Morgunblaðið - 13.11.2021, Page 18
Stór hópur
» Samkvæmt tölum Seðla-
bankans áttu 141.572 almennir
fjárfestar í einhvers konar fjár-
málagerningum í árslok 2020.
» Hafði fjölgað mjög í hópnum
frá árslokum 2017 þegar þeir
voru 80.076.
» Nemur fjölgunin á tíma-
bilinu 61.496 eða 77%.
» Mikil þátttaka í stórum
hlutafjárútboðum skráðra fé-
laga á síðustu tveimur árum
hefur haft sitt að segja.
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Miklar breytingar hafa orðið á ís-
lenskum hlutabréfamarkaði á síðustu
misserum. Ræður þar ekki síst miklu
sú aukna þátttaka almennings sem
vart hefur orðið. Hefur tekið rúman
áratug að byggja markaðinn upp að
nýju en traust á honum hvarf í banka-
hruninu og tók langan tíma að hreyfa
þannig við almenningi að hann beindi
sparnaði sínum inn á skipulegan verð-
bréfamarkað að nýju.
Fjármálaeftirlit Seðlabankans
kannar reglulega fjárfestingar al-
mennings (almennra fjárfesta) og er
þá sjónum helst beint að umfangi
þeirra og eignadreifingu. Eftirlitið
miðar ekki síst að því að meta hvert
eftirliti skuli beint á hverjum tíma.
Í vikunni birti Seðlabankinn grein
eftir Arnfríði K. Arnardóttur, sér-
fræðing í markaðsgreiningu á sviði
markaða og viðskiptahátta hjá bank-
anum, þar sem ljósi var beint að
þátttöku almennings á hlutabréfa-
markaði.
Lægri vextir og aukin áhætta
Leiðir athugunin m.a. í ljós að al-
menningur hefur í kjölfar vaxta-
lækkana leitað í áhættusamari
eignir en áður og að heldur hafi
hægt á vexti heildareignar fólks í
verðbréfasjóðum meðan töluverður
vöxtur hefur verið á heildareign al-
mennings í sérhæfðum sjóðum sem
settir eru upp fyrir almenna fjár-
festa. Slíkir sjóðir eru að sögn
Seðlabankans almennt áhættusam-
ari en hefðbundnir verðbréfasjóðir.
Byggist slíkt mat á því hversu mikl-
ar sveiflur verða á ávöxtun sjóð-
anna en þær eru meiri í fyrrnefnd-
um sjóðum.
Í meðfylgjandi grafi má sjá að
eign almennings í sérhæfðu sjóðun-
um nam í árslok 2020 um 279 millj-
örðum króna og hafði vaxið úr 164
milljörðum í lok árs 2017. Nemur
vöxturinn 70%. Heildareign almenn-
ings í verðbréfasjóðum stóð í árslok
2020 í 167 milljörðum króna en hafði
numið 110 milljörðum í árslok 2017.
Jafngildir það tæplega 52% aukn-
ingu yfir þriggja ára tímabil.
Á sömu töflu má einnig sjá að
eignir almennings í skráðum hluta-
bréfum jukust mikið milli áranna
2017 og 2019. Þrátt fyrir dálítinn
samdrátt milli áranna 2019 og 2020
jókst hlutabréfaeignin úr 56 millj-
örðum í árslok 2017 í 119 milljarða í
árlsok 2020. Er það aukning um
112,5%.
Sífellt fleiri þátttakendur
Í greiningu Seðlabankans má sjá
fjölda þeirra sem fjárfesta og í hvers
konar fjármálaafurðum þeir drepa
niður fæti. Gögnin sýna að þátttakan
í sérhæfðum sjóðum hefur aukist
gríðarlega. Árið 2017 voru 29.814 Ís-
lendingar með eign í slíkum sjóði.
Tveimur árum síðar var fjöldinn
kominn í 44.236 og í árslok 2020 í
48.674. Á 36 mánaða tímabili fjölgaði
því í þessum hópi um ríflega 63%.
Áhættumeiri sérhæfðir sjóðir
Seðlabankinn skipar sérhæfðum
sjóðum í ólíka flokka eftir því hversu
mikil áhætta felst í því að fjárfesta í
þeim. Er það gert eftir fyrrgreindu
mati, þ.e. hversu mikið ávöxtun sjóð-
anna sveiflast. Tölur Seðlabankans
sýna ótvírætt að fólk leitar í áhættu-
meiri sjóði nú en áður. Í sjóðum sem
minnst áhætta er talin fylgja
(áhætta 1) hefur fjárfestingin bein-
línis dregist saman á þremur árum. Í
áhættuflokki 3 af 7 er aukningin
mikil og þar liggur stærsti hluti
eignanna í dag, eða ríflega 120 millj-
arðar króna.
Í áhættuflokkunum í kring, þ.e.
flokki 2, 4 og 5, má merkja aukningu
en hún er mun minni en í flokki 3.
Seðlabankinn bendir á að sam-
dráttur í áhættuflokki 1 sé að líkum
kominn til vegna lækkandi vaxta-
stigs.
„Sjóðir sem flokkaðir eru í
áhættuflokki 1 fjárfesta að stærstum
hluta í innlánum eða peningamark-
aðsskjölum,“ segir í grein Arnfríðar.
Eykst með aldrinum
Tölur Seðlabankans varpa einnig
skýru ljósi á það hvernig sparnaður
almennra fjárfesta eykst eftir því
sem aldurinn færist yfir. Þannig
liggja langmestar eignir hjá þeim
sem eru 60 ára og eldri. Þar nemur
heildareignin (í árslok 2020) 435
milljörðum króna og jókst um 65% á
þremur árum. Hjá hópnum á aldurs-
bilinu 36-60 ára eru eignirnar ríflega
199 milljarðar og hafa aukist um
64% yfir sama tímabil. Hópurinn á
aldursbilinu 19-35 ára á 20,6 millj-
arða og hafa þær eignir vaxið um
93% á þremur árum.
Almenningur áhættusæknari
- Ný greining Seðlabanka Íslands sýnir að almennir fjárfestar leita í áhættumeiri fjárfestingarkosti
- Lágt vaxtastig ýtir undir eignadreifingu - Sérhæfðir sjóðir sækja fram á kostnað verðbréfasjóða
279
167
119
32 37
24
243
151
80
33 35
23
164
110
56
22 18
28
Heildareign almennra fjárfesta
Skipting eftir fjármálagerninum 2017, 2019 og 2020, ma.kr.
2017 2019 2020
Heimild: Seðlabanki Íslands
Sérhæfðir sjóðir
fyrir almenning
Verðbréfa-
sjóðir
Skráð
hlutabréf
Skráð ríkis-
skuldabréf
Óskráð
hlutabréf
Aðrir fjármála-
gerningar*
*Skráð önnur skuldabréf, peninga-
markaðsskjöl, óskráð skuldabréf,
önnur verðbréf og sérhæfðir sjóðir
Kr.
Heildareign almennra fjárfesta eftir aldri
2017, 2019 og 2020, ma.kr.
< 18 ára 19-35 ára 36-60 ára > 60 ára
199
167
121
435
380
263
322
211511
2017 2019 2020
Heimild: Seðlabanki Íslands
18 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021
bæta aðeins í, en þó innan skynsem-
ismarka,“ segir Guðmundur.
Bónus hefur í gegnum árin verið
mjög íhaldssamur hvað breytingar á
afgreiðslutíma varðar og borið fyrir
sig mikilvægi þess að halda kostnaði
niðri. Guðmundur segist aðspurður
hafa þráast lengi við í þessum efn-
um, en þessi lenging afgreiðslutím-
ans sé innan þeirra marka sem félag-
ið ráði við. „Svo spilar náttúrlega
sjálfsafgreiðslan inn í. Hún gerir
þessa ákvörðun léttari.“
Spurður hvort neytendur megi
eiga von á að fá sama langa af-
greiðslutímann um land allt segir
Guðmundur að Bónus sé að prófa sig
áfram, en það verði klárlega skoðað
ef vel gengur. „Við erum sveigjanleg
hvað það varðar.“
Þetta er í annað skipti sem Bónus
breytir afgreiðslutíma frá því fyrir-
tækið var stofnað árið 1989.
„Okkur þótti það stórt skref fyrir
nokkrum árum þegar við færðum af-
greiðslutímann fram um klukku-
tíma, frá tólf til ellefu,“ segir Guð-
mundur Marteinsson að lokum.
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Verslunarkeðjan Bónus tilkynnti í
gær breytingar á afgreiðslutíma í
fjölda verslana sinna og verða sjö
Bónusverslanir nú opnar alla daga
frá klukkan 10-20
í stað 11-18.30 á
virkum dögum
áður og 11-19 um
helgar. Þá verður
almennur af-
greiðslutími Bón-
uss eftir breyt-
ingarnar mánu-
daga til fimmtu-
daga frá kl. 11-19
en föstudaga og
sunnudaga frá
10-19. Á Egilsstöðum, Ísafirði og
Stykkishólmi verður afgreiðslutím-
inn þó 11-18.30 mánudag til fimmtu-
dags, 10-19 á laugardögum og 10-18
á sunnudögum.
Svara kalli neytenda
Guðmundur Marteinsson fram-
kvæmdastjóri Bónuss segir að fyrir-
tækið sé með breytingunum að svara
kalli neytenda. Helsta umkvörtunar-
efni þeirra í gegnum árin hafi verið
hvað búðunum var lokað snemma og
hve erfitt það væri oft að ná í Bónus
eftir vinnu. „Við ákváðum því að
Bónus opinn lengur
- Breyta um allt land ef tilraunin heppnast vel - Sjálfs-
afgreiðslukassar hjálpa til - Önnur breyting frá upphafi
Morgunblaðið/Unnur Karen
Grís Bónus hefur breytt vörumerki sínu, Bónusgrísnum, sem verið hefur
óbreyttur frá upphafi. Hann var snikkaður aðeins til að sögn Guðmundar.
Guðmundur
Marteinsson
« Markaðsvirði Icelandair Group hækk-
aði um 2,4% í Kauphöll Íslands í gær
þrátt fyrir tilkynningu stjórnvalda um
hertar aðgerðir innanlands. Nam velta
með bréf félagsins ríflega 126 millj-
ónum króna og stendur gengið nú í 1,73
krónum á hlut. Markaðsvirði félagsins
er nú 62,2 milljarðar króna.
Hlutabréfaverð Play þokaðist einnig
upp á First North-markaði Kauphall-
arinnar en þó ekki eins mikið. Nam
hækkunin þar á bæ 0,4% í 42,2 millj-
óna króna viðskiptum.
Icelandair hækkaði
þrátt fyrir aðgerðir
13. nóvember 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 131.24
Sterlingspund 175.83
Kanadadalur 104.31
Dönsk króna 20.223
Norsk króna 15.086
Sænsk króna 15.093
Svissn. franki 142.41
Japanskt jen 1.1517
SDR 184.31
Evra 150.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.2525
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
Sérhæfð þjónusta fyrir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
544 5151
tímapantanir