Morgunblaðið - 13.11.2021, Page 6
Takmarkanir innanlands sem tóku gildi á miðnætti
Í skólastarfi gilda
almennar reglur
um 50 manna
fjöldatakmörk
Starfsfólki í leikskólum er
ekki skylt að nota grímu
Nemendum og kennurum
í framhaldsskólum er
heimilt að taka niður
grímu eftir að sest er
niður inni í skólastofum
1m
Nándarregla verður einn
metrimilli ótengdra aðila
Leikskólabörn og nemendur
í 1. til 4. bekk í grunnskóla
undanþegin 1 metra reglunni
Íþróttir
með snert-
ingu áfram
heimilar hjá
börnum og
fullorðnum
Skylt er að
nota grímu
sé ekki hægt
að virða 1
metra reglu,
s.s. í verslunum,
almennings-
samgöngum
og starfsemi
sem krefst
nándar,
t.d. á hár-
greiðslustofum
Börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin grímuskyldu
75%
Sund-, baðstaðir,
líkamsræktarstöðvar
og skíðasvæði mega
taka á móti 75% af
leyfilegum hámarks-
fjölda gesta sam-
kvæmt starfsleyfi
Óheimilt er að fleiri en 50 komi saman, hvort heldur inni
eða utandyra, í opinberum rýmum eða einkarýmum.
Börn fædd 2016 og síðar teljast ekki með.50 Almennar
fjöldatakmarkanir
50 manns
22:00 Veitingahúsum og öðrum stöðum þar sem áfeng-
isveitingar eru heimilar er óheimilt að hleypa inn
nýjum viðskiptavinum eftir kl. 22.00
Allir gestir eiga að vera farnir hið síðasta kl.23:00.
Vínveitingar skulu aðeins bornar fram til sitjandi gesta
Fjölmennir viðburðir
með notkun
hraðprófa
500 Heimilt er
að halda við-
burði fyrir 500 manns
í hverju sóttvarnahólfi ef
allir gestir fæddir 2015
og fyrr framvísa nei-
kvæðri niðurstöðu úr
hraðprófi semmá ekki
vera eldra en 48 klst.
Ef ekki er hægt að uppfylla 1 metra
reglu skulu gestir bera grímu
Í verslunum og söfnum
gilda almennar reglur um
fjöldatakmörk, 1 metra
reglu og grímuskyldu
FÖ
S
S
A
R
I
2
0
2
0
Heimild: Stjórnarráðið
Guðni Einarsson
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
Unnur Freyja Víðisdóttir
Þorsteinn Ásgrímsson
Hertar sóttvarnaráðstafanir tóku
gildi um miðnætti í nótt. Nú miðast
fjöldatakmarkanir almennt við 50
manns. Hraðpróf gera kleift að efna
til viðburða með allt að 500 manns í
hverju sóttvarnahólfi. Afgreiðslu-
tími veitingastaða var styttur um
klukkustund. Fjöldi gesta sund- og
baðstaða, líkamsræktarstöðva og
skíðasvæða miðast við 75% af há-
marksfjölda.
Aflétting var ekki mistök
Reglugerðin gildir til 8. desem-
ber. Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra kveðst horfa til
þess að smitfjöldi minnki niður í
allavega 40 til 50 smit á dag áður en
ráðist verður aftur í afléttingar.
Hún segir það ekki hafa verið
mistök að ráðast í afléttingarnar í
haust en að erfitt sé að setja fram
framtíðarsýn þar sem aðgerðir
þurfa að miðast við þær aðstæður
sem eru í samfélaginu hverju sinni.
Sést fljótt hvort aðgerðir bíta
„Ég vona að þessar aðgerðir nægi
til að slá á faraldurinn,“ segir Már
Kristjánsson, yfirlæknir smit-
sjúkdómadeildar Landspítalans.
Hann segir það koma fljótt í ljós,
innan næstu viku, hvort aðgerðirnar
skili árangri. Þá skipti máli hvað
kúrfan falli hratt.
Hann segir ljóst að það þurfi að
koma nýgengi úr þessum tæplega
500 og langt niður fyrir 100. Már tel-
ur að fólk eigi að temja sér að vera
áfram með grímu á almannafæri.
„Ef rýnt er í tölur yfir dauðsföll af
völdum kórónuveirunnar til dæmis í
Frakklandi, á Spáni og á Ítalíu, þar
sem venja er að vera með grímu á
almannafæri, að undangengnu hrað-
prófi eða framvísun gilds bólusettn-
ingarvottorðs, þá virðist þessum
þjóðum ganga vel.“
Kröfur um slíkt séu ekki mjög
íþyngjandi og jafnvel hvetjandi til
þess að fólk láti bólusetja sig, svo
það geti farið sem víðast um í sam-
félaginu, að sögn Más. „Ég tel að
það sé mjög skynsamleg ráðstöfun,
það færi þá saman lýðheilsufræðileg
aðgerð annars vegar, með sem
minnstri íhlutun í frelsi borg-
aranna.“
Már á von á því að þessi helgi
verði erfið á Landspítalanum, í ljósi
fjölda greindra kórónuveirusmita.
Hann vonar einnig að fólk mæti í
örvunarbólusetningu.
„Ég held að það breyti svo miklu
bara fyrir okkur sem samfélag. Ef
að líkum lætur þá mun þetta vernda
samfélagið okkar og ef vel tekst til
munum við ekki sjá svona háar ný-
gengistölur og vonandi aldrei aftur.
Ef það gerist að við náum nýgeng-
inu niður og getum viðhaldið því
þannig þá getum við farið að sinna
okkar venjulegu störfum, að sinna
þeim sem eru bráðveikir og lang-
veikir.“
Fjöldabólusetning fer fram
Bólusetningarátak með örvunar-
skammt af bóluefni gegn Covid-19
hefst í Laugardalshöll á mánudag-
inn. Það er fyrir þá sem eru 60 ára
og eldri og þá sem eru með undir-
liggjandi sjúkdóma. Ragnheiður
Ósk Erlendsdóttir, framkvæmda-
stjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, á von á mik-
illi þátttöku.
Hertar samkomutakmarkanir
hafa ekki hafa áhrif á bólusetn-
ingarátakið. Heilbrigðisþjónustan er
undanþegin takmörkununum. Þá
þarf ekki að fara fyrst í hraðpróf.
Takmarkanir voru hertar í nótt
- Fjöldatakmarkanir almennt 50 manns - Hraðpróf leyfa að 500 komi saman - Ráðstafanir gilda
til 8. desember - Það kemur fljótt í ljós hvort aðgerðirnar bera árangur - Mælt með grímunotkun
H
ei
m
ild
:c
ov
id
.is
Einstaklingar undir eftirliti
Covid-göngudeildar LSH kl. 09.00 í gær
Fjöldi innanlandssmita frá 12. júlí
377 af þeim
sem eru
undir eftirliti eru börn
1.591 einstaklingar
er undir eftirliti
Covid-göngudeildar LSH
55 af þeim sem
eru undir
eftirliti flokkast
sem gulir*
20 sjúk-
lingar
liggja inni á LSH
með Covid-19
4 sjúklingar
eru á
gjörgæslu
Enginn flokkast
sem rauður**
1 gjörgæslu-
sjúklingur er
í öndunarvél
*Aukin einkenni Covid-19
**Alvarlegri einkenni, s.s. mikil
andþyngsli og hár hiti
Frá 30. júní hefur verið
171 innlögn vegna
Covid-19 á
Landspítala
34
einstak-
lingar eru
látnir1.585 erumeð virkt smit
og í einangrun
2.459 einstaklingar
eru í sóttkví
89% lands-
manna
12 ára og eldri eru
fullbólusett
176 ný innan-
landssmit
greindust sl. sólarhring
1.591
55
0
Undir
eftirliti
Aukin
einkenni
Alvarlegri
einkenni
200
150
100
50
0
júlí ágúst september október nóv.
Staðfest smit
7 daga meðaltal
Heimild: LSH
6
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021
„Við erum óskaplega fegin og þakklát fyrir það að það
er hægt að halda menningarviðburði, þrátt fyrir þessar
fjöldatakmarkanir,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir for-
stjóri Hörpu. Hún segir að notkun hraðprófa sé lykil-
atriði í þeim efnum.
„Við munum keyra meira og minna viðburði í Eldborg
sem eru skipulagðir nú um helgina og áfram eins og
áður var ætlað. Við skiptum salnum niður í þrjú hólf og
allir verða hraðprófaðir,“ sagði Svanhildur. Hún sagði
að fyrstu stóru tónleikarnir með því sniði hefðu verið
haldnir sl. miðvikudag þegar Concertgebouw-
hljómsveitin spilaði í Eldborg. Það er því komin reynsla
á þetta fyrirkomulag. Heill her af fólki skannaði vottorð
gesta um að þeir hefðu reynst neikvæðir á hraðprófi.
„Nú þegar gestir allra viðburða með yfir fimmtíu
manns þurfa að framvísa neikvæðu hraðprófi er lykil-
atriði að hraðprófsstöðvum verði fjölgað strax og
tryggt að þjónustutíminn nýtist menningarlífinu,“
sagði Svanhildur. Menningarviðburðir eru yfirleitt á
kvöldin og mikilvægt að hraðprófsstöðvar taki tillit til
þess.
Búið er að aflýsa talsvert mörgum viðburðum eða
færa á nýjar dagsetningar. Það á við um ráðstefnur,
árshátíðir, bókamessu og fleira sem ekki er hægt að
halda við þessar aðstæður. Sögustund og skoðunarferð
fyrir börn í Hörpu í dag var felld niður. gudni@mbl.is
Hraðprófin lykilatriði fyrir tónleikagesti
ELDBORG Í HÖRPU ER SKIPT UPP Í ÞRJÚ SÓTTVARNAHÓLF
Eldborg Salnum er skipt í sóttvarnahólf, allir gestir verða að
framvísa neikvæðu hraðprófi og bera grímu á viðburðum.
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI