Morgunblaðið - 13.11.2021, Page 27

Morgunblaðið - 13.11.2021, Page 27
jeppaferðir, rafting, Hondur, fiskiðjan, bústaðaferðir, spila- kvöld og ógleymanlega brúð- kaupið ykkar. En fyrst og síðast minnist ég samverustunda og símtala okkar þar sem málin voru rædd í ein- lægni og trausti. Þeirra stunda mun ég sakna sárt. Elsku Erla. Hjartans þakkir fyrir einlæga og trausta vináttu og bara allt. Elsku Feykir, Helgi, Krist- jana, Guðmundur, Árný og fjöl- skyldan öll, ykkar missir er sár- astur. En ég veit að dásamlegar minningar, styrkur og samheldni muni hjálpa ykkur að halda áfram. Þín Hulda Jónsdóttir. Erla Björk er farin frá okkur svo snöggt og óvænt. Á svona stundu er lífið svo ótrúlega ósanngjarnt og ósjálfrátt veltum við okkur hvernig það má vera að yndisleg eiginkona og móðir er hrifin svo snögglega og óvænt frá eiginmanni og ungum börn- um. Þau voru ekki gömul Feykir og Erla þegar þau urðu par. Svo samstiga og skemmtileg, hug- myndarík og hörkudugleg. Og svo komu börnin fjögur sem bera foreldrum sínum svo fagurt vitni. Þau voru samstiga í að byggja líf sitt upp og Erla var með skemmtilegar og metnaðarfullar hugmyndir um hvernig hún ætl- aði að byggja upp og hlúa að jörðinni sinni. Við erum þakklát fyrir að hafa þekkt Erlu en hugsum til elsku Feykis og barnanna. Það er nýr veruleiki sem þau þurfa nú að takast á við en baklandið er sterkt og verður með þeim. Við sendum þeim, foreldrum Erlu, tengdaforeldrum og fjöl- skyldunni allri okkar innilegustu samúðar- og kærleikskveðjur. Björg og Sigmundur (Simmi). Fjallið Glóðafeykir, um 910 m hátt, blasir við sjónum þeirra sem koma akandi úr vestri niður í Skagafjörð að Stóra-Vatns- skarði. Þá birtist Varmahlíð og Víðimelur, heimili Erlu og Feyk- is, í hjarta Skagafjarðar. Ein- hverjir örlagaríkustu atburðir Íslandssögunnar áttu sér stað í Skagafirði. Þá er Húseyjarkvíslin rétt fyr- ir neðan Víðimel og margar minningar vakna um Erlu og Feyki. Til að mynda er brúð- kaupsmyndatakan við Húseyj- arkvísl enn í fersku minni, sem tók drjúga stund. Héldu sumir að þau hefðu brugðið sér í veiði á meðan veislugestir biðu þeirra. Ekki má gleyma Héraðsvötn- um sem eru mestu fallvötnin í Skagafirði, þar sem bleikjan var veidd og síðan verkuð á Víðimel. Oft var kátt á hjalla á Víðimel á haustkvöldum sem og aðra daga. Laufskálarétt í Hjaltadal er meðal vinsælustu stóðrétta landsins. Hana sækja næstum þrjú þúsund gestir árlega síðustu helgina í september. Laufskála- rétt hefur komið mikið við sögu á Víðimel, heimili Erlu og Feykis. Ótaldar eru þær mörgu ógleym- anlegu kvöldstundir frá þeim tímum. Með síðustu verkum Erlu var húsdýragarðurinn á Víðimel þar sem ætlunin var að kynna ís- lensku húsdýrin, geitur, íslensku hænsnin, aligæsir og margt ann- að fyrir okkur. Það verður spennandi að fylgjast með fram- vindu þessa verkefnis Erlu og fjölskyldu og að við fáum að minnast hennar er við heimsækj- um húsdýragarðinn. Í hjarta Skagafjarðar er lítil laut sem geymir sögu sem hvarf á braut. Í dalnum fannst ein perla, sagt er að konan heiti Erla. Sendi Feyki og börnunum mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Birgir Sumarliðason. MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021 ✝ Guðmunda Sól- veig Harðar- dóttir fæddist í Reykjavík 27. októ- ber 1946. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akra- nesi 6. nóvember 2021. Foreldrar henn- ar voru Hörður Jó- hannesson, f. 8. nóv. 1927 í Reykja- vík, d. 22. jan. 2003, og Fanney Jónsdóttir, f. 23. mars 1927 á Siglufirði, d. 5. maí 2005. Systkini Sólveigar eru Eygló Harðardóttir, f. 7.11. 1952, Hulda Karítas Harðardóttir, f. 21.5. 1955, Brynja Harðardóttir, f. 9.3. 1960, Jóhannes Gunnar Harðarson, f. 11.7. 1964. Sólveig giftist Birni Þor- björnssyni frá Borgarnesi, f. 17.3. 1941. Börn þeirra eru: Jó- hanna Þ., f. 28.3. 1964, maki Valgeir Ingólfsson, eiga þau 2 börn og 8 barnabörn. Hörður, f. 6.3. 1966, maki Sylvía Daníels- dóttir, eiga þau samtals 5 börn og 1 barnabarn. Jökull Fannar, f. 3.4. 1975, maki Margaret Taaka. Framan af ævi sinni sinnti hún ýmsum störfum, meðal annars á saumastofu, í fisk- vinnslu o.fl. Vann hún í um tvo áratugi sem starfsmaður íþróttamiðstöðvar- innar í Borgarnesi. Sólveig vann lengi vel sem verkstjóri hjá Eðalfiski í Borg- arnesi, undi hún hag sínum þar vel og lauk þar sinni starfsævi. Matreiðsla og bakstur var henni mjög kærkomið og tók hún iðulega að sér veislur fyrir sitt samferðafólk. Þau Sólveig og Björn voru stofnfélagar í Félagi húsbílaeig- enda og ferðuðust jafnt innan- lands sem utan. Sólveig var einnig virkur meðlimur í Svannasveitinni Fjólu. Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju 13. nóvember 2021 klukkan 14. Mig langar með örfáum orðum að þakka þér Sólveig fyrir allt. Mig langar að byrja á því að þakka þér fyrir það hvað þú varst góð amma við strákana, fyrir það verð ég þér ævinlega þakklát. Þeir áttu alltaf athvarf hjá þér, hvenær og hvar sem er varstu boðin og búin að gera allt fyrir þá. Það hefur eflaust oft tekið á að fá þrjá litla fjöruga gaura yfir helgi en alltaf voruð þið Baddi tilbúin. Heimilið ykkar var alltaf opið öllum og mikill gestagangur. Á sumrin hurfuð þið svo burt, þar sem þið ferðuðust mikið hérlend- is og erlendis á Gullvagninum. En það var gaman að heimsækja ykkur hingað og þangað um land- ið. Ég borgarbarnið skildi aldrei hvernig þú gast borið fram því- líkan veislumat fyrir okkur án fyrirvara á gashellum bílsins. Þú kenndir mér svo margt, ekki bara í eldamennsku og bakstri heldur einnig um lífið. Við vorum ólíkar en þess þá heldur held ég að þú hafir haft svona mikil áhrif á mig. Takk fyrir allt. Ég votta öllu fólk- inu þínu samúð mína, missir þeirra er mikill. Með kveðju, Unnur Berglind. Það er eiginlega hálfóraun- verulegt að setjast niður og skrifa minningargrein um þig, Sólveig amma. Þetta gerðist allt svo hratt, við erum ekki búnir að átta okkur alveg á því að þú sért farin. Aðeins viku eftir að þú hélst upp á afmælið þitt með stórri veislu í Borgarnesi, þar sem öll fjölskyldan var saman- komin eins og vanalega, þurftum við að kveðja þig. Við hefðum ekki getað óskað okkur betri ömmu, þú gerðir allt fyrir alla. Þegar við komum í heimsókn varstu iðulega búin að baka og elda góðan mat, helst uppáhaldið okkar. Aldrei var neitt í matinn sem okkur fannst vont og aldrei fórum við frá þér svangir. Þegar Haukur og Hákon bjuggu hjá ykkur afa eitt sumarið þá var okkur hætt að lítast á blik- una, allar þessar kræsingar … Við báðum þig því að elda eitt- hvað „létt og hollt“, stungum upp á steiktu spínati, bara hitað á pönnu. En nei, það fannst þér al- veg ómögulegt og skelltir nóg af smjörlíki yfir, til að gefa því nú eitthvert bragð. Við hlæjum enn að þessu. Spínatið var gjörsam- lega óætt! Við munum alltaf minnast þess þegar við vorum yngri og fengum að fara einir í einu í húsbílaferð með ykkur afa. Líka þegar þið sögðuð Hauki að diskurinn með Gullvagninum væri bilaður, þar sem lagið hafði verið í stanslausri spilun hálfa hringferðina og þið komin með meira en nóg. Ótelj- andi útilegur, sumarbústaða- og utanlandsferðir, af nógu er að taka. Við munum enn þegar við vorum öll búin að koma okkur fyrir í Fríhöfninni í Keflavík og biðum eftir þér og afa. Þú hafðir ekki hugmynd um að við færum öll með ykkur til útlanda og þú fórst að gráta af gleði. Þú dekraðir við okkur alla. Við þurftum að passa að koma til þín svangir því þú varst annars ómöguleg ef þú gast ekki gefið okkur eitthvað að borða. Svo komstu á eftir okkur út í bíl þeg- ar við vorum að fara, með kökur eða annað gotterí sem við áttum að taka með okkur í bæinn. Hall- dór rifjar upp mörg skipti þar sem hann var kominn út í bíl og þrætti við þig um að fækka kök- unum og matnum sem hann átti að hafa með sér í nesti. Eða, á hinn bóginn, að reyna að sann- færa þig um að hann þyrfti ekk- ert að deila góðgætinu með hin- um bræðrunum sem voru ekki með í för. Þú varst líka meiri bakara- meistarinn: bollurnar þínar á bolludaginn og næstu daga á eft- ir, með rommbúðingnum fræga; randalínur fyrir öll jól, hver fékk sína uppáhaldstegund og nóg af henni; og slagur um endabitann á grænu kökunni. Það var alltaf veisla hjá þér og mikill gesta- gangur. Við gerðum heiðarlega tilraun til að fá uppskriftina að slátrinu þínu en það gekk illa. Þú byrjaðir bara á fullu, skelltir í balann áður en við náðum að mæla eitt né neitt og við þurftum að vigta það sem eftir var í pok- unum til að átta okkur á því hversu mikið þú notaðir af hverju fyrir sig. Við gátum heldur aldrei sagt nei við þig, en það var eitt- hvað sem Fannar og pabbi nýttu sér óspart. Þeir fengu þig til að hringja í okkur fyrir sig þegar við vorum búnir að segja nei við þá, en auðvitað sögðum við alltaf já við þig. Eina rifrildið sem við átt- um var yfir því hver ætti að borga þegar við versluðum eitthvað handa þér í bænum. En ef við sögðum þér að þetta hefði ekkert kostað og við stolið vörunum gastu ekkert sagt og við kom- umst hjá því að þiggja greiðslu. Jú, og þegar við vorum í Borg- arnesi í sóttkví var erfitt að fá þig til að koma ekki inn til okkar, þá skömmuðum við þig. Umhyggjan fyrir okkur var þér alltaf efst í huga. Minningarnar eru svo margar, þú varst svo stór hluti af okkar lífi. Tilhugsunin um jólin án þín er erfið og við eigum eftir að sakna þín mikið. Takk fyrir allt, amma. Þínir Halldór Friðriks, Hákon Örn og Haukur Ingi Harðarsynir. Ég trúi því ekki að þú sért far- in frá okkur því við vorum að fagna 75 ára afmælinu þínu þar sem þú varst bara amma mín hress og kát og viku seinna ertu ekki lengur hjá okkur. Amma var ótrúleg kona sem kvartaði aldrei og var hörkudug- leg allt sitt líf og allir sem þekktu hana vissu að hún var með hjarta úr gulli. Hún stoppaði aldrei, var ekki mikið fyrir að setjast niður í veislum og þess háttar var alltaf að passa upp á að öllum liði vel og skorti ekki neitt og að sjá til þess að allir aðrir borðuðu nú nógu mikið. Allir í kringum hana voru alltaf í fyrsta sæti. Mínar fyrstu minningar snú- ast einmitt um þetta; mér leið alltaf eins og ég væri í fyrsta sæti og börnunum mínum leið alltaf eins og þau væru í fyrsta sæti. Ég var svo heppinn að ég fékk oft að fara með ömmu og afa í húsbílnum og húsbíllinn var hennar líf og yndi, elskaði hún fátt meira en að þjóta af stað með afa hingað og þangað um landið, leggja bílnum og bjóða öllu öðru húsbílafólki upp á kaffi og með því. Ég fékk að fara margar ferð- ir með þeim og ferðir sem munu alltaf eiga mikilvægan stað í hjarta mínu og man ég sérstak- lega eftir því þegar ég fékk að fara með í STÓRU ferðina. Amma kenndi mér ansi margt, t.d. að drekka kaffi, en það var nú þannig að það var kaffi, mikið af mjólk, ennþá meiri sykur og svo var mjólkurkexi dýft ofan í. Einnig var ég það heppinn að þegar ég hóf mína skólagöngu og nánast alla skólagönguna var amma að vinna í íþróttahúsinu og það var ómetanlegt að hafa hana þar. Allir mínir vinir þekktu hana – oft undir kókómjólkur-amman þar sem undantekningarlaust eftir leikfimi eða æfingu fékk maður kókómjólk hjá ömmu og ef hún var ekki að vinna hljóp mað- ur bara upp Þorsteinsgötuna heim til ömmu og afa og fékk kókómjólk þar. Amma var líklega með mesta jafnaðargeð sem um getur því sama hvað gekk á var hún alltaf róleg og ljúf, sama hversu mikil læti maður var með, hvað þá þeg- ar barnabarnabörnin komu, sem voru sko miklu óþekkari en við bræðurnir, þá varð hún bara enn ljúfari. Það var einstaklega gam- an að grínast í ömmu. Gerðum við mikið af því t.d. að láta barna- börnin kalla hana langömmu og taka myndir af henni því henni fannst það einstaklega leiðinlegt. Í flestum fjölskylduboðum gerð- um við náttúrlega í því að taka myndir af henni, hún var ekki mikið fyrir að vera í sviðsljósinu því hún vildi að allir aðrir væru það. Það er náttúrlega ekki hægt að tala um ömmu án þess að minnast á tvennt. Það fyrra er púðursyk- urstertan hennar, sem er nánast orðin heimsfræg eða allavega fræg hjá öllum sem þekktu hana. Svo er það béarnaisesósan henn- ar, sem er, eins og púðursykur- stertan, orðin að fjölskyldurétti og ef þú vogar þér að borða þetta ekki þá ertu ekki fullgildur fjöl- skyldumeðlimur! Líf okkar verður aldrei eins án þín og söknuður okkar mun vara lengi og oft vera ansi sár. En ef þú hefur kennt mér eitt- hvað þá veit ég að þú myndir vilja að allar okkar minningar um þig væru um gleði, ánægju og mat. Ég er þakklátur fyrir að þú varst stór hluti af mínu lífi, ég er þakklátur fyrir að þú varst stór hluti af lífi barnanna minna, þú ert besta amma og langamma sem hægt er að hugsa sér. Við elskum þig og munum allt- af elska þig. Ást og söknuður, Björn Sólmar. Guðmunda Sólveig Harðardóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KARL BJARNASON múrari, Klettabergi 34, Hafnarfirði, lést 3. nóvember. Jarðsett verður í kyrrþey frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 17. nóvember klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni, https://youtu.be/OTFOB0wi338. Hildur Þorsteinsdóttir Auður Baldursdóttir Erling Pétur Erlingsson Þorsteinn Sveinn Karlsson Úlfhildur Jónasdóttir Svanhildur Karlsdóttir Anton Magnússon Lilja Guðríður Karlsdóttir Jónas Þór Oddsson og barnabörn Bróðir minn, ÓLAFUR ORMSSON rithöfundur, Austurbrún 2, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 27. október. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 16. nóvember klukkan 13. Ágúst Þór Ormsson og fjölskylda Okkar elskulegi, ÖRN ÁRNASON, Knowlton, Kanada, lést laugardaginn 21. ágúst. Fyrir hönd fjölskyldnanna, Inga Elín Arnardóttir Margrét Árnadóttir Ástkær faðir okkar, afi og langafi, JÓN KRISTINSSON skipstjóri, Fífuhvammi 15, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans 26. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ragnhildur Jónsdóttir Brynhildur Jónsdóttir Sigríður Haraldsdóttir barnabörn og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, INGA H. ÁGÚSTSDÓTTIR, snyrti- og fótaaðgerðafræðingur, lést þriðjudaginn 9. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ágúst Guðmundsson Þuríður Reynisdóttir Lýður Guðmundsson Sigrún Guðmundsdóttir Kristján Kristjánsson Lovísa Ágústsdóttir Ágústa, Tómas, Alexander og María Hjartkær eiginkona mín, ÞÓRA DAVÍÐSDÓTTIR, Suðurlandsbraut 60, sem lést 27. október, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánudaginn 15. nóvember klukkan 15. Streymt verður frá athöfninni á: https://youtu.be/NiubBn4ki0A Minnt skal á þakkarskuld við hjúkrunarheimilið Mörk. Ólafur Pálmason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.