Morgunblaðið - 13.11.2021, Side 21

Morgunblaðið - 13.11.2021, Side 21
Á þessari öld hefur íslenska hagkerfið sveiflast þrisvar sinn- um meira en Evrópu- löndin að meðaltali. Ís- land hefur auk þess gengið í gegnum mun dýpri og langvinnari efnahagslægðir á síð- ustu 12 árum en þau lönd sem við berum okkur helst saman við. Nú, á árinu 2021, benda nýjustu spár greining- araðila til þess að Ísland nái fram- leiðslustigi fyrir heimsfaraldur um ári á eftir helstu viðskiptalöndum. Engu að síður ríkir þó óvissa um efnahagsframvinduna. Minnstu sviptingar í ytra umhverfi gætu gjörbreytt horfum til hins verra en óvæntir búhnykkir gætu einnig skapað grundvöll fyrir stórauknum hagvexti. Þetta skýrist af því að ís- lenska hagkerfið hefur verið auð- lindadrifið. Þessi haglýsing er okkur mjög kunnugleg en hún hefur átt við í kjölfar nær allra efnahagslægða í sögu þjóðarinnar. Hvaða lærdóm ber að draga af þessu? Hugverkaiðnaður getur tryggt lífskjör til lengri tíma Ísland er harðbýlt land og hag- kerfið lítið og einhæft. Um 70% út- flutningstekna þjóðarinnar á síðustu fimm árum má rekja beint eða óbeint til náttúruauðlinda landsins en fiskurinn, orkusækinn iðnaður og ferðaþjónustan tengjast öll nytjum náttúrunnar. Tekjur af náttúru- auðlindunum hafa vissulega fært okkur í flokk efnuðustu þjóða heims en leiðin að auknum stöðugleika og hagsæld á Íslandi til framtíðar er að auka fjölbreytni í útflutnings- atvinnuvegum. Nú er hugverkaiðn- aður orðinn fjórða stoð útflutnings- tekna íslenska þjóðarbúsins til viðbótar við orkusækinn iðnað, sjáv- arútveg og ferðaþjónustu. Hug- verkaiðnaður skapaði 16% af út- flutningstekjum síðasta árs og vöxtur undanfarinna ára sýnir að í hugverkaiðnaði felast raunveruleg tækifæri fyrir Ísland. Skortur á sér- fræðiþekkingu á ýmsum sviðum hér á landi stendur vexti hugverkaiðn- aðar fyrir þrifum. Helsta leiðin til þess að undirbyggja áfram nýsköp- unardrifinn hagvöxt framtíðar er að leggja áherslu á menntun, liðka verulega frekar fyrir komu reynslu- mikilla sérfræðinga til landsins, skapa rétta efnahagslega hvata og setja háframleiðnistörf í fyrsta sæti í atvinnustefnu þjóðarinnar. Fyrir hvern reynslumikinn sérfræðing sem kemur hingað til lands til að starfa, verða til fjölmörg afleidd störf. Við eigum vissulega mörg framsækin fyrirtæki í hugverkaiðn- aði nú þegar en þurfum að gera enn betur. Traustari tengsl atvinnulífs, heildar- samtaka og menntakerfis Ef markmið um nýsköpunar- og hugverkadrifið hagkerfi á að nást þarf að huga að umbótum á mörgum sviðum. Styrkja þarf einstaklings- miðað nám og rækta hæfileika ein- staklinga á öllum skólastigum. Auka þarf gæði háskólanáms og treysta tengsl atvinnulífs, heildarsamtaka launafólks og menntakerfisins. Starfsumhverfi og starfsaðstæður á Íslandi verða að vera með því besta sem þekkist svo hæfileikaríkir sér- fræðingar af öllum þjóðernum sjái hag sinn í að starfa fyrir íslensk fyrirtæki. Hið opinbera þarf að halda áfram að styðja við framsækin hugverka- og hátæknifyrirtæki með því að hlúa að hvötum til nýsköp- unar og festa endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar í sessi til frambúðar. Þannig verða til ný, verðmæt og eftirsótt störf. Fengin reynsla varðar bjarta leið og nú þarf að bæta í. Ný ríkisstjórn þarf um- fram allt að marka metnaðarfulla stefnu um leiðina fram á við í sam- starfi við ábyrga aðila vinnumark- aðar. Þar getum við verið sammála Atvinnuleysi og deilur á vinnu- markaði hafa sett sinn svip á þenn- an áratug en forsvarsmenn atvinnu- lífs og launafólks munu halda áfram að takast á um sjálfbærni launa, kjör og réttindi, eðli málsins sam- kvæmt. Mikilvægt er þó, í kjölfar heimsfaraldurs, að við stöldrum við, slíðrum sverðin og aukum samtal og samvinnu á vinnumarkaði um þau málefni sem standa utan kjarasamn- inga og varða heildarhag. Við for- menn BHM, heildarsamtaka 28 stéttarfélaga háskólamenntaðra, og SI, samtaka 1.400 fyrirtækja og fé- laga sjálfstætt starfandi, erum sam- mála um að stóraukin nýsköpun og aukin hlutdeild hugvits og mennt- unar í verðmætasköpun Íslands sé helsta leiðin að auknum lífsgæðum Íslendinga og aukinni samkeppnis- hæfni landsins. Byggjum lífskjara- sókn til framtíðar á nýsköpun og hugverkum og vörðum leiðina að því markmiði saman. Eftir Árna Sigur- jónsson og Friðrik Jónsson »Ef markmið um ný- sköpunar- og hug- verkadrifið hagkerfi á að nást þarf að huga að umbótum á mörgum sviðum. Árni Sigurjónsson Árni er formaður Samtaka iðnaðar- ins, Friðrik er formaður Bandalags háskólamanna. Friðrik Jónsson Sókn nýsköpunar og hugverkaiðnaðar – þar getum við verið sammála 21 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021 Lifandi stytta Vegfarendur framan við Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu í Reykjavík urðu undrandi þegar ekki varð betur séð en að Jón Sigurðsson kæmi gangandi í áttina til þeirra. Eggert Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.