Morgunblaðið - 13.11.2021, Page 26

Morgunblaðið - 13.11.2021, Page 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021 ✝ Erla Björk Helgadóttir, Víðimel, fæddist á Sauðárkróki þann 10. nóvember 1981. Hún lést á heimili sínu þann 2. nóv- ember 2021. Foreldrar Erlu eru Helgi Jóhannes Þorleifsson, fædd- ur 18. desember 1955, og Alma R. Guðmundsdóttir, fædd 7. ágúst 1957. Erla giftist Feyki Sveinssyni þann 20. júlí 2013. Foreldrar Feykis eru Sveinn Árnason, fæddur 12. mars 1948, og Stein- unn Ámundadóttir, fædd 16. maí 1950. Börn Erlu og Feykis eru Helgi Snævar Feykisson, fæddur 8. nóvember 2004, Kristjana Ýr Feykisdóttir, fædd 1. janúar 2009, Guðmundur Sölvi Feykisson, fæddur 14. mars 2015, og Árný Bára Feyk- og vann þar til 2017. Þá tók hún að starfa á KK Restaurant á Sauðárkróki til ársins 2020. Ár- ið 2019 flutti Erla ásamt fjöl- skyldu á Víðimel við Varmahlíð. Haustið 2020 hún störf í eldhúsi grunnskóla Varmahlíðar og ár- ið 2021 var hún ráðin sem mat- ráður þar. Erla starfaði sem leiðsögumaður í flúðasiglingum í og með í gegnum tíðina. Þegar Erla lést var hún langt komin með að klára matvælanám í Verkmenntaskólanum á Ak- ureyri. Áður hafði hún lokið fisktækninámi við Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra. Erla og fjölskylda héldu bú- skap á Víðimel og hafði Erla unnið að opnun húsdýragarðs á bænum meðfram öðrum störf- um. Hún sinnti einnig ýmsum nefndarstörfum og viðburða- stjórnun. Útför Erlu Bjarkar fer fram frá Sauðárkrókskirkju 13. nóv- ember 2021. Hægt verður að fylgjast með athöfninni í safn- aðarheimilinu og í Bifröst. Einnig verður útförinni streymt á Youtube-síðu Sauðárkróks- kirkju. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat isdóttir, fædd 10. maí 2016. Systkini Erlu eru Inga Skagfjörð Helgadóttir, fædd 3. maí 1984, maki hennar er Jón Gunnar Helgason, börn þeirra eru Ragnheiður Petra Hjartardóttir, Fanney Mjöll Jóns- dóttir, Viktor Skagfjörð Jónsson, Rökkvi Skagfjörð Jónsson og Jón Myrkvi Skagfjörð Jónsson; og Davíð Þór Helgason, fæddur 3. júlí 1990, maki hans er Sunna Gylfadóttir og barn þeirra er Iðunn Alma Davíðsdóttir. Erla ólst upp á Sauðárkróki og gekk í Árskóla og Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra. Hún kynnist Feyki 15 ára gömul og voru þau saman síðan þá. Erla hóf störf hjá Fisk- iðjunni á Sauðárkróki árið 1999 Fyrir mörgum árum var Sunna systir mín svo heppin að finna sér yndislegan lífsförunaut, hann Davíð. Með honum fylgdi yndisleg tengdafjölskylda. Þessi fjölskylda tók ekki aðeins stóru systur minni opnum örmum heldur mér líka. Þarna kynntist ég Erlu fyrst og dætur okkar, sem eru jafn gamlar, kynntust líka. Með árunum áttum bæði við Erla og dætur okkar bara eftir að verða betri og nánari vinkon- ur. Seinna þegar við Jón fórum að stinga saman nefjum voru tengslin milli okkar Erlu orðin enn meiri því mennirnir okkar eru systkinabörn og Davíð og Jón bestu vinir frá barnæsku. Erla var yndisleg vinkona. Alltaf til staðar, aldrei að flýta sér – alltaf nægur tími fyrir alla. Alltaf gullfalleg – alveg sama hvort hún var búin að hafa sig til fyrir veislu eða á leiðinni í fjár- húsin í flíspeysu og vinnujakka. Sumt fólk er með svo fallega sál að það geislar alltaf og Erla var ein af þeim. Erla var mikill dýra- vinur og óskaplega ljúf og góð móðir. Ég man eftir heimsókn á Grundarstíginn þar sem búið var að skera út hús úr stórum pappa- kassa fyrir krakkana. Svona mamma var Erla. Alltaf að finna upp á einhverju sniðugu og skemmtilegu fyrir börnin sín. Erla sagði oft við mig hversu mikilvægt það væri að við hlúð- um að vináttu dætra okkar. Með tímanum varð hún svolítið eins og „aukamamma“ Dísu minnar sem eyddi ófáum helgum á Grundarstígnum og svo á Víði- mel – og eins og flest börn kann- ast við sem fengu að vera hjá Erlu þá langaði hana oft ekki heim. Þegar Erla og Feykir bjuggu á Grundarstígnum var stutt að labba heim eftir spjall og góðan mat en þegar þau fluttu á Víðimel var ekkert minna um hittinga. Þá var bara búið til gistipláss – t.d. í hjólhýs- inu í vélaskemmunni um vetur og tjaldað á túninu um sumar. Við höfum átt ófáar helgar sam- an á Víðimel, hlegið og spilað í garðstofunni, eldað ótrúlega góðan mat, kveikt upp í útiarn- inum og tínt myntu í mojito. Við vöktum fram á morgun um ára- mótin síðustu – það var bara of gaman til þess að fara að sofa. Bæði steggjun og gæsun okkar hjóna endaði í vélaskemmunni. Auðvitað var Erla okkar búin að sjá til þess að allt væri fullkomið. Þegar kom að brúðkaupinu sjálfu var hún allt í öllu og til staðar fyrir stressuð brúðhjón. Hún mætti með blómin sem hún tíndi um morguninn – alveg að verða of sein í sína eigin förðun. Hún sá til þess að dóttir okkar hefði gistingu á Víðimel og að hún fengi far þangað. Hún að- stoðaði við skreytingar á sal og brúðarsvítu. Í veislunni tóku hún og Dísa fallega mynd af sér og sendu til mín. Um morguninn þegar ég vaknaði og opnaði skilaboðin man ég eftir að hafa hugsað hversu heppin ég væri með vinkonu og Dísa með Erlu sína. Elsku vinkona mín. Nú er komið að okkur sem vorum svo heppin að fá að vera vinir þínir og fjölskylda. Komið að okkur að vera sterk og dugleg. Að hlúa að Feyki þínum og börnunum ykkar og halda fast utan um hvert ann- að á þessum erfiðu tímum. Takk fyrir allt elsku Erla mín. Þín vinkona, Hanna. Elsku Erla. Ég var ekki búin að vinna lengi með þér í fiski þegar við smullum saman, trúlega af því að þú tókst svo vel á móti mér og öllu nýju starfsfólki þar. Það var eitthvað við þig sem minnti mig svo mikið á mömmu mína að ég tengdist þér svo vel og þú áttir svo auðvelt með að vinna inn traustið hjá fólki. Ég kynntist þér svo enn betur þegar þú byrj- aðir að vinna í eldhúsinu á leik- skólanum, en þær stundir sem við áttum þar þegar ég var að leysa af eru ómetanlegar. Við treystum hvor annarri svo mikið og þú sagðir mér frá draumunum og markmiðunum þínum og ég sagði þér frá mínum. Mér finnst alveg magnað að hugsa til þess hve róleg og yfirveguð þú varst alltaf þrátt fyrir að það væri nóg að gera hjá þér að elda. Þegar litlu börnin komu í eldhúsið til að sækja matinn tókstu alltaf vel á móti þeim með bros á vör. Þú tókst gagnrýni vel, þú vildir allt- af bæta þig, þú lést aldrei neitt frá þér nema vera 100% ánægð með matinn, sem var líka alltaf 100%. Ég á þér svo mikið að þakka og það helsta er það sem þú gerðir fyrir elsku Sisiphuwe þeg- ar ég var í Suður-Afríku árið 2016 og var hún þá fimm ára gömul að klára leikskóla, hún hefði ekki getað hafið skóla- göngu nema þín vegna, þú borg- aðir heilt ár fyrir hana í skóla og fæ ég reglulega fréttir af henni og hún blómstrar svo vel. Takk enn og aftur, elsku Erla. Sólveig Birna Elísabetardóttir. Elsku Erla. Það er ekki sjálf- gefið að eiga vini eins og þig og ég mun búa að því alla ævi að hafa átt þig. Þú varst manneskj- an sem ég hringdi í þegar ég var leið, þegar ég var glöð, þegar ég var reið og allt þar á milli. Ég sakna þín. Iðunn og Davíð sakna þín. Þú varst stundum meiri mamma Iðunnar en ég, þið voruð svo góðar vinkonur. Þær voru svo dýrmætar, allar stundirnar sem við áttum saman í garðstofunni þinni. Við gátum setið þar og talað heilu helgarnar á milli þess sem við brösuðum eitthvað í fjárhúsunum eða lent- um í ævintýrum saman. Stund- um vorum við með samviskubit yfir því að sitja alltof lengi að spjalla, en ég sé ekki eftir mín- útu. Ég mun aldrei gleyma helginni sem við eyddum saman á Víðimel þar síðasta sumar. Ég, þú, Inga og börnin. Við ætluðum að gera svo mikið en enduðum á því að sitja í sólbaði og spjalla alla helgina, á meðan börnin hlupu um í vatnsblöðrustríði og þú passaðir að veika hænan yrði ekki fyrir skoti. Eða veiðiferð- unum í tjörnina á Pajero á sumr- in, þú sást alltaf um nestið. Vél- sleðaleikir á veturna, vélaskemmupartí og matarboð á haustin, kiðlingar og hænuungar á vorin. Það var aldrei dauð stund. Það var svo margt á planinu hjá okkur. Fjölskylduferð til sól- arlanda, jólatónleikar, afmælisp- artí, villibráðarkvöld, gellurúntar á nýja bílnum … svo ég tali nú ekki um bakpokaferðalagið okk- ar. Ég mun gera mitt besta í að uppfylla draumana okkar og klára verkefnin sem við vorum byrjaðar á. Þú veist hvað ég er að tala um. Elsku Feykir, Helgi, Krist- jana, Guðmundur og Árný. Við Davíð og Iðunn munum alltaf vera til staðar fyrir ykkur. Ég trúi ekki að ég þurfi að kveðja þig elskan mín. Ég mun alltaf hugsa til þín þegar ég sé snekkju, veika hænu eða opna mér ylvolgan slots. Þín og garð- stofunnar. Þín vinkona að eilífu, Sunna. Aldrei átti ég von á öðru en að við yrðum samferða til gamals aldurs og ættum óteljandi vin- konustundir eftir. Verða gamlar og gráar að rifja upp gömlu dag- ana, skella upp úr, dást að af- komendunum og njóta samveru- stunda með eiginmönnunum. Að raunin sé sú að vera að kveðja þig og ylja sér við minningarnar um þig síðustu 22 árin en ekki 50+-árin er þyngra en tárum taki. Það er erfitt að ná utan um þennan raunveruleika sem blasir við öllum þeim sem þekktu þig og voru samferða þér. Það er stórt skarð sem hefur verið höggvið því þú, elsku Erla, mín varst ein sú fallegasta mann- eskja sem ég þekki. Þú varst ein- stök, með risastórt og tært hjarta með pláss fyrir alla, bæði menn og dýr. Þú gafst endalaust af þér og varst alltaf til staðar fyrir alla. Það var svo auðvelt að elska þig strax. Þú áttir mann við fyrstu kynni og hvað ég er þakk- lát fyrir þau því það var upphaf þeirra minninga sem ég á með þér og eru í huga mér þessa dag- ana. Fyrir það sem þú gafst mér og fjölskyldunni minni verð ég æv- inlega þakklát. Þú varst svo stór partur af uppvexti dóttur okkar og mér svo mikill klettur, allt frá því þegar við fluttum norður með Gerði pínulitla. Eins og ég varð Gerður mín strax þín og mikið ofboðslega þótti mér vænt um það og er þakklát fyrir ykkar einstaka samband. Þú varst ein- stök vinkona og hjálpaðir mér endalaust mikið með litlu döm- una mína þegar Hörður var úti á sjó. Þú varðst Erla mamma eins og Gerður mín hefur alltaf kallað þig. Síðan þegar Helgi þinn kem- ur í heiminn vorum við báðar komnar með unga sem áttu eftir að eiga svo fallega saman og innilegt samband. Með hverju barni ykkar Feykis var eins og systkini Gerðar væri að fara að fæðast. Kærleikurinn og nándin við ykkur fölskylduna var slík. Það var því ekki skrítið að um leið og við komum norður í heim- sókn var dóttirin rokin yfir á syðri bæinn til Erlu sinnar og tala nú ekki um eftir að þið flutt- uð, þá voru amma og afi bara heppin að ná að sjá hana. Ég gæti skrifað endalausar minningar af okkur og fjölskyld- um okkar saman í gegnum tíðina. Þegar við vorum að skemmta okkur, ferðast saman, spjalla um daginn og veginn sem var alltaf auðvelt með þér eða þegar við vorum að spila, fara á hestbak, í rafting, borða saman, baka pip- arkökur og –hús eða gera úr trölladeigi með krökkunum. En ég vil heldur segja hversu mikil og falleg persóna þú varst. Þú umvafðir alla með kærleika, tal- aðir fallega um allt og alla, vildir alltaf láta öllum líða vel og að öll- um mundi lynda saman, mönnum og dýrum. Þú umvafðir börnin þín og okkar allra sem vorum í kringum þig af ást og umhyggju. Þú varst ekki bara mannvinur af tærustu gerð heldur líka einstak- ur dýravinur. Enda engin furða að þú hafir tvinnað það yndisleg- asta í lífi þínu saman með ástinni þinni honum Feyki, á Víðimel þar sem þið bjugguð til svo ynd- islegt heimili fyrir ykkur og dásamlegu börnin ykkar, umvaf- in dýrum. Elsku hjartans Erla mín, takk fyrir allar samverustundirnar. Ég hlakka til að hitta þig aftur. Elín, Hörður, Gerður Amalía og Brynjar Daði. Árið 2021 höfum við hvert á eftir öðru fagnað fertugsafmæl- inu, hver með sínum hætti. Erla Björk hafði undirbúið stórt og mikið partí þar sem svo sann- arlega átti að fagna lífinu en harkaleg áminning um það hversu viðkvæmt og brothætt þetta líf er barst okkur, gömlu skólafélögunum úr grunnskólan- um, á köldum en fallegum þriðju- dagsmorgni, aðeins örfáum dög- um fyrir fertugsafmæli Erlu. Þessi grein ætti með réttu að vera ræða í afmæli en ekki minn- ingargrein sem skrifuð er ára- tugum of snemma. Þegar við minnumst Erlu dettur okkur gauragangur strax í hug, það var alltaf líf og fjör í kringum Erlu. Hún hafði við- kvæmt en stórt hjarta, mátti aldrei neitt aumt sjá og ef ein- hver var dýravinur þá var það hún Erla. Hún var réttsýn og hugrökk og hikaði ekki við að tala máli þeirra sem henni fannst brotið á. Hún var uppátækjasöm, hispurslaus, óhefluð og alveg ein- staklega ljúf og góðhjörtuð. Eftir situr minning um fallega breitt bros og prakkaralegt glott. Hvíldu í friði kæra vinkona, við erum þakklát fyrir samfylgd- ina og vináttuna. Megi allar góð- ar vættir vaka yfir og styrkja Feyki og fallegu börnin ykkar, foreldra þína, systkini, tengda- foreldra, ættingja og vini. Mikill er þeirra missir. Fyrir hönd árgangs 1981, Sauðárkróki, Freyja Rut Emilsdóttir. Fyrir 30 árum flutti ný fjöl- skylda í götuna þar sem ég bjó. Við tvær vinkonurnar sem bjuggum þarna fyrir ákváðum að við þyrftum nú að bjóða stelp- urnar í fjölskyldunni velkomnar og buðum þeim í lítið „partí“. Þarna voru fyrstu kynni mín af Erlu Björk. Strax smullum við saman og nær öll unglingsárin vorum við óaðskiljanlegar, ég, Erla og Guja. Það voru alltaf svo sterk tengsl á milli okkar. Og þegar Gujan okkar flutti svo til Danmerkur ’98 þá styrktust bara enn frekar tengslin á milli mín og Erlu. Við áttum alltaf hvor aðra að, sama hvað bjátaði á. Það slettist aldrei upp á vinskapinn á milli okkar. Að vita til þess að ég eigi aldr- ei eftir að geta hitt hana aftur, talað við hana eða knúsað finnst mér svo óendanlega erfið til- hugsun. Að fá þetta örlagaríka símtal að morgni 2. nóvember var eins og einhver hefði stungið rýtingi í hjartað á mér. Af hverju fengum við ekki að hafa hana lengur hjá okkur? Við ætluðum að verða gamlar saman og gerast fyllibyttur á elliheimilinu. Það verður þá víst bara að verða ann- ars staðar en hér á jörð. Ég hugsa til hennar alla daga, allan daginn og minnist allra góðu stundanna sem við höfum átt í gegnum öll þessi ár. Hún mun alltaf eiga risastóran stað í hjarta mínu. Fjölskyldan stendur sterk saman í sorginni og allir sem þekktu Erlu eiga eftir að minnast hennar með ást og um- hyggju í hjarta, hún var bara þannig manneskja, yndisleg og ástrík. Hvíldu í friði engillinn minn þar til við hittumst á ný Þín „bestie“, Heiða. Elsku hjartans Erla. Það dimmdi snögglega þriðjudaginn 2. nóvember þegar fréttir bárust af andláti þínu. Harkaleg áminning þess að hafa samband við gamla vini þeg- ar þig langar en ekki segja „ég geri það á morgun“ því á morgun getur það verið of seint. Fyrir um 18 árum flutti ég frá Sauðárkróki og einhvern veginn stífluðust símalínurnar á sama tíma. Sambandið við yndislega vini rykféll og þar á meðal sam- band okkar Erlu en ég vissi samt sem áður að það væri alveg sama hversu langur tími liði á milli hittinga, það yrði alltaf eins og við hefðum hist í gær. Minningarnar standa ljóslif- andi í huga mínum. Hlátrasköllin og fíflaskapurinn í vinnunni sem stytti vinnudaginn alla daga. Gleðin sem umlukti þig og hinar fjölmörgu samverustundir okkar. Ferðin til Barcelona sem hefði aldrei verið eins án ykkar Feykis og hvað þá ferðin til Parísar sem ég hugsa svo oft til. Hún var dásamleg og hefði svo sannarlega ekki verið eins án ykkar. Tæknin gerði það að verkum að ég gat fylgst með því hvað þú og þínir voru að gera í lífinu og ég gladdist sannarlega hvað allt gekk vel hjá þér. Þú og Feykir að sigla saman í gegnum lífið með fullt hús af fallegum börnum, flutt í sveitina sem þér þótti svo vænt um og lífið virtist bara vera fullkomið. En þá kom höggið og ekkert verður eins fyrir fjöl- skyldu þína og alla þá fjölmörgu sem elskuðu þig. Ég elskaði þig þá og ég elska þig enn. Hjartans þakkir fyrir genginn veg kæra vinkona. Ég sendi mínar innilegustu samúðarkveðjur til Feykis og barnanna ykkar, foreldra, systk- ina og allra þeirra sem í hjarta þér áttu stað. Þín vinkona, Ásgerður. Hversu óraunverulegt er það að sitja hér og skrifa minning- argrein um þig, þegar við vorum fyrir stuttu heima fullar tilhlökk- unar að tala um sameiginlega væntanlega fertugsafmælisveislu ykkar Feykis, sem halda átti 13. nóvember? En þess í stað komum við saman til að votta þér virð- ingu og kveðja þig mörgum árum of snemma. Eitt af því dýrmætasta sem maður eignast er góður vinur. Erla var einlæg og heilsteypt manneskja með mikla útgeislun, og henni fylgdi mikill lífskraftur. Hlýja og glaðlegt viðmót ein- kenndi alla hennar framkomu. Hún var hörkudugleg og það var fátt ef nokkuð sem stoppaði hana. Milli okkar Erlu myndaðist djúp og traust vinátta er leiðir okkar lágu saman í gaggó. Strengurinn hefur alltaf haldist milli okkar þótt seinni ár hafi tækifærin verið færri til að hitt- ast. Minningarnar eru margar frá skemmtilegum samverustundum sem koma upp í hugann, s.s. Erla Björk Helgadóttir Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.