Morgunblaðið - 12.11.2021, Side 15

Morgunblaðið - 12.11.2021, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2021 Símamynd Hún er líklega ekki að senda mynd til Reuters þessi kona sem heimsótti Ísland, heldur að mynda bæði sjálfa sig og fagurt umhverfið sem blasir við hvarvetna. Eggert Leiðtogar ríkja heims funda nú á COP26-ráðstefnunni í Glasgow. Ráðstefnan fer fram í skugga nýj- ustu skýrslu milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslags- mál (IPCC), þar sem skýrt kemur fram hve brýnt er að grípa til taf- arlausra aðgerða til að takast á við þær áskoranir sem við okkur blasa á heimsvísu vegna loftslagsbreyt- inga. Ekkert ríki getur eitt og sér tekist á við þau grænu umskipti sem okkar bíða og því verðum við að vinna saman sem heild og læra hvert af öðru. Í þeim anda var Ís- landsheimsókn hans konunglegu hátignar Friðriks, krónprins Dan- merkur, sem kom í síðasta mánuði ásamt utanríkisráðherra Dan- merkur og fulltrúum tíu fyrirtækja frá Danmörku og Grænlandi á sviði grænnar tækni og nýsköp- unar. Heimsóknin nýttist vel til að miðla danskri þekkingu og draga um leið lærdóm af reynslu ís- lenskra fyrirtækja sem hafa sér- hæft sig í grænum lausnum. Okkar sameiginlega sýn um sjálfbæra framtíð krefst þess að við samein- umst um leiðir fram á við. Þetta kallast vel á við áherslur ríkjanna tveggja, Danmerkur og Íslands, á að vera í fararbroddi grænna orku- skipta og umbreytinga þar sem ný- sköpun og hugvit á þessu sviði get- ur – og mun varða leiðina að sjálfbærri framtíð. Það er staðreynd að við verðum að draga úr losun. Ríki heims verða að sýna skýran vilja til að setja sér metnaðarfyllri markmið um að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda. Ef okkur verður á í þeirri vegferð blasir við nýr veru- leiki þar sem fást þarf við áskor- anir vegna hækkandi hitastigs, hækkunar sjávarborðs, tíðari og alvarlegra þurrkatíða, með fleiri hitabylgjum og stormum á heims- vísu. Á norðurslóðum er bráðnun jökla hraðari en nokkru sinni fyrr og hér á Íslandi eru aurskriður að verða sífellt alvarlegri ógn. Danmörk hefur skuldbundið sig til að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda um 70% fyrir árið 2030 og stefnir Ísland að því að vera kolefnishlutlaust árið 2040. Við teljum að þessi markmið séu ekki aðeins nauðsynleg, heldur einnig raunsæ. Dönsk og íslensk fyrir- tæki munu gegna lykilhlutverki í vegferð ríkjanna til að ná þessum markmiðum. Atvinnulífið býr yfir reynslu og þekkingu til að um- breyta heiminum með nýsköpun á sviði í grænnar tækni. Dönsk og ís- lensk fyrirtæki hafa nú þegar upp á að bjóða framsæknar og háþró- aðar orkulausnir, svo sem á sviði vinnslu og notkunar á jarðvarma-, sólar-, vind-, líf- og vatnsaflsorku og hitaveitna. Þessi þekking var ekki byggð upp af kvöð á atvinnu- lífið, heldur felast tækifæri í ný- sköpun á sviði sjálfbærni og um- hverfisvænnar tækni, sem helst í hendur við þörfina fyrir græn orkuskipti, bæði hjá ríkjunum tveimur sem og á heimsvísu. Við stöndum frammi fyrir þeim áskorunum að þurfa að reisa mannvirki og innviði sem geta staðið af sér öfgar í veðurfari, þróa ræktun matvæla á þá vegu að þau þoli veðurfarsbreytingar og bæta veðurspálíkön til að gera ráð fyrir meiri öfgum í veðurfari. Þessi tækifæri skapa jafnt tekjur og störf fyrir byggðarlög en á sama tíma leggja þau sitt af mörkum til að innleiða bæði innlend sem og al- þjóðleg loftslagsmarkmið. Samstarfsverkefni opinberra að- ila og einkaaðila er lykill að græn- um umskiptum. Árangursríkt sam- starf stjórnvalda sem fara með ákvörðunarvald annars vegar og iðnaðar hins vegar stuðlar að lausnum á sviði loftslagsmála og sjáum við þess dæmi hjá bæði State of Green í Danmörku og Grænvangi á Íslandi. Slíkt sam- starf er nauðsynlegt til að takast á við sameiginleg viðfangsefni þess- ara aðila á vettvangi grænna orku- skipta þó að hlutverk aðila séu ólík. Tíminn er lykilþáttur ef við ætl- um að láta gott af okkur leiða og tryggja núlifandi og komandi kyn- slóðum sjálfbært samfélag og um- hverfi. Heimsókn dönsku sendi- nefndarinnar til Íslands í liðnum mánuði var mikilvægt fyrsta skref í samvinnu þessara þjóða á því sviði. Í ljósi langrar sögu og arfleifðar þjóðanna beggja erum við vongóð um að sjá þessi samskipti þróast yfir í samfellt og stöðugt samtal á vettvangi stjórnvalda sem og fyr- irtækja og þannig stuðla að enn sterkari tengslum og samstarfi Ís- lands og Danmerkur á vettvangi grænna lausna og orkuskipta. Eftir Kirsten Geelan, Sigurð Hannesson og Pétur Þ. Óskarsson Sigurður Hannesson Kirsten Geelan er sendiherra Danmerkur á Íslandi, Sigurður er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Pétur er fram- kvæmdastjóri Íslandsstofu. Danmörk og Ísland í fararbroddi grænnar umbyltingar Kirsten Geelan Pétur Þ. Óskarsson » Okkar sameiginlega sýn um sjálfbæra framtíð krefst þess að við sameinumst um leið- ir fram á við.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.