Morgunblaðið - 12.11.2021, Side 8

Morgunblaðið - 12.11.2021, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2021 Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri má eiga það að honum verður ekki hnikað og lætur jafnvel ekki staðreyndir slá sig út af laginu. Hann hélt því nýlega fram að bank- arnir bæru ábyrgð á slæmu ástandi á fasteignamarkaði í Reykjavík. Þeir hefðu „skrúfað fyrir“ lánveitingar til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis og þess vegna væri skortur á húsnæði í Reykjavík og svimandi hátt fasteignaverð. - - - Í framhaldi af þessari fullyrðingu kom fram úttekt hagfræðings hjá Seðlabankanum um útlán banka til byggingargeirans og þar sagði að útlánin hefðu fremur aukist en dregist saman sem staðfesti mót- mæli bankanna sjálfra vegna full- yrðingar borgarstjóra. - - - Borgarstjóri lét þetta ekki á sig fá og sagðist í svari til Morg- unblaðsins standa við fullyrðingu sína. „Rakalaust“ væri að lóða- skorturinn hækkaði fasteignaverð. - - - Staðreyndin er sú að meirihlut- inn í borginni vill ekki bjóða nema ákveðna gerð af íbúðar- húsnæði, þá gerð sem kostar mikið og tekur langan tíma að byggja. Þetta stafar af þéttingarstefnunni sem allir utan meirihlutans í borg- inni hafa áttað sig á að veldur lóða- skorti og stórhækkuðu fast- eignaverði. - - - En lögmál um framboð og eft- irspurn eða tölur um útlán banka skipta borgarstjóra ekki máli. Miklu þægilegra að kenna bönkunum um að hafa „skrúfað fyr- ir“ en að taka ábyrgð á eigin mis- tökum. Og það kemur vitaskuld ekki til greina að víkja af markaðri leið þó að hún leiði út í kviksyndi. Dagur B. Eggertsson Höfði barið við staðreyndir STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Sigrún Pálsdóttir er ein þeirra rithöfunda sem tóku á mótu Bókmenntaverðlaunum Evrópusam- bandsins ár en verðlaunin hlaut hún fyrir skáld- söguna Delluferðina sem kom út fyrir tveimur ár- um. Verðlaunaafhending fór fram í Brussel þar sem tíu rithöfundar veittu verðlaununum viðtöku. Í Delluferðinni segir frá stúlku í Skagafirði sem þráir það heitt að komast af heimilinu og til mennta. Í leiðinni fjallar sagan frá því hvernig menningarverðmæti verða til, enda kemur við sögu íslenskur forngripur, beltissproti, sem kemst í eigu Metropolitan-safnsins í New York. Í umsögn dómnefndar verðlaunanna er Dellu- ferðin sögð skrifuð af listfengi höfundar sem hefur náð gríðarlegu valdi á bæði formi og stíl. Hér er „ekki á ferðinni hefðbundin þroskasaga heldur er miskunnarlaust snúið upp á allar hefðir. Frásögn- in er knöpp, engu er ofaukið og hálfkveðnar vísur æsa upp lyst lesandans sem þarf að hafa sig allan við til þess að halda í við söguna sem rúllar áfram án afláts, nemur aldrei staðar.“ Þá er verkið sagt „í senn frumlegt og nútímalegt en um leið afskap- lega aðgengilegt og skemmtilegt“. Sigrún hlaut evrópsk verðlaun - Verðlaunuð fyrir skáld- sögu sína Delluferðina Virt Sigrún veitti hinum virtu bókmenntaverð- launum viðtöku við athöfn í Brussel. Framsækni og sköpun voru meðal þátta sem horft var til við val á þeim sem fengu Íslensku mennta- verðlaunin sem afhent voru við há- tíðlega athöfn nú í vikunni af Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands. Verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur fékk Leikskólinn Aðalþing í Kópa- vogi. Hanna Rún Eiríksdóttir, kennari við Klettaskóla í Reykjavík, fékk verðlaun fyrir framúrskarandi kennslu nemenda með fötlun, meðal annars fyrir að þróa nýjar leiðir til tjáskipta. Í umsögn dómnefndar sagði að Hanna legði sig eftir að þróa m.a. rafrænar lausnir fyrir nemendur til tjáskipta Annar flokkur verðlauna er Framúrskarandi þróunarverkefni. Þau féllu í skaut Nönnu Kr. Christi- ansen sem hefur þróað svonefnt leiðsagnarnám við skóla- og frí- stundasvið Reykjavíkur. Megin- tilgangur þess er að bæta árangur nemenda með því að gera þeim kleift að taka aukna ábyrgð á eigin menntun. Loks ber að nefna hvatningar- verðlaun en þau fékk Vilhjálmur Magnússon, forstöðumaður Vöru- hússins, sem er miðstöð skapandi greina á Hornafirði. „Vöruhúsið er einstakur vettvangur til kennslu í nýsköpun list- og verkgreina á öll- um skólastigum. Þar er boðið upp á formlegt og óformlegt nám í hand- verki, hönnun og hugmyndavinnu þar sem lögð er áhersla á þverfag- lega samvinnu,“ segir í tilkynningu. Menntaverðlaun veitt Menntaverðlaunin Verðlaunahafarnir, ráðherra og forseti Íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.