Morgunblaðið - 12.11.2021, Síða 2

Morgunblaðið - 12.11.2021, Síða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Álag hefur aukist verulega í sjúkra- flutningum á höfuðborgarsvæðinu vegna fjölgunar smita í kórónuveiru- faraldrinum að undanförnu. Jón Viðar Matthías- son, slökkviliðs- stjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæð- isins, segir fjölgun sjúkraflutninga haldast í hendur við fjölgun smita og stór hluti þeirra séu flutningar á Covid-göngudeild Landspítalans. Bæta þurfti við mannskap þegar smitbylgjan fór að rísa síðsumars og í haust eða um alls 14 starfsmenn, m.a. með því að framlengja ráðningu sum- arstarfsmanna sem höfðu tök á því. 39 þúsund boðanir sjúkrabíla Aðrir sjúkraflutningar en vegna veirufaraldursins hafa líka aukist mikið á umliðnum mánuðum, sem Jón Viðar segir endurspegla þá umræðu sem verið hefur um stöðuna á Land- spítalanum. „Það hefur oft verið mik- ið álag og staðið knappt en mann- skapurinn hefur lagst á eitt um að klára þessi verkefni með mikilli út- sjónarsemi og áræði,“ segir hann. Fram kemur í greinargerð um fjár- hagsáætlun Slökkviliðs höfuðborgar- svæðisins, sem fylgir fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár, að það sem af er yfirstandandi ári hefur almennum sjúkraflutningum, að Co- vid-19-flutningum undanskildum, fjölgað um 17%. Áætlað er að fjöldi boðana sjúkrabifreiða á þessu ári verði samtals um 39 þúsund talsins og reiknað er með að þeir verði tæplega 36 þúsund á næsta ári. Áformað útboð Covid-flutninga Tekjur af sjúkraflutningum gefa mynd af umfangi þeirra. Útkomuspá fyrir yfirstandandi ár gerir ráð fyrir að heildartekjur vegna sjúkraflutn- inga verði um 130 milljónum króna hærri á þessu ári en áætlun fyrir árið gerði ráð fyrir og verði samtals einn og hálfur milljarður yfir árið. Áætlað er að tekjur af sjúkraflutningum verði 1.663 milljónir króna á næsta ári og hækki um 21,5% á milli ára. Sam- tals gæti heildarkostnaður vegna sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæð- inu því orðið á fjórða milljarð króna á tveimur árum. Fram kemur að heil- brigðisráðuneytið áformar að bjóða út Covid-19-flutninga fyrir þá sjúk- linga sem geta setið við flutning. Jón Viðar segir að fjölgun sjúkra- flutninga sé umfram íbúaþróunina á og margar ástæður séu fyrir henni, m.a. faraldur kórónuveirunnar, al- menn veikindi og fjölgun sem hefur orðið í hópi 60 ára og eldri. Endurnýja samning við SÍ Samningar við Sjúkratryggingar Íslands um sjúkraflutningana eru lausir í lok árs, eftir að hafa verið tví- framlengdir. „Mikil óvissa er í rekstri SHS um þetta viðamikla verkefni og stóran tekjulið sem því fylgir,“segir í fjárhagsáætlun SHS. Er gert ráð fyrir að nýr samningur taki m.a. mið af verðlagsþróun, fjölg- un íbúa og kostnaðarauka vegna styttingar vinnutíma vaktavinnu- fólks, sem talið er að verði umtals- verður en hún tekur gildi 1. maí á næsta ári. Jón Viðar segir að samrekstur slökkviliðs og sjúkraflutninga eigi vel saman svo framarlega sem þeir séu rétt fjármagnaðir. „Við hefðum ekki getað ráðið við þessa miklu toppa ef við hefðum ekki haft þennan sam- rekstur og getað fært menn á milli verkþátta. Við erum ekki búin að lenda samningum en samningavið- ræður eru í gangi,“ segir hann. „Oft mikið álag og staðið knappt“ - Sjúkraflutningar aukast í takt við fjölgun smita - Almennum flutningum með sjúkrabifreiðum hefur fjölgað um 17% á árinu - Áætlaðar tekjur af sjúkraflutningum eru á fjórða milljarð á tveimur árum Morgunblaðið/Árni Sæberg Covid-flutningar Sjúkrabifreið sótthreinsuð eftir sjúkraflutning. Jón Viðar Matthíasson Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14 25 ára 1996-2021 Hertar sóttvarnatakmarkanir verða ræddar á fundi ríkisstjórnarinnar í dag og er Svandís Svavarsdóttir komin með minnisblað frá sótt- varnalækni með tillögum að aðgerð- um, en 200 kórónuveirusmit greind- ust við skimun í fyrradag. Er það hið mesta frá upphafi faraldursins. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir hefur verið á því máli að herða þurfi takmarkanir innanlands. „Ég hef talað um það undanfarna daga að það þurfi að bregðast við,“ sagði Þórólfur í samtali við mbl.is í gær. Spurður hvort hertar aðgerðir séu á teikniborðinu sagði hann: „Þróunin er nánast ómöguleg og jú, það er á teikniborðinu hjá mér.“ Starfandi forstjóri Landspítalans, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, sagði í Kastljósi í fyrradag að hún vildi að aðgerðir yrðu hertar strax. Spítalinn á hættustigi Þá kallaði farsóttarnefnd Land- spítalans eftir hertum aðgerðum í gær en spítalinn er nú á hættustigi. Í gær lágu 16 sjúklingar smitaðir á Landspítala; 11 á smitsjúkdóma- deild, þrír á gjörgæslu í öndunarvél en tveir þeirra smituðu eru á geð- deild. Í fyrradag greindust alls 200 smit. Farsóttarnefnd segir í tilkynn- ingu sinni að hún hafi miklar áhyggj- ur af stöðunni og álítur að gera þurfi takmarkanir í samfélaginu strax, ef takast eigi að ná utan um yfirstand- andi bylgju. Nýtt farsóttarhús verður opnað á Reykjavík Lights hótel við Suður- landsbraut en þar munu 105 her- bergi standa til boða fyrir þá sem þurfa á einangrun að halda vegna veirusmits. Sjúkratryggingum Ís- lands var í fyrradag falið að útvega rýmið og liggja samningar um þessi efni nú fyrir, en samkvæmt þeim mun Rauði krossinn annast þjónustu við gesti hins nýja farsóttarhúss. Smit greinast víða Smit hafa greinst á víð og dreif í samfélaginu undanfarna daga en á dögunum greindust um hundrað smit eftir villibráðarkvöld í Garðabæ síðasta föstudagskvöld. Þá hafa smit komið upp á hinum ýmsu deildum Landspítalans en smit greindist í gær á heila- og taugaskurðdeild Landspítalans í Fossvogi. Þá fjölgaði smitum á geð- deild í gær en tveir sjúklingar og fimm starfsmenn eru nú smitaðir. Þá kom upp smit á meðal starfs- manna á Litla-Hrauni í gær. Sökum þess hefur öllum heimsóknum gesta í fangelsið verið frestað fram yfir helgi. Í eftirliti Covid-19-göngu- deildar eru nú 1.508 manns, sem er mesti fjöldi frá upphafi. Ríflega 40 manns eru í sérstöku eftirliti, að því er fram kom í tilkynningu farsótt- arnefndar. Metfjöldi smita frá upphafi faraldurs - Hertar aðgerðir ræddar á fundi ríkisstjórnarinnar í dag 200 175 150 125 100 75 50 25 0 júlí ágúst september október nóv. H ei m ild :c ov id .is kl .1 3 .0 0 íg æ r 200 ný innan- landssmit greindust sl. sólarhring 2.365 einstaklingar eru í sóttkví Fjöldi innanlands- smita frá 12. júlí 206 eru í skimunarsóttkví1.505 erumeð virkt smit og í einangrun 18 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar af fjórir á gjörgæslu Staðfest smit 7 daga meðaltal Morgunblaðið/Unnur Karen Farsóttarhús Hið nýja farsóttarhús verður á Reykjavík Lights Hotel. Stjórn Eflingar fundaði í fyrsta skipti í gær eftir að ný forysta tók við stjórnartaumunum, en í gærkvöldi var einnig haldinn mánaðarlegur fundur í trúnaðarráði Eflingar. Guðmundur Baldursson sagði í samtali við mbl.is í gær að sér þætti stórundarlegt að nýir stjórnendur í Eflingu létu ekki ná í sig, en hvorki hefur náðst í Agnieszku Ziólkowska, nýjan formann, né Ólöfu Helgu Adolfsdóttur varaformann frá því þær tóku við, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fjölmiðla. „Það eru 26 eða 27 þúsund félagar í þessu félagi og þeir fá engar fréttir. Það hlýtur að vera krafa hvers fé- lagsmanns, eftir öll þessi djöfulsins læti, að fá að vita hvað er verið að gera þarna,“ segir Guðmundur. Tryggvi Marteinsson, kjara- fulltrúi hjá Eflingu, var rekinn frá Eflingu í gær eftir 27 ára starf hjá félaginu. Þessu greinir Tryggvi frá í færslu á Facebook-síðu sinni. Samkvæmt heimildum mbl.is er Tryggvi sakaður um að hafa hótað að vinna Sólveigu Önnu Jónsdóttur, fyrrverandi formanni Eflingar, mein. Ný stjórn Efl- ingar fundaði - Kjarafulltrúa Eflingar sagt upp Morgunblaðið/Unnur Karen Ný stjórn Agnieszka Ewa Ziól- kowska og Ólöf Helga Adolfsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.