkvöðull að. Þá reyndist Jón
Ormar Ormsson, fyrrverandi dagskrárgerð-
armaður á Sauðárkróki, betri en enginn en
hann mun vera sérfróður um ævi og störf Jón-
asar og sögu NLFÍ. Þá koma læknar fram í
myndinni, svo sem Óttar Guðmundsson geð-
læknir og Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor í
ónæmisfræðum, en Covid-19 fléttaðist óhjá-
kvæmilega inn í söguna á lokasprettinum. Einn-
ig má nefna Magnús A. Sigurðsson sagnfræðing
og marga fleiri.
Ýmsir sem þekktu Jónas persónulega leggja
orð í belg, þeirra á meðal barnabarn hans og al-
nafni, Jónas Kristjánsson ritstjóri. Hann segir
afa sinn ekki endilega hafa verið barnelskan
mann en eigi að síður hafi verið ákaflega gaman
að heimsækja hann enda gamli maðurinn haf-
sjór af fróðleik, auk þess sem hann bjó að góðu
bókasafni.
„Fólk er sammála um að Jónas hafi verið
metnaðarfullur, ákveðinn og sérstaklega kapp-
samur. Þess vegna kom hann öllu þessu í verk.
Það má heldur ekki gleyma þætti Hansínu
Benediktsdóttur, eiginkonu hans, í þessu öllu.
Hún var stoð hans og stytta alla tíð og án henn-
ar hefði þetta aldrei verið hægt,“ segir Ingi Þór.
Missti móður sína ungur
Jónas Kristjánsson fæddist á Snæringsstöðum í
Svínadal í Húnavatnssýslu 20. september 1870
og lést á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði 3.
apríl 1960.
Jónas varð fyrir þeirri miklu sorg að missa
móður sína þegar hann var barn að aldri og hét
Helgasta skyld-
an að vernda
heilsuna
Láttu þá sjá, ný íslensk heimildarmynd um lífshlaup
Jónasar Kristjánssonar, læknis og stofnanda Náttúrulækn-
ingafélags Íslands og Heilsuhælisins í Hveragerði, verður
sýnd á RÚV í kvöld. Jónas þótti langt á undan sinni
samtíð þegar kom að heilsurækt og heilsuvernd.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Ingi Þór Jónsson
Jónas Kristjánsson fór
víða um dagana. Hér
er hann ásamt ljóns-
ungum í Hamborg.
HEILSA
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.9. 2021