Morgunblaðið - 13.11.2021, Page 12
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
V
ið komumst að því að sjálf
erum við mikil jólasystkin,
jólasveinn og jólasystir,“
segja þau Hallgrímur
Helgason og Rán Flygenring sem
senda nú frá sér jólaljóðabókina Koma
jól? Bókin sú kveðst á við bók Jóhann-
esar úr Kötlum og Tryggva Magnús-
sonar, Jólin koma, sem allir þekkja,
um jólasveinana þrettán, Grýlu og
jólaköttinn.
„Í bókinni okkar stíga systur
jólasveinanna, Grýludætur, fram úr
þúsund ára
löngum skugga
bræðra sinna og
koma til byggða í
nútímanum.“
Hallgrímur
segist hafa fengið
hugmyndina fyrir
jólin í fyrra og hún
hafi ekki látið
hann í friði. „Ég
hóf að yrkja þetta í heita pottinum á
Hótel Sigló á Siglufirði þegar ég var
veðurtepptur þar á aðventunni í fyrra.
Mér fannst svo dálítið lokkandi að fá
að gefa bókina út hjá Angústúru af því
konan mín, Agla, rekur það bóka-
forlag ásamt Maríu Rán Guðjóns-
dóttur, og þar sem Rán er þeirra hirð-
teiknari, þá vonaðist ég til að fá hana
til að sjá um myndirnar í bókinni. Við
Rán höfðum aldrei áður unnið saman
og ég þorði ekki að spyrja hana, en
fékk Maríu Rán til þess,“ segir Hall-
grímur og Rán bætir við að hún hafi
tekið ágætlega í þetta í byrjun.
„Þar sem ég er aðdáandi skrifa
Hallgríms var ég til í að skoða þetta,
en ég efaðist þó smá um bók um kven-
kyns jólasveina. Þegar ég fékk text-
ann í hendur, þá var ég algjörlega
seld. Mér fannst þetta geggjað, fékk
gæsahúð og allt við að lesa um jóla-
köttinn og Grýlu og komst samstundis
í jólaskap.“
Tveir heilar, eitt verk
Þegar Rán er spurð hvers vegna
hún hafi valið að hafa dúkristur í bók-
inni segir hún að tilfinningin fyrir því
hafi strax komið til sín.
„Þegar ég stakk upp á þessu
hváði Hallgrímur og sagði það rosa-
lega erfitt að gera dúkristur. Þá varð
ég þeim mun harðákveðnari í að velja
þá leið,“ segir Rán og hlær. „Þar sem
Hallgrímur notar gamla aðferð til að
segja nýja hluti finnst mér það sama
gerast með dúkristunum; ég nota
gamla aðferð til að skapa nýjar jóla-
skessur, systur hinna fornu bræðra.
Þar fyrir utan finnst mér gaman að fá
tækifæri til að prófa eitthvað nýtt, en
ég hef aldrei áður notað dúkristur í
þeim bókum sem ég hef myndlýst. Ég
þurfti að hugsa allt öðruvísi; í stað
þess að teikna línuna þarf að taka burt
það sem ekki er hluti af myndinni.
Þetta reyndi á aðrar heilastöðvar og
var mjög ögrandi verkefni en brjál-
æðislega gaman,“ segir Rán og bætir
við að í samstarfi með texta og myndir
þurfi að ríkja mikið traust.
„Það þarf alltaf að vefa saman,
sem er svo skemmtilegt, þegar tveir
heilar vinna saman að einu verkefni.“
Sumar eru harðir feministar
Bókin hefur yfir sér feminískan
blæ, enda er verið að draga fram jóla-
sveinasystur sem hafa verið í skugga
bræðra sinna í næstum þúsund
ár: „Því þeim var gert að
þræla/ og þjást í karla-
heim./
Að elda, þvo
og skúra/
skítinn undan þeim,“ eins og segir í
einni vísu Hallgríms.
„Þetta eru kvenjólasveinar, sem
er hugmynd sem margir hafa vissu-
lega fengið áður, en ég vildi hafa jóla-
systurnar nútímalegar og að þær
hefðu eitthvað að segja inn í okkar
tíma. Það fylgir þeim feminískur and-
blær, samt vildi ég ekki hafa hann ein-
ráðan, því þetta er líka framhald af
þjóðtrú, Grýla er jú 1.800 vetra. Þetta
er geysilega forn sagnaarfur sem við
Rán erum að framlengja í bókinni
okkar, þannig að það þurfti að ná sam-
bandi við þann fordæðuskap, hafa
nöfnin á stelpunum svolítið gamaldags
en samt líka nöfn sem eru nútímaleg.
Þetta var því mikil jafnvægiskúnst, að
finna persónuleika hverrar og einnar;
sumar eru harðir feministar, aðrar
eru nú bara lítil grey, enn aðrar
stríðnar og einhverjar stórhættulegar.
Sumar þeirra eru svo speglun af
bræðrum sínum. Þá var líka áskorun
að finna út af hvaða ástæðum nútíma-
börn fara í jólaköttinn og þar ákvað ég
að höfða til hins góða í fólki. Formið er
mjög gamaldags, þetta er í þeim anda
sem Jóhannes úr Kötlum var með og
við höfum sungið þær jólavísur í næst-
um hundrað ár. Mér finnst kominn
tími á smá endurnýjun, eða upp-
færslu,“ segir Hallgrímur og bætir við
að mest spennandi hafi verið að reyna
að skila þessari fornu hefð áfram í
tíma.
„Þannig að komandi kynslóðir
taki þetta vonandi upp á sína arma og
bæti þessu við hefðina.“
Ég trúi hreinlega á þær
Rán segist hafa beðið Hallgrím
að lesa upp allar vísurnar og senda sér
hljóðupptökuna þegar hún vann að
myndunum.
„Ég hlustaði á þegar kvöldaði og
mín fyrsta tilfinning var að þessar
jólasystur hefðu alltaf verið til. Ég trúi
hreinlega á þær,“ segir Rán, sem hef-
ur líka sungið vísurnar fyrir son sinn
og nú gerir hún varla annað en svara
spurningum hans um Grýlu, hvort
hún sé í alvöru með mýs í eyrunum og
fleira í þeim dúr. Rán segir að í bók-
inni megi jafnvel finna ný trúarbrögð,
til dæmis í kvæðinu um jólaköttinn.
„Við trúum einhvern veginn ekki
á neitt lengur, og kannski þurfum við
á tímum hamfarahlýnunar sögur eins
og gömlu þjóðsögurnar okkar sem
fjalla meðal annars um græðgi og vara
við því að við göngum á gæði náttúr-
unnar,“ segir Rán og bætir við að
Birna Geirfinnsdóttir bókahönnuður
hafi séð um að hanna bókina. „Ang-
ústúra leggur mikið upp úr að bækur
þeirra séu fagrir prentgripir. Það
skiptir miklu máli.“ Útgáfuhóf verður
í Ásmundarsal á morgun, sunnudag,
kl. 13-17. Hallgrímur les upp kl. 14 og
15 en dúkristur Ránar verða sýndar í
Gryfjunni frá 11-17 og tölusett eintök í
takmörkuðu upplagi verða til sölu.
Grýla með eyru full af músum
Hallgrímur Helgason og
Rán Flygenring fram-
lengja fornan sagnaarf í
nýju bókinni sinni Koma
jól? Þau þurftu að ná
sambandi við fordæðu-
skap, en tengja um leið
við nútímann.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Góð saman Traust er forsenda góðs samstarfs. Hallgrímur og Rán á vinnustofu Hallgríms ásamt hundi Hallgríms.
Ferleg Fitu-
rönd var sú
níunda.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021
HÁDEGISMATUR alla daga ársins
Bakkamatur
fyrir fyrirtæki og mötuneyti
Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum,
sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt,
einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum
fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum.
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is
SKÚTAN
Matseðill og nánari upplýsingar á
veislulist.is
Grýlurós var önnur,
öræfanna dís,
sem hjörtun allra bæja
bræddi líkt og ís.
En ekkert hana gladdi
sem gæludýrablóð.
Hún páfagauk og hömstrum
í pokann sinn tróð.
Öræfanna
dís
Grýlurós er næstfremst í röð jólasystra