Morgunblaðið - 12.11.2021, Page 11

Morgunblaðið - 12.11.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2021 B E R N H A R Ð L A X D A L Skipholti 29b • S: 551 4422 TRAUST Í 80 ÁR Tilboðs- dagar 20% afsláttur af völdum vörum LAXDAL ER Í LEIÐINNI – Laxdal.is Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ákvæði stjórnunar- og verndar- áætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs um takmörkun á hreindýraveiðum og griðland hreindýra við Snæfell standast ekki að mati hæstaréttar- lögmanns. Hann bendir á að þessi ákvæði séu ekki í samræmi við rétt- hærri réttarheimild en áætlunin er. Vatnajökulsþjóðgarður getur því ekki byggt ákvarðanir á slíkum reglum, samkvæmt lögfræðiáliti Sóknar lögmannsstofu á Egils- stöðum. Sama á við um ákvæði stjórnunar- og verndaráætlunar- innar sem banna hreindýraveiðar innan þjóðgarðsins fyrir 15. ágúst ár hvert. Jón Jónsson hæstaréttar- lögmaður skrifar undir álitið. Hann kveðst telja að veiðar sem færu fram í andstöðu við stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökuls- þjóðgarðs væru refsilausar. Ekkert refsiákvæði sé í stjórnunar- og verndaráætluninni. Refsiheimildir varðandi brot á lögum og reglugerð um þjóðgarðinn vísi ekki til brota á stjórnunar- og verndaráætluninni. Nauðsynlegt að fá niðurstöðu Félag leiðsögumanna með hrein- dýraveiðum (FLH) aflaði lögfræði- álitsins. Fulltrúar FLH áttu fund með svæðisráði austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs á miðviku- dag. Jón Hávarður Jónsson, for- maður FLH, segir nauðsynlegt að fá úr því skorið hvort takmarkanir á hreindýraveiðum innan þjóðgarðs- ins standist. Í erindi FLH til svæðisráðs austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs kemur m.a. fram að FLH vill að al- mennt verði leyft að veiða hreindýr á öllu austursvæðinu. Leiðsögumennirnir segja að um- ræddar takmarkanir þjóðgarðsins hafi skapað mikla erfiðleika við hreindýraveiðar á veiðisvæði 2 á liðnu hausti líkt og flest ár síðan bannið var sett á. Í haust varð bannið til þess að fjöldi veiðiferða misheppnaðist. Veiðimenn sem höfðu keypt hreindýraveiðileyfi af Umhverfisstofnun gátu ekki veitt vegna þessara takmarkana. FLH sendi svæðisráðinu beiðni 25. ágúst sl. og óskaði eftir því að veiðibannið yrði tafarlaust numið úr gildi. Engin svör bárust fyrir lok veiðitímans 20. september. Leið- sögumennirnir telja að griðlandið við Snæfell raski í raun markmiðum um sjálfbærar hreindýraveiðar á grunni heildstæðrar veiðistjórn- unar. Þeir kalla eftir samfelldu skipulagi hreindýraveiða hjá þeim stofnunum sem heyra undir um- hverfisráðuneytið. Málið sett í forgang Í fundargerð svæðisstjórn- arinnar kemur fram að málið sé komið í forgang innan þjóðgarðsins. „Óskað hefur verið eftir umsögnum Náttúrufræðistofnunar Íslands, Umhverfisstofnunar, hreindýra- ráðs og Náttúrustofu Austurlands. Fundað hefur verið með Umhverf- isstofnun og fulltrúum Skotvís og fleiri fundir í bígerð. Þegar um- sagnir liggja fyrir mun svæðisráð taka afstöðu til þess hvort það legg- ur til við stjórn þjóðgarðsins að breytingar verði gerðar á ákvæðum stjórnunar- og verndaráætlunar um veiði á austursvæði þjóðgarðsins við Snæfell.“ Einar Haraldsson, fulltrúi SAM- ÚT í svæðisráðinu, lagði fram bók- un um að allar takmarkanir á veið- um yrðu felldar út úr stjórnunar- og verndaráætluninni. Hann bendir á að sérstök lög gildi um veiðar sem gangi framar og veiti þjóðgarðinum ekki lagaheimild til að skerða veið- ar frekar. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hreindýr Veiðimenn sem keyptu hreindýraveiðileyfi á svæði 2 af Umhverf- isstofnun gátu margir ekki veitt þótt mörg dýr væru á griðasvæðinu. Morgunblaðið/RAX Griðasvæði Sporður Eyjabakkajökuls fremst og frá honum rennur Jökulsá í Fljótsdal. Snæfell til vinstri og Þjófa- dalir þar fyrir innan. Horft yfir Eyjafell og Þjófagilsflóa. Hreindýraveiðar voru bannaðar á svæðinu. Mynd frá 1999. Telur griðasvæðið ekki standast lög - Leiðsögumenn með hreindýraveiðum fengu lögfræðiálit - Þjóðgarður takmarkar hreindýraveiðar Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Hvorki verða innheimt veiðigjöld vegna loðnu sem veidd er á árinu 2021 né loðnu sem veidd er á næsta ári. Ástæðan er að viðmiðunarár álagn- ingarinnar var loðnubrestur og engin loðna veidd. Tæplega 700 þúsund tonn af loðnu kunna því að vera veidd á tímabilinu 1. janúar 2021 til 31. des- ember 2022 án þess að útgerðarfélög greiði nokkuð í veiðigjöld. Þetta kemur fram í svari Skattsins við fyrirspurn blaðamanns. Þar segir að það sé í verkahring ríkisskatt- stjóra að gera tillögu um fjárhæð veiðigjalds fyrir komandi ár til þess ráðherra sem fer með sjávarútvegs- mál eigi síðar en 1. desember. Engin veiði – ekkert gjald Fjallað var um í Morgunblaðinu á miðvikudag að ekkert veiðigjald yrði lagt á vegna loðnu árið 2021 vegna þess að þorskígildisstuðullinn væri 0,00 en að hærri gjöld yrðu innheimt á næsta ári þar sem stuðullinn mun hækka í 0,36 á næsta ári. Rétt er að vekja athygli á að þessar forsendur ákvarðana veiðigjalds eru rangar og þvældist fyrir blaðamanni flókið fyrirkomulag veiðigjalda. Leiðrétting á þessu fékkst með ít- arlegri skýringu frá Skattinum á út- reikningi veiðigjalda sem byggist á upplýsingum úr ársreikningum út- gerðarfyrirtækja. „Útgerðaraðilar og rekstraraðilar íslenskra fiskiskipa skila með skattframtali sérstakri greinargerð um tekjur og kostnað af veiðum fiskiskipa og úthaldi þeirra, sundurgreint á einstök fiskiskip. Út- reikningur á veiðigjaldi er byggður á þessum greinargerðum, eftir atvikum með leiðréttingum ríkisskattstjóra. Útreikningur á veiðigjaldi fyrir árið 2022 byggist á greinargerðum sem fylgdu framtölum útgerðaraðila 2021 vegna rekstrarársins 2020. Þar sem engin loðna var veidd á árinu 2020 er ekkert veiðigjald reikn- að á loðnu fyrir árið 2022. Ekkert veiðigjald var heldur lagt á loðnu árið 2021 þar sem engin loðna veiddist ár- ið 2019,“ segir í svari Skattsins. Á hvert veitt kíló Álagning veiðigjalda hvað varðar innheimtu er sett á hvert veitt kíló og tekur mið af afkomu greinarinnar af veiðunum sem áttu sér stað tveimur árum fyrr. Þannig er í tilfelli loðnu, þar sem afkoman var engin vegna engra veiða er viðmiðunin engin. Hins vegar mun árið 2023 verða miðað við mikla afkomu veiðanna 2021 en þá voru markaðsaðstæður einstaklega góðar. Nú þykir flest benda til ágætrar loðnuvertíðar 2023 en ef loðnubrestur yrði á ný yrðu engin veiðigjöld inn- heimt þar sem veiðigjöldin eru inn- heimt af hverju lönduðu kílói. Þannig gæti ríkissjóður orðið af tekjum af veiðigjaldi á þessum uppsjávarstofni. En kerfið skapar einnig áhættu fyrir útgerðina sem gæti staðið frammi fyrir lágu markaðsvirði loðnuafurða 2023 þegar veitt verður talsvert magn en sitja uppi með veiðigjald sem tekur mið af háu markaðsverði þegar mun minna var veitt árið 2021. Við slíkar aðstæður yrðu tekjur ríkissjóðs mun meiri en ef álagningin myndi miða við það magn sem veitt var árið sem er til viðmiðunar. Tæplega 700 þúsund tonn án veiðigjalds - Engin veiðigjöld verða lögð á loðnu árin 2021 og 2022 Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Veiðar Vertíðin verður vegleg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.