Morgunblaðið - 13.11.2021, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021
120 OG 200 LJÓSA
INNI- OG ÚTISERÍUR
Við Fellsmúla | Reykjavík | Sími: 585 2888 | rafmark.is
Kíktu á nýju vefverslunina okkar
rafmark.is
Ríkisstjórn Hvíta-Rússlands til-
kynnti í gær að hún hefði að kröfu
stjórnvalda í Tyrklandi bannað fólki
frá Sýrlandi, Írak og Jemen að koma
með flugi til landsins frá Ankara.
Hvítrússar hafa verið sakaðir um
skipulegan innflutning flóttafólks frá
þessum löndum sem þeir hafi síðan
beint að landamærum Póllands í því
skyni að hefna refsiaðgerða sem Evr-
ópusambandið hefur beitt þá vegna
mannréttindabrota.
Líklegt er talið að þetta muni
draga úr flóttamannastraumnum að
landamærum Póllands. Þar hafast nú
við nokkur þúsund manns sem freista
þess að komast til Vestur-Evrópu.
Gaddavírsgirðingar og fjölmennur
hópur vopnaðra landamæravarða
stöðva fólkið. Eru pólsk stjórnvöld
staðráðin í því að koma í veg fyrir að
flóttamennirnir fari inn fyrir landa-
mærin. Allmargir, sem það hefur tek-
ist á undanförnum vikum, hafa verið
handsamaðir og sendir aftur til
Hvíta-Rússlands. Hvítrússar neita
hins vegar flóttafólkinu um að snúa
heim til sín og hefst það við í tjöldum í
skóglendi við landamærin. Aðstæður
þar eru mjög erfiðar enda vetur
genginn í garð. Þá er matarskortur
farinn að gera vart við sig. Þó nokkur
hópur flóttafólks hefur þó náð að
komast inn fyrir landamærin og
áfram til Þýskalands.
Á fimmtudag voru þrír flóttamenn,
handteknir stuttu eftir að þeir kom-
ust yfir landamærin, einn frá Sýr-
landi og hjón frá Írak. Þau höfðu beð-
ið Pólverja sem þau hittu við komuna
um vatn en þeir réðust á þau, veittu
þeim áverka og rændu öllu fé sem
þau höfðu á sér, um 7.000 evrum.
AFP
Flóttafólk Vopnaðir verðir á landa-
mærum Póllands og Hvíta-Rússlands.
Banna komu
fólks frá 3 löndum
- Hvítrússar urðu við kröfu Tyrkja
Fangelsismála-
yfirvöld í Bret-
landi hafa orðið
við beiðni Julians
Assange um að
fá að kvænast
unnustu sinni og
barnsmóður,
Stellu Morris,
þótt hann sitji á
bak við lás og slá.
Assange og Morris hafa verið
saman í sex ár og eiga tvo drengi
sem getnir voru á meðan hann
dvaldi sem pólitískur flóttamaður í
sendiráði Ekvador í London. Hin
verðandi eiginkona hans er lög-
fræðingur frá Suður-Afríku. Þau
kynntust fyrst fyrir áratug og
heimsótti hún hann nær daglega í
sendiráðið.
Bandarísk stjórnvöld vilja að
Assange verði framseldur vegna
birtingar Wikileaks á leyniskjölum
um Afganistan en dómstólar í Bret-
landi hafa ekki komist að endan-
legri niðurstöðu í málinu.
BRETLAND
Assange fær að
kvænast unnustu
Stella Moris
Úrskurður alrík-
isdómara fyrr í
vikunni um að af-
henda skuli
rannsóknar-
nefnd Banda-
rikjaþings nær
800 skjöl frá
embættistíma
Donalds Trumps
er nú kominn til
umfjöllunar áfrýjunardómstóls í
Washington. Efnisleg umfjöllun
hefst í lok þessa mánaðar og verða
skjölin ekki afhent á meðan sam-
kvæmt úrskurði dómstólsins. Skjöl-
in varða fundi og ráðagerðir
Trumps og ráðgjafa hans í aðdrag-
anda árásarinnar á þinghúsið í
Washington 6. janúar síðastliðinn.
Trump hefur verið sakaður um
ábyrgð á árásinni með hvatningar-
orðum til múgsins um að halda að
þinghúsinu. Grunsemdir eru um
þátttöku ráðgjafa hans í undirbún-
ingi árásarinnar.
BANDARÍKIN
Dómstóll frestar
afhendingu skjala
Donald Trump
Frans páfi tók í gær þátt í undir-
búningi fyrir alþjóðlegan dag fá-
tæktar sem haldinn verður í fimmta
sinn á sunnudaginn. Var hann í
borginni Assisi á Ítalíu þar sem
hann hugðist funda með fátæku
fólki. Áður hitti hann hóp pílagríma
í dómkirkju í grenndinni. Að venju
var hann umkringdur fjölda örygg-
isvarða.
Kaþólska kirkjan hefur haldið
dag fátæktar frá árinu 2017 undir
yfirskriftinni: „Elskum með verk-
um en ekki orðum einum.“
Efnt hefur verið til viðburða á
þessum degi í Indlandi, Póllandi,
Kanada og fleiri löndum. Auk
helgihalds hefur dagskrá dagsins
miðast við að bjóða upp á margs
konar félagslega og heilsufarslega
aðstoð við fátæka.
Páfagarður
Páfi undir-
býr dag
fátæktar
AFP
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Alok Sharma, forseti loftslagsráð-
stefnunnar í Glasgow í Skotlandi,
lýsti því yfir í gærkvöld að aðildar-
ríki ráðstefnunnar hefðu ekki náð að
koma sér saman um yfirlýsingu.
Yfirfara átti texta fyrirhugaðrar
yfirlýsingar í nótt og birta á endur-
skoðað skjal klukkan átta árdegis í
dag, en óformleg fundahöld verða
klukkan tíu til að meta stöðuna.
Stefnt er að því að ljúka ráðstefn-
unni í dag.
Enn eru eftir frekari umræður um
málefni á borð við framleiðslu jarð-
efnaeldsneytis og þróunarstyrki til
bágstraddra landa til að styðja við
baráttuna gegn hamfarahlýnun.
Drög að yfirlýsingunni voru birt í
gær og kveða þau á um að lönd
heimsins setji strangari lög í þágu
loftslagsmála á næsta ári.
„Margt hefur áunnist á síðastliðn-
um tveimur vikum og nú er bara
lokahnykkurinn eftir,“ hefur frétta-
stofa Reuters eftir Alok Sharma, en
hann hafði átt von á því að samkomu-
lag myndi nást í gær.
Markmið ráðstefnunnar er að ná
markmiði Parísarsamkomulagsins;
að halda hlýnun jarðar innan við 1,5
gráður í lok aldarinnar. Vísinda-
menn segja hitastigið munu fara
langt yfir 1,5 gráðurnar miðað við
núverandi skuldbindingar ríkja
heims, sem myndi orsaka hækkun
sjávarborðs, þurrka, storma og
skógarelda. Nýju drögin eru talin
nokkurs konar málamiðlun, þar sem
reynt er að koma til móts við þjóðir
sem mega síst við hlýnun jarðar, rík-
in sem menga mest og þau ríki sem
reiða sig helst á sölu jarðefnaelds-
neytis. „Kínversk stjórnvöld eru á
þeirri skoðun að drögin að yfirlýs-
ingu sem nú hafa verið birt þurfi að
ganga lengra hvað varðar fram-
kvæmd, fjármögnun, tæknilausnir
og getustig,“ sagði Zhao Yingmin,
fulltrúi Kína á loftlagsráðstefnunni.
Enn engin niðurstaða fengist
- Ekki náðist að klára ráðstefnuna í gær - Ný drög að yfirlýsingu birt klukkan
átta í dag - Stærstu deiluefnin snúa að jarðefnaeldsneyti og þróunaraðstoð
AFP
Umhverfismál Frá loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow.