Morgunblaðið - 12.11.2021, Page 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2021
Símamynd Hún er líklega ekki að senda mynd til Reuters þessi kona sem heimsótti Ísland, heldur að mynda bæði sjálfa sig og fagurt umhverfið sem blasir við hvarvetna.
Eggert
Leiðtogar ríkja heims funda nú
á COP26-ráðstefnunni í Glasgow.
Ráðstefnan fer fram í skugga nýj-
ustu skýrslu milliríkjanefndar
Sameinuðu þjóðanna um loftslags-
mál (IPCC), þar sem skýrt kemur
fram hve brýnt er að grípa til taf-
arlausra aðgerða til að takast á við
þær áskoranir sem við okkur blasa
á heimsvísu vegna loftslagsbreyt-
inga.
Ekkert ríki getur eitt og sér
tekist á við þau grænu umskipti
sem okkar bíða og því verðum við
að vinna saman sem heild og læra
hvert af öðru. Í þeim anda var Ís-
landsheimsókn hans konunglegu
hátignar Friðriks, krónprins Dan-
merkur, sem kom í síðasta mánuði
ásamt utanríkisráðherra Dan-
merkur og fulltrúum tíu fyrirtækja
frá Danmörku og Grænlandi á
sviði grænnar tækni og nýsköp-
unar. Heimsóknin nýttist vel til að
miðla danskri þekkingu og draga
um leið lærdóm af reynslu ís-
lenskra fyrirtækja sem hafa sér-
hæft sig í grænum lausnum. Okkar
sameiginlega sýn um sjálfbæra
framtíð krefst þess að við samein-
umst um leiðir fram á við. Þetta
kallast vel á við áherslur ríkjanna
tveggja, Danmerkur og Íslands, á
að vera í fararbroddi grænna orku-
skipta og umbreytinga þar sem ný-
sköpun og hugvit á þessu sviði get-
ur – og mun varða leiðina að
sjálfbærri framtíð.
Það er staðreynd að við verðum
að draga úr losun. Ríki heims
verða að sýna skýran vilja til að
setja sér metnaðarfyllri markmið
um að draga úr losun gróðurhúsa-
lofttegunda. Ef okkur verður á í
þeirri vegferð blasir við nýr veru-
leiki þar sem fást þarf við áskor-
anir vegna hækkandi hitastigs,
hækkunar sjávarborðs, tíðari og
alvarlegra þurrkatíða, með fleiri
hitabylgjum og stormum á heims-
vísu. Á norðurslóðum er bráðnun
jökla hraðari en nokkru sinni fyrr
og hér á Íslandi eru aurskriður að
verða sífellt alvarlegri ógn.
Danmörk hefur skuldbundið sig
til að draga úr losun gróðurhúsa-
lofttegunda um 70% fyrir árið 2030
og stefnir Ísland að því að vera
kolefnishlutlaust árið 2040. Við
teljum að þessi markmið séu ekki
aðeins nauðsynleg, heldur einnig
raunsæ. Dönsk og íslensk fyrir-
tæki munu gegna lykilhlutverki í
vegferð ríkjanna til að ná þessum
markmiðum. Atvinnulífið býr yfir
reynslu og þekkingu til að um-
breyta heiminum með nýsköpun á
sviði í grænnar tækni. Dönsk og ís-
lensk fyrirtæki hafa nú þegar upp
á að bjóða framsæknar og háþró-
aðar orkulausnir, svo sem á sviði
vinnslu og notkunar á jarðvarma-,
sólar-, vind-, líf- og vatnsaflsorku
og hitaveitna. Þessi þekking var
ekki byggð upp af kvöð á atvinnu-
lífið, heldur felast tækifæri í ný-
sköpun á sviði sjálfbærni og um-
hverfisvænnar tækni, sem helst í
hendur við þörfina fyrir græn
orkuskipti, bæði hjá ríkjunum
tveimur sem og á heimsvísu.
Við stöndum frammi fyrir þeim
áskorunum að þurfa að reisa
mannvirki og innviði sem geta
staðið af sér öfgar í veðurfari, þróa
ræktun matvæla á þá vegu að þau
þoli veðurfarsbreytingar og bæta
veðurspálíkön til að gera ráð fyrir
meiri öfgum í veðurfari. Þessi
tækifæri skapa jafnt tekjur og
störf fyrir byggðarlög en á sama
tíma leggja þau sitt af mörkum til
að innleiða bæði innlend sem og al-
þjóðleg loftslagsmarkmið.
Samstarfsverkefni opinberra að-
ila og einkaaðila er lykill að græn-
um umskiptum. Árangursríkt sam-
starf stjórnvalda sem fara með
ákvörðunarvald annars vegar og
iðnaðar hins vegar stuðlar að
lausnum á sviði loftslagsmála og
sjáum við þess dæmi hjá bæði
State of Green í Danmörku og
Grænvangi á Íslandi. Slíkt sam-
starf er nauðsynlegt til að takast á
við sameiginleg viðfangsefni þess-
ara aðila á vettvangi grænna orku-
skipta þó að hlutverk aðila séu
ólík.
Tíminn er lykilþáttur ef við ætl-
um að láta gott af okkur leiða og
tryggja núlifandi og komandi kyn-
slóðum sjálfbært samfélag og um-
hverfi. Heimsókn dönsku sendi-
nefndarinnar til Íslands í liðnum
mánuði var mikilvægt fyrsta skref
í samvinnu þessara þjóða á því
sviði.
Í ljósi langrar sögu og arfleifðar
þjóðanna beggja erum við vongóð
um að sjá þessi samskipti þróast
yfir í samfellt og stöðugt samtal á
vettvangi stjórnvalda sem og fyr-
irtækja og þannig stuðla að enn
sterkari tengslum og samstarfi Ís-
lands og Danmerkur á vettvangi
grænna lausna og orkuskipta.
Eftir Kirsten Geelan,
Sigurð Hannesson og
Pétur Þ. Óskarsson
Sigurður Hannesson
Kirsten Geelan er sendiherra
Danmerkur á Íslandi, Sigurður
er framkvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins og Pétur er fram-
kvæmdastjóri Íslandsstofu.
Danmörk og Ísland í fararbroddi grænnar umbyltingar
Kirsten Geelan Pétur Þ. Óskarsson
» Okkar sameiginlega
sýn um sjálfbæra
framtíð krefst þess að
við sameinumst um leið-
ir fram á við.