Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.09.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.09.2021, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.9. 2021 HREYFING STOFNAÐ 1956 Glæsileg íslensk hönnun og smíði á skrifstofuna Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur Sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.is Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni. Það er allt að fara á fullt og lífið er að komast í sama horf og áður, þó maður hafi á misst trúna af og til á þessum síðustu nítján, tuttugu mánuðum. En nú eru gleðitímar hér í Hress. Eina sem er breytt er að bilið hefur lengst á milli manna í tímum því við hleypum ekki jafn mörgum inn í salina og áður. En það er dásamlegt í vinnunni og nú sér maður bæði gömul og ný andlit og fólk streymir hér í hús. Ég held að fólk hafi mikla þörf fyrir að kom- ast aftur í sínu venjubundnu hreyf- ingu,“ segir Linda Hilmarsdóttir, eigandi Hress Heilsurækar í Hafn- arfirði. Nýtt fyrir bjölludýrkendur „Við sjáum nú marga af okkar fasta- kúnnum sem hafa fylgt okkur í tutt- ugu ár jafnvel en hafa ekki látið sjá sig á Covid-tímum. Það fólk er að koma aftur og vilja margir fara á námskeið þar sem er byrjað rólega. Svo eru alltaf einhverjir nýir við- skiptavinir að bætast í hópinn,“ seg- ir Linda og segir ýmislegt nýtt á boðstólum í Hress sem hefur verið starfandi í 34 ár. „Við erum með nýtt námskeið sem heitir bjölluform og erum þar í sam- starfi við Loga Geirsson sem hefur verið með fólk í fjarráðgjöf. Nú ætl- um við að blanda saman hreyfing- unni hér og ráðgjöfinni frá honum. Hann hittir fólk og fer yfir pró- grömm og mataræði, en þetta er ein- staklingsmiðað og allir fá að vinna æfingar við sitt hæfi. Það er ótrúlegt hvað er hægt að gera með bjöllur,“ segir Linda og segir að bjöllur hafi orðið vinsælar á kórónuveirutímum. „Bjölludýrkendur sem keyptu sér bjöllu í Covid vilja nú fara að komast í faglega meðferð með bjöllurnar og svo getur fólk auðvitað haldið áfram heima,“ segir Linda og segir þau einmitt hafa verið dugleg að leigja út bjöllur, lóð og tæki þegar lokað var í Hress. „Hér hefur verið lokað í sjö mán- uði, fjórum sinnum. Þetta hefur ver- ið skelfilegur tími fyrir atvinnurek- andur eins og okkur hjónin. Við höfum verið bæði hrædd og reið og óttuðumst um tíma að lífsstarfið okkar væri farið. Lokunarstyrkir hafa hjálpað okkur gríðarlega og gert okkur kleift að halda áfram sem við gerum nú á fullum styrk.“ Eins og á vöggustofu „Nú er fólk tilbúið í slaginn og vill fá eitthvað nýtt og ferskt. Þannig að við erum búin að verða við þeim ósk- um, enda erum við í svo miklu stuði. Ég elska núna að vera í vinnunni vit- andi það að það verður ekki lokað á mann aftur,“ segir Linda og segist ekki eiga von á frekari lokunum. „Flestir eru bólusettir í dag og hér hefur enginn smitast eða verið settur í sóttkví.“ Hvað annað er nýtt hjá ykkur í haust? „Við erum með nýja tíma sem heita para-wod, sem eru paraæf- ingar. Wod stendur fyrir „workout of the day“, eða æfingar dagsins. Fólk þarf ekki að þekkjast, því það þarf ekki að snertast og notar ekki sömu áhöld, en unnið er saman í pör- um. Parið vinnur saman æfingar og skiptir þeim á milli sín eftir getu hvers og eins og er þetta mjög skemmtilegt. Við erum líka komin með nýtt „tvist“ á heitu tímana, en í Covid fundum við mikinn áhuga á þeim tímum. Nú ætlum við að koma með alls kyns nýjar útgáfur af heitu tímunum, eins og lotuþjálfun, styrk og meiri bruna. Við erum líka að bjóða upp á átta vikna „langt og strangt“ námskeið og eru þau alltaf full, en við höfum ekki boðið upp á átta vikna námskeið í fimmtán ár. Fólk vill núna hitta sama þjálfarann og vera með sama fólkinu, en við er- um enn með skráningu í alla tíma. Við erum líka enn með allar varnar- ráðstafanir í gangi og hér er ekkert kæruleysi. Við göngum hér um eins og þetta sé vöggustofa.“ Veiran bankaði upp á Linda og eiginmaður og viðskipta- félagi hennar, Jón Þórðarson, hafa ekki farið varhluta af veirunni því þau nældu sér bæði í hana í sumar- fríinu í sumar. „Við vorum fullbólusett og vitum ekki hvernig við fengum þetta. Við vorum í sumarfríi þannig að það má segja að þetta hafi komið á besta tíma fyrir okkur. Ég fór í tékk eftir ferðalag erlendis en hafði ekki fund- ið nein einkenni. En þá var ég með veiruna og stuttu síðar greindist líka Nonni. Við erum nú bara glöð að geta hakað í þetta box líka, þótt þetta hafi verið sjokk fyrst. Ég var líka hrædd um að hafa smitað ein- hvern, sem var sem betur fer ekki raunin. Nú erum við sem sagt með bæði belti og axlabönd,“ segir Linda og brosir. „Þetta hafði ekki miklar afleið- ingar fyrir okkur og við urðum sem betur fer ekki veik, en ég fann hvorki lykt né bragð. Ég reyndi að nota tækifærið og borða bara egg og laufblöð,“ segir hún og hlær. „Um að gera að borða bara hollt fyrst ég fann ekkert bragð. Ég fór að lykta af öllu til að reyna að þjálfa upp lyktarskynið; þefaði af blómum og kaffinu mínu. Þegar ég var í ein- angrun langaði mig mest í ís með dýfu en það gekk ekki að koma með það til mín,“ segir hún hlæjandi og bætir við að bæði lyktar- og bragð- skyn sé sem betur fer komið til baka. „Ég fann líka hvað ég var með lít- ið þol eftir veikindin og er ég búin að vera að byggja það upp smátt og smátt. Nú er ég orðin eins og ég var. Þetta var viss lífsreynsla og við náð- um líka að hvíla okkur og safna kröftum eftir erfiða tíma. En nú er- um við himinlifandi!“ Litla vinalega stöðin Linda segist vel finna hvað við- skiptavinunum finnst gaman að koma og hittast á ný. „Þegar ég er að kenna þá tala konurnar svo mikið að ég kemst ekki að! Og ég elska það. Hér eru margir litlir hópar og við viljum vera litla vinalega stöðin. Ég er í gleðikasti.“ Svona að lokum, verða Hress- leikar? „Við erum mikið búin að vera að ræða það og já, þeir verða örugglega í einhverri mynd. Við förum fram á að fólk sé bólusett og ætlum að fá fólk til að taka hraðpróf deginum áð- ur og það verða fjöldatakmarkanir.“ „Ég er í gleðikasti“ Líkamsræktarstöðvarnar fara yfirleitt á fullt á haustin en sennilega aldrei eins og nú eftir tíðar lokanir síðasta eina og hálfa árið. Linda Hilmars- dóttir hjá Hress Heilsurækt er himinlifandi yfir því að sjá aftur fólk streyma í ræktina. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Linda Hilmarsdóttir sér nú loks fram á bjarta tíma og hefur tekið gleði sína á ný eftir erfiða kórónuveirutíma. Morgunblaðið/Ásdís Þeir voru sprækir félagarnir Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar í hand- bolta, Jón Þórðarson, eigandi Hress, og Aðalsteinn Arndal, handboltaþjálfari meistaraflokks FH í handbolta, þegar blaðamaður leit inn í vikunni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.