Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.09.2021, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.9. 2021
LESBÓK
VELMEGUN Bandaríska leikkonan Angela Bassett, sem fer með
eitt af aðalhlutverkunum í dramaþáttunum 9-1-1 sem sýndir eru í
Sjónvarpi Símans, játar því hvorki né neitar að hún sé hæstlaunaða
hörundsdökka leikkonan í sjónvarpssögunni en sjón-
varpsþátturinn Deadline hélt þessu fram fyrir
skemmstu; segir hana fá 450 þúsund Bandaríkjadali
fyrir hvern þátt eða sem nemur rúmum 57 milljónum
króna. Þokkalegasta kaup. „Veistu hvað?“ segir
hún í samtali við breska dagblaðið The Guardian.
„Það sem ég stefndi að snemma á ferlinum var að
vinna jafnt og þétt og uppskera sanngjörn laun.
Það á ugglaust við um fleiri og þegar að því kem-
ur, þá er það góður dagur. Og ég vona að það leiði
til jafnréttis öðrum til handa. Það er mín von.“
Launahæst í sögunni?
ÓLÁN Amy Lee, söngkona rokkbandsins Eva-
nescence, varð fyrir því óláni á dögunum að
snúa sig illa á ökkla meðan hún var á heilsu-
bótargöngu úti í náttúrunni nærri heimili sínu
í Nashville. Í samtali við bandarísku útvarps-
stöðina 102.9 The Buzz sagðist Lee hata rækt-
ina eins og pestina og því hefði hún verið him-
inlifandi þegar hún uppgötvaði göngur í
skóglendi og hlíðum enda mikilvægt fyrir
rokkara að halda sér í formi. Ekki vildi þó
betur til en svo að hún hrasaði með fyrr-
greindum afleiðingum. Lee hefur tæpa tvo
mánuði til að jafna sig en Evanescence leggur
upp í túr með Halestorm 5. nóvember.
Hrasaði og sneri á sér ökklann
Amy Lee hélt að náttúrugöngur væru fyrir sig.
AFP
Anette Olzon var að gefa út plötu.
Ennþá lögð
í einelti
EINELTI Sænska málmsöngkonan
Anette Olzon, sem í eina tíð var í
finnska bandinu Nightwish, viður-
kennir í samtali við finnska tímarit-
ið Tuonela að sér líði stundum eins
og hún sé aftur komin í barnaskóla
þegar hún fer inn á samfélags-
miðla. Ástæðan er sú að hún var
lögð í einelti í skóla og sama hefur
gerst á samfélagsmiðlum. „Fólk
skrifar ennþá hræðilega hluti um
mig á netinu; ég fæ stöðugt slík
skilaboð. Eftir langa mæðu bar ég
gæfu til að verja mig þegar ég var í
skóla og ég er þess líka umkomin í
dag. Þið sem verðið fyrir einelti á
netinu skuluð vita að það snýst ekki
um ykkur. Það eru eineltissegg-
irnir sem eiga bágt,“ segir Olzon.
G
od Hates Us All, níunda
breiðskífa kaliforníska
þrassbandsins Slayer, átti
upphaflega að koma út 10. júlí 2001
en seinkaði vegna vangaveltna um
hljóðblöndun og útlit umslagsins,
auk þess sem útgáfufyrirtækið, Am-
erican Recordings, var að skipta um
dreifingaraðila. Nýr útgáfudagur
var því ákveðinn, 11. september
sama ár. Ekki þarf að minna nokk-
urn mann sem kominn er til vits og
ára á hvað gerðist þann dag; hryðju-
verkamenn gerðu árás á World
Trade Center og Pentagon í Banda-
ríkjunum og heimurinn hélt niðri í
sér andanum. Hvaðan kom slík heift,
hvaðan kom slík grimmd?
Ekki svo að skilja að margir hafi
verið að gefa útgáfu God Hates Us
All gaum þennan tiltekna dag en
þegar frá leið hafa ábyggilega fleiri
en einn og fleiri en tveir hugsað: Eru
þessir menn skyggnir? Ég meina,
platan inniheldur lög á borð við Dis-
ciple, God Send Death, War Zone,
Here Comes the Pain og Payback.
Allt með miklum ólíkindum.
Í texta Disciple segir m.a.:
Pessimist, terrorist targeting the
next mark
Global chaos feeding on hysteria
Cut throat, slit your wrist, shoot
you in the back fair game.
Auðvitað blasti hryðjuverkaógn
Þið megið
drepa helvítið!
11. september 2001, daginn sem hryðjuverka-
menn réðust á Bandaríkin, sendi málmbandið
Slayer frá sér plötuna God Hates Us All, þar sem
m.a. var ort um trú, morð, hefnd og sjálfsaga.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Tom Araya í Laugardalnum sumarið 2018. Hann er nú sestur í helgan stein.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Slayer henti atómsprengju inn í
málmheima með þriðju breiðskífu
sinni, Reign In Blood, árið 1986 en
hún er af mörgum talin ein allra
besta málmplata sögunnar. Henni
var þétt fylgt eftir með South of
Heaven (1988) og Seasons in the
Abyss (1990) en næstu þrjár skífur,
Divine Intervention (1994), ábrei-
ðulagaplatan Undisputed Attitude
(1996) og Diabolus in Musica
(1998) skoruðu ekki eins mörg málmstig. Þess vegna var mikill
hugur í mönnum við upphaf nýrrar aldar; God Hates Us All átti að
hrista upp í liðinu. Og hún gerði það – upp að vissu marki. Fékk
býsna góða dóma á heildina litið og náði hæst í 28. sæti á Billboard-
listanum. Þá fékk Slayer sína fyrstu Grammy-tilnefningu fyrir Dis-
ciple. Ekki svo að skilja að mönnum hafi þótt mikið til þess koma;
þeir músiseruðu aldrei fyrir hinn breiða fjölda. Slayer sendi frá sér
þrjár breiðskífur í viðbót, áður en bandið lagði upp laupana síðla
árs 2019. Og hvaða svar hafði almættið við því? Kófið.
Stimpluðu sig út laust fyrir kófið
Listaverkið framan á God
Hates Us All er umdeilt.
Angela Bassett
gerir það gott. AFP