Morgunblaðið - 12.11.2021, Side 32

Morgunblaðið - 12.11.2021, Side 32
STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU EIN ALLRA BESTA HEILSUDÝNA Í HEIMI FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM ER KOMINN Í HÚS DURANCE JÓLAILMUR 2021 MODULAX HÆGINDA- STÓLAR RAFSTILLANLEGIR HLEÐSLUSTÓLAR – FALLEG HÖNNUN OG ÞÆGINDI NÝ SENDING Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Tíu ár eru nú liðin frá útkomu hinnar vinsælu plötu Mugisons, Haglél. Af því tilefni taka tónlistarhópurinn Cauda Collective og Mugison höndum saman og flytja á nokkrum tónleikum öll lögin á plöt- unni í nýjum útsetningum fyrir klass- ísk hljóðfæri sem unnar voru af hljóð- færaleikurunum ásamt Mugison sjálf- um. Fyrstu tónleikarnir verða á Græna hattinum á Akureyri í kvöld og annað kvöld. Síðan verða þrennir tón- leikar í Bæjarbíói í Hafnarfirði í næstu viku, 17., 19. og 20. nóvember. Í Cauda Collective eru Sigrún Harð- ardóttir á fiðlu, Þóra Margrét Sveinsdóttir á víólu, Þórdís Gerður Jónsdóttir á selló, Borg- ar Magnason leikur á bassa, Grímur Helgason á klarínettu og Matthías Hemstock slagverk. Mugison og Cauda Collective flytja lögin af hinni tíu ára plötu Hagléli FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 316. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Ungt og lítt reynt lið Íslands kom á óvart í Búkarest í gær og var nálægt því að leggja Rúmeníu að velli þegar undankeppni EM kvenna í körfuknattleik hófst. Rúm- enía náði þó að landa sigri eftir jafnan og spennandi leik. Ísland var án Helenu Sigurðardóttur og Hildar Bjargar Kjartansdóttur sem eru meiddar en þær hafa verið atkvæðamestu leikmenn liðsins síðustu árin. Oft er sú lýsing notuð að ungum liðum sé teflt fram í íþróttum. Átti það vel við í gær því meðalaldurinn í landsliði Íslands var innan við 23 ár. »27 Ungt lið Íslands kom á óvart gegn Rúmeníu en tapaði naumlega ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Klifursamband Íslands er nýjasta sambandið í Íþróttasambandinu, stofnað 27. september síðastliðinn, og er mikill hugur í félagsmönnum, en fjórða og síðasta mótið í Íslands- meistaramótaröðinni í grjótglímu 2021 hefst í Klifurhúsinu, Ármúla 23 í Reykjavík, í dag. „Nú höfum við ákveðið regluverk til þess að leita í, verðum hluti að Alþjóðasambandi klifursambanda og auðveldara verður fyrir okkur að taka þátt í stórmótum erlendis, eins og Evrópumeistaramótum,“ segir Manuela Magnúsdóttir, formaður Klifursambandsins. „Eitt af lang- tímamarkmiðunum er að vera með á Ólympíuleikunum, en helsta mark- miðið er að breiða út klifurboðskap- inn og kynna almenningi þetta frá- bæra samfélag og íþróttina.“ Nýkjörinn formaður segir að um 1.500 manns iðki klifur í sex félögum innan KÍ. Flestir séu í Klifurfélagi Reykjavíkur en mikil gróska sé í klifrinu í Hafnarfirði (Björk klifur), á Akranesi (ÍA klifur), í Grundar- firði (Kliffell), á Laugarvatni og hjá Klifurfélagi Öræfa, sem er með að- stöðu í Káraskjóli í Freysnesi. Verið sé að byggja klifurhús á Hjalteyri, Mývatni og í Stykkishólmi auk þess sem áhugi sé á að koma upp aðstöðu á Ísafirði og víðar. „Klifur er ekki aðeins fyrir útvalda íþróttamenn í toppformi heldur er þetta kjörin íþrótt fyrir allan almenning, barna- og unglingastarfið er öflugt hjá okk- ur og foreldrarnir hrífast með,“ seg- ir Manuela og áréttar að iðkendum fari fjölgandi um allt land. Skipulagt klifur í áratugi „Klifur sem íþrótt hófst að ein- hverju ráði hérlendis um 1980,“ bendir Manuela á. Aukinn þungi hafi færst í starfið um 1990 og Björn Baldursson, Árni Gunnarsson og Jökull Bergmann hafi opnað Vektor, fyrsta klifurhúsið, 1997. „Klifurfélag Reykjavíkur var stofnað 2002 og Klifurhúsið svo opnað 2003, en síðan höfum við flutt einu sinni og stöðug fjölgun iðkenda er að sprengja allt utan af sér í núverandi aðstöðu í Ár- múlanum.“ Manuela byrjaði að stunda íþrótt- ina 2009. Hún hefur fjórum sinnum orðið Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari í grjótglímu, sem stunduð er bæði úti og inni með dýnu undir. Í kletta- eða línuklifri, þar sem farin er lengri leið, eru klifrarar í öryggisfesti og boltar eða tryggingar í veggnum. „Þetta er skemmtilegt sport sem hreinsar hugann, maður hugsar ekki um neitt annað en klifrið meðan á því stendur,“ segir Manuela og bætir við að allir finni áskoranir við hæfi. „Ég er í fámennum hópi íslenskra kvenna sem hafa klifrað mjög erf- iðar línuklifurleiðir utandyra, en til að geta það þarf viðkomandi að vera með góðan fingrastyrk, góða tækni og í mjög góðri almennri klifur- þjálfun.“ Í liðinni viku tók unglingalandslið Íslands þátt í Norðurlandamótinu í Lillehammer í Noregi og er reynsl- unni ríkara, að sögn Elmars Orra Gunnarssonar fararstjóra. Hann var formaður klifurnefndar ÍSÍ, forvera Klifursambandsins, frá stofnun 2018 og er nú ritari sambandsins. „Þetta var frumraun okkar í svona keppni, en til þess að vera samkeppnisfær þurfum við að leggja áherslu á bæði grjótglímu og línuklifur og við vinnum að því.“ Skömmu eftir stofnun KÍ var haldinn fundur í húsakynnum ÍSÍ um framtíðarsýn klifurs á Íslandi. „Yfir 50 manns mættu og fundurinn heppnaðist ótrúlega vel,“ segir Manuela. Þátttakendum hafi verið skipt í vinnuhópa, margar góðar hugmyndir hafi verið ræddar og samstaða verið um að breiða út boð- skapinn. „Klifur er ekki aðeins íþrótt heldur gott samfélag. Við sjáum aftur og aftur að öllum finnst gaman að leika sér og öllum finnst gaman að klifra.“ Alltaf gaman að klifra - Mikil gróska innan nýstofnaðs Klifursambands Íslands Ljósmynd/Jón Viðar Sigurðsson Á Hnappavöllum Manuela klifrar svonefnda Fred Flintstone-leið í Öræfasveit.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.