Morgunblaðið - 12.11.2021, Side 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2021
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
Oddur Þórðarson
Stefán Gunnar Sveinsson
Vettvangsferð undirbúningsnefndar
fyrir rannsókn kjörbréfa til Borgar-
ness í gær leiddi í ljós „ákveðin frá-
vik“ við flokkun kjörgagna. Þetta
sagði Birgir Ármannsson, formaður
nefndarinnar, í samtali við mbl.is í
gærkvöldi. Birgir sagði að nefndin
væri að skoða þessi frávik og hygðist
ræða þau betur á fundi sínum í dag,
en tók fram að ekki hefði verið um
mörg atriði að ræða.
Birgir sagði aðspurður að ekki hefði
verið um endurtalningu að ræða. „Við
hefðum þurft meiri tíma og mannskap
í það en við vorum að reyna að átta
okkur á flokkuninni og í því komu upp
ákveðin frávik sem við þurfum að
skoða betur,“ sagði Birgir í gær.
Þá bætti hann við að nefndin væri
nú að ljúka gagnaöflun sinni og leggja
lokahönd á málsatvikalýsingu. Sagð-
ist hann ekki gera ráð fyrir að nefnd-
in myndi fara aftur í vettvangsferð til
Borgarness. Nú tæki hins vegar við
umræða um lagaleg atriði í málinu,
samhliða umræðu um málavexti.
Andmæli tekin saman
Björn Leví Gunnarsson, fulltrúi Pí-
rata í undirbúningskjörbréfa-
nefndinni, segir í samtali við Morgun-
blaðið, að nefndin muni á fundi sínum
í dag ræða Borgarnesferðina, en ein-
ungis hluti nefndarmanna tók þátt í
henni. Þá verði tekin saman þau and-
mæli sem hafi borist og þau rædd, en
skilafrestur á andmælum rann út í
gær. „Og þá ættum við að vera komin
með allt sem liggur fyrir, þannig að
við getum farið að komast að niður-
stöðu.“
Björn segir að hann telji nefndar-
störfin hafa verið vel ásættanleg þeg-
ar á heildina sé litið. „En það var
byrjað með loforð um að allt yrði opið,
og mér finnst það hafa verið uppfyllt
að hluta til.“ Segir Björn að aðgangur
að skriflegum gögnum hafi verið
betri en oft áður, en að eftir á að
hyggja hefðu fleiri af fundum nefnd-
arinnar mátt vera opnir.
„Fólk í nefndinni hefur tekið öllum
ábendingum alvarlega og elt alla
þræði sem hægt hefur verið að elta.
Það hefur verið kallað eftir svörum
við öllum spurningum sem fólk hefur
eins og tækifæri hafa verið til.“ Björn
segir hins vegar að eitt sé að stunda
rannsóknina, og annað að draga
ályktun af henni. „Lögin eru það óná-
kvæm og það er það mikið af mögu-
leikum til að túlka hluti þröngt eða
vítt, þannig að niðurstaðan sem fólk
kemst að þarf ekki að vera eins vönd-
uð og undirbúningurinn, en það er
mjög erfitt að benda á það og segja
það rangt á sama tíma, þannig að það
verður mjög áhugavert að sjá hver
niðurstaðan verður.“
Morgunblaðið/Eggert
Nefndarstörf Svandís Svavarsdóttir og Hanna Katrín Friðriksson, fulltrúar VG og Viðreisnar í nefndinni, voru með
í för í Borgarnesi. Vinna undirbúningskjörbréfanefndar er komin langt á veg og gagnaöflun því sem næst lokið.
Rannsóknarvinna Birgir Ármannsson, formaður nefndarinnar, tók þátt í
að lyfta kössum með kjörgögnum svo nefndin gæti farið yfir gögnin.
Vettvangsferð Nefndin fór yfir nokkur atriði um frágang kjörgagna í
þriðju ferð sinni til Borgarness. Voru kjörgögnin geymd í plastkössum.
Vettvangsferð leiddi í ljós ákveðin frávik
- Nefndin ætti að
vera komin með
allt sem liggur fyr-
ir í kosningamálinu
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hreyfingar jarðfleka á Suðurlands-
brotabeltinu eru sennileg skýring á
jarðskjálfta sem varð kl. 13:20 í gær
og átti upptök sín við Vatnafjöll, um 8
kílómetra suður af Heklu. Að styrk
mældist skjálftinn 5,2. Um klukkan 18
höfðu rúmlega 150 eftirskjálftar
mælst, sá stærsti 2,7 að stærð.
Að sögn Veðurstofunnar varð
skjálftinn austast á Suðurlandsbrota-
beltinu sem er um 70 km langt þver-
brotabelti sem teygir sig frá Hengli
austur að Vatnafjöllum. Veðurstofan
mun þó vakta virkni í Heklu sérstak-
lega vel í kjölfar skjálftans en Magnús
Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðing-
ur sagði við mbl.is í gær að engin
ástæða væri til að tengja hann við
Heklugos.
Drunur og mikill hávaði
Jarðskjálftinn fannst víða á Suður-
og Vesturlandi, m.a. á höfuðborgar-
svæðinu og í Vestmannaeyjum. Við
Laugarvatn, í um 60 kílómetra fjar-
lægð frá Heklu, fann fólk fyrst þyt í
lofti og greindi þá hvað verða vildi.
„Hávaðinn var mikill,“ sagði Kristín
Sigfúsdóttir, skólastjóri grunnskólans
á Hellu. „Ég var á gangi í skólabygg-
ingunni þegar drunurnar komu og svo
hristist húsið. Nei,
ég var ekki hrædd
en óneitanlega var
mér brugðið. Eng-
ar skemmdir urðu
í skólanum né
annars staðar þar
sem ég þekki til. Í
skóladagheimilinu
okkar voru krakk-
ar að byggja turn
úr spýtukubbum
sem var um einn metri á hæð. Kastali
krakkanna haggaðist ekki.“
Daníel Svanur Ólafsson, bóndi á
Guttormshaga í Holtum, var á ferð í
bíl milli húsa þegar skjálftinn reið yfir
„Þetta stóð í fimm sekúndur eða svo.
Strax var ljóst að þetta væri jarð-
skjálfti sem ég get best lýst með þeim
orðum, að hér væri eins og einhver
stæði á afturstuðaranum á bílnum og
stappaði þar niður fótum. Þegar
skjálftinn var afstaðinn leit ég út í fjós
eftir kúnum sem voru mjög rólegar.
Annars eru dýr alltaf mjög næm fyrir
náttúruhamförum: ég man að í Suður-
landsskjálftanum mikla 17. júní árið
2000, sem átti upptök sín hér skammt
frá, fóru kýrnar að hlaupa áður en fólk
fann skjálftann.
„Auðvitað fór hrollur um fólk,“
sagði Hrafnhildur Ágústsdóttir á
Stöðulfelli í Gnúpverjahreppi. Hún
starfar í Þjórsárskóla við Árnes, þar
sem kennsla var í fullum gangi þegar
allt skalf svo hressilega. Skólastarfið
raskaðist þó ekkert og ekkert
skemmdist. Heima í Stöðulfelli var
Oddur Bjarnason, eiginmaður Hrafn-
hildar, og hann varð einskis var.
Fjallið er undir feldi
Um 30 km eru í beinni loftlínu frá
Heklu að Stöðulfelli. „Hekla blasir
héðan við og eftir svona hristing horf-
um við auðvitað meira en aðra daga til
fjallsins. Þó er Hekla duttlungafull.
Fjallið hefur í dag verið sveipað skýja-
teppi, rétt eins og hún liggi undir feldi
og leggi á ráð um stærri hluti,“ segir
Hrafnhildur.
Umbrot við
Heklu ekki
tengd eldgosi
- Jarðskjálfinn 5,2 - Þytur í loftinu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Undir feldi Sérstaklega verður fylgst með virkni í Heklu vegna jarðskjálftans sem varð skammt frá fjallinu í gær.
Jarðskjálftar sunnan Heklu
Skjálfti að stærð 5,2 varð í
gær kl. 13:21 í Vatnafjöllum
um 7,5 km suður af Heklu.
Hvolsvöllur
Hella
Hekla
FLJÓTSHLÍÐ
RANGÁRVELLIR
VESTUR-LANDEYJAR
1
G
ru
n
n
ko
rt
/L
o
ft
m
yn
d
ir
eh
f.
Kristín
Sigfúsdóttir
Hrafnhildur
Ágústsdóttir
Daníel Svanur
Ólafsson