Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.09.2021, Page 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.09.2021, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.9. 2021 HRYÐJUVERK Rústahaugurinn eins og hann blasti við vegfarendum sem leið áttu um Broadway í fjármálahverfinu tveimur vikum síðar. Morgunblaðið/Einar Falur Farþegi á Staten Island-ferjunni horfir yfir til Manhattan-eyju þar sem reykjarmökkurinn frá rústum World Trade Center-byggingarinnar grúfði enn yfir, tæplega hálfum mánuði eftir árás hryðjuverkamannanna. Morgunblaðið/Einar Falur 27. september 2001 birti bandaríska alríkislögreglan, FBI, myndir af 19 ungum, dökkhærðum mönnum sem grunaðir voru um að vera þeir sem rændu flugvél- unum sem notaðar voru til hryðjuverkanna 11. september. Reuters Meira en fimm hundruð manns komu saman í Washington Square-garðinum í New York daginn eftir ódæðið og héldu á kertum í minningu hinna látnu. Heimurinn var í uppnámi og fólk upplifði yfirgnæfandi sorg og samúð. Reuters Bandaríski fáninn blaktir á Ground Zero, þar sem turnarnir stóðu, til minn- ingar um konu sem lést í árásinni. Svæðið nær frá Vesey Street í norðri, West Side Highway í vestri, Liberty Street í suðri og Church Street í austri. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.