Morgunblaðið - 12.11.2021, Side 13

Morgunblaðið - 12.11.2021, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2021 Klerkastjórnin í Íran er um þessar mundir að senda þúsundir flótta- manna frá Afganistan aftur heim. Fólkið flýði á sínum tíma undan stríðsátökum í landinu og vegna ástandsins sem nú er þar eftir valdatöku talíbana blasir fátt annað við því við heimkomuna en atvinnu- leysi og matarskortur. Hjálpar- samtök segja að margir flóttamann- anna hafi verið beittir harðræði við brottflutninginn. Meðan á stríðsátökum undanfar- inna áratuga stóð flúðu milljónir Afgana til nágrannalandanna, eink- um Írans.Valdataka talíbana í ágúst síðastliðnum hefur aukið á vanda- málin í landinu. Hún hefur truflað alþjóðlega neyðaraðstoð á sama tíma og gífurlegir þurrkar hafa leitt til að við stórum hluta þjóðarinnar blasir nú bráður matarskortur. Þrátt fyrir að írönskum stjórn- völdum sé fullkunnugt um þetta ástand halda þau áfram að þvinga afgönsku flóttamennina til að fara heim. Nokkrir flóttamenn sem AFP-fréttastofan náði tali af sögð- ust vera í haldi í yfirfullum flótta- mannabúðum þar sem mjög skorti á hreinlæti. Sumir sögðust hafa sætt barsmíðum íranskra her- manna. „Þeir koma ekki fram við okkur eins og manneskjur,“ sagði einn flóttamannanna, hinn 19 ára gamli Abdul Samad sem kvaðst hafa unn- ið í byggingarvinnu í Írak áður en hann var rekinn úr landi. Samad sagði að hermenn hefðu barið hann, bundið um hendur hans og fyrir augu þegar í ljós kom að hann var ekki með fé á sér til að borga fyrir brottflutninginn. AFP Nauðung Tugþúsundir afganskra flóttamanna í Íran reknar á brott. Nauðungarflutn- ingar frá Íran - Tugþúsundir Afgana reknar úr landi Tollverðir í Kristiansand í Noregi fundu mesta magn fíkniefna, sem nokkru sinni hef- ur fundist innan þess tollumdæm- is, þegar þeir framkvæmdu leit í bifreið, sem kom með ferj- unni MS Stav- angerfjord frá Hirtshals í Dan- mörku í mars, en tollgæslan greindi frá málinu í dag. Tvennt var í bifreiðinni, karl- maður og kona, en í kjölfar lög- reglurannsóknar liggur þriðja manneskjan einnig undir grun í málinu, sem kom upp þegar fíkni- efnahundur tollgæslunnar sýndi bifreiðinni áhuga. Við margra klukkustunda leit fundust 170.890 ótilgreindar töflur í bifreiðinni, sem tollgæsla tiltekur þó að séu fíkniefni, 2,6 kílógrömm af keta- míni, eitt kíló af hassi og fjögur grömm af amfetamíni. NOREGUR Stærsta fíkniefna- mál tollgæslunnar Smygl Hluti efn- anna sem toll- gæslan fann. Subway- skyndibitakeðjan í Kaliforníu á í vök að verjast fyrir dómi í San Francisco eftir að viðskiptavinir stefndu henni fyrir svik og brot á neytendalög- gjöf með því að selja túnfisk- salat, sem sagt er innihalda flest annað en túnfisk, svo sem kjúkling, svína- og nautakjöt. Byggir mála- tilbúnaður stefnenda á DNA- rannsókn sjávarlíffræðings á sýn- um frá 20 Subway-stöðum í Suður- Kaliforníu, en 19 þeirra reyndust ekki innihalda snefil af erfðaefni túnfisks. Stjórnendur Subway í Kaliforníu sverja af sér og kalla málsóknina „illa ígrundaða og óvið- eigandi“. KALIFORNÍA Flest önnur dýr en túnfiskur í salatinu Subway Margt býr í salatinu. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Alexander Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands, hótaði því í gær að láta skrúfa fyrir Yamal-gasleiðsluna til Vestur-Evrópu ef Evrópusam- bandið (ESB) grípur til frekari refsi- aðgerða gegn stjórn hans. Búist er við hertum aðgerðum ESB gegn Hvítrússum í byrjun næstu viku. Gasið sem um ræðir kemur frá Rússlandi og liggja leiðslur um Hvíta-Rússland. Tvær rússneskar herþotur voru í gær á flugi við landamæri Hvíta- Rússlands og Póllands. Eru ráða- menn í Moskvu þannig að sýna bandamönnum sínum í Minsk stuðn- ing í flóttamannadeilunni við Pólland og ESB. Óljóst er þó hvernig Rússar myndu bregðast við því að gasflutn- ingar yrði truflaðir. Salan á gasinu er mikilvæg tekjulind þeirra. Samtal Angelu Merkel kanslara Þýskalands og Pútíns forseta Rúss- lands virðist ekki hafa borið neinn árangur til að leysa deiluna um flóttamennina. Þúsundir flótta- manna frá Mið-Austurlöndum hafast við á ýmsum stöðum við landamæri Póllands Hvíta-Rússlandsmegin í von um að komast til Vestur-Evrópu. Hafa stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi greitt götu þeirra að landamærunum til að hefna fyrir efnahagslegar refsi- aðgerðir ESB sem til eru komnar vegna mannréttindabrota í Hvíta- Rússlandi. Pólverjar saka Rússa um þátttöku í aðgerðum Hvítrússa. Ekki er vitað hver heildarfjöldi flóttafólksins við landamærin er, en talið er að þúsundir manna séu á svæðinu. Kalt er í veðri enda vetur að ganga í garð og aðeins þunn tjöld sem skýla fólkinu, þar á meðal fjölda barna. Matarskortur er líka í upp- siglingu. Hjálparsamtök í Póllandi hafa reynt að aðstoða flóttafólk sem komist hefur yfir landamærin en pólskir lögreglumenn og landa- mæraverðir handsama umsvifalaust alla flóttamenn sem þeir finna og senda til baka. Hótar að skrúfa fyrir gasið - Forseti Hvíta-Rússlands boðar harkaleg viðbrögð við refsiaðgerðum ESB - Engin lausn í sjónmáli fyrir flóttafólk við landamæri Póllands og Hvíta-Rússlands AFP Flóttamenn Gaddavír og vopnaðir verðir mæta fólkinu á landamærunum. Mikil gleði ríkti í Altstadt, gamla bænum í Köln í Þýskalandi, í gær þegar kjötkveðjuhátíðartímabilið hófst. Það er gamall siður að hefja hátíðina svo snemma og stendur hún fram í mars, með löngum hléum þó. Þráðurinn verður tekinn upp í janúar á næsta ári og síðan með frekari hléum allt fram á ösku- dag. Vegna Covid-faraldursins er eng- um hleypt inn á hátíðarsvæðið nema viðkomandi hafi verið bólusettur eða sé stiginn upp úr veikindunum. Karnivalið er að venju afar lit- skrúðugt og með fjölbreyttum skemmtiatriðum. Skrúðgöngur eru meðal annars farnar með söng og dansi. Þá skipar bjórdrykkja stóran sess í hátíðarhöldunum. Mikil gleði á karnival- inu í Köln AFP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.